Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 heiði var gjörsamlega ófær, en blásinn seint um kvöldið og út- búnaðurinn fluttur til Seyðisfjarð- ar í fylgd tveggja manna frá Sigl- ingamálastofnun, þeirra Þorvald- ar Ólafssonar og Eyjólfs Magnús- sonar. „Það var lítið hægt að gera til varnar því að olían dreifðist vegna veðurofsans þennan dag. Menn héðan reyndu þó að setja upp flotgirðingu, en hún hélt ekki sem skyldi," sagði Þorvaldur Jó- hannsson bæjarstjóri. Vindur var austanstæður á annan í jólum og fram eftir degi í gær, og rak olíuna því inn í botn fjarðarins. Stærsta skammtinn fékk smábátahöfnin og víkin utan við hana, um 100 tonn, að ágiskun Theódórs Blöndals verksmiðju- stjóra. Olían dreifðist að mestu leyti á um 800 metra svæði við Austurveg, Hafnargötu og Strand- arveg, og var brákin frá tveimur metrum upp í 15 metra að breidd. Síðdegis í gær var olían í firðinum umlukin flotgirðingu og einnig hafist handa við að dæla upp olíu- Ieðjunni. Veður hafði þá mjög stillst og gekk dælingin vel, þrátt fyrir að olían væri mjög þykk og hulin krapi. í gærkvöld var stefnt Skriðan rauf olíuleiðslu og 300 til 400 tonn af olíu láku í sjóinn Gísli Krist- jánsson, fyrrum rit- stjóri Freys látinn Gísii Kristjánsson, fyrrum ritstjórí búnaðarblaðsins Freys, lést á Borg- arspítalanum í Reykjavík hinn 24. desember síðastliðinn. Hann var 81 árs að aldri. Gísli Kristjánsson var fæddur 28. febrúar 1904 í Gröf í Svarfað- ardal. Foreldrar hans voru Kristj- án Tryggvi Sigurjónsson, bóndi í Brautarhóli í sömu sveit og kona hans Kristín Sigfúsína Kristjáns- dóttir. Gísli varð búfræðingur frá Hólum árið 1925 og stundaði síðan nám í íþróttaskólanum í Ollerup í Danmörku 1926 og 1927. Hann var kennari á Dalvík 1928 til 1930 og stundaði jafnframt verslunarstörf. Kennari á Hólum 1930 og 1931. Nam við International People Collage í Danmörku 1935 og kenn- aranámskeið við sömu stofnun síðar. Búfræðikandidat frá Búnað- arháskólanum í Kaupmannahöfn 1939 og próf eftir „supplerings- kursus" við sömu stofnun 1941. Nám við „Handelsvidenskablig læreanstalt“ í Kaupmannahöfn 1942 og 1943. Aðstoðarmaður við „Forsögsl aboratoriet“ í Kaup- mannahöfn 1939 og aftur 1941 til Gísli Kristjánsson. 1945, en vann á þeim tíma einnig við dönsku búreikningaskrifstof- una og fasteingamatsdeildina í danska stjórnarráðinu. Vann einn- ig við kornbirgðastofnun danska ríkisins 1940 og 1941. Naut styrks til vísindaiðkana í Danmörku 1943 til 1945. Gísli fluttist heim til íslands 1945. Ritstjóri Freys var hann frá 1945 og þar til í árslok 1974. Auk þess hafði hann með höndum almenna upplýsingastarfsemi á vegum Búnaðarfélags íslands. Gísli vann auk þess að ýmsum fé- lagsmálum í þágu Búnaðarsam- takanna og var fulltrúi íslands á erlendum vettvangi. Gísli var sæmdur heiðursmerkjum, inn- lendum og erlendum fyrir störf sfn að búnaðarmálum, og var gerður heiðursfélagi í Æðarræktarfélagi íslands 1979 og í Búnaðarfélagi íslands 1983. Gísli kvæntist eftirlifandi konu sinni Thoru Margrethe Nilsen árið 1937 og eru börn þeirra fimm. hendi á þessum stað þegar sjóaði mikið á harðfenni. „Jafnvel þótt ekki sé mjög mikill snjór í fjallinu, safnast hann saman í gljúfrum og getur svo runnið fyrirvaralaust af stað með miklum þunga. Því tók- um við í almannavarnanefnd þá ákvörðun að loka Vestdalseyrar- vegi algerlega meðan þetta hættu- ástand varir,“ sagði Þorvaldur. Theodór Blöndal verksmiðjustjóri tsbjarnarins sagði að olíuleiðslur væru grafnar í jörðu þar sem þær lægju næst sjónum, en mönnum hefði sést yfir þörfina á að grafa leiðslur niður á þessum stað. Það tókst að stöðva olíulekann um klukkan fjögur síðdegis á annan jóladag, en þá höfðu farið í sjóinn milli 300 og 400 tonn af svartolíu af þeim 600 tonnum sem í tanknum voru. Flugvél Landhelgisgæslunn- ar flaug síðar um daginn til Egils- staða með flotgirðingu og sérstaka olíudælu. Vegurinn yfir Fjarðar- að því að halda áfram að dæla svo lengi sem veður leyfði. En það má búast við þvi að ærið hreinsunar- starf bíði Seyðfirðinga á næstu dögum og vikum. „Hversu mikið tjón þetta er getur enginn sagt á þessu stigi. Beina tjónið er náttúruiega verð- mæti olíunnar og skemmdirnar á olíuleiðslunni, en óbeina tjónið er vafalaust miklu rneira," sagði Sig- urður Helgason, bæjarfógeti á Seyðisfirði. Snjóflóðið á Seyðisnrði: ÞAÐ var ekki peningalykt sem lagði að vitum bæjarbúa á Seyðisfirði að morgni annars dags jóla. í sumum löndum fyrir botni Miðjarðarhafs hefði kannski verið litið svo á málin, en megn olíustækja í loftinu hefur ekki sömu verðmætaskýrskotun hér á norðurhjara og í löndum svarta- gullsins. Þvert á móti bendir slík lykt til að ekki sé allt með felldu. Sem kom á daginn: snjóskriða hafði rofið leiðslu olíutanks við bræðsluverk- smiðju ísbjarnarins og 300-400 tonn af olíu lekið í sjóinn. „Við fundum lykt af olíu um inn,“ lýsti bæjarstjórinn á Seyðis- tíuleytið um morguninn og þá vöknuðu auðvitað strax ýmsar grunsemdir. Upp úr hádeginu fóru nokkrir menn á báti yfir fjörðinn að verksmiðju ísbjarnarins og þá kom hið sanna í ljós. Um 400 metra breið snjóskriða hafi fallið og rofið olíuleiðslu upp við innsta olíutank- firði, Þorvaldur Jóhannsson, því hvernig menn urðu fyrst varir við óhappið. Talið er að skriðan hafi fallið síðla nætur á jóladag. Þor- valdur sagði að snjóflóðið hefði ekki verið mikið að efnismagni, en ansi „fast skot“. Hann sagði að hættan á sjóflóði væri alltaf fyrir Þingað á lögreglustöðinni. Lengst til vinstri er Sigurður Helgason bæjarfógeti á Seyðisfírði, bæjarstjórinn Þorvaldur Jóhannsson er raeð símann við eyrað, við hlið hans situr lögregluþjónninn Egill Ragnarsson og loks Theodór Blöndal verksmiðjustjóri ísbjarnarins. Siðdegis í gær var byrjað að dæla olíuleðjunni upp úr smábátahöfninni. Menn skeggræða hvernig best sé að verk- inu staðið, en í vinstra horni myndarinnar má sjá hluta dælubúnaðarins í sjónum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.