Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ1913
292. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaósins
Reagan og Gorbachev:
Skiptast á
nýársóskum
til þjóðanna
Washington, 27. desember AP.
RONALD Reagan, forseti Banda-
ríkjanna, og Mikhail Gorbachev,
leiðtogi Sovétríkjanna, munu á ný-
ársdag ávarpa þjóð hvor annars. Var
skýrt frá þessu í Hvíta húsinu í dag.
„Reagan, forseti Bandaríkjanna,
og Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj-
anna, hafa komist að samkomulagi
um að ávarpa þjóð hvor annars á
nýársdag og óska henni árs og
friðar," sagði i tilkynningu frá
Hvíta húsinu en hún kom fyrst
frá forsetaflugvélinni, frá Reagan
sjálfum á leið frá Washington til
heimilis hans í Kaliforniu. Þetta
verður í annað sinn, sem ávarpi
bandarísks forseta verður útvarp-
að og sjónvarpað um Sovétríkin,
Richard Nixon varð fyrstur til
þess árið 1972 þegar hann var í
heimsókn í Sovétríkjunum. Ávarp
leiðtoganna verður tekið upp fyrir-
fram og komið austur og vestur i
tæka tíð.
Það var fyrir ári sem Banda-
ríkjamenn lögðu fyrst til, að leið-
togarnir hefðu þennan háttinn á,
en Sovétmenn vildu þá engu um
það svara. Um þetta samdist hins
vegar þegar verið var að undirbúa
leiðtogafundinn i nóvember sl.
Larry Speakes, talsmaður Hvíta
hússins, kvaðst trúa því, að ávarp
Reagans yrði flutt Sovétmönnum
óstytt og óbrenglað.
Reagan
Gorbachev
AP/Símamynd
Einn hryðjuverkamanna, sem réðust inn í Leonardo da Vinci- flughöfnina í Róm, er fremst á myndinni en fjær liggur í blóði sínu fólk, sem beið þess
að komast heim til sín eftir jólaleyfi.
„Ég sá fólk falla al-
blóðugt til jarðar“
Sautján manns létu lífið og á annað hundrað
slösuðust þegar hryðjuverkamenn réðust á
flugstöðvarnar í Róm og Vín
lýóm, Vín, 27. desember. AP.
ARABÍSKIR hryðjuverkamenn réð-
ust í dag samtímis inn í yfirfullar
flugstöðvarnar í Róm á Ítalíu og í
Vín í Austurríki, köstuðu hand-
sprengjum að fólki og létu skothríð
úr hríðskotabyssum dynja á því. í
Róm féllu 14 manns og rúmlega 70
slösuðust en í Vín þrír og a.m.k. 47
slösuðust. Hafa þessir óhugnanlegu
atburðir vakið mikinn óhug meðal
fólks á Ítalíu, í Austurríki og annars
staðar. Virtist árásum hryðjuverka-
mannanna vera beint að skrifstofum
ísraelska (lugfélagsins El AL, en
þeir, sem létu lífið, eru ekki ísrael-
skir borgarar, heldur fólk af ýmsu
þjóðerni öðru.
„Ég heyrði skothríð og síðan sá
ég fólk falla alblóðugt til jarðar
allt um kring," sagði Mark Maland,
37 ára gamall Bandaríkjamaður,
Sex ár liðin frá innrás Sovétmanna í Afganistan:
„Þjáningum Afgana linnir ekki
fyrr en Sovétmenn fara brott“
London, Bonn. Islamabad, Moskvu, 27. desember AP.
SEX ÁR eru liðin frá því Rauði herinn sovéski réðst inn í Afganistan.
Gerðist það á þriðja í jólum, 27. desember, árið 1979. í baráttunni, sem
afganska þjóðin hefur síðan háð fyrir frelsi sínu, hafa Sovétmenn og
hermenn stjórnarinnar í Kabúl drepið hundruð þúsunda manna og millj-
ónir Afgana hafa flúið land. Þjóðarleiðtogar víða um heim skoruðu í dag
á Sovétmenn að hætta grimmdarverkunum í Afganistan og flytja her
sinn á brott en af orðum og yfirlýsingum sovéskra ráðamanna er ekki
að skilja, að þaðan sé nokkurra griða að vænta.
Helmut Kohl, kanslari Vest- frey Howe, utanríkisráðherra
ur-Þýskalands, sagði í dag, að
þjóðir heims gætu ekki lengur
vikist undan því að koma afg-
önsku þjóðinni til hjálpar og
knýja Sovétmenn til að hafa sig
á brott. Hans-Jochen Vogel,
þingflokksformaður v-þýskra
jafnaðarmanna, tók í sama
streng og sagði, að á fundum
utanríkismálanefndar þingsins í
mars yrðu birtar nýjar upplýs-
ingar um hryðjuverk Sovét-
manna í Afganistan. Sir Geof-
Breta, sagði þegar hann minntist
innrásarinnar í Afganistan, að
„þjáningum afgönsku þjóðarinn-
ar linnir ekki fyrr en Sovétmenn
fara á brott“. Aðrir ráðamenn í
austri og vestri hafa látið lík orð
falla.
Útvarpið í Kabúl hefur skýrt
frá því, að skipaðir hafi verið
nokkrir nýir ráðherrar og eru i
þeirra hópi menn, sem ekki eru
úr kommúnistaflokknum. Er lit-
ið svo á, að stjórnin vilji með
þessu auka sér tiltrú meðal
almennings. Að undanförnu hef-
ur hún reynt að láta lítið fara
fyrir marxiskum áróðri en lagt
þeim mun meiri áherslu á trúna.
Mynd um Afganistan var fyrir
nokkrum dögum sýnd í sovéska
sjónvarpinu og þykir mega af
henni ráða, að Sovétmenn séu
ekki á förum þaðan. Var talað
um, að Sovétmenn hefðu þar lítið
lið og átökin eingöngu Banda-
ríkjamönnum og bandamönnum
þeirra að kenna. Lítið sem ekkert
hefur verið sagt opinberlega í
Sovétríkjunum um stríðið í Afg-
anistan og því hefur þessi mynd
vakið nokkra furðu. Hallast
margir að því, að hún sé fyrsta
skrefið í þá átt að búa sovéskan
almenning undir langvarandi
átök við afgönsku þjóðina.
sem særðist á fæti þegar fimm
hryðjuverkamenn réðust á níunda
tímanum í morgun inn i Leonardo
da Vinci-flugstöðina í Róm þar sem
þeir létu skothríðina dynja á sak-
lausum farþegum og köstuðu hand-
sprengjum í allar áttir. Réðust
hryðjuverkamennirnir einkum að
fólki, sem beið við afgreiðslu ísra-
elska flugfélagsins E1 AL, en
skeyttu því annars ekki hvar skot-
hríðin kom niður. „Ég heyrði gífur-
legan hávaða og skelfingar- og
kvalaóp fólks bárust um alla flug-
stöðina. Ég flýtti mér að gæta að
fjölskyldu minni og kom að manni
mínum og syni alblóðugum á gólf-
inu. Þeir voru þó lifandi og lítið
meiddir en skammt frá þeim lá
dóttir mín, 11 ára gömul, og hún
var dáin,“ sagði Daniella Simpson,
bandarísk kona, sem býr í Róm.
í Vín í Austurríki voru hryðju-
verkamennirnir þrír og réðust þeir
einnig að afgreiðslu E1 A1 í Schwec-
hat-flugstöðinni. Báru þeir sig eins
að við glæpaverkin, köstuðu hand-
sprengjum og skutu að fólki.
í Róm féllu 14 manns, þar af
þrír hryðjuverkamenn, og í Vín
tveir auk eins hryðjuverkamann-
anna. í Róm slösuðust a.m.k. 70
manns og 47 í Vín. Hryðjuverka-
mennirnir töluðu arabísku og
heyrðist einn þeirra hrópa, að hann
væri Palestínumaður, en hallast er
því, að þeir séu frá Norður-Afríku.
Talsmaður PLO, Frelsissamtaka
Palestlnumanna, fordæmdi í dag
þessi glæpaverk og fullyrti, að
samtökin ættu engan hlut að þeim.
Maður, sem talaði spænsku með
erlendum hreim, hringdi í dag til
útvarpsstöðvar á Spáni og sagði,
að Abu Nidal-hópurinn bæri ábyrgð
á hryðjuverkunum. Mubarak,
Egyptalandsforseti, gaf í skyn fyrir
nokkru, að það hefði verið þessi
sami hópur, sem neyddi egypska
flugvél til að lenda á Möltu, og sagði
ennfremur, að forsprakki hans
héldi til hjá Khadafy í Líbýu.
Bettino Craxi, forsætisráðherra
ftalíu, og Fred Sinowatz, kanslari
Austurríkis, lýstu í dag yfir harmi
sínum vegna þessara atburða og
skoruðu á Evrópuþjóðirnar að taka
höndum saman gegn hryðjuverka-
mönnum. Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri SÞ, tók í sama streng
og svo var einnig með ríkisstjórn
Bandaríkjanna. Peres, forsætisráð-
herra ísraels, sagði í dag, að hér
hefðu skæruliðar Palestínumanna
verið að verki og að þeim yrðu engin
grið gefin hvar sem til þeirra
næðist.
Sjá fréttir á bls.20
AP/Símamynd
Hryöjuverkamennirnir, sem myrtu tvo menn í flugstöóinni í Vín og særðu
47, reyndu eftir ódæðin að komast brott. Austurríska lögreglan náði þeim
öllum, særði tvo en felldi einn, þann, sem hér liggur.