Tíminn - 25.09.1965, Síða 3

Tíminn - 25.09.1965, Síða 3
LAUGARDAGUR 25. september 1965 3 TÍMINN Ingólfur Finnbjörnsson, aðalvaröstjóri: Svar við greinagerð bæjar- fdgetans í Kdpavogi En þessar svokölluðu ávirðing- ar mínar eru að því er mér finnst, ef fógetinn lúrir ekki á einhverju, heldur spaugilegar, svo sem að ég hafi átt að kalla hann nöfnum á lögreglustöðinni, einkum að því er mér skilst „Almættið” ofl. Hann vænir mig einnig um það trúnaðar brot, að ég hafi átt að taka ljós- rit af einhverju bréfi upp úr rusla körfunni á gömlu lögreglustöðinni í nóvember mánuði 1964, þar sem vinnustaður minn var þá, opinn staður almenningi. (Betur fyrir fó getann að nokkurt tilefni til trún aðarbrots geti hafa verið fyrir hendi). Þá á ég að hafa sagt, að fógetinn hafi látið setja ranglega í gæzluvarðhald tiltekinn mann með meiru. Einnig að ég hafi haft í frammi andróður á móti stöðum lögreglumanna, eins og þær eru framkvæmdar á Reykjanesbraut- inni. Varðandi það atriði vildi ég biðja fógetann að kanna, hver hafi tekið niður skrfleg fyrirmæli mín um stöðumar, á meðan ég var f jar vegandi í orlofi mínu nú í sumar. Þessi fyrirmæli voru vélrituð og undirrituð eigin hendi, ég fest þau sjálfur upp á til þess gerða töflu á lögreglustöðinni. Þau voru sett upp að því er mig minnir um svipað leyti og skrifleg fyrirmæli varðandi stöðurnar bárust mér í hendur. Ég efast ekki um að þessi fyrirmæli kannast margir lögreglu menn við. Eins og ég hef sagt, hef ég ekki fengið í hendur plagg það, sem hinar meintu ávirðingar mínar eru festar á, ég hlýt að halda, að fógeti hafi eitthvað fleira í poka- hominu, ef marka má anda þann er skrif hans í Vísi og Morgun- blaðinu gáfu til kynna. Hann kem ur þá bara með það, blessaður, ef honum sýnist svo, ég styggist ekki við það. Ég hefði heldur kosið að geta rætt þessi mál við fógetann inn- an stofnunar, eins og hann lét í veðri vaka, en mér var fullljóst að hverju hann stefndi með skýrslutökum sínum og síðar klög unum til bæjarráðs. Það má öllum vera ljóst, sem fylgjast með þessum málum og þekkja nokkuð til aðstæðna, að eitthvað hefur verið að, og tel ég mig hafa gert fógetanum stuttlega grein fyrir minni skoðun á því, þegar hann kallaði mig fyrir og krafði mig um skriflega skýringu á uppsögn lögreglumanns nr. 2, hr. Ellerts Tryggvasonar. Ég gagn rýndi þar hans yfirstjóm á lög- reglunni okkar á milli tveggja, og vonaðist til að hann staldraði þá við og athugaði málið, en raunin varð önnur, eins og nú er komið í ljós. Áður hafði ég sagt honum á fundi, er hann hélt með okkur aðalvarðstjómnum, ásamt hinum nýskipuðu aðstoðarvarðstjómm, toiitt persónulega álit á stöðunum í sumar, en tók fram og undir- strikaði, að ég teldi skyldu mína að framfylgja fyrirmælum hans í Skemmtikvöid skáta á Suðvesturlandi Bæjarfógetanum í Kópavogi hef ur orðið tíðrætt um það, sem hann kallar meintar ávirðingar mínar. í Vísisgrein þann 17. sept. er talað um, að yfirmenn í Kópavogsiög- reglunni hafi kært mig, en , Morg- unblaðinu þana 18 sept. segir fó- geti ,að einn af yfirmönnum lög- reglunnar hafi kært mig þann 31. ág- sl., og finnst mé- þá fækka klÖgumönnunum nokkuð. Ekki er mér kunnugt um, hver hann er, klögumaðurinn, þar sem ég hef ekki fengið nein plögg upp á svo- kallaðar ávirðingar mínar, og hef- Ur mér verið tjáð af bæjaryfir- voldum, að þau séu í vörzlu lög- manns bæjarins, og ekki megi af henda þau fyrr en setudómari hafi verið skipaður, samkvæmt beiðni fógetans. Hann hefur skýrt frá því, að hann hafi kvatt mig á sinn fund þann 6. sept. sl. og að mér sé kunnugt um svokallaðar ávirðingar mínar. Það er rétt, að ég mætti á skrifstofu hans um kl. 14 þann 6. sept sl. og að þar 6purði hann mig tiltekinna spuminga, _ sem ég svaraði öllum neitandL Ég man ekki betur en að hann hafi talað um, að þetta ætti að vera athugun innan stofn- unarinnar, einnig frétti ég frá mönnum þeim, er hann hafði tek- ið skýrslur af varðandi þetta mál, að þetta ætti að vera innan stofn unarinnar. Þann 7. sept. fær svo fógeti áheym hjá bæjarráði Kópa vogs, og er þá hr. Ingibergur Sæ- mundsson, aðalvarðstjóri, og sam starfsmaður minn í mörg ár með honum. Ég hef frétt af þeim vettvangi, sem ég lít svo á að sé opinber, þar sem fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fyrir bæjarstjórn- arfundi, að fógeti hafi flutt þar af munni fram þau klögumál á mig, sem hann hefur kallað meint ar ávirðingar mínar, og að sam- starfsmaður minn ofannefdnur hafi verið honum til styrktar þar. Ég hef með vilja látið dragast að svara greinum fógetans. Ég vildi kanna hvaða — áhrif ofan- nefnd skrif í Vísi og Morgunblaðs- ins hefðu á fólk. Menn sem h*fa lesið skrif fógetans og Vísir, eru allir á einu máli um, aí, ég hljóti að hafa framið eitthvert ódæði, Ég hef heyrt ýmsar spaugilegar útgáfur af því. Víkingafylki S. F. R. hefur! ákveðið að efna til skemmtunar fyrir skáta á Suðvesturlandi í dag laugardag. Skemmtun þessi á að vera nokkurs konar „sárabót* fyrir Víkingamótið í Innstadal, sem af- lýsa varð vegna óhagstæðrar veðr áttu. Allir Þeir skátar sem greitt hafa tryggingargjald eru boðnir, en þar sem vandað hefur verið til skemmtunarinnar vilja Víkingar gefa öllum skátum kost á að sækja skemmtunina gegn vægu gjaldi. ! Skemmtunin verður í Skátaheim ilinu við Snorrabraut og verður heimilið opnað kl. 8 e. h. stund víslega. Eins og fyrr segir verður vandað til skemmtiatriða, söngur, leikþættir og á eftir verður stiginn dans. Það er von Víkinga að sem flest ir skátar, sem ætluðu að dvelja á Víkingamótinu í Innstadal mæti á .skemmtuninni, og einnig allir þeir skátar sem áhuga hafa á að skemmta sér í góðum skátahóp. hvívetna, og að ég teldi mig hafa gengið hart fram í að framfylgja boði hans í þessu tiltekna atriði sem öðrum. Varðandi meintan andróð- ur minn á fyrirkomulagi á stöð- um lögreglumanna á Reykjanes- braut tel ég að eitthvað hafi skol- azt til. Þeir lögreglumenn, sem hafa staðið þar, hafa sumir hverjir tjáð mér, að í sumar á orlofstíma bilinu, þegar umferðin er miklu mipni, hafi stundum, einkum á sunnudagsmorgnum og helgidög- um, varla sést bíll á brautinni, eða gangandi vegfarandi, og að þeim þætti tilgangslaust og fáránlegt, að standa á brautinni, þegar eng in ástæða væri til, eins og það væri á hinn bóginn nauðsynlegt þegar umferð er meiri og birta tekur að dvína, og að þetta væri líka framkvæmt að töluverðu leyti í aukavinnu. Ég hafði alltaf uppi sömu svörin, að það væri tómt mál um að tala, að um þetta væri ströng fyrirmæli, sem okkur bæri að fara eftir, hvað sem okkar per- sónulega áliti liði. Ég kalla það ekki andróður, þótt menn ræði um framkvæmd tiltekinna hluta sín á milli, ef þeir gera sér að öðru leyti ljósa skyldu sína um að hlýðnast fyrirmælum yfirmanna. Ég hef einnig sagt fógeta, að mér þætti skrítið af honum og leggja blessun sína yfir það með nafni sínu og stimpli, að misræmi kæmi fram í aukavinnu, sem er Framhald á bls 12 ,BÖRN PÁ ISLAND' Margir kennarar hafa tíðum kvartað, og það með réttu, vegna skorts á hjálpargögnum í starfi sínu og fábreyttum og fátæklegum námsbókum. Slíku tali fer nú væntanlega smám saman að linna í náinni framtíð, cnda aukinn skilningur í þessum efnum fyrir hendL og mikið hefur verið bætt úr hin síðari ár. Fjarri er þó að cnn sé að fullu að gert, sem flestir vita, því að slík útgáfustarfsemi þolir að sjálfsögðu hvorki stöðvun né stöðnun. Þróun, hraði og vaxandi kröfur „dagsins í dag“ kalla sífellt á örar breytingar varðandi efni og útlit námsgagna. En ekki er ætíð nægjanlegt að mála og mynda. Það verður einnig að kynna hlut ina. Því miður fara margir nýtileg ir hlutir fram hjá okkur, sem við kennslu fáumst. Það er og vissu lega okkar er þörfnumst að vera vökulir í leitinni að nýju efni og aðferðum. Tilgangur þessara lína, er ann ars að benda þeim kennurum ungl ingastigsins, er segja til í dönsku, á bók er kom út í fyrra, á vegum dönsku kennarasamtakanna. „Börn pá Island- eftir Ármann Kr. Ein arsson kennara, í Þýðingu Paul Bo Christensen. Téða bók hafa nokkrir kennarar notað s. 1. vetur, ásamt venjulegum kennslubókum í dönsku. Erum við allir sammála um, að þetta hafi gefið góða raun, og viljum því gjarnan mæla með kverinu og a. m. k. hvetja við- komandi kennara til að kynna sér það. Efnið er hollt og heilbrigt hverju barni og unglingi, atburðir og ævintýri úr lífi íslenzkrar æsku að starfi og leik. Börnin tóku almennt bókinni vel og lásu hana flest af kostgæfni sér til ánægju. Eignuðust þau þar aukinn orða forða í dönsku yfir mörg viðfangs efni úr kunnugu umhverfi, enda málið lét og lipurt á bókinni. Eg hygg/að fæstir hafi notað hana til heimanáms, heldur frem ur til hljóðlestrar undir lok kennslustunda, með leiðsögn. hjálp og síðar könnun kennara. „Börn pá Island“ fæst í bóka verzl- Sigfúsar Eymundssonar, er myndskreytt. snotur að útliti og ódýr. Guðm. Óskar Ólafsson mæri Kína og Sikkim í boði indversku stjórnarinnar. Myndin var tekin á stað þar sem kjnverskir hermenn höfðu skotið á landamæraverði. Á VÍÐAVANGl Reykjavík og Kópa- vogur Morgunblaðið hefur heldur en ekki orðið hverft við, Þegar bent var á það hér í Tímanum, að ekki væri sérstök ástæða til þess fyrir íhaldið í Reykjavík að hæla sér mjög af framlög u.m tii skólabygginga síðustu árin, þar sem staðreyndin væri sú, að Reykjavík hefði byggt barna- og gagnfræðaskóia fyrir 350 kr. á hvern íbúa að meðal tali á árj síðustu fimm árin, en hinn ungi og fátæki nágranna bær, Kópavogur, fyrir 525 kr. á íbúa á ári sama árabil. Og siðasta árið hefði Reykjavík byggt skóla fyrir 440 kr. á íbúa en Kópavogur fyrir 1000 kr. á íbúa. í gær upplýsir Morgunblaðið, að í Kópavogi scu ætlaðar 8,7 millj. til skólabygginga á árinu 1965, en í Reykjavík eru ætlað ar 39 millj líka samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, sem telur þetta alveg einstak an myndarskap af Reykjavík. Þetta verða 485 kr. á íbúa í Reykjavík en 1000 kr á íbúa í Kópavogi. Og Morgunblaðið hefur meira í pokahorni. Það birtir heilsíðugrein með myndurn um þau einstæðu afrek, að Reykja vík taki 20 nýjar kennslustof ur í notkun á þessu hausti eða fyrir áramótin. Þetta er auð- vitað gott og blessað. En ungi nágrannabærinn, Kópavogur,^ sem allt þarf að byggja upp \ senn, tekur í notkun 5 kennslu stofur á sama tíma. Til þess að jafnast á vjð það, hefði Reykjavík Þurft að taka i notk un 50 kennslustofur en ekki 20. í fyrrahaust tók Kópavogur í notkun 9 nýjar kennslustofur. Skyldi Reykjavík hafa tekið í notkun 90 kennslustofur í fyrra^' haust? Stöðvun stjórnarinnar Á staðreyndirnar hér að framan er bent til þess að sýna, að það er ekki ástæða til þess fyrir íhaldið í Reykjavík að hæla sér mjög af afrekum í Iskólabyggingamálum þessi árin. Hitt er auðvitað alveg rétt, að IReykjavík er enn nokkru bet ur stödd með skólahúsnæði en Kópavogur og þarf engan að undra. Sem dæmi um það verk efni, sem Kópavogur á við að eiga í skólabyggingamálum má- nefna það, að þar verður þessi ár meiri heildarfjölgun á barna skólastiginu, 7—12 ára heldur en í Reykjavík. Samkvæmt fregnum fræðsluyfirvalda í Reykjavík fjölgaði 7 — 12 ára börnum Þar miðað við s. I. vetur um 160, en i Kópavogi var fjölgunin um 190. En hvern ig halda menn að ástandið í fræðslumálum Kópavogs væri nú, ef unnið væri þar að skóla byggingum með sama lagj og í Reykjavík? Morgunblaðið átelur mjög í gær seinagang skólabygginga í Kópavogi í sumar og nefnir það til, að af 8,7 millj, hafi ekki verið búið að vinna fyrir nema 3 í ágústlok. bað er rétt, að skólabyggingar töfðust þar í sumar, en ástæðan er ekki í Kópavogi, heldur stjórnarráð inu í Reykjavík. Mbl er lík lega ekki búið að gleyma því, er stjórnin ákvað að skera nið ur skólabyggingar í landinu eins og aðrar framkvæmdir um 20% frá fjárlögum. En um Framhald á bls 14

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.