Tíminn - 25.09.1965, Blaðsíða 13

Tíminn - 25.09.1965, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 25. september 1965 IÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Hvernig er spáin ? Á morgun leika KR og Keflavík. 5 áhuga- menn um knattspyrnu spá fyrir um úrslitin Alf—Reykjavík. — á morgun, sunnudag, munu KR og Keflavík leiða saman hesta sína á Laugardalsvellinum í síðasta leik í deildar keppninnar í ár, leik, sem getur haft úrslitaálirif um það hvort ís- landsbikarinn hafnar hjá KR í Reykjavík eða hjá Skagamönnum á Akranesi. Keflvíkingar eru ekki aðilar að Þessari baráttu nema að takmörbuðu leyti, þ. e. þeir hafa ekki möguleika á að hljóta bikarinn, en geta ráðiS milu um það á hvorn staðinn hann fer. Ef KR sigrar er KR meistari — ef Keflavík sigrar er Akranes meistari, en ef jafn- tefli verður, þurfa KR og Akranes að leika aukaleik. Hannes Þ. Sigurðsson dæmir leikinn, sem hefst kl. 16. — Á síðunni í dag svara 5 kunnir áhugamenn um knattspymu spurningunni: Hvemig er spáin fyrir leikinn? Fara svör þeirra hér á eftir: Hilmar Ólafsson: Óiafur Karlsson r Olafur Karlsson: „Baráttuvilji KR-inga mun færa þeim sigur í leiknum á sunnudag inn. Það hefur sýnt sig undan farin ár, að í þýðingarmiklum leikjum hafa KR-ingar komið á óvart með baráttuvilja sínum. Að mínu viti hefur KR-liðið verið óvenju slakt á yfirstandandi keppn istímabili og hefur verið mjög heppið í íslarrdsmótinu. Keflavík ur-liðið er betra en í fyrra og hefur sýnt góða leiki, m. a. gegn Ferenevaros á Laugardalsvellin- um. En hætt er við, að Keflvík ingamir verði ekki áhugasamir í leiknum gegn KR. Þeir hafa enga möguleika á að verja fslandsmeist aratitilinn — og þótt þeir hafi möguleika á að hreppa annað sæti, þá er það í sjálfu sér ekki sérlega eftirsóknarvert. Sem sé, ég spái því að KR sigri á baráttuviljanum. Trúlega verða ekki mörg mörk skoruð og líklegt að KR vinni með eins marks mun. „Eg spái þvi, að leiknum á sunnudaginn lykti með jafntefli, jafnvel þótt maður hafi í huga, að þarna leiki KR úrslitaleik og þeir lumi oft á aukakrafti undir slíkum kringumstæðum. Mér hef ur fundizt KR-liðið lélegt í sum ar og ekki líklegt til stórræða í leiknum á sunnudaginn frekar en í öðrum leikjum í sumar. Um það hve mörg mörk kunna að verða skoruð í leiknum vil ég engu spá um — og enn síður hvemig viður eign milli KR-inga og Skaga- manna myndi fara í aukaleik um íslandsmeistaratignina.“ Arnaldur Þór Hilmar Ólafsson Arnaldur Þór: „KR vinnur með 2:1 í jöfnum og speimaiuU leik, þ. e. a. s. ef KR-þrékið bílar ekki. Það er gaman að fylgjast með þessum tveimur liðum vegna þess, að leikaðferðir þeirra eru svipaðar — og mótaðar af bræðrunum, sem þjálfa liðin, Óla B. og Guðbirni. Eg efast ekki um, að Keflvíking ar mæta til leiks með það eitt í huga að sigra, en þar sem þeir hafa ekki lengur möguleika á að I verða íslandsmeistarar, býst ég við að þá skorti herzlumuninn til þess. Keflvíkingar komu of seint í spilið til að blanda sér í bar áttuna um efsta sætið, en að mínum dómi er lið þeirra gott í ; dag. Þeir svara TÍMA- spurningu Helgi Daníelsson: „Ég vona innilega, að Kefl- víkingum takist að sigra í viður- eigninni á sunnudaginn, því það þýðir, að íslandsbikarinn kemst í góðar hendur og á réttan stað. En ef Keflvíkingar hafa hugsað sér að sigra, verða þeir að leika betur en þeir gerðu gegn okkur um daginn, Þrátt fyrir, að þeim tækist að sigra þá, en það var eins og hver önnur heppni. Að mín um dómi eiga Keflvíkingar sterk- ara liði á að skipa en KR, en allt getur gerzt í knattspyrnunni — ég tala nú ekki um í úrslitaleik eins og þessum. Ég býst við hörð um baráttuleik, sem mun lykta með eins marks sigri annars hvors aðilans, sem ég vona að verði Keflavík. Það má búast við, að margir Akumesingar fari suð ur til að sjá leikinn — og þeir munu áreiðanlega ekki láta sitt eftir liggja til að hvetja Keflavíkur-liðið til sigurs." Friðrik Ólafsson: „Ég býst við jöfnum leik og harðri baráttu. Með tilliti til þess, að hér er um úrslitaleik fyrir KR-inga að ræða, má búast við, að „fidonsandi" komi yfir þá og þeim takist að tryggja sér sigur í þessum þýðingarmikla leik. En ég spái því, að það verði mjótt á mununum og að KR-ing ar vinni ekki með meira en einu marki Hvernig svo sem úrslitin verða, hygg ég, að búast megi við skemmtilegri viðureign milli KR-inga og Keflvíkinga á Laugar dalsvellinum á sunnudaginn." Hvað sem öllu líður, er spá mín sú, að KR-ingar fagni sigri á sunnudaginn og hljóti íslands meistaratign." Helgi Daníelsson Friðrik Ólafsson Celtic—Raith Rovers 4:0 Hibemian—Alloa 11:2 Rangers—Airdrie 4:0 Reynir minnist 30 ára afmælis Knattspyrnufélagið Reynir í Sandgerði minnist í dag 30 ára afmælis síns. í dag verður háður í Sandgerði leikur milli Reynis og færeyska liðsins Vágs-boltafé lags og hefst hann klukkan 16. Um kvöldið verður haldið sam- kvæmi í samkomuhúsinu í Sand gerði og hinir færeysku gestir kvaddir. Þess má geta, að færeyska liðið hefur leikið fjóra leiki hér. Sá fyrsti var gegn Reyni, og sigruðu Færeyingarnir með 4:1. Næsti leikur var einnig gegn Reyni og fór hann fram á Njarðvíkurvell- inum. í þetta skipti sigruðu Reyn- ismenn með 3:2. Þriðji leikur Færeyinganna var gegn Selfossi og varð jafntefh, 2:2. Fjórði leikur þeirra var gegn b-liði Keflavíkur og sigruðu Færeyingar með 3:1. Þess má geta að Reynir og VB keppa í dag um forkunnarfagr an bikar, sem Albert Guðmunds- son hefur gefið. Flugeldi skotið í keppnisbyrjun Vertíð Golfklúbbs Rvíkur lýkur í dag. i Vertíð reykvískra golfmanna ! lýkur í dag með keppnj á velli 1 Golfklúbbs Reykjavíkur í Graf- arholti. Keppnina nefna golfmenn „bændakeppni“ og er henni þann ig hagað að þátttakendum í keppn inni er skipt niður í tvo hópa, en fyrirliði er fyrir hvorum hóp. Um holukeppni er að ræða, og eru fjórir í hverju „holli“ — tveir frá hvorum — og er síðan keppt innbyrðis og stig reiknuð saman, þegar keppninni er lokið. Kepp endur verð 48 talsins og mun keppnin byrja samtímis á hinum 12 pöllum vallarins, en þar sem þannig háttar til á Grafarholtsvell inum, að ekki sést á milli allra pallanna, verður flugeldi skotið upp — og verður hann upphafs- merki. Er það áreiðanlega eins- dæmi í ísl. íþróttasögu, að flug- I eldur sé notaður sem upphafs- merki í íþróttakeppni. En þetta er skemmtileg nýbreytni. Fyrirliðar hópanna verða þeir Einar Erlendsson og PáU Ásg. Tryggvason. Enska landsliðið gegn Wales 2. okt. n.k. var valið í gær og lítur það svona út (talið frá markv- til v. úth.): Springett (Sheffield Wedn.), Cohen (Fulham), Wilson (Everton), Stiels (Manchester Utd.) Jack Charlton (Leeds Utd.) Moore (West Ham). fvrirliði. Og . framlínan Paine (Southampton), i Greaves (Tottenham), Peacock í (Leeds Utd.) Bobby Charlton ; (Manch. Utd.), og Connolly (Man- ■ chester Utd.) Wales: Sprake (Leeds Utd.) ! Rodrigues (Cardiff City), Graham : WiIIiams (West Bromwich), Henn ! essy (Birmingham) England | (Blackbum), Hole (Cardiff City), ; Rees (Coventry), Vemon (Stoke !City), Davies (Bolton), Allchurch j (Swansea) og Rees (Sheffield ! Utd). j Skotland gegn frlandi sama dag: Brown (Tottenham), Hamilton i (Dundee). McCreadie (Chelsea), McKay (Tottenham) McNeil (Celtic), Greig (Rangers), Hender son (Rangers), Law (Manch. Utd.) Gilzcan (Tottenh.) Baxter (Sund erland) Ilughes (Celtic). N-frland: Jennings (Tottenham) Magill (Arsenal), Elder (Bura- ley), Harvey (Sunderland) Neill (Arsenal) Nicholson (Hwdders- field), Mcllroy (Stoke City), Crossan (Manch. City), Irvine (Burnley), Dougan (Leicester), Best (Manch. Utd.) Úrslit i „deildarbikarnum" í Skotlandi (síðari leikur): Ayr—Kilmarnock 2:2 Til gamans má geta þess að sam amlagt unnu 1. deildar-liðin 2. deildar-liðin 40:6 : tvöfaldri um- ferð. Já, það er mikill munur á 1. og 2. deildinni á Skotlandi. SG PÚSSNINGAR- SANDUR VIKURPLÖTUR Einangrunarplast Seljum adar gerðir af pússningarsandi, heim- fluftan og blásinn inn. Þurrkaðar vikurplötur og og einangrunarplast. Sandsalan víð Elliðavog sf. Elliðavogi 115, simi 30120. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.