Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 3

Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 3 Nýjar verð- merkingar hjá ÁTVR í fréttabréfi verslunarráðs fslands, „Viðskiptamál" 14. tbl. 7. árgangi 1985 kemur fram aó fyrirhugað er að Áfengis- og tóbaksvöruverslun ríkisins sæki um að verðmerkja vörur sínar með EAN strik merk- ingu. Þannig verður afgreiðslan tölvuvædd og er ætlunin að setja slíkan búnað í nýju útibúin í Mjódd- inni og Hagkaupshúsinu. EAN nefndin á íslandi vinnur nú að því að afla upplýsinga um verð á búnaði fyrir notkun strika- merkja í verslunum. Stefnt er að því að boða forsvarsmenn stærri verslana til kynningarfunda um leið og þeirra upplýsinga hefur verið aflað. Þá mun Iðntækni- stofnun gangast fyrir tveim nám- skeiðum fyrir notendur EAN strikamerkja. Fyrra námskeiðið verður fyrir dreifingaraðila 23. janúar nk. en seinna námskeiðið er um hönnun og prentun umbúða með EAN merkjum og verður 24. janúar nk. Fyrirlesari á námskeið- unum verður Arne Rask frá Emballageinstitutet í Kaup- mannahöfn. Isaksturs- keppni fyrir sérútbúna keppnisbíla Á sérhönnuðum skrúfudekkjum munu keppendur í „ískrosskeppni“ Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur þeysa um Leirtjörn við Úlfarsfell á sunnudaginn. Hefst keppnin klukk- an 13.30. Níu keppendur á sérút- búnum keppnisbflum munu berjast um sigurinn, en bflarnir eru m.a. búnir dekkjum, sem hafa 2-300 skrúfur hvert „Það verður hörku hasar í keppninni. Þrír keppendur eru líklegastir til afreka. fslands- meistarinn í rally cross, Jón Hólm á VW, Ævar Hjartarson á Skoda og Birgir Vagnsson á Cortina. Þetta er fyrsta keppni vetrarins og er aðeins fyrir sérútbúna bíla. f vetur er meiningin að halda annars konar keppni fyrir venju- lega bíla,“ sagði keppnisstjórinn Magnús Arnarsson í samtali við Morgunblaðið. í „ískrosskeppni” aka fjórir bílar hlykkjótta braut í einum hnapp og eru mikið um pústra milli keppenda. Eftir und- anriðla komast að lokum fjórir bílar í úrslit. Það skal tekið fram að „ískross" og ísaksturskeppni er ekki af sama toga. f ísakstri aka óbreyttir bílar og þá einn í einu. Aka þá keppendur venjulegum fjölskyldubílum í kapp við klukk- una. Slíkar keppnir eru fyrir- hugaðar í vetur fyrir almenning. INNLENT Verðlauna- myndagátan Punktur sá, sem er yfir fyrstu myndinni I Verðlaunamynda- gátu Lesbókar, er gátunni með öllu óviðkomandi, kominn þangað með lítt skiljanlegum hætti. Ráðendur eru beðnir um að láta þennan „prentvillu- púka“ ekki rugla sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.