Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 15

Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 15 Læknamafían — launin há á stofu — eftir Kristján Baldvinsson Mikil blaðaskrif hafa verið að undanförnu um tekjur sérfræð- inga á eigin stofum. Margt hefur verið í æsifregnastíl. í Morgunblaðinu, þann 20. des- ember sl., birtist á baksíðu fregn samkvæmt samtali við Helga V. Jónsson, hæstaréttarlögmann, sem er formaður samninganefndar sjúkratrygginga. Skýrt var frá því, að vissir hópar sérfræðinga hefðu hækkað miklu meira en gert var ráð fyrir við seinustu gjald- skrársamninga. Samkvæmt ein- hliða ákvörðun Tryggingastofnun- ar ríkisins yrðu greiðslur til þess- ara sérfræðinga lækkaðar allt að helmingi, með afturvirkni til 1. september. Fréttir um þetta birt- ust einnig í ríkisfjölmiðlum. I>essi ákvörðun var tekin ein- hliða, þrátt fyrir gildandi gjald- skrá, sem áður hafði verið sam- þykkt formlega bæði af læknum og forsvarsmönnum sjúkratrygg- inga. Rétt er og skylt að skýra al- menningi nánar frá málavöxtum. f byrjun júní þessa árs var samið um nýja gjaldskrá sérfræðinga fyrir læknisverk á eigin stofum. Fljótlega komu í ljós ýmsir hnökr- ar á gjaldskránni og varð sam- komulag um að koma upp svokall- aðri kvörtunarnefnd, sem skipuð skyldi tveim fulltrúum sjúkra- trygginga og tveim fulltrúum Læknafélags Reykjavíkur. Ætlunin var að leysa deilumál jafnóðum og þau bærust. Frá því í september hafa verið haldnir vikulegir fundir en aðeins tókst að leysa hluta þeirra mála, sem bárust. Hvorki gekk né rak með meiri hluta málanna, þrátt fyrir langa fundi og hratt vaxandi papp- írsbunka. Varð nú um það sam- komulag, að fá samninganefndir beggja aðilja til að ná samkomu- lagi, og hafa fundir verið haldnir. aldrei sjaldnar en vikulega frá seinni hluta október. í lok nóvember komu fyrst fram kvartanir um, að vissir hópar sér- fræðinga hefðu hækkað meira en ráð var fyrir gert. Rannsóknalæknar höfðu sjálfir vakið athygli á því síðastliðið vor, að viss atriði í gjaldskrá þeirra mundu hækka þá óeðlilega mikið, miðað við aðra sérfræðinga. Með innbyrðis samkomulagi sömdu þeir um lækkun á þessum atriðum. Hygg ég, að hér sé um einsdæmi að ræða í samningum um kaup og kjör. f lok nóvember fengu fulltrúar lækna upplýsingar um, að augn- læknar, háls-, nef- og eyrnalæknar og húðlæknar hefðu hækkað tals- vert umfram það, sem ráð var fyrir gert. Kristján Baldvinsson „Fulltrúar lækna hafa lýst sig fúsa aö vinna aö lausn þessa máls med fulltrúum sjúkratrygg- inga. Víst er að einhliöa ákvöröun samninga- nefndar sjúkratrygginga auðveldar ekki þá lausn.“ Reynt hefur verið að kanna, hver sé skýring á þessari umfram- hækkun. Ljóst er og, að mikill launamismunur er á stofuvinnu lækna hinna ýmsu sérgreina. Full- trúar lækna hafa lýst sig fúsa að vinna að lausn þessa máls með fulltrúum sjúkratrygginga. Víst er, að einhliða ákvörðun saminga- nefndar sjúkratrygginga auðveld- ar ekki þá lausn. Líkur benda til, að Trygginga- stofnun kunni að hafa samið af sér. Mér er til efs, að fulltrúar sjúkra- trygginga hefðu verið til tals um málamiðlun, hefðu læknar samið af sér. Margsinnis hefur verið ítrekað, og tel ég rétt, að það komi einnig fram hér, að enginn læknir er grun- aður um misferli eða misbeitingu gjaldskrár. Þær upphæðir, sem nefndar hafa verið til einstakra manna, allt upp í 500 þús. króna á mánuði, gilda aðeins um mjög lítinn hóp sérfræðinga. Þær eru ekki nettó- laun. 1 samningum við sérfræð- inga er gengið út frá því, að 50% stofutekna séu kostnaðarliðir en 50% laun. Nefna má, að lágmarks tækjabúnaður háls-, nef- og eyrna- lækna og augnlækna er á bilinu 4—5 milljónir. Til aðstoðar hafa þeir minnst eina og oft tvær stúlk- ur. Hér er því verið að reka fyrir- tæki. Stofuvinna er jafnan akk- orðsvinna, þar sem reynir á kunn- áttu og þrek. Mikil vinna er eftir, þegar síðasti sjúklingurinn er far- in. Þegar kostnaður hefur allur verið greiddur, heldur læknirinn upphæð, sem ekki þætti há hjá fiskiskipstjóra eða flugmanni. Nefna má þá sjálfsögðu stað- reynd, að hver króna, sem læknum er greidd, skilar sér til skatts, sem er meira en sagt verður um ýmsar tekjuháar stéttir og einstaklinga þessa lands. Hluta hækkana til sérfræðinga má rekja til þess, að aðgerðir eru nú i vaxandi mæli framkvæmdar utan stofnana. Ekki leikur vafi á því, að þessi starfsemi sparar skattgreiðendum ærið fé og léttir um leið á sjúkrahúsunum. Ég sagði fyrr í þessu spjalli, að læknar hefðu lýst sig reiðubúna til samvinnu um lausn þess vanda, sem upp er kominn. Það eru þeir enn. Á sama tíma hefur viss fjöl- miðlagleði gripið viðsemjendur okkar. Þeir senda frá sér einhliða ákvörðun um allt að helmings lækkun greiðslna til vissra hópa sérfræðinga með afturvirkni til 1. september, þótt vandanum væri fyrst lýst í lok nóvember og við- ræður séu í gangi. Hæpið er að þetta standist lagalega og alls ekki siðferðilega. Læknum hefur með þessu verið sýnd fádæma óvirðing, sem tæpast mun auðvelda málalok eða önnur samskipti við Tryggingastofnun ríkisins. Höfundur er formaður Læknafé- lags Reykjayíkur. Tónlistarfélag Kristskirkju eignast nýtt píanó Tónlistarfélag Kristskirkju hefur tekið í notkun nýtt fortepíanó, sem félagið hefur eignast Af því tilefni var efnt til tónlistarkynningar í safn- aðarheimili Kristskirkju og komu þar fram meðal annarra David Know- les píanóleikari og Einar Jóhannesson klarinettleikari. (Úr fréttatilkynninpi) Skora á sjálfstæðismenn aö veita konum tækifæri MORGUNBLAÐINU hefur borizt svohljóðandi ályktun frá Kvenrétt- indafélagi íslands: „Hópur á vegum Kvenréttinda- félags Island (KRFÍ), sem vinnur að því að fá fleiri konur kjörnar í sveitarstjórnir í komandi kosning- um, harmar niðurstöður prófkjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem fram fór 24.-25. nóvember sl., þar sem aðeins ein kona var meðal átta efstu mannanna. 1 framkvæmdaáætlun sem sam- þykkt var á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi i júlí sl. eru stjórnvöld, stjórnmála- flokkar og fleiri aðilar hvattir til aðgerða svo konum fjölgi til muna við ákvarðanatöku í þjóðfélaginu. í ljósi þessarar samþykktar, sem Island er aðili að, skorar stjórn- málahópur KRFÍ hér með á sjálf- stæðismenn í Reykjavík að gera breytingar á uppröðun á fram- boðslista flokksins við næstu borg- arstjórnarkosningar, þannig að hlutur kvenna verði stærri og í samræmi við yfirlýsta stefnu flokksins í jafnréttismálum. Jafnframt skorar hópurinn á Sjálfstæðisflokkinn sem aðra stjórnmálaflokka að gefa konum tækifæri til að axla ábyrgð til jafns við karla og kjósa þær til setu í sveitarstjórnum, á Alþingi og til annarra ábyrgðarstarfa í þjóðfélaginu." Kópavogur. Mótmæla skerðingu á hlut sveit- arfélaga í tollum og söluskatti EFTIRFARANDI ályktun var gerð á fundi bæjarstjórnar Kópavogs fóstudaginn 20. desember 1985. „Bæjarstjórn Kópavogs mót- mælir harðlega síendurtekinni skerðingu á hluta sveitarfélaga í tollum og söluskatti. Óviðunandi er að Alþingi beiti þannig valdi sínu til að auka tekjur ríkissjóðs á kostnað sveitarfélaga. Gerð er sú krafa að sveitarfélögum verði þegar tryggt fullt uppgjör hluta síns í óbeinum sköttum á yfir- standandi ári í gegnum jöfnunar- sjóð sveitarfélaga. Jafnframt er þess krafist að fallið verði frá skerðingaráformum á næsta ári við afgreiðslu fjárlaga 1986. Krafa sveitarfélaga er að hlutdeild þeirra verði ávallt miðuð við heildartekj- ur af hinum verðtryggðu tekju- stofnun tolla, sölsukatts og skyldra gjalda hvaða nafn, sem þessir tekjustofnar bera.“ Björn Þorsteinsson bæjarritari Reykholtsdalun Tónleikar í Logalandi HALLDÓR Haraldsson píanóleikari heldur tónleika í Logalandi, Reyk- holtsdal, laugardaginn 28. desember og hefjast þeir kl. 15.00. Á efnisskránni er Appassionata eftir Beethoven, 2 Scherzo eftir Chopin, 4 píanóverk eftir Lizt og Sónata eftir Béla Bartók. (FrétMtilkynning) Allt í áramótaveisluna 10% afsl. af gosi og öli í heilum kössum Sælgæti - snarl - ídýfur - salöt o.fl. o.fl. Flugeldasalan í fullum gangi! J Eiöistorgi 11 - símar 622200 - 629625.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.