Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1986
9
jþlí ÓB B AIS AIF Ú L AG
MflJÁTÍKUm
STOFNAO 17. JÚNÍ 1951
Jolaskemmtunin verður haldin í
Tónabæ þann 30. des. kl. 15.00.
Félagar takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir.
Þjóöda n sa félag Reykjavíkur
Til viðskiptamanna
banka og sparisjóða.
Lokun 2. janúar
og eindagi víxla.
Vegna áramótavinnu veröa afgreiöslur
banka og sparisjóða lokaðar fimmtudaginn
2. janúar 1986.
Leiðbeiningar um eindaga víxla um áramót
liggjaframmi í afgreiðslum.
fíeykjavík, 13. desember 1985
SAMVINNUNEFND
BANKA OG SPARISJÓÐA
^Attu von
a gestum?
Vogaídýfa er tilbúin beint úr dósinni.
Við bjóðum tvær gerðir, Vogaídýfu með lauk,
sem einnig er góð í ýmsar salatblöndur
og Vogaídýfu með kryddblöndu,
sem er auk þess að vera frábær ídýfa
góð með flestum fisk- og kjötréttum.
Framleiðandi: Vogabær - Sími 92-6525.
Mfcð&öœi?
Vetrarsólhvörf
l*orsteinn I'áLsson sejfir
í forystugrein SuAurlands:
„Vetrarsólhvörf hafa
jafnan haft mikil áhrif á
mannlífið á íslandi. I>að
lögmál náttúrunnar að í
dimmasta skammdeffinu
tekur daginn að lengja á
ný eflir með okkur trú og
von um betri framtíð. A
þessum tíma árs holdum
við hátíð kristinna manna
og höldum á loft boðskap,
Ijóssins gegn skammdegis-
myrkrinu. En þó hátíð sé
haldin og við göngum á vit
nýs tíma, um leið og við
fognum nýju ári, erum við
umlukt hversdagsiegum
verkefnum, þau hlaupa
ekki frá okkur.
Á undanförnum misser-
unm hafa verið mikil um-
brot í þjóðlífinu. Ýmislegt
hefur gengið okkur í haginn
en í öðrum efnum hafa
stríðir vindar blásið á móti.
I*að er ekki nýlunda, við
höfum áður glímt við mik-
inn vanda, íslendingar.
Sviptivindar hafa aldrei
brotið styrka stofna ís-
lcnsks þjóðlífs og efnhags-
lífs. Við höfum jafnan
brostist fram úr örðugleik-
um með trú og áræði. I>að
eru þeir eiginleikar sem
flutt hafa þessa þjóð úr fá-
tækt til velmegunar.
Síðustu vikur hafa menn
eðlilega haft þungar áhyggj-
ur vegna þeirra atburða
sem gerst hafa í viöskipta-
lífi þjóðarinnar. Menn hafa
orðið uppvísir að viðamik-
iili, ólögmætri okurlána-
starfsemi og gjaldþrot
skipafélags hefur rýrt eigin-
fjárstöðu ríkLsbanka. At-
burðir sem þessir eru til
þess fallnir að grafa undan
trausti á fjármálakerfi þjóð-
arinnar. Það er því ekki að
undra þó að ýmsum finnst
sem þjóðlífíð allt sé eins
og rótlaust þangið.
Höfuðmáli skiptir, þegar
atburðir af þessu tagi ger-
ast, að bregðast við af festu
og einurð, að draga fram f
dagsljósið þau atriði sem
máli skipta og koma fram
ábyrgð gagnvart þeim sem
ábyrgð bera. Hitt þjónar
ekki tilgangi, að nota slík
Menning og hagsæld
Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálf-
stæöisflokksins, skrifaði jólahugvekju í
Suöurland, málgagn sjálfstæöismanna í
Suöurlandskjördæmi, en hann er þing-
maöur Sunnlendinga.
tilvik sem tilefni til þess
að auka á sundurlyndi og
tortryggni. f þcssu efni
skiptir mestu máli, að hafa
staðhæfíngar og fullyrðing-
ar sem sannastar.“
Að vinna sig út
úr vandanum
„Af hálfu löggjafarvalds-
ins hefur verið unnið að því
að setja lög og reglur er lúta
að starfsemi peningastofn-
ana. í mörg ár hafa laga-
reghir þar að lútandi verið
lausar í reipunum. Nú hefur
þegar verð sett, eða í þann
mund, verið að setja laga-
reglur er taka til allra þátta
fjármagnsmarkaðarins,
hvort heldur það er starf-
semi Seðlabanka, við-
skiptabanka, sparisjóða eða
verðbréfamarkaða. Mestu
máli skiptir, að löggjafínn
flýti því svo sem verða má,
að setja allri þessari starf-
semi skýrar og ákvcðnar
lcikreglur. Enginn dregur í
efa mikilva-gi hennar fyrir
framþróun þjóðfélagsins og
hagsmuni heimilanna í
landinu. En við megum
ekki láta viðskiptastarfsem-
ina fyllast af innanmcinum
og verðum því að geta
stuðst við þær lagareglur,
sem auðvelda okkur að
greina hismið frá kjarnan-
um, hafrana frá sauðunum.
Við höfðum vænst þess
að sjá meiri árangur og
betri í baráttunni við að
uppræta illgresi verðbólg-
unnar í efnahags- og þjóð-
lífí. Við höfðum ennfremur
vænst þess, eftir langt
samdráttarskeið, að vöxtur
framleiðslu og verðmæta
yrði hraðari en raun hefur
orðið á. Þó að vonir okkar
hafí ekki að fullu ræst að
þessu leyti er þó ekki
ástæða til að æðrast. Við
munum með samstilltu
átaki vinna okkur út úr
örðugleikunum. Þjóðin hef-
ur smám saman verið að
vakna til skilnings á því,
að hún bætir ekki hag sinn
með eyðslu og skuldasöfn-
un og ef til vill er það
markvcrðast, að einmitt um
þessar mundir, er eins og
samstaða sé að verða um
það meðal fólksins í
landinu, að snúa af braut
eyðslu yfír á veg sparnaðar
og verðmætasköpunar."
Styrkur og
samkennd
„Það er einnig fagnaðar-
efni, nú í dimmasta
skammdeginu, að fólkið í
I landinu skuli á sjálfan full-
vcldisdaginn hafa samein-
ast um sókn til þess að
varðveita og efía íslenska
tungu. íslensk menning og
menningararfíeifð er sann-
arlega undirstaða almennr-
ar velferðar og hagsældar
á íslandi. I>essi litla þjóð
er sjálfstæð fyrir þá sök,
að hún hefur alltaf skilið,
jafnvel á myrkustu tímum
sögunnar, að eigin tunga
og eigin menning, hefur
gert okkur að sjálfstæðri
þjóð í stóru veraldarsam-
félagi. Ýmsir heföu haldið
að þaö heföi verið tilgangs-
lítiö. að blása i herlúðra til
sóknar fyrir íslenska tungu
og kalla menn saman til
fundar i þeim tilgangi.
Staðreyndin er hins vegar
sú, að skilningurinn á gildi
Lslenskrar tungu fyrir sjálf-
stætt þjóðllf í landinu er
svo greiptur í vitund þjóðar-
innar, að hún hlýðir fyrsta
kalli, þegar sjálft móður-
málið á í hluL
Hér hefur verið bent á
tvær andstæður úr íslensku
þjóðlífí síöustu vikur. Tvo
atburöi sem eru jafn óskild-
ir og dagur og nótt En
þeir sýna okkur líka að
þrátt fyrir andstreymi, þrátt
fyrir rótleysi, hefur þjóðin
bæði styrk og samkennd,
sem mun duga okkur f
baráttu fyrir því, að upp-
ræta meinsemdir og byggja
upp hagsæld og velferð á
íslandi.
Séra Heimir Steinsson,
Þingvallaprestur, komst
svo að orði í hugvekju nú
á jólafostunni: „Nú fara
glaðir dagar í hönd, vonin
slær alskærum bjarma yfir
komandi vikur, en dómsorð
Drottins forðar okkur frá
því að láta vaggast til værð-
ar í einhverri þeirrí fífla-
paradís, þar sem enginn sér
framar skilsmun góðs og
ills, þar sem rétt og rangt
er hvort tveggja fyrir borð
borið.“
Það er ósk mín aö við
getum látið birtu jólaboð-
skaparins og von Ijósaskipt-
anna leiða okkur inn á þær
brautir sem kenna okkur
að greina rétt frá röngu og
forði okkur frá að þjóðfélag
okkar verði einhverskonar
fíflaparadís."
Jólagleði
sjálfstæðis-
félaganna í
Reykjavík
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík boöa
til jóiafagnaoar í Sjáifstæöishúsinu
Valhöll sunnudaginn 29. des. nk.
kl. 15.00.
Brúðubíllinn m/Gústa, ömmu og Lilla mætir á staðinn,
jólasveinar koma í heimsókn og Þórir Lárusson leikur
jólalög fyrir dansinum. Kaffi, gos og kökur.
Kynnir verður Þórunn Gestsdóttir formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna.
Sjálfstæðismenn eru hvattir til þess að
mæta á þessa fjölskylduskemmtun.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík