Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 18 Sameinuðu þjóðimar: Afmælishófínu lokið — Fögru orðin gleymd — eftir ívar Guðmundsson NewYork: Aðalforstjóri Sameinuðu þjóð- anna, Javier Perez de Guellar, var óvenju hvassorður í garð stjórn- málaleiðtoga, „sem nota sér vett- vang alþjóðasamtakanna til að halda þar fallegar ræður og gefa háleit fyrirheit, en gleyma svo öllu saman um leið og þeir eru burtu úrþingsalnum De Gueller lét þessi orð falla á blaðamannafundi, sem hann hélt daginn sem fertugasta afmælis- þinginu var slitið, rétt fyrir jólin. Hann lýsti og áhyggjum sínum yfir því, að „aðildarþjóð" (Banda- ríkin) hafi samþykkt lög, sem mæla svo fyrir, að hún getur neitað að greiða framlag, sem á hana hefir verið lagt af Allsherjarþingi, ef hún greiddi atkvæði gegn því máli, sem um er að ræða. Aðalfor- stjórinn sagðist myndi gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að fá lögum þessum breytt. Þau brytu í bága við bókstaf stofnskrárinnar og gætu skert valdasvið samtak- anna og sjálfstæði þeirra. „Lítið brauð, en stórir hringleikir“ Á blaðamannafundinum var þeirri spurningu skotið að de Gueller hvort hann teldi að af- mælisþinginu væri vel lýst með því að segja, að þar hafi verið „sáralítið brauð, en miklir hring- leikhúsleikir" (sirkus). Ég skal ekkert segja um það,“ svaraði aðalforstjórinn. „En við verðum að taka Allsherjarþingið eins og það er og vera þolinmóð. Horfast í augu við raunveruleikann og gera okkur aldrei of háar vonir um það, sem menn mæla á þinginu. Þeir ættu að hætta að flytja þessar fallegu ræður sínar, ef þeir gleyma þeim um leið og þeir ganga útúr þinghöllinni. Gleyma Sameinuðu þjóðunum. Gleyma skyldum sínum gagnvart þeim. Gleyma að samtök- in eru þeirra eigin afkvæmi. Það er þetta sem er svo aðþrengjandi í lok Allsherjarþingsins, að sjá að ræðunum, sem við höfum verið að hlusta á er ekki framfylgt." Og hann hélt áfram reiðilestrinum: „Allir nota þeir sér þennan þægi- lega vettvang, sem kemur þeim svo vel. En þakklætið fyrir þetta er oftast ekkert. Stundum gleyma þeir strax eftir að þeir hafa haldið sínar fallegu ræður, að þeir hafa alið vonir, sem ekki rætast, í brjóstum manna um heim allan. Og hvað er svo í vændum? Ekkert, engin framkvæmd á samþykktum Sameinuðu þjóðanna og engin aðstoð til að leysa alþjóða vanda- málin.“ Neitunarvaldið Fréttaritari spurði: „Á meðan á afmælishátíðahöldunum stóð minntust margir af leiðtogum heimsins á, að það væri tími til kominn, að Afríka, þar sem þriðj- ungur af Sameinuðu þjóðunum býr, fengi neitunarvald í Öryggis- ráðinu. Hvað vildi aðalforstjórinn segja um þá hugmynd? „Kæri vinur,“ svaraði de Gueller, „ef ég á að segja þér hvað mér finnst þá myndi ég ekki bæta Afríkuþjóð við með neitunarvaldi, frekar myndi ég taka það af þeim fimm, sem hafa það“ (að fundarlokum heyrð- ust fréttaritarar segja: „Hvað heldur hann að Sameinuðu þjóð- irnar væru lengi til ef neitunar- valdið væri afnumið? Það hefir bjargað samtökunum að minnsta kosti 109 sinnum er Rússar flutu á neitunarvaldinu í stað þess að þola ósigur í Öryggisráðinu, og hinum stórveldunum nokkrum sinnum. ■TL^-.W , - ~ N.Y.Times 12/15'85 Þannig hugsar amerískur skopteiknari sér atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, þar sem hryðjuverk eru fordæmd. Vonarneistar á alþjóða stjórnmálasviðinu í upphafi blaðamannafundarins ávarpaði aðalforstjórinn frétta- menn og sagði að það mætti merkja nokkurn vonarneista til betra samstarfs miíli þjóða en verið hefir um hríð. „Það er að vísu ekki hægt að segja, að veru- legar breytingar hafi þegar átt sér stað. En þa er eins og leiðtogum þjóðanna sé að verða ljóst, að það er ekki hægt að vinna að friði, ef hver otar sínum tota og brýtur niður í stað þess að byggja. Við verðum að vona, að skorturinn á samlyndi milli þjóða, sem valdið hefir svo miklum erfiðleikum, sé nú að verða yfirstiginn, svo ekki fari í sama óheillafarið á ný. Það er ekki alveg ósanngjarnt, að vona að þau teikn sem við höfum séð leiði til betra samlyndis og sam- komulags en verið hefir í átt að friði, afvopnun og framförum. ( þessu sambandi minntist de Gueller á einkafund ráðherranna, sem haldinn var í Öryggisráðinu. En það var samkomulag um að nota Öryggisráðið betur en hingað til til að koma í veg fyrir hernaðar- leg átök milli þjóða og leysa þau alþjóðavandamál, sem leiða til ófriðar, áður en í óefni er komið. „Þið hafið ef til vill tekið eftir því, að ég sagði að þetta þing væri „minnisvert**. Ég sagði ekki að það væri „sögulegt“ þing, sagði de Gueller. Hvort verður ofaná getur tíminn einn sýnt okkur. En til þess að vel fari er eitt nauðsynlegt, að það er að fögru loforðin séu haldin og framkvæmd." Samþykktir gegn hryðju- verkum og gíslahaldi Að lokum var aðalforstjórinn spurður hvað hann vildi segja um einróma samþykkt Allsherjar- þingsins þar sem hryðjuverk eru fordæmd og talin til glæpa. Ég tel þessa samþykkt sérstaklega þýð- ingarmikla. Loksins er samkomu- lag innan Allsherjarþingsins um, að það verði að finna leiðir til að stöðva hryðjuverkin. Allsherjar- þingið samþykkti tillögu sína án atkvæðagreiðslu. Ég býst við að tillagan um að fordæma gíslahald og handtökur saklausra manna verði einnig samþykkt einróma með atkvæðagreiðslu í Öryggisráð- inu síðar í dag.“ Öryggisráðið fordæmir einróma hryðjuverk og gíslahald Máltækið „Á þeim degi urðu þeir Herodus og Pílatus vinir" var oft endurtekið er það fréttist, að Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna hefði samþykkt „einróma", að fordæma hryðjuverk í hvaða mynd sem væri. Að vísu voru ekki formlega greidd atkvæði á þinginu heldur, sem kallað er „samþykkt með samstöðu", það er þögn og mótmælalaust. Þrátt fyrir það þykir þetta merkisatburður. Sam- þykktir Allsherjarþingsins eru ekki bindandi fyrir aðildarríkin en þungi þeirra felst í samstöðunni, sem er nær óþekkt til þessa í al- þjóða pólitískum málum. Þyngri á metunum verður sam- þykkt Öryggisráðsins, þar sem aðildarþjóðunum er uppálagt, að leysa úr haldi alla gísla, sem nú eru í haldi og allt gíslahald er fordæmt svo og mannrán, „hvar sem er og af hverjum sem er“. Tillagan um gíslahald og mann- rán var borin fram af Astralíu, Danmörku, Egyptalandi, Frakk- landi, Perú, Trinidad og Tobago, Bretlandi og Bandaríkjunum. Ljóð og tilfinning Bókmenntir Erlendur Jónsson ölafía Guðrún Magnúsdóttir: ÚRSUMÁRDÖLUM. 72 bls. Reykjavík, 1985. ölafía Guðrún Magnúsdóttir var ættuð úr Dölum vestur. Hún fædd- ist 1907 en lést 1948. Ingólfur Jóns- son frá Prestbakka, sem ritar formála fyrir ljóðum hennar, segir að líf hennar hafi ekki verið »dans á rósum, því lengst af átti hún við mikla vanheilsu að stríða og dvald- ist langdvölum á sjúkrahúsum.* Þá getur Ingólfur þess að Sig- urður Skúlason magister hafi tekið tvö ljóð hennar upp í safnið «Það mælti mín móðir* sem kom út 1936. Um sextíu kvæði og stökur eru í bók þessari, þar að auki tveir stuttir þættir. Um skáldagáfu ól- afíu Guðrúnar hefur ekki þurft að Ólafía Guðrún Magnúsdóttir efast. Hún hefur verið ótvíræð. Hins vegar hefur skáldkonan ekki náð þeim þroska sem efni stóðu til. Flest ljóðin í bókinni hefur hún ort um tvítugt. Víða er vel komist að orði. Mörg ljóðlínan í bókinni stendur prýðilega fyrir sínu. En skáldkonan hefur ekki verið búin að ná þeirri ögun og festu sem þarf til að setja saman heilsteypt kvæði. Ljóð hennar bera svip æskuverka. ólafía Guðrún hefur alist upp við þann nýrómantíska kveðskap sem mörgum jafnöldrum hennar var runninn í merg og bein. Hún yrkir um árstíðirnar, grænku vors- ins, blómin, fuglasönginn; og svo um fölva haustsins sem boðar vetur og dauða. Líka yrkir ólafía Guðrún um eigin tilfinningar. Bændasamfé- lagið gamla leyfði enga tilfinn- ingasemi — nema í skáldskap. Ólafía Guðrún hefur verið bæði tilfinninganæm og innhverf. Hana langar til »að láta hjartað ráða« en finnur að sér þrengt. Ljóðið verður athvarf hennar og trúnað- arvinur í hörðum heimi. I kvæðinu Andvaka segist hún vera kjarklítil og kvíðin. Eitt kvæði 'ólafíu Guðrúnar heitir Hvíti dauði. Ekki er ófyrir- synju að hún gerir þann vágest að yrkisefni svo mjög sem hann hjó skörð í raðir kynslóðar skáld- konunnar. Ólafía Guðrún spyr hvenær »takist að stöðva þann óheillagest?* Best eru þau kvæði Ólafíu Guð- rúnar þar sem hún veitir tilfinn- ingunum óhefta útrás. Tuttugu og fimm ára yrkir hún til að mynda eftirfarandi Ijóð. Skuggar heitir það: Sem langur, ljótur draumur erliðiðþetta ár; það rændi gleði og gæfu oggeymirhöfug tár. Og þó var bölið þyngsta að þú mér hvarfst úr sýn; að þínum leiðum lengur ei liggja sporin mín. Og nú er æskan úti ogyndið horfið mér. Ég stari hljóð í húmið og horfi á eftir þér. í ljóði þessu fer saman dapurleg reynsla skáldkonunnar og lífstónn sem var næsta algengur í kveðskap ungra skálda á fyrsta þriðjungi aldarinnar. ólafía Guðrún hefur lagt upp með haldgott veganesti og vitað hvað tíma sínum tilheyrði. En erfiðar ytri aðstæður hafa tálmað för hennar að því takmarki sem sérhvert skáld stefnir að. Sjallinn: Veski með 17 þúsund krónum stolið Akureyri, 27. desember. NOKKUR ölvun var á Akureyri aðfaranótt þriðja f jólum og gistu fjórir klefa lögreglunnar þá nótt. Þar af tveir vegna gruns um þjófnað í Njallnum, en þar var veski með 17.000 krónum rænt af utanbæjar- konu. Benti hún á tvo menn en ekkert er vitað hvort þeir eru hinir seku. Sjúkrabifreið var kvödd að Sjallanum um kl. 3.30 sömu nótt en stúlka hafði þá dottið ofan af barborði og rotast. Þess má geta að að kvöldi 2. jóladags gerði lögreglan á Akur- eyri athugun á samkomuhaldi á skemmtistaðnum H-100 vegna kvörtunar um að fólki undir lög- aldri hefði verið boðið í afmælis- veislu þar. Tvennt fannst í húsinu fætt 1970,15 ára gamlir krakkar, en 18 ára aldurstakmark er í húsinu. - ■ : ^ t**- -\BY ' ■■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.