Morgunblaðið - 27.09.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985
B 7
Mynd frá tískuaýningu f Ninon árió 1942.
Sýningarslúlka var Guöný Borndsan.
Brúöarmær var Guörún Johnsen, brúöarsveinn Helgi
Oddsson.
Brúdarkjóllinn 1942
„Brúöarkjólar — brúðarslör,
Ninon — Bankastræti 7.“
Ofanskráö auglýsing birtist oft í blööum og heyrðist í
útvarpi fyrir nokkrum áratugum. Verslunin Ninon flutti inn
mikiö af brúöarskarti, kjólum og höfuðbúnaöi allskonar,
aö sögn Ingibjargar Helgadóttur, en hún rak verslunina um
árabil. Hún haföi viðskiptasambönd viö góö fyrirtæki, bæöi
í Evrópu og Bandaríkjunum, og mun hafa verið eina versl-
unin sem flutti inn tilbúna brúöarkjóla um langt skeiö.
Ingibjörg man eftir aö hafa selt átján kjóla fyrir eitt ákveðiö
brúökaup hór í borg, þ.e. brúðarkjólinn og sautján aöra
fyrir boösgesti. Árið 1942 hólt verslunin Ninon tískusýn-
ingu, sem þótti talsvert nýmæli á þeim tíma, þar var aö sjálf-
sögöu sýndur brúöarkjóll og birtist hér meö mynd tekin á
þeim tíma. R ■
Brúðarkjólaleiga
Katrínar,
Grjótaseli 16, leigir út kjóla, höfuö-
skraut o.fl. fyrir kr. 3.000.00. Er um
nokkrar geröir í hvitu aö ræöa, en
Katrín segist siöar veröa meö
kremgula kjóla.
Brúögumarnir klæöast oftast
svonefndum smókingfötum, þó
kjólföt og finni jakkaföt sóu einnig
notuö. Herragaröurinn, Aöalstræti
9, selur smókingföt meö skyrtu,
slaufu og mittislinda frá um kr.
10.000.00. Hvítur jakki og dökkar
buxur sem yngri menn kaupa
gjarnan viö þetta tækifæri kosta
frá um kr. 9.500.00. Viö slík föt er
yfirleitt notuð hvít skyrta og slaufa
og mlttislindi í sama lit, t.d. vín-
rauöum eöa svörtum lit. Sumir
kjósa svartan mittislinda en slaufu
í öörum lit, t.d. bleikum, bláum,
rauöum eöa gulum.
Herradeild PÓ, Austurstræti 14,
selur smókingföt á kr. 9.300.00,
skyrtur frá kr. 1.290.00, slaufur á
kr. 330.00 og mittislinda á kr.
750.00. Herrahúsiö, Aöalstræti 4,
býöur smókingföt á kr. 8.980.00,
skyrtur frá kr. 1.300.00, slaufur frá
kr. 290.00 og mittislinda á kr.
980.00. Hægt er aö sérpanta hvit
smókingföt og kosta þau
13.000.00—14.000.00 kr. Þá er
einnig hægt aö leigja sér venjuleg
smókingföt, þ.e. buxur og jakka,
og kostar slíkt 1.150.00 kr.
Alqengt verö á brúöarvöndum
viröist vera frá kr. 1.500.00 til
3.000.00. Venjulega eru notuö lif-
andi blóm, ef óskaó er eftir sér-
stökum tegundum eöa litum er
vissara aö panta vöndinn meö
góöum fyrirvara.
Verulegur verömunur viröist
vera á myndatökum á Ijósmynda-
stofum og kemur þaö heim og
saman viö könnun er Verðlags-
stofnun geröi fyrir nokkrum árum.
Einnig er misjafnt hvaö innifaliö er
í veröinu t.d. fjöldi mynda og
stækkanir. Viö höföum samband
við 4 Ijósmyndastofur og kom í Ijós
aö hjá þeim kostaöi myndataka af
brúöhjónum frá kr. 2.800.00 til kr.
5.500.00.
Veisluföng eru afar mismunandi,
flestum finnst þó kampavín og
kransakökur ómissandi. Góö teg-
und af kampavíni kostar frá kr.
660.00 til kr. 760.00 og reikna má
meö aö 6—8 glös fáist úr hverri
flösku. Viö höföum samband viö 3
bakarí og hjá þeim kostuöu 50
manna kransakökur frá kr.
3.500.00 til kr. 5.000.00.
Hér hefur veriö stiklaö á stóru
og aöeins nokkur atriöi nefnd er
taka veröur meö í reikninginn þeg-
ar kostnaöaráætlun er gerö fyrir
giftingu. Sjálfsagt er viö þetta
tækifæri eins og önnur aö gefa sér
tima til aö bera saman verö og þaö
sem í boöi er hverju sinni.
Texti: HJR
HEIMILISHORN
Bergljót Ingólfsdóttir
Ef afgangur er af
grjónagraut
Grjónagrautur soöinn úr
mjólk, vatni og hrísgrjónum
þykir mörgum góöur, jafnvel tal-
inn herramannsmatur, ekki síst
þegar út á er látinn rjómi eöa
rjómabland. Nú er hægt aö
kaupa tilbúinn graut, sem aðeins
þarf aö hita upp og heföi ein-
hvern tíma þótt saga til næsta
bæjar. En hvaö um þaö. Meö
breyttu heimilishaldi koma
breyttir siöir. Þeir eru þó áreiö-
anlega margir sem sjóóa sinn
graut upp á gamla mátann enda
fyrirhafnarlítil matseld, og spar-
ast viö þaö peningar, því alltaf er
dýrara aö kaupa þaö sem tilbúið
er. En ef afgangur er af grautnum
er hægt aö nýta hann í ábætis-
rétti, kökur og lummur, auk þess
sem hægt er aö hita hann upp.
Sítrónu-hrísgrjóna-
kaka meö apnkósum
Hrísgrjónagrautur úr 'h I af
mjólk og 1V4 dl af hrísgrjónum,
þ.e. þykkur grautur.
75 g smjörlíki
'h sítróna
50 g sykur
2—3 egg
1 ds. niðursoðnar apríkósur
Smjörlíki, sítrónubörkur, sykur
og eggjarauöur hrært vel. Saman
viö er hrært köldum grautnum,
sem þynntur hefur vriö meö sítr-
ónusafanum. Aö síöustu er stíf-
þeyttum eggjahvitunum bætt
varlega saman viö. Helmingur
hrærunnar er settur í smurt form,
yfir eru lagðar apríkósurnar (lög-
urinn látinn renna vel af), síðan
hinn helmingurinn látinn yfir,
nokkrir smjörbitar látnir á víö og
dreif yfir. Bakaö í ofni 200° C í 30
mín. Borin fram volg meö köld-
um rjóma.
Hrísgrjónabúðingur
'h I hrisgrjónagrautur
2 matsk. brætt smjörliki
2 matsk. sykur
saxaöar möndlur
2 egg
Kaldur grauturinn er hræröur
þar til hann er laus viö kekki,
smjörlíkinu bætt í ásamt möndl-
unum. Egg og sykur þeytt vel
saman og bætt út i grautinn.
Hræran sett í smurt kringlótt
form og bökuö neöst í ofninum
viö 200xC í 30 mín. Búðingurinn
er borinn fram volgur, heitur eöa
kaldur meö þeyttum rjóma og
góöu aldinmauki.
Grautarlummur
300 g grautur
100 g hveiti
1 egg
2 matsk. sykur
1 'h dl mjólk
vanilludropar ef vill
Grauturinn er hræröur þar til
hann er jafn, sykri og eggi hrært
saman viö, síðan er hveiti bætt í
og aö síðustu mjólkinni og van-
illudropum. Látiö meö skeiö á
smuröa pönnu og bakað á báö-
um hliöum. Lummurnar eru góö-
ar bæði með sykri og sultu, og
bestar eru þær nýbakaöar og
volgar.
maöur í Gullbringusýslu
1882-1884.
Séra Oddur var frumkvöðull í
slysavarnamálum og lét mál sjó-
manna sig miklu skipta. Eftir hann
liggja rit og greinar um fiskveiöimál
ofl. Má þar nefna: Sjómannabæn
(1888), Lffsvon sjómanna (1889),
Leiöir og lendingar í fiskverúm,
Sæbjörg myndskreytti tímarit
(1892)og Hjálpræöisorö (1893).
Þau Anna og Oddur eignuðust
þrettán börn en þar af létust tvö í
bernsku. Frumburöurinn hlaut
nafnið Vilhjálmína Þórunn og má
gera því skóna aö meö nafninu hafi
dóttir viljaö sýna foreldrum sínum
viröingu og reynt aö bæta fyrlr þaö
brot aö taka ástina fram yfir óskir
foreldra sinna.
Flutt til Kanada
Oddur fékk lausn frá embættl
áriö 1894 og flutti til Kanada með
konu sína og flest börnin. Hann var
prestur íslenskra safnaöa í Nýja
Islandi og Selkirk til ársins 1903,
en þá sagöi hann sig úr lúthersku
kirkjufélagi islendinga og var síöan
farandprestur á eigin vegum i
Westbourne, Manitoba og Þing-
vallabyggö i Saskatchewan. Séra
Oddur gaf sig nokkuö aö lækning-
Sóra Oddur V. Qfdaton og kona hana, Anna Vilhjólmsdóttir fré Kirkjuvogi, meö börn sín og tengdason.
Framst á myndinni eru Ragnheiöur, Ágúst og Anna. Standandi frá vinstri: Jakobína Karen, Rösa Aldís,
Ótafur Ketilsson, tengdasonur, Steinunn kona hans, Vilhjólmína Þórunn, Sigrtöur ogGfsli.
um og lagöi stund á þau fræöi i
RochesterN.Y.
Þó aö séra Oddur yfirgæfi söfnuð
sinn í Grindavik hefur hann ekki
gleymst í því héraöi. Nýlegur bátur
Slysavarnafélagsins í Grindavík
fékk nafnið Oddur V. Gíslason.
Segir þaö sina sögu.
Saga hans hefur oröið fleirum
minnisstæð. Fyrir nokkrum árum
kom út á vegum Sögufélagsins
bókin Oddur í Rósuhúsi, eftir Gunn-
ar Benediktsson.
Oddur (f. 1836) lést í Winnipeg
áriö 1911, Anna (f. 1851) lést áriö
1927. Frá þeim hjónum er kominn
mikill ættbogi í Vesturheimi. Af
börnum þeirra, Steinunni og VII-
hjálmi, sem uröu eftir á íslandi er
þaö aö segja, aö Vilhjálmur, sem
var bóndi í Höfnum, dó barnlaus.
Steinunn giftist Olafi bónda Ketils-
syni á Kalmannstjörn, þau eignuö-
ust sex börn, komust fimm þeírra
til fulloröinsára. Einn sona þeirra
Steinunnar og Ólafs er Oddur Ól-
afsson læknir og fyrrverandi al-
þinglsmaöur.
Heimildir: öldin sem leið. Prestatal og
prófastaeftirSvein Nielsson. islendingar
i VesturheimíeftirÞorstein Matthiasson.
Bergljót Ingóffsdóttir tók saman