Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 2
2
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
Útgáfu NT hætt
um áramótin
Morgunblaðið/Júlíus
Enn eitt slysið í Lækjargötu
KONA varð fyrir bifreið í Lækjargötu síðdegis í gær. Hún var flutt í siysadeild Borgarspítalans. Meiðsl
hennar reyndust ekki alvarleg. Slys hafa verið tíð í Lækjargötu það sem af er árinu, þar af eitt banaslys.
Stytta af Gunnari Thoroddsen
Stytta af Gunnari Thoroddsen, fyrrum forsætisráðherra, verður afhjúpuð
á sunnudag á Fríkirkjuvegi 3, þar sem ráðherrann var fsddur og
uppalinn. Athöfnin verður klukkan 15.
Öllu starfsfólki sagt upp. Hugmyndir
uppi um nýtt útgáfufélag og minna blað
ÁKVEÐIÐ var á fundi útgáfustjórnar Nútímans í gær að hætta útgáfu á
NT nú um áramótin. Var öllum starfsmönnum blaðsins, 72 talsins, sagt upp
störfum í gær, með venjulegum þriggja mánaða fyrirvara. Mikil fundahöld
voru í gær hjá aðstandendum blaðsins og útgáfustjórn Nútímans og er í
ráði að nýtt útgáfufélag taki við rekstri nýs blaðs nú um áramótin, sem
væntanlega mun bera nafn hins gamla flokksblaðs Framsóknarflokksins,
Tíminn.
Hákon Sigurgrímsson, stjórnar-
formaður Nútímans, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
ekki hefði verið formlega gengið
frá stofnun nýs útgáfufélags, en
ýmsar hugmyndir hefðu verið
ræddar, þar á meðal hugmynd um
að nýtt útgáfufélag tæki við
rekstri blaðsins. Hann kvaðst eiga
von á að ákvörðun þar að lútandi
yrði tekin nú um helgina. „Það er
stefnt að því að halda áfram út-
gáfu blaðs, en það verður minna í
sniðum og með færra starfsfólki.
Þess vegna völdum við þann kost-
inn að segja öllum upp,“ sagði
Hákon. Hann sagði að ef af stofn-
un nýs útgáfufélags yrði væru
hugmyndir uppi um að Nútíminn
hf. tæki að sér vinnslu þess blaðs
sem verktaki að verulegu leyti.
Þessar hugmyndir væru hins vegar
ekki fullmótaðar og kvaðst Hákon
ekkert frekar geta sagt um málið
áþessu stigi.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins í gær var
ákveðið að ganga til viðræðna við
Piltur og stúlka
í sjóinn á Akureyri:
Pilturinn
kaldur og
máttfarinn
er hann náð-
ist á land
Akureyri, 27. desember
TVÖ ungmenni féllu í sjóinn af
Torfunefsbryggju um kl. 3 í nótt.
Stúlka, fædd 1966 og drengur sem
er tveimur árum eldri. Stúlkan féll
í sjóinn og mun drengurinn hafa
ætlað að bjarga henni — kastaði sér
í sjóinn á eftir stúlkunni.
Menn sem komu að náðu stúlk-
unni fljótlega á land en verr gekk
aö ná piltinum upp. Það var lög-
regluþjónn — ekki á vakt — sem
átti leið þarna hjá er náði piltinum
upp. Klifraði hann niður á dekk
sem liggja utan á bryggjunni og
náði að toga drenginn á land.
Pilturinn var mjög kaldur og
máttfarinn er hann náðist og átti
hann erfitt með að halda sér í
björgunarhring sem kastað var til
hans. Sjórinn var mjög kaldur —
talsvert frost hefur verið hér
undanfarið. Ekki er vitað hve lengi
drengurinn var í sjónum.
Ungmennin fóru í sjúkrahús en
fengu að fara heim í morgun.
Ung kona
léstíVestur-
Þýskalandi m
UNG kona, Þuríður Elín Bjarna-
dóttir, til heimilis á Ljósvallagötu
32, lést þegar bifreið, sem hún ók,
valt í Kempten í V-Þýzkalandi.
Slysið varð aðfaranótt jóladags, 25.
desember.
Þuríður heitin hefur að undan-
förnu dvalist í Míinchen i Þýska-
landi. Hún var 25 ára gömul, fædd
25.janúar 1960.
Framsóknarfélögin í Reykjavík
um útgáfu dagblaðs, sem yrði, eins
og gamli Tíminn, málgagn Fram-
sóknarflokksins. Að sögn Stein-
gríms Hermannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, hefur ekk-
ert verið ákveðið um fjölda starfs-
fólks hins nýja blaðs eða hvort nýr
ritstjóri verður ráðinn, en Helgi
Pétursson, ritstjóri NT, fékk upp-
sagnarbréfið í gær eins og annað
starfsfólk. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun einhverjum
hluta starfsfólks NT verða boðið
starf á hinu nýja blaði, en ekki
fengust upplýsingar um hversu
margir það yrðu.
Ami Árnason framkvæmdastjóri Verzlunarráðs um niðurstöðu Hæstaréttar:
„Tímamótasigur litla
mannsins gagnvart kerfínu“
„ÉG HELD að við getum vel við unað, því þetta er að mörgu leyti
tímamótasigur litla mannsins gagnvart kerfinu, þar sem einstaklingur-
inn fær því hnekkt að þarna er verið að framselja vald sem ekki á að
framselja með þessum hætti,“ sagði Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðs fslands, um niðurstöður Hæstaréttar þar sem lögin um
kjarnfóðurskatt eru sögð stríða gegn stjórnarskránni. Það var Réttar-
verndarsjóður Verzlunarráðs íslands sem stóð straum af kostnaði við
málsókn Árna Möller bónda á Þórustöðum og var mál þetta höfðað
sem prófmál að tilhlutan Verzlunarráðsins.
Árni sagðist jafnframt vera ir sem ákveðnar voru í lögunum.
ánægður með það að Hæstiréttur
hefði gengið lengra en undirréttur,
varðandi það að dómurinn tæki til
þess tíma að reglugerð var sett á
grundvelli nýju laganna. „Vissu-
lega hefðum við viljað sjá Hæsta-
rétt ganga enn lengra og sjá þessa
skattlagningarframsalsaðferð alla
dæmda andstæða stjórnar-
skránni," sagði Árni, „en það má
alveg til sanns vegar færa að rök-
semdafærsla Hæstaréttar fyrir
þvi að þarna hafi myndast hefð
standist."
„Bráðabirgðalögin í júní 1980
voru sett á grundvelli þeirra laga
sem Alþingi hafði afgreitt áður
að tilhlutan þáverandi landbúnað-
arráðherra, Steingríms Her-
mannssonar," sagði Pálmi Jónsson
alþingismðaur er hann var spurð-
ur álits á niðurstöðu Hæstaréttar,
en Pálmi var landbúnaðarráðherra
á þeim tíma sem ríkissjóði er gert
að endurgreiða Árna Möller á
Þórustöðum kjarnfóðurskattinn
frá júní 1980 til október 1981.
Pálmi sagði að bráðabirgðalögin
hefðu verið sett í júní 1980 til þess
að ákvarða nánar um þær heimild-
Þegar bráðabirgðalögin hefðu
gengið til Alþingis hefðu menn
verið farnir að hugleiða að ákvæði
laganna sem bráðabirgðalögin
byggðust á, kynnu að framselja
valdið til innheimtu skattsins til
aðila sem væri of langt frá fram-
kvæmdavaldinu, til þess að slíkt
stæðist samkvæmt stjórnar-
skránni. „Þess vegna lögðum við
til við landbúnaðarnefndir Al-
þingis sem fjölluðu um frumvarpið
að nýr texti yrði saminn í reglu-
gerð, þar sem heimildirnar til
Sendibflar fá
rekstrarleyfí
til árs í
Hafnarstræti
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
framlengja til eins árs rekstrarleyfi
fyrir Sendibíla hf. í Hafnarstræti 2.
Þar eru nú um 50 litlir sendibflar,
svokallaðir greiðabflar, og um 10
stærri bflar og hófst starfsemin um
síðustu áramót. Fyrir nokkru hafn-
aði borgarráð beiðni Sendibfla hf.
um starfsleyfi til stöðvarinnar í
Hafnarstræti 2, en hefur nú horfið
frá því og veitt leyfi til ársloka
1986.
„Eftirspurn eftir greiðabílum
hefur verið gífurleg — í raun meiri
en við höfum getað annað, þrátt
fyrir að við séum nú með um 60
bíla. Það er ljóst, að í framtíðinni
verðum við að leita annað með
starfsemina, því okkur er stakkur
of þröngt sniðinn hér í Hafnar-
stræti. I raun má segja að við
höfum sprengt utan af okkur hús-
næðið hér í Hafnarstræti," sagði
Guðmundur Ásmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sendibíla hf. í sam-
tali við Morgunblaðið.
álagningu kjarnfóðurskatts, lækk-
unar hans eða hækkunar, færðust
í hendur ráðherra," sagði Pálmi,
„í stað þess sem lögin sem Stein-
grímur Hermannsson beitti sér
fyrir og bráðabirgðalögin voru
byggð á, að heimildirnar voru í
höndum Framleiðsluráðs."
Pálmi sagði að þetta hefði verið
nauðsynleg breyting, því það væri
í ýmsum fleiri atriðum sem ráð-
herra hækkaði eða lækkaði skatt-
heimtu af svipuðu tagi, með reglu-
gerð. Svo væri t.d. með bensíngjald
og aðra tekjustofna sem rynnu til
Vegagerðar ríkisins. „Það sýnir sig
að það gengur ekki að framselja
slíkt vald til hagsmunaaðila, utan
framkvæmdavaldsins," sagði Pálmi.