Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 2

Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 2
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 „í hverju er drengurinn," heyröum viö roskna konu segja um leið og annar pilsa-strákurinn okkar gekk framhjá niöur í Aust- urstræti. Var hann í pilsi? Eins og vitaö er hafa kynin færst nær hvert ööru hvaö ytra útlit snertir. Stelpur klæöast strákafötum og ganga meö knallstutt hár, sem líkist meira heföbundinni herragreiöslu. Og strákarnir eru meö sítt hár og farnir aö mála á sér andlitið. Þaö er því ef til vill ekki langt í þaö, aö þeir fari aö ganga í pilsum dag- lega. Síöastliöiö vor sýndi tennis- stjarnan Björn Borg, sem nú hef- ur snúið sér aö fataframleiöslu; pils fyrir herra. Sú tíska virðist ekki hafa fest rætur í sumar, aö minnsta kosti höfum viö ekki frétt af karlmönnum í sumarpilsi hvorki hér né úti í hinum stóra heimi. En ef til vill er ekki langt í þaö, aö karlmenn fari aö ganga í pilsum og kjólum og þaö þyki jafn sjálfsagt aö sjá konur í jakkaföt- um. Viö gerðum þaö aö gamni okkar aö biöja Geröi í Flónni aö klæöa tvo stráka í pils og eins konar mussur, þar sem sjá mátti í bæöi hné og leggi. Síðan fylgd- umst viö meö viöbrögöum fólks viö þessum klæðnaði strákanna og festum á filmu. Segja má aö þessi múndering hafi vakiö nokkra undrun og nokkrir nær snúiö sig úr hálsliön- um er þeir litu drengina augum. Aörir létu þetta afskiptalaust og fannst ekkert tiltökumál þó karlar klæddust aö hætti kvenna. Svo var þaö þriöji hópurinn. Af svip- brigöum hans mátti lesa, að hon- um fannst þetta bæöi óviöur- kvæmilegt og hreinlega fyrir neö- an allar hellur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.