Morgunblaðið - 01.12.1985, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
Viðgerð á
Dómkirkjunni lokið
EINS OG lesendum Morgunblaðsins
er kunnugt, þá verður hið nýja orgel
Dómkirkjunnar vígt í dag f mes.su
kl.lir.h.
Orgelið hefur 31 rödd, er með
þremur hljómborðum og fótspili. Það
er smíðað af Orgeiverksmiðju Karls
Schuke í Vestur-Berlín, en það fyrir-
tseki er þekkt fyrir vönduð og góð
hljóðfæri.
Orgelið var sett upp fyrstu vik-
urnar í september en síðan hefur
verið unnið að stillingu þess, sem
eðlilega er mikið verk, þegar um
svo stórt hljóðfæri er að ræða.
Þegar ákveðið var að kaupa nýtt
og vandað hljóðfæri, var ljóst að
jafnframt yrði að gera allt, sem
unnt væri, til að bæta hljómburð-
inn í kirkjunni. Eftir athugun á
öllum aðstæðum var ákveðið að
setja nýtt gólf í kirkjuna alla,
furugólf, eins og var í upphafi, er
kirkjan var byggð í núverandi
mynd 1848. Jafnframt var ákveðið
að klæða þetta gólf ekki með tepp-
um, nema á gangi inn kirkjuna
niðri, inn að kórtröppum. Hafa
þessar framkvæmdir bætt hljóm-
burðinn mikið.
Ýmsar endurbætur aðrar hlutu
að koma í kjölfar þessara fram-
kvæmda. Eru þær nokkrar á söng-
palli við orgelið, stúkur biskups
og ráðherra voru endurgerðar,
handrið við kórtröppur fært til
upprunalegs horfs, lýsing öll end-
urbætt og aukin og kirkjan máluð
að mestu. Þá hafa allar leiðslur
verið endurnýjaðar, bæði hita- og
raflögn, og sérstakar leiðslur lagð-
ar vegna útvarps og sjónvarps.
Loks hefur snjóbræðslukerfi verið
sett í gangstéttina kringum kirkj-
una.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt
kirkjunnar hefur í samráði við
sóknarnefnd, hannað útlit allt og
valið efni. Hann hefur t.d. teiknað
útlitorgelsins.
ístak hf. tók að sér viðgerðina á
kirkjunni og hefur unnið það verk
einstaklega vel. Hafa þar allir
lagst á eitt, Tómas Tómasson verk-
fræðingur, Magnús Stephensen
tæknifræðingur og þeirra ágætu
iðnaðarmenn undir forystu Guð-
mundar Jónssonar verkstjóra, sem
oft hefur mikið mætt á, t.d. við
að samræma vinnu annarra verk-
taka, sem einnig hafa unnið afar
gott verk. Eru það þeir málara-
meistararnir Sighvatur Bjarnason
og Jón Ólafsson, Kristinn Auðuns-
son pípulagningameistari, Guð-
mundur H. Halldórsson rafverk-
taki og Pétur Kristjánsson raf-
eindavirkjameistari. Ríkisútvarp-
ið hefur séð um lagnir, sem gerðar
voru í þess þágu. Rafteikning hf.
sá um teikningu raflagna og
Kristján Flygenring verkfræðing-
ur um teikningu pípulagna. Frank
Ponzi listfræðingur hreinsaði og
strekkti altaristöfluna.
Öllum þessum ágætu mönnum
kann Dómkirkjan bestu þakkir
Sími 22140
Jólamyndin 1985:
Jólasveinninn
Ein dýrasta kvikmynd sem gerð hef-
ur veriö og hún er hverrar krónu viröi.
Ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
Leikstjóri: Jeannot Szwarc.
Aöalhlutverk: Dudley Moore, John Lithgow, David
Huddleston.
Sýnd kl. 5 og 7.
Hækkad verð.
sem og þeim öðrum, er að viðgerð-
inni hafa starfað á þeirra vegum
eða með öðrum hætti.
Oft er talað um að Dómkirkjan
sé ásamt Alþingishúsinu, horn-
steinn Reykjavíkur. Hún er og
þjóðarhelgidómur, dýrgripur,
hvort heldur við skoðum hana frá
sögulegu, byggingarlegu eða trúar-
legu sjónarhorni. Orgelinu nýja og
þeirri viðgerð, sem nú er lokið, er
ætlað að efla þennan dýrgrip og
gera hann enn hæfari en fyrr til
að gegna hlutverki sínu i íslensku
þjóðlífi. Dómkirkjan er nú stfl-
hreinna hús. Orgelið er tilkomu-
mikið að sjá og heyra og aðstæður
þar allar eins góðar og unnt er að
skapa í þessu gamla húsi.
Þar er í dag efnt til aðventuhá-
tíðar, orgelvigslu og kirkjukvölds
sem timans vegna hljóta að hafa
yfirskriftina „Kristur kemur".
Hann lifir og kemur til móts við
einstaklinginn á svo margan veg í
lífi hans. Þeim boðskap hefur
sóknarnefnd Dómkirkjunnar vilj-
að búa sem besta aðstöðu, og hún
biður um að það starf megi til
blessunar verða.
Frá Dómkirkjunni
lestuþessa.
C-VIMIN er C-vítamín í sykurlausum
freyðitöflum sem þú kaupir
með appelsínu- eða sítrónubragði.
Sláðu tvær... og fáðu þér
ferskan svalandi drykk í fyrramálið.
-þú leysir bara eina C-VIMIN
töflu í ísköldu vatni
og færð eitt gramm af C-vítamíni,
- ekkert mál!
Jae&i
AFÓTEKINU