Morgunblaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
51
Handavinnupokinn
Hér koma tvær hugmyndir að smá jólaföndri. Snjókarlar búnir til
úr „dúskum", og notaðir til að skreyta jólatré eða grenigreinar,
eða sem borðskraut o.s.frv.
Ég reikna með að flestir kunni að búa til dúska, en til vonar og
vara læt ég fylgja hér skýringarmynd.
Hæð snjókarlanna er um 12 sentímetrar. Efni: 1 hnota hvítt
garn, smávegis af svörtu og appelsínurauðu. Heklunál nr. 2. Pappi
og lím.
Klippið úr pappa þrjár stærðir af hringlaga spjöldum (tvö af
hverri stærð) 9 sm, 6,5 sm og 5 sm í þvermál. f miðju spjaldanna
er klippt hringlaga gat um 1 sm í þvermál.
Útbúið dúskana á hefðbundinn hátt og límið þá saman, þann
stærsta neðst, síðan þann næst stærsta, og svo þann minnsta efst.
Hnappar og augu eru hekluð úr svörtu garni á eftirfarandi hátt.
itjið upp 4 loftlykkjur sem bindast saman með keðjulykkju, notið
svo endann til að festa með. Nefið er heklað úr appelsínurauðu
garni. Fitjið upp 2 loftlykkjur, sláið bandinu um nálina og heklið
eina fasta lykkju í hvora loftlykkjuna.
Hattur: Svart garn. Fitjið upp 6 lykkur, gerið hring.
1. umferð: Heklið 12 fastar lykkjur í hringinn.
2. umferð: Heklið 1 fasta lykkju í hverja lykkju.
3. umferð: Heklið eina fasta lykkju í aðra hverja lykkju (18
lykkjur).
4., 5., 6., 7. umf.: Heklið eina fasta lykkju í hverja lykkju.
8. umferð: Heklið tvisvar sinnum í hverja fastalykkju.
Síðasta umferð: Heklið eina fasta lykkju í hverja lykkju. Gangið
frá enda.
Límið hattinn á, eins getið þið límt augu, hnappa og nef á. Ef
á að hengja snjókarlinn upp, látið þá band í hattinn.
Jóladagatal fyrir alla fjölskylduna
Það er auðvelt að útbúa þetta dagatal, sem er dálítið öðruvísi en
gengur og gerist.
Til að útbúa dagatalið þarf 24 lítil kerti í álumgerðum, þessi sem
notuð eru til að halda hita á kaffikönnunni eða matnum, og er
þeim raðað á bakka úr silfri eða stáli, stóran disk eða bakka sem
klæða má með álpappír. Umhverfis kertin má svo skreyta með
grenigreinum eða jafnvel litlum „dúska“-snjókörlum. kveikið svo á
einu kerti á dag frá 1. til 24. desember. Einnig má gjarnan númera
kertin.
í næstu Dyngju verða
nokkrar litlar en
skemmtilegar hugmyndir
að fljótsaumuðum jóla-
gjöfum, t.d. úr rauðu java-
efni.
HORFUR í EFNAHAGSMÁLUM 1986
KRISTALSSAL HÓTELS LOFTLEIÐA 5. DESEMBER 1986
13:30 Spástefnan sett
-SigurðurR. Helgason, formaðurSFÍ
13:40 Spá um þróun efnahagsmála 1986
- Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra
14:00 Álit á efnahagshorfum 1986
- Sigurður B. Stefánsson, Kaupþing hf.
14:20 Álit á efnahagshorfum 1986
- Þorvaldur Gylfason, prófessor
Háskóli íslands
14:40 Hlé
15:10 Kynning á spám fyrirtækja um þróun
helstu hagstærða 1986
- Lára M. Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri SFÍ
15:20
Pallborðsumræður
Efnahagshorfur 1986
Pallborð hagfræðinga
- Bolli Þór Bollason
- Vilhjálmur Egilsson
- Tryggvi Þálsson
- Björn Björnsson
Pallborð atvinnulífsins
- Davíð Sch. Thorsteinsson
- Jón Sigurðsson
- Sigurður Helgason
- Þórður Magnússon
Stjórnandi umræðna:
- Þórður Friðjónsson
16:30 Almennar umræður
Tilkynnið þátttöku í síma 621066
Stjómunarfélag ísland Ánanaustum 15 Sími: 6210 66 ÍS
Opnum í dag
á Hverfisgötu 56. Mikiö af nýju efni frá
C16 VDEO ogfleirifyrirtækjum
Að rekstri Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna
standa Laugarásbíó, Háskólabíó og Regnboginn.
Útibú: Suðurver v/Stigahlíð s: 81920, Úlfarsfell v/Hagamel s: 24960, Glerárgötu 26,
Akureyris: 26088.