Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 12

Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 Með tjekovsku ívafí Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Þjódleikhúsið sýnir Villihunang eftir Anton Tjekov í leikgerð Michael Frayn Þýðandi: Árni Bergmann Lýsing: Páll Ragnarsson Leikmynd: Alexandre Vassiliev Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir Kynnt hefur verið ítarlega, að Villihunang muni vera elzta leikrit Tjekovs og sagt frá því, að það hafi ekki fundizt fyrr en sextán árum eftir hann lézt. Um tilurð verksins var vitað. Það leikrit sem Tjekov lét eftir sig er sagt taka um sex klukku- stundir í flutningi og eftir öllum sólarmerkjum að dæma hefur því verið hafnað á sínum tíma. í formála Michales Frayns, sem birtur er kafli úr í leikskrá, kemur fram, að fleiri hafa á undan honum freistað að gera leikgerð eftir þessu æskuverki Tjekovs. Hann minnist meðal annars á útgáfu á leikritinu sem Dimitri Makaroff hafi gert er leikritið var sýnt í Bretlandi í fyrsta sinn. Michael Frayn er vel ljóst, að það er meira en bara að segja það að taka leikrit sem er í fyrsta lagi eftir Tjekov og í öðru lagi sex klukkutíma langt, og ætla að gera úr því frambærilegt tjekovskt verk: „Þeim sem gerir leikgerð af verkinu er þó öllu verri vandi á höndum, þegar hann fer að reyna að finna skyn- samlega lausn ... en það er sá galli, sem einnig bregður ljósi á þau stórfenglegu afrek sem síð- ari leikritin eru — það er tvíræð- ur grunntónn grínleiks og harm- leiks sem síðar verður fullmótað- ur og eitt augljósasta höfundar- einkenni Tjekovs, en í þessu leik- riti sýnist þetta ekki vera neitt annað en óljós ruglandi í þanka- gangi. Þegar allt kemur til alls hafa menn yfirleitt álitið verkið ósýningarhæft." Þegar Frayn hefur svo farið höndum um þetta „ósýningar- hæfa verk“ er óhjákvæmilegt, að áhorfandi reyni að gera upp hug sinn; ekki aðeins hvernig til hefur tekizt. Heldur líka hvort honum finnst hann vera að horfa á verk Tjekovs í leikgerð brezks höfundar, eða hvort hann er að horfa á verk eftir Michael Frayn með tjekovsku ívafi. Víst svífur Bessi Bjarnason, Rúrik Haraldsson og Róbert Arnfinnsson. Arnar Jónsson og Helga Jónsdóttir í hlutverkum sínum í Villihunangi. andi Tjekovs yfir vötnum. Víst megum við þekkja ýmsar per- sónur úr seinni leikritum Tjekovs, sem hér eru lögð eins konar frumdrög að. Víst þekkj- um við að sagan er tjekovsk. Samt náði Frayn eiginlega meiri tökum á mér en Tjekov, hvort sem þeir annmarkar liggja í verkinu sjálfu eða ekki. Og ég dreg ekki í efa að Frayn hefur reynt að sýna verki Tjekovs trú- mennsku. Hann segir: „Ég hef reynt að leysa þann vanda, sem tvíræði tónninn er, með því að draga úr melódramanu og með ritstýringu og með því að láta verkið stíga frá léttri kómedíu, gegnum farsa, til hins myrka og sársaukafyllri gamanleiks loka- atriðanna...“ Með þetta í huga hljótum við að átta okkur á að það er mjög á valdi leikstjóra hverju sinni að byggja ofan á þá undirstöðu sem Frayn leggur að verkinu. Þrátt fyrir mjög ítarlegar til- sagnir Frayn í ensku útgáfunni er ekki nauðsynlegt að fylgja þeim staðsetningum og það hef- ur Þórhildur Þorleifsdóttir ekki gert. Hún hefði mátt draga til stórra muna úr skógarhlaupun- um í öðru atriði, sem urðu bein- líns afkáraieg. En það ræður engum úrslitum. Það sem mér finnst ráða úrslitum er að leik- stjóri virðist í nokkrum vafa um margslungin blæbrigði leiksins. Skilin milli farsans, gamanleiks- ins og hins myrka og sársauka- fyllri gamanleiks lokaatriðanna verða of skörp; runnu því ekki fram sem ein samfelld heild. Og leikarar léku ekki á sömu nótum af þessum fyrrgreindu ástæðum. Mest mæðir á Platonov sem Arnar Jónsson leikur. Hann olli mér verulegum vonbrigðum. Platonov Arnars Jónssonar er ekki sannfærandi. Hvorki er hann þessi andríki heimspeking- ur né ævintýralegur sjarmör. Né heldur er hann trúverðugur sem hinn mikli örlagavaldur þeirra sem nærri honum standa. Án efa á Platonov að vera í bland „trúður" eins og Anna Petr- ovnova skellir framan í hann. En það réttlætir ekki, að mínum dómi, afkáralega túlkun Arnars Hinn langhrjáði diplómat, f'harles Dance sem lamaður eftir óskiljanlegt upphlaup eiginkonunnar, Meryl Streep f virðulegu kvöldverðarboði í Plenty. Ekki nóg Kvikmyndir Árni Þórarinsson Háskólabíó: Allt eða ekkert — Plenty -trtrVt Bresk. Árgerð 1985. Handrit: David Hare, eftir eigin leikriti. Leikstjóri: Fred Schepisi. Aðalhlutverk: Meryl Streep, Charles Dance, Tracey Ull- man, Sting, John Gielgud, Sam Neill. Vonlaust verk, skyldi maður ætla, að byggja heilt leikrit og síðar heila kvikmynd á grundvelli kvenlýsingar sem áhorfandi kemst ekki tilfinningalega í tæri við að neinu marki, fær hvorki nógan skilning á né ríka samúð með. í hvert skipti sem kvikmyndin Plenty er í þann veginn að hieypa áhorfandanum upp að þessari aðalpersónu dregur höfundur til- boðið til baka, klippir á þráðinn sem er að spinnast þarna á milli og neyðir áhorfandann til að byrja viðkynninguna upp á nýtt. Leikritið Plenty vakti mikla athygli í London fyrir nokkrum árum og einkum hafa menn vand- aðan, safaríkan samtalstexta þess í hávegum. Þessi leiktexti er enn helsti lífgjafi verksins nú þegar höfundurinn David Hare hefur matreitt það fyrir kvikmynd undir stjóm ágæts ástralsks leikstjóra, Fred Schepisi. Byggingarlagið er á hinn bóginn ekki aðeins óvenju- legt, heldur einnig mestan part til dramatískra vandræða. Hare rek- ur sögu aðalpersónunnar, Susan Traherne frá lokum seinni heims- styrjaldarinnar þegar hún er út- sendari bresku leyniþjónustunnar í Frakklandi og-á snöggsoðið ástar- ævintýri nteð starfsbróður sínum Lazar sem hún getur aldrei gleymt og verður af einhverjum — og okkur ókunnum — ástæðum að tilfinningalegri þráhyggju hjá henni það sem eftir er. Næsf hitt- um við hana í Brussel eftir stríðið þegar fundum hennar og ungs starfsmanns breska sendiráðsins, Reymond Brock ber saraan undir kyndugum kringumstæðum og með þeim kviknar einhvers konar ástarsamband. Þá er hlaupið yfir nokkurn tíma og við hittum Susan í hlutverki ófullnægðs kontórista með helgarsamband við Brock og náið vináttusamband við villta stelpugæru, Alice Park. Og svo hoppar myndin fram í tímann með vissu millibili, stiklar á stóru í atburðum í lífi hennar, á nýjum og nýjum vinnustöðum, og í nýjum og sívaxandi geðsveiflum sem rústa allt í kringum hana, uns þau Susan og Brock taka aftur saman og ganga í hjónaband sem hangir á bláþræði til loka myndarinnar með miklum sviptingum og látum. Þessi saga spannar langan tíma og allmörg sögusvið. það er margt sem gerist en samt er eins og ekkert gerist. Það sem gerist — ytri atburðarásin — á allt rætur í innri hræringum Susan. En höf- undur leyfir okkur ekki að nálgast hugarheim konunnar að neinu marki. Hann skellir okkur niður í líf hennar á ákveðnum punktum, eftir að stefnumarkandi áfanga hefur verið náð í verkinu, en klipp- ir burtu þau innri rök, þær drama- tísku skýringar sem að baki búa. Eins og fyrr segir er þetta óvenju- leg byggingaraðferð en ég á bágt með að sjá tilganginn með henni og efast um að hún þjóni honum. Af hverju er Susan haldin þessar sjálftortímingarkennd? Af hverju finnur hún ekki neina þungamiðju í lífinu? Af hverju verður hún geðveik? Er það reynslan af strlð- inu? Er það einhver reynsla langt aftur í æsku? Er það ruglingur og rótleysi með vaknandi sjálfstæðis- kennd og jafnréttisbaráttu kvenna? Eða hvað? Engin svör fást við þessum spurningum I Plenty, sem þó virðist sumpart fjalla um manneskju sem tínir sjálfri sér í alsnægtum og urmul tækifæra hins nýfrjálsa heims. Höfundur virðist einnig ætla að tengja hlut- skipti konunnar við hlutskipti breska heimsveldisins; í bakgrunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.