Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
Bleikar slaufur
Þeir morgunútvarpsmenn
efndu til simaspjalis í gær og
inntu fólk eftir jólaleikriti sjón-
varpsins: Bleikum slaufum. Svörin
voru á ýmsa lund eins og gengur.
Einn faðirinn taldi að sjónvarpinu
hefði borið skylda til að vara fólk
við því að óhuganlegu atriði lítt við
hæfi barna brygði fyrir í verkinu.
Hér á faðirinn að sjálfsögðu við
morðið. Fleiri tóku í sama streng
og bætti ein konan um betur en hún
taldi að efni verksins væri lítt við
hæfi á jólunum. Sitt sýnist hverjum
og er það auðvitað alltaf álitamál
hvers konar texta skal filma fyrir
jólahátíðina. Persónulega fannst
mér verkið ekki mjög óhugnanlegt,
einkum vegna þess að leikstjórinn,
Sigurður Pálsson, nýtti lítt mögu-
leika kvikmyndatækninnar í þá veru
að skapa spennu. Það var raunar
engu líkara en Stundin okkar hefði
ratað á skjáinn ef höfundur hefði
haft vit á að sleppa morðinu og
kynsvallinu.
Of eða van?
Ég hef heyrt því fleygt að leikarar
sæki gjarnan á efri árum í æsandi
hlutverk svona eins og til að sanna
fyrir sjálfum sér að æskuþrótturinn
sé enn fyrir hendi. Steinunn Sigurð-
ardóttir þarf ekki á slíkum sjálfs-
flótta að halda. Af hverju í ósköpun-
um staðnæmdist hún ekki við
drykkjusvallið í íbúð skötuhjúanna
á efri hæðinni? Var ekki nóg að
gert þótt Guðmundur sleppti því að
reka hnífinn í konu sína — bakveik-
ur maðurinn? Verk Steinunnar
hefði máski hnýtt svo sem eina
bleika slaufu á fák ímyndunarafls-
ins ef verkinu hefði lokið með heim-
komu Guðmundar af spítalanum:
Guðmundur (hás). Og hvar eru allir
peningarnir kelling. (Ekkert svar
aðeins geyspi eiginkonunnar og
fimmtíukall er hún veiðir kæruleys-
islega upp úr brjóstahaldaranum
og fleygir framan í bóndann. Guð-
mundur grípur um bakið, hnígur
niður og eiginkonan lyftir glottandi
símtólinu). Æ getiði ekki sent sjú-
krabíl... nei nei það er ekkert al-
varlegt bara smá skessuskot, við
erum vön þessu (hlær hrossahlátri
í sömu svipan opnast svefnherberg-
ishurðin og börnin kíkja inn. Góði
gæinn sem Eggert Þorleifsson lék
brosir yfir axlir barnanna). Þú ert
þá kominn heim Guðmundur minn,
ég ætlaði bara að færa þér blóm.
(Hláturinn iskrar í vondu eiginkon-
unni sem Edda Björgvinsdóttir leik-
ur og hún sperrir annan fótinn
undan sænginni og veifar í átt til
Eggerts tælandi). Ef einhver slík
slaufa hefði verið hnýtt á verk
Steinunnar þá hefði máski kviknað
í tundrinu og áhrofandinn spunnið
áfram söguþráðinn. En þess í stað
beitir Guðmundur kutanum, vonda
eiginkonan út í líkhús, hann á
sjúkrabörum uppá spítala með
skessuskot og góða fólkið annast
auðvitað munaðarlaus börnin. Kött-
ur setti upp stýri úti er ævintýri.
Leikararnir:
Ekki alveg því ég átti eftir að
fjalla um blessaða leikarana. Eggert
Þorleifssyni hæfði hlutverk góða
heimilisföðurins. Slíkir menn eru
náttúrulega ekki til nema í mynd-
skreyttum biblíusögum. Hvað um
það, Eggert virðist eiga afar auðvelt
með að leika flekklaus góðmenni
enda bjartur yfirlitum. Harald G.
Haralds álíka sannfærandi dusil-
menni enda dökkur á brún og brá.
Edda Björgvins á sömuleiðis létt
með að leika óheflaðar gálur og
kjaftforar kvensur. Guðlaugu Maríu
Bjarnadóttur hentar hins vegar lítt
að fara með hlutverk engilbjartrar
fyrirmyndahúsmóður. Ég ráðlegg
sjónvarpsmönnum að leita næst til
kvikmyndaleikstjóra á borð við
Viðar Víkingsson þá þeir hyggjast
filma yfirnáttúrulegt fólk af engla
og djöflakyni og höfundar mættu
gjarnan hlífa áhorfendum við blóð-
storknum slaufum í loksenunni.
Gefum áhorfandanum færi á að
hnýta sínar slaufur sjálfur.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Tina Turner
á ferð og flugi
WM „Tina Turner á
4Q ferð og flugi“ er
— heiti þáttar þar
sem rokkdrottningunni er
21
Tina Turner á hljómleikum.
fylgt eftir á hljómleika-
haldi í Birmingham í mars
sl. Auk Tinu koma fram í
þættinum þeir Bryan
Adams og David Bowie.
Þátturinn er klukku-
tíma langur og hefur Tina
sjálf lýst hljómleikum
þessum með þeim bestu í
lífi sínu, og eru mörg lag-
anna sem hún flytur af
plötu hennar „Private
Dancer". Reyndar kallaði
Tina ferð sína „Private
Dancer Tour ’85“. Meðal
laga þeirra er hún flytur
má nefna: I Might Have
Been Quen, What’s Love
Got to Do with It, I Can’t
Stay Together, Help, It’s
Only Love, Tonight og
Let’s Dance.
Hún hélt 48 slíka tón-
leika til að fylgja plötu
sinni úr hlaði á 56 dögum
í 13 löndum.
Frá vinstri á myndinni eru: Sigrún Edda Björnsdóttir, Inga Bjarnason, leikstjóri, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Aðalsteinn Bergdal og Arnór
Benónýsson.
Happaskórnir
Jólaleikrit barnanna
■■■■ Leikritið
t /» 3<í „Happaskórn-
1 U ir“ eftir Gúnth-
er Eich. Leikritið, sem var
frumflutt árið 1948, er eitt
af elstu verkum Eichs en
hann er meðal fremstu
höfunda útvarpsleikrita í
Þýskalandi.
Leikurinn er mjög
frjálsleg leikgerð á ævin-
týri H.C. Andersens,
„Gæfuskónum". Segir sú
saga frá því er ein af
þernum Gæfunnar læðir
inn í mannheim skóhlífum
þeirrar náttúru að hver,
sem setur þær á sig, fær
óskir sínar uppfylltar.
Ýmsir.verða til að klæðast
þessum skófatnaði en
brátt kemur þó í ljós að
það verður engum til gæfu
að fá allt sem hann óskar
Hin gömlu kynni
ítölsk bíómynd
■■■■ „Hin gömlu
c%(\ 35 kynni“ — ítölsk
ZtLt — bíómynd frá ár-
inu 1977 — er á dagskrá
sjónvarps kl. 22.35 í kvöld.
Leikstjóri er Ettore Scola
og með aðalhlutverk fara:
Nino Manfredi, Vittorio
Gassamn, Aldo Fabrizzi,
Stefano Satta Florens og
Stefania Sandrelli.
Saga myndarinnar er
um þrjá vini sem börðust
hlið við hlið í stríðinu og
hittast á ný eftir mörg ár.
Margt hefur breyst en þeir
elska enn allir sömu stúlk-
una.
Þýðandi er Sonja Diego.
sér.
Þýðandi leiksins er Brí-
et Héðinsdóttir og leik-
stjóri Inga Bjarnason.
Leikendur eru: Jón Gunn-
arsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, Jón
Hjartarson, Flosi Ólafs-
son, Guðmundur Pálsson,
Aðalsteinn Bergdal,
Guðný Helgadóttir, Ása
Svafarsdóttir, Arnór Ben-
ónýsson, Viðar Eggerts-
son, Bjarni Steingrímsson,
Sigurður Skúlason, Sigur-
jóna Sverrisdóttir, Valde-
mar Helgason, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir,
Kjartan Ragnarsson, Ró-
bert Arnfinnsson, Sigur-
veig Jónsdóttir og Jón
Gunnarsson. Tæknimenn
eru Ástvaldur Kristinsson
og Óskar Ingvarsson.
Leikritið verður endurtek-
ið sunnudaginn 5. janúar
i,i on on
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
28. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og
kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
08.30 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál.
Endurtekin páttur frá kvöld-
inu áður sem Margrét Jóns-
dóttir flytur.
10.10 Veðurfregnir.
Öskalög sjúklinga, framhald.
11.00 Um bókaútgáfu ársins.
Þorgrlmur Gestsson stjórnar
umraeöuþætti.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.50 Hérognú.
Fréttaþáttur I vikulokin.
15.00 Miðdegistónleikar.
Sinfónía nr. 5 I e-moll op.
64 eftir Pjotr Tsjaikovskl.
Sinfónluhljómsveitin I
Chicago leikur. Seiji Ozawa
stjórnar.
15.50 Fjölmiðlun vikunnar.
Esther Guðmundsdóttir tal-
ar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
16.35 Jólaleikrit barna og ungl-
inga: „Happaskórnir" eftir
Gúnther Eich.
Þýöandi: Brlet Héöinsdóttir.
Leikstjóri: Inga Bjarnason.
Leikendur: Sigrún Edda
Bjðrnsdóttir, Kristln Anna
Þórarinsdóttir, Jón Hjartar-
son, Flosi Ólafsson, Guð-
mundur Pálsson, Aðalsteinn
Bergdal, Guðný Helgadóttir,
Asa Svafarsdóttir, Arnór
Benónýsson, Viöar Eggerts-
son, Sigurður Skúlason, Sig-
urjóna Sverrisdóttir, Valde-
mar Helgason, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Kjart-
an Ragnarsson, Róbert Arn-
finnsson, Sigurveig Jóns-
dóttir oq Jón Gunnarsson.
Leikritið verður endurtekið
sunnudaginn 5. janúar kl.
20.00.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Stungið i stúf.
Þáttur I umsjá Davíðs Þórs
Jónssonar og Halls Helga-
sonar.
20.00 Harmonlkuþáttur.
Umsjón: Bjarni Marteinsson.
20.30 Kvöld á Dalvik.
Umsjón: Jónas Jónasson.
(Frá Akureyri.)
21.20 Vlsnakvöld.
Aðalsteinn Asberg Sigurðs-
son sér um þáttinn.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
21.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 A ferð með Sveini Einars-
syni.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar.
Umsjón: Jón Orn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
SJÓNVARP
16.00 Enska knattspyrnan.
Umsjón Bjarni Felixson.
17.15 fþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
Hlé.
19.20 Steinn Marcó Pólós.
(La Pietra di Marco Polo).
Fjórtándi þáttur. Italskur
framhaldsmyndaflokkur um
ævintýri nokkurra krakka I
Feneyjum. Þýðandi Þurlður
Magnúsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
TOÚtS Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Staupasteinn.
(Cheers). Ellefti þáttur.
Bandarlskur gamanmynda-
LAUGARDAGUR
28. desember
flokkur. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.10 Fastir liðir .eins og venju-
lega“.
Lokaþáttur. Léttur fjöl-
skylduharmleikur eftir Eddu
Björgvinsdóttur, Helgu Thor-
berg og Glsla Rúnar Jónsson
sem jafnframt er leikstjóri.
Stjórn upptöku: Viöar Vlk-
ingsson.
21.40 Tina Turner á ferð og
flugi.
(Tina Turner — Private
Dancer Tour ’85). Sjón-
varpsþáttur frá hljómleikum
rokkdrottningarinnar Tinu
Turner I Birmingham I mars
slðastliðnum. Auk Tinu Turn-
er koma Bryan Adams og
David Bowie fram.
22.35 Hin gömlu kynni.
(C’eravamo tanto amati).
Itölsk blómynd frá árinu
1977. Leikstjóri Ettore
Scola. Aðalhlutverk Nino
Manfredi, Vittorio Gassamn,
Aldo Fabrizzi, Stefano Satta
Rores, Stefania Sandrelli.
Þrlr vinir sem börðust hliö
viö hlið I strlðinu hittast á ný
eftir mörg ár. Margt hefur
breyst en (oeir elska enn allir
sömu stúlkuna. Þýðandi
Sonja Diego.
00.40 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
28. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Sigurður Blöndal.
Hlé.
13.13 Tekið á Rás. Ingólfur
Hannesson lýsir landsleik
Islending og Dana I hand-
knattleik I Iþróttahúsinu á
Akranesi. Bein útsending.
14.50 Laugardagur til lukku.
Stjórnandi. Svavar Gests.
16.00—17.00 Listapopp.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Hringborðið.
Stjórnandi: Sigurður Einars-
son.
Hlé.
20.00—21.00 Hjaratsláttur.
Tónlist tengd myndlist og
myndlistarmönnum.
Stjórnandi: Kolbrún Hall-
dórsdóttir.
21.00—22.00 Milli strlða.
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
22.00—23.00 Bárujárn.
Stjórnandi: Sigurður Sverris-
son.
23.00—24.00 Svifflugur.
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns-
son.
24.00—03.00 Næturvaktin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
- ^vHCicjrawp— - •<-.