Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
17
Bankamannaskólinn 25 ára
í sérútgáfu af Bankablaðinu, sem
nýlega er komið út er þess minnst
að rúm 25 ár eru liðin frá stofnun
Bankamannaskólans sem hóf störf
árið 1959. Það voru ríkisbankarnir,
sem komu skólanum á laggirnar í
samvinnu við samtök starfsmanna,
Samband ísl. bankamanna. í Banka-
blaðinu er gerð grein fyrir sögu skól-
ans og framtíðarverkefnum. Rætt við
bankastjóra og fleiri um stöðu bank-
anna.
Bankaskólinn er staðsettur á
Laugavegi 103, efstu hæð, í hús-
næði, sem Samband ísl. banka-
manna kom upp fyrir tæpum 20
árum. Þar eru 2 skólastofur, sem
rúma samtals um 60 manns. Skóla-
stjóri er Þorsteinn Magnússon,
viðskiptafræðingur frá 1978.
Gunnar Blöndal, Búnaðarb., var
skólastjóri í hlutastarfi fram til
þess tíma. Þorsteinn hefur skóla-
stjórastarfið sem aðalstarf, en
aðrir starfsmenn eru ekki við skól-
ann, en kennaraliðið kemur eink-
um úr hópi starfsmanna banka og
sparisjóða. Árlega sækja nú um
3—400 starfsmenn skólann í lengri
eða skemmri tíma. Aðalnámskeið
skólans eru nýliðanámskeið.
Standa þessi námskeið í rúma tvo
mánuði. Auk þess hefur skólinn
efnt til framhaldsnáms fyrir
starfsmenn. Þá stendur yfir mikið
átak í tölvukennslu fyrir starfs-
menn. Þar að auki efnir skólinn
til námskeiða og ráðstefna fyrir
bankamenn um ný viðfangsefni
bæði hér í Reyk javík og eins úti
álandi.
Þau mál, sem einkum eru á
dagskrá við skólann varðandi
framtíðina, eru aukið nýliðanám
fyrir starfsmenn, fulltrúafræðsla,
aukning á kennslu í framhalds-
námi fyrir lengra komna starfs-
menn og loks hvernig skólinn getur
frekar mætt fræðsluþörf starfs-
manna banka og sparisjóða úti á
landi.
Skólanefndin er skipuð 8 fulltrú-
um, 4 frá ríkisbönkum, 1 frá einka-
bönkunum, 1 frá Sambandi ísl.
sparisjóða og 2 fulltrúum frá
Sambandi ísl. bankamanna. Nú-
verandi formaður skólanefndar er
Björn Tryggvason, aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabankans.
Aftari röð frá vinstri: Benedikt E. Guðbjartsson, Sigurður Geirsson, Guð-
mundur Eiríksson, Þór Gunnarsson og Snæþór Aðalsteinsson. Fremri röð
frá vinstri: Þorsteinn Magnússon, Björn Tryggvason og Hannes Pálsson.