Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 28. DESEMBER1985
Kasparov vann Timman 4—2
Gary Kasparov, heimsmeistari í
skák, batt endahnútinn á stór-
skemmtilegt einvígi sitt við Hollend-
inginn Jan Timman, med því að
vinna sjöttu og síðustu skákina, sem
tefld var síðastliðinn sunnudag.
Kasparov hlaut þar með fjóra vinn-
inga, en Timman tvo. Fyrir þennan
sigur hlaut Kasparov jafnvirði
250.000 ísl. króna í verðlaun, en
Timman fékk hins vegar jafnvirði
170.000 kr. Einvígið var Ksispenn-
andi frá upphafi til enda og vafalaust
mjög góð æfing fyrir báða keppend-
ur. 22. janúar hefst einvígi Timmans
við Sovétmanninn Jusupov í Tilburg
í Hollandi og 10. febrúar hefja þeir
Kasparov og Karpov þriðja einvígi
sitt um heimsmeistaratitilinn.
Það var barist af mikilli hörku
í sjöttu skákinni, rétt eins og í
þeim fyrri. í 15. leik gerði Timman
tilraun til að endurbæta tafl-
mennsku sína í þeirri fjórðu, en
Kasparov svaraði með enn einni
mannsfórninni. í þetta sinn gaf
hann riddara fyrir tvö peð og
geysilega sterka stöðu á miðborð-
inu. Timman tókst að ná mótspili,
en lék af sér í 30. leik og eftir það
varð sókn Kasparovs óstöðvandi.
„Þetta var góður endir á góðu
einvígi," sagði heimsmeistarinn
við fréttamenn er hann rannsakaði
6. skákina með Timman. „Jan
varðist vel í erfiðri stöðu og tapaði
aðeins vegna þess að hann reyndi
að ná meira en jafntefli út úr skák-
inni,“ bætti Kasparov við.
Kasparov var spurður hvern
hann teldi sigurstranglegastan í
áskorendaeinvígjunum sem hefj-
ast í janúar. Hann neitaði að svara
því, en hollenskum blaðamönnum
tókst þó að pína það út úr honum
að hann teldi Timman eiga góða
möguleika, ef honum tækist að
sigra Jusupov.
Áhugi var mikill í Hollandi fyrir
einvíginu og þar töldu sérfræðing-
ar taflmennsku heimsmeistarans
hafa verið stórkostlega, en Timm-
an hefði hins vegar staðið sig mjög
vel og veitt honum harða keppni.
„Þetta er skáklistin í sinni feg-
urstu mynd,“ sagði hollenski stór-
meistarinn Hans Ree við áheyr-
endur í troðfullum skákskýringa-
salnum í Hilversum á sunnudag-
inn.
Það er vissulega ástæða til að
taka undir það hrós sem keppi-
nautarnir hafa fengið fyrir
frammistöðu sína í einvíginu. Það
er þó hæpið að þeir, og er þá sér-
staklega átt við Kasparov, hefðu
teflt svo glæfralega ef einvígið
hefði verið liður í heimsmeistara-
keppninni. Eftir að hafa unnið
tvær fyrstu skákirnar virtist svo
sem heimsmeistarinn tefldi af
nokkurri léttúð, en þó Timman
berðist eins og ljón tókst honum
ekki að sýna fram á óréttmæti
mannsfórna heimsmeistarans í
fjórðu og sjöttu skákunum. Sú
spurning vaknar hvort Anatoly
Karpov hefði verið fær um að refsa
Kasparov fyrir dirfskuna.
Ef bera á þetta einvígi saman
við heimsmeistaraeinvígin tvö,
sem þeir Kasparov og Karpov
tefldu, er greinilegt að gegn Timm-
an gaf Kasparov sköpunargáfu
sinni alveg lausan tauminn, hann
hugsaði sig ekki um tvisvar er
hann sá vænlega fórn eða sóknar-
möguleika. Gegn Karpov sýndi
hann hins vegar miklu meiri
sjálfsögun, a.m.k. eftir ófarirnar í
upphafi fyrra einvígisins. Það
verður fróðlegt að sjá hvernig stíll
Kasparovs kemur til með að þróast
næstu árin, hvort það verður sköp-
unargleðin eða öryggið sem ræður
ferðinni.
Næsta verkefni heimsmeistar-
ans verður erfitt. Hann fær aðeins
að halda krúnunni í þrjá mánuði
áður en hann verður neyddur til
að verja hana í einvígi. Anatoly
Karpov, fullur hefndarþorsta, hef-
ur skorað hann á hólm í einvígi
sem mun hefjast í febrúar.
Er skáksagan er skoðuð kemur
í ljós að hið nýja hlutverk Kasp-
arovs verður ekki auðvelt. í öll þau
þrjú skipti á þessari öld sem fall-
inn heimsmeistari hefur fengið
tækifæri á að vinna titilinn til
baka hefur sá hinn sami nýtt sér
tækifærið. Alexander Áljekín
vann titilinn til baka af Max Euwe
árið 1937 og Mikhail Botvinnik
náði tvívegis að koma fram hefnd-
um á nýbökuðum heimsmeistara,
fyrst á Vassily Smyslov árið 1958
og síðan aftur á Mikhail Tal árið
1961. Þeir Smyslov og Tal fengu
aðeins að halda titlinum í eitt ár
hvor og þeir virtust báðir falla í
þá gryfju að vanmeta Botvinnik í
seinna einvíginu. Kasparov hefur
því vítin til að varast.
Sjötta einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov.
Svart: Jan Timman.
Drottningarindversk vörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6, 4. Rc3 — Bb4, 5. Bg5 — Bb7,
6. e3 — h6, 7. Bh4 — g5, 8. Bg3 —
Re4
Þessi staða kom upp i öllum
þeim þremur skákum sem heims-
meistarinn hafði hvítt í. í annarri
skákinni reyndi hann hér 9. Rd2!?
9. Dc2 —Bxc3+, 10. bxc3 — d6, 11.
Bd3 — f5, 12. d5 — Rc5, 13. h4 —
g4,14. Rd4 — Df6,15. (W) — Rxd3!?
í fjórðu skákinni lék Timman
15. — Rba6 og fékk á sig manns-
fórnina 16. Rxe6 — Rxe6,17. Bxf5!?
16. Dxd3 — e5,17. Rxf5
17. Dxf5 - Dxf5 - Dxf5, 18.
Rxf5 - Bc8, 19. e4 - Bxf5, 20.
exf5 — 0-0 leiðir til þægilegs enda-
tafls á svart, en 17. Re6 gæti hins
vegar orðið honum óþægilegt, best
virðist þá 17. — Df7 (17. — Ra6,
18. f3! - gxf3, 20. Hxf3 - e4, 21.
Dxe4) til að geta mætt 18. f3 með
18. - exf3,19. Hxf3 - e4, 20. Dd4
-Hg8
17. —Bc8
18. Rd4!
Fyrir manninn fær Kasparov
tvö peð og rennandi peðaflaum á
miðborðinu. Svartur þurfti hins
vegar ekki að óttast 18. e4 — Bxf5,
19. exf5 - Hf8,20. f3 - Dxf5.
18. — exd4,19. cxd4 — Df5
Það var mjög erfitt að finna leið
til að hemja hvíta peðamassann.
Hinum eðlilega leik 19. — Rd7
mátti t.d. svara með 20. f4! og
svartur getur aðeins valið á milli
þess að hleypa hvítu hrókunum á
opna línu og þess að verða kaffærð-
ur í peðaflóði.
20. e4 — Dg6, 21. Dc3 — (W), 22.
Hfel
Kasparov fer sér að engu óðs-
lega, hann vill ekki leyfa svörtum
að svara 22. e5 með Bf5.
22. — Rd7, 23. e5 — Bb7, 24. He3
— b5!
Timman freistar þess að rjúfa
hvítu peðakeðjuna.
25. Da5! — Rb6, 26. Dxb5 — Dc2,
27. exd6 — cxd6,28. He7!
Eftir 28. c5 - Dc4!, 29. Dbl -
Dxd5 verður hvítur að láta sér
nægja jafntefli með þráskák.
28. — Hf7,29. Hxf7 - Kxf7,30. c5
30. — Dc4?!
Hér er sennilegt að Timman
hafi misst af besta tækifæri sínu
til að halda jafntefli. Hann gat
gefið manninn til baka með 30. —
dxc5, 31. dxc5 — Bxd5, 32. cxb6 —
De4, 33. Dfl — axb6. Það er þó
hugsanlegt að hvítur eigi sterkara
framhald: 33. Dd7+ — Kg8, 33. f3!
með vinningsmöguleikum, því
hvítur þarf ekki að óttast 33. —
Dd4+, 34. Kh2, né heldur 33. -
gxf3,34. Hfl.
31. Dbl! —Dxd5
Svartur hótar máti og á manni
meira, en með nokkrum þvinguð-
um leikjum nær Kasparov að
hreinsa upp svörtu peðin á kóngs-
vængnum, valda máthótunina og
undirbúa lokaatlöguna að ber-
skjölduðum kóngi Timmans.
32. Dh7+ - Kf6, 33. Dxh6+ -
Kf7, 34. Df4+ — Kg8, 35. Dxg4+ —
Kh7,36. Bf4!
Þannig er vörninni snúið í sókn
og nú á Timman enga leið til að
verjast öllum hótunum hvíts.
36. — Bc8, 37. Dg3 — dxc5, 38. Hel
— Df7, 39. Dg5 — Rd5, 40. Dh6+
— Kg8, 41. He5! og svartur gafst
upp.
Það er ekki auðvelt að sjá hvar
Timman hefði getað náð jafntefli
eins og Kasparov nefndi í blaðavið-
talinu. Eftir mannsfórnina er
staða svarts mjög erfið og orðin
töpuð eftir31.Dbl!
Strandaði við Laugarnestanga
LEIGUSKIP Eimskipafélagsins, Dor-
is, strandaöi viö Laugarnestanga á
sunnudagsmorguninn 22. desember.
Skipið var að leggja af stað til
Hollands og var rétt komið frá
bryggju í' Sundahfön þegar „vélin
hætti að svara," eins og sjómenn
segja. Skipið rak síðan stjórnlaust í
strand. Dráttarbáturinn Magni og
togarinn Vigri komu skipinu til hjálp-
ar og drógu það á flot á háflóði, um
kl. tvö síðdegis. Kafarar könnuðu
botn skipsins, en hann reyndist að-
eins lítillega dældaður. Vélarbilunin
var einnig lítilfjörleg og hélt Doris
áleiðis til Rotterdam strax á sunnu-
dagskvöldið, að lokinni viðgerð.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VAIDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL
Opið kl. 1 til kl. 5 í dag — Sýnishorn úr söluskrá:
í vesturborginni — hagkvæm skipti
Til kaups óskast góö 2ja herb. ib. Skipti möguleg á rúmgóöri 3ja
herb. íb. á Högunum.
Sérbýli í vesturborginni
Endaraðhús skammt trá Einimel meö 4ra-5 herb. ib. á pöllum, alls
um 165 fm. Skuldlaust. Laust strax.
4ra herb. góðar íbúðir við:
Hvassaleiti — Eyjabakka — Markland — Stóragerði — Kleppsveg —
Kríuhóla. Vinsamlegast kynniö ykkur nánar söiuskrána.
5 herb. ný úrvalsíbúð
Á 1. hseö i suöurenda 127,5 fm nettó. Fullbúin undir trávark nú þegar.
Sameign innan húss og utan öll fullfrágengin. Sérþvoftahús. Fullfrá-
gengiö bílhýsi. Stór geymsla í kjallara. Eitt rúmgott herbergi getur
veriö sér. Teikn. og nánarl uppl. aöeins á skrítst. eftir óskum seljanda.
Fjársterkir kaupendur óska m.a. eftir:
3ja-4ra herb. ib. á 1. hæö viö Safamýri eöa í nágrenni.
Húseign í borginni meö a.m.k. þremur góðum ib.
3ja-5 herb. má vera i byggingu. Úthverfi kemur ekki til greina.
Húseign í vesturborginni. Veröhugmynd 6-9 millj.
Verslunarhúsnaaói 100-200 fm í gamla miöbænum, viö Laugaveg eöa
i nágrenni.
Reyndur og duglegur
sölumaður óskast.
Ennfremur ritari.
Bestu kjör í boöi.
Uppl. aðeins á skrifat.
ekki í síma.
AtMENNA
FASTEIGH&SAL AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Bifreiðin hentist inn í húsagarð
TVEIR fólksbílar, Volkswagen Golf og Mercedes
Benz leigubifreið, rákust harkalega saman á gatna
mótum Bólstaðarhlíðar og Stakkahlíðar klukkan
14.20 á Þorláksmessu. Ökumenn voru einir í bflun-
um og var annar þeirra, ökumaður Volkswagen-bfls-
ins, fluttur á slysadeild. Hann reyndist ekki vera
alvarlega slasaður, en mikið marinn. Báðir bflarnir
skemmdust mikið og hentist Volkswagen-bifreiðin
inn í húsagarð við Bólstaðarhlíðina.
Á þessum gatnamótum er hvorki stöðvunar- eða
biðskylda og gildir því einfaldur hægri réttur.
Leigubifreiðin ók Bólstaðarhlíðina í vestur, en
Volkswagen-bifreiðin kom norður Stakkahlíðina
og var þvf í órétti. Að sögn lögreglunnar eru íbúar
í nágrenninnu óánægðir með að ekki skuli vera
sett upp annað hvort bið- eða stöðvunarskylda á
þessum gatnamótum.
Lokað
Varahlutaverslanir okkar veröa lokaðar
vegna vörutalningar 2. og 3. janúar.
I M U
Gódan daginn!
HEKI
LjlJ Laugavegi 170