Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 7

Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 B 7 Flestir vilja að stjórmálamenn sinni meira bættum launakjörum í könnuninni voru menn spuröir hvort þeim fyndist aö stjórnmála- menn ættu aö sinna meira 14 mála- flokkum sem taldir voru upp. Svörin getur aö líta í töflunni. Sérstaka athygli vekur hversu gjarnir menn eru á að svara spurningunni játandi, þó umtalsverður munur sé þar á eftir málefnum. Flestir (90%) samsinntu því aö stjórnmálamenn ættu að sinna bættum launakjörum meira en nú er raunin, en fæstir samsinntu því að stjórnmálamenn ættu að sinna opinberum rekstri í ríkari mæli. Eigi aö síöur svöruöu 62% síöastnefndu spurningunni játandi. Þá hlýtur aö vekja athygli aö 64% svarendanna segjast hlynntir því að stjórnmála- menn sinni minni ríkisafskiptum í meira mæli en nú er, en eigi aö síður telur drjúgur meirihluti aö stjórn- málamennirnir eigi að sinna hinum málefnunum 13 meira en nú er raunin. Þrjú málefni skera sig úr að því leytinu að fleiri segja „veit ekJci" en raunin er með hin málin. Þessi málefni eru starfshættir opin- berra fyrirtækja, opinber rekstur og minni ríkisafskipti. Afstaða ólíkra þjóðfélagshópa til afskipta stjórnmálamanna af málaflokkunum 14 var yfirleitt ekki mjög breytileg, þó að undan- tekningar séu þar á. Þær helstu verða nefndar hér á eftir. Eins og fyrr var nefnt voru flest- ir (90%) á því að stjórnmálamenn ættu að sinna bættum launakjörum meira en nú er raunin. Konur svöruðu þessari spurningu játandi í ríkari mæli (94%) en karlar (85%). Háskólamenn svöruðu færri játandi (82%) en aðrir. Athygli vekur að afstaða manna til þessa máls er svipuð eftir tekju- hópum. 89% samsinntu því að stjórn- málamenn ættu að sinna verö- bólgunni meira. Um þetta efni var afstaða manna breytilegust eftir atvinnu. 81% þeirra sem stunda landbúnað svöruðu játandi, en aftur á móti 96% þeirra sem eru heimavinnandi. Þriðja „vinsælasta” málið var nýiðnaöur, en 87% svarendanna sagði að stjórnmálamenn ættu að sinna honum meira en nú er raun- in. Hér reyndist afstöðumunurinn mestur eftir atvinnu og aldri. 96% þeirra sem stunda iðnað og 95% þeirra sem stunda landbúnað svör- uðu játandi, en einungis 83% þeirra er stunda sjávarútveg og 76% þeirra sem eru heimavinn- andi. Yngstu svarendurnir (18—24 ára) skera sig dálítið frá hinum: 80% þeirra vilja leggja meiri áherslu á nýiðnaðinn. Þau þrjú mál sem nú hafa verið talin eru greinilega efst í „vin- sældaröðinni" hér, en dálítið bil er svo niður að fjórða málinu. Það eru friöarmál, en 81 % svarendanna segist vilja að stjórnmálamenn sinni þeim í auknum mæli. Hér er afstöðumunurinn mestur eftir kyni og skólagöngu. 75% karla vilja leggja aukna áherslu á friðar- mál, en 86% kvenna. Þegar litið er á skóiagöngu skera tveir hópar sig úr: Einungis 73% þeirra sem lokið hafa 3—4 ára verklegu fram- haldsnámi og 67% þeirra sem lokið hafa háskólaprófi vilja leggja aukna áherslu á friðarmál. Aftur er dálítið bil frá friðar- málum niður i fimmta málið, um- hverfisvernd, en 76% svarendanna vilja að stjórnmálamenn sinni henni meira. Hér skáru þeir er stunda landbúnað sig helst frá, en einungis 63% þess hóps svaraði spurningunni j átandi. 74% svarendanna sagðist vilja að stjórnmálamenn legðu meiri áherslu á mannréttindi. Hér var nokkur munur á kynjunum, 70% karlanna sagði já, en 79% kvenn- anna. Yngri svarendur (undir þrí- tugu) studdu aukna áherslu á mannréttindi í minna mæli (64%) en hinir sem komnir eru yfir þrí- tugt (79%). Þá má nefna að ein- ungis 65% þeirra sem stunda land- búnað og um 60% þeirra sem lokið hafa stúdentsprófi eða háskóla- prófi styðja aukna áherslu á mannréttindi. Skólamál sögðust 73% vilja leggja á aukna áherslu. Greinileg- ur munur reyndist á kynjum um þetta; 67% karla sögðu já, en 80% kvenna. Þá skáru tveir atvinnu- hópar sig úr: Einungis 58% þeirra er stunda landbúnað vill aukna áherslu á skólamál, en aftur á móti 88% þeirra sem eru heimavinn- andi. Jafn stór hópur (73%) vildi að stjórnmálamenn sinntu meira heilsugæslu en nú er raunin. Enn reyndist munur á kynjunum, 68% karianna svaraði játandi, en 78% kvennanna. Þá skáru tveir mennt- unarhópar sig greinilega úr: Ein- ungis 61% þeirra er lokið hafa stúdentsprófi og 51% þeirra er lokið hafa háskólaprófi vilja að stjórnmálamenn leggi meiri áherslu á heilsugæslu en nú er raunin. Athyglisvert er að sáralít- ill munur reyndist á viðhorfunum til heilsugæslu eftir aldri. 72% vildu að stjórnmálamenn sinntu meira afbrotamálum. Konur voru á þessari skoðun í ríkari mæli (79%) en karlar (65%). En hér skar afstaða þeirra sem lokið hafa háskólaprófi sig langmest úr: Einungis 45% þeirra svöruðu spurningunni játandi. 69% sögðu að stjórnmálamenn ættu að sinna starfsháttum opin- berra fyrirtækja meira. Afstaða ólíkra þjóðfélagshópa var ekki mjög ólík, en nefna má að þessari spurningu samsinntu 73% karla, en einungis 65% kvenna. Næst í röðinni eru varnar- og öryggismál, en 65% vildu að þeim væri meira sinnt. 59% karla voru þessarar skoðunar, en 70% kvenna. Þrír menntunarhópar skáru sig hér dálítið úr og studdu áherslu á þennan málaflokk í minna mæli en aðrir: Þeir sem hafa lokið verklegu framhalds- námi (58%), 3—4 ára bóklegu námi öðru en stúdentsprófi (56%) og þeir sem hafa lokið háskólaprófi (57%). Sama máli gegnir um þá sem stunda iðnað (56%) og land-ftL búnað (51%), en 72% þeirra sem stunda sjávarútveg eða eru heima- vinnandi vilja að stjórnmálamenn sinni varnar- og öryggismáium meira. Loks skar einn aldurshópur sig greinilega úr: Einungis 52% þeirra sem eru á aldrinum 25—29 ára svöruðu spurningunni játandi. 65% svarendanna vildu að stjórnmálamenn sinntu meira hungri í heiminum. 62% karla eru þessu fylgjandi, en 69% kvenna. Meiri munur er hins vegar á af- stöðu manna eftir tekjum. 74% þeirra sem hafa undir 30 þúsund krónur i mánaðarlaun vilja að hungri í heiminum sé meira sinnt.. en einungis 61% þeirra sem hafa 40 þúsund eða meira á mánuði eru sama sinnis. Minnstur er stuðning- urinn við þessa hugmynd meðal þeirra er hafa lokið stúdentsprófi eða háskólaprófi (55%). 64% sagði að stjórnmálamenn ættu að sinna meira minni ríkisaf- skiptum. 68% karlanna svöruðu þessu játandi, en 61% kvennanna. Munurinn á afstöðu ólíkra þjóð- félagshópa til þessarar spurningar var yfirleitt ekki mjög mikill. Þó má nefna að 59% þeirra sem hafa undir 30 þúsund krónur á mánuði i laun svöruðu þessu játandi, en 71% þeirra sem hafa 60 þúsund - krónur eða meira. Sé litið á spurn- inguna eftir atvinnu kemur í ljós að 75% þeirra sem stunda iðnað svara játandi, 68% þeirra er stunda verslun og þjónustu, 67% þeirra er stunda landbúnað, 64% þeirra er stunda sjávarútveg, 62% þeirra er stunda opinbera þjónustu og 52% þeirra sem eru heimavinn- andi. Hér eru það einungis fyrsti og síðasti hópurinn sem víkja frá meðaltalinu svo orð sé á gerandi. Munurinn á afstöðu manna er enn minni þegar skipt er eftir aldri eða skólagöngu. <l Lestina rekur opinber rekstur, en 62% svarendanna segja að þeir vilji að stjórnmálamenn sinni honum meira en nú er raunin. Hér svarar nákvæmlega sama hlutfall beggja kynjanna játandi og mun- urinn á afstöðu allra þjóðfélags- hópa er lítill. Spurt var: Finnst þér að stjórnmálamenn ættu að sinna eftirfarandi málefnum meira en nú er raunin? Já Nei Veit ekki Alls (fjöldi) Nýiðnaði 87% 8% 5% 100% (768) Afbrotamálum 72% 21% 7% 100% (768) Starfsháttum opinberra fyrirtækja 69% 21% 10% 100% (768) Mannréttindum 74% 21% 5% 100% (768) Hungri í heiminum 65% 31% 4% 100% (767) Verðbólgu 89% 10% 1% 100% (768) Opinberum rekstri 62% 29% 10% 101% (768) Heilsugæslu 73% 24% 3% 100% (768) Skólamálum 73% 23% 4% 100% (768) Minni ríkisafskiptum 64% 24% 12% 100% (767) Bættum launakjörum 90% 8% 2% 100% (767) Umhverfisvernd 76% 20% 4% 100% (767) Varnar- og öryggismálum 65% 28% 7% 100% (768) Friðarmálum 81% 17% 3% 101% (768)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.