Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
19
Ráðið hvatti öll ríki, sem ekki
hafa enn gerst aðilar að alþjóða-
samþykktum að gera það sem fyrst
og hvatti einnig til frekari aðgerða
og samvinnu milli ríkja og til að
finna leiðir til að vinna gegn gísla-
tökum og mannránum.
Það var fulltrúi Bandaríkjanna,
sem hafði farið framá að Öryggis-
ráðið kæmi saman til fundar í
þessu máli.
Atkvæðavægislög
Bandaríkjanna alvarlegt
áfall
Krafa Bandaríkjamanna um
atkvæðavægi í fjármálum alþjóða-
stofnana og hin svokölluðu „Kasse-
baum-lög“ (eftir höfundi laganna,
Nancy Kassebaum, öldungadeild-
arfulltrúa), sem heimila ríkis-
stjórninni að draga frá framlagi
sínu til Sameinuðu þjóðanna út-
gjöld, sem fara til mála, er Banda-
ríkjamenn hafa greitt atkvæði á
móti, er Allsherjarþingið sam-
þykkti fjárveitinguna.
Það hefir lengi verið kurr í
Bandaríkjamönnum, að hafa orðið
að þola, að hópar smáríkja innan
alþjóðastofnana, sem leggja lítinn
skerf til útgjaldanna, hafa með
atkvæðamagni sínu þvingað fram
fjárveitingar til mála, sem Banda-
ríkjamfenn hafa talið óþörf, skað-
leg, eða hreint og beint sóun á
almannafé. „Það er ekki lengur
hægt, að horfa á þetta aðgerðar-
laust“ er viðkvæðið. Þannig er lýð-
ræðið og Stofnskráin mælir svo
fyrir, að innan alþjóðastofnana
skuli hver þjóð, smá sem stór,
hafa eitt atkvæði hver. Fari svo,
að Bandaríkjamenn framkvæmi
þessi lög, eiga þeir á hættu, að 19.
grein Stofnskrárinnar verði beint
að þeim, en það þýðir að atkvæða-
rétturinn yrði af þeim tekinn inn-
an stofnunarinnar.
Þeirri grein hefir ekki til þessa
verið beitt, þótt ástæður kynnu að
hafa verið til. Það er ekki eins-
dæmi, að aðildarríki hafi neitað
að greiða framlag til mála, sem
það hafði greitt atkvæði á móti.
T.d. hafa Rússar neitað, að greiða
sinn skerf af skuldabréfalántöku
Sameinuðu þjóðanna vegna friðar-
gæslusveita í Kongó og víðar. Eins
og er, eru átta aðildarríki í vanskil-
um með framlög sín og gætu verið
svipt atkvæðarétti samkv. 19.
greininni. Það hefir ekki, komið
til. Það er nærri óhugsandi, að
Bandaríkin yrði svipt atkvæðarétti
innan alþjóðastofnana. En það er
„Damoklesar-sverð, sem hangir
yfir Sameinuðu þjóðunum", eins
og fréttaritari orðaði það á blaða-
mannafundinum með aðalforstjór-
anum.
Gert ráð fyrir auka Alls-
herjarþingi að vori
Lokaverkefni Allsherjarþings-
ins var að skipa nefnd „óvilhallra
sérfróðra manna" til að ræða fjár-
hagserfiðleika Sameinuðu þjóð-
anna með sérstöku tilliti til hins
alvarlega ástands vegna Kasse-
baum-laganna. Það er gert ráð
fyrir, að auka Allsherjarþing verði
kallað saman að vori til að ræða
tillögur nefndarinnar.
Höíundur er fréttariíari Morgun-
blaðsins íNew York.
Tíu þjóðir greiða nær 80 % af
útgjöldum Sameinuðu þjóðanna
SAMEINUÐU þjóðirnar gera fjárhagsáætlun fyrir tvö ár í senn. Alls-
herjarþingið samþykkti á dögunum áætlun fyrir 1986/1987, sem nemur
samtals 1.663.341.600 dollurum. Áætlunin var samþykkt á þinginu með
83 atkvæðum gegn 11, en 10 sátu hjá. 55 aðildarþjóðir voru því fjarver-
andi eða greiddu ekki atkvæði. Meðal þeirra 11, sem greiddu atkvæði
á móti áætluninni, voru tíu hæstu gjaldendur, sem eru: Bandaríkin,
greiða 25%, Sovétsamveldið 11,82%, Japan 10,84%, Vestur-Þýskaland
8,26%, Frakkland 6,37 % Bretland 4,67%, Ítalía3,79%, Kanada 3,06%
Spánn 2,03%, og Holland 1,74%. Samtals 77,58 %fjárhagsáætlunarinnar.
Norðurlöndunum er gert að greiða sem hér segir: Danmörk 0,72%,
Finnland 0,50%, ísland 0,03%, NoregurO,54%ogSvíþjóð 1,25%.
78 aðildarþjóðir SÞ greiða hver 0,01 prósent af útgjöldum stofnunarinn-
ar, 11 greiða 0,02 prósent og 5 (þar á meðal ísland) greiða 0,03 pró-
sent. Þannig greiða 94 þjóðir, eða 59 prósent meðlimaþjóðanna, 0,03
prósent, eða minna.
N.Y.Times 12/15’85.
Sjónvarp:
Áramótabrenna í
beinni útsendingu
Á GAMLÁRSKVÖLD verður sjón-
varpið með beina útsendingu frá
áramótabrennu. Sjónvarpað verður
frá Kársnesi í Kópavogi frá klukk-
an 21.30 til 22.30. Margt verður til
skemmtunar í Kópavogi. Hjálpar-
sveit skáta verður með flugelda-
sýningu og sungið verður við und-
irleik hljóðfæraleikara og stiginn
álfadans.
Beina útsendingin frá ára-
mótabrennunni á gamlárskvöld
verður hin fyrsta sinnar tegundar
og kemur í stað fjölleikahúss
Billy Smart.
Gamlárskvöld:
Fjórar hljómsveitir og álfa-
drottningin í Laugardalshöll
ÁRAMÓTADANSLEIKUR verður
haldinn í Laugardalshöll á nýárs-
nótt og hefst gleðin á miðnætti á
gamlárskvöld með flugeldasýn-
ingu.
Fjórar hljómsveitir koma fram
á dansleiknum og eru þar fremst-
ir í flokki Stuðmenn, sem koma
glóðvolgir úr beinni útsendingu í
sjónvarpssal. Aðrar hljómsveitir
eru Rikshaw, Pax Vobis og Her-
I«n» it —»» - — •**!" 'S*aMMMÍCH
bert Guðmundsson og félagar og
munu allir þessir aðilar kynna
nýtt frumsamið efni. Mikil flug-
elda- og ljósasýning verður á
svæðinu og hefur flogið fyrir, að
álfadrottningin muni mæta á
skemmtunina. Dansað verður
fram eftir nóttu og verður haldið
uppi stöðugum áætlunarferðum
til og frá Laugardalshöll í öll
innar.
Stráhúsið fuðrar upp
— eftir Bolla
Gústavsson
Þegar ég var að alast upp á
Oddeyrinni sló ósjaldan í brýnu
milli okkar drengjanna þar er við
vorum að leik. Stundum voru
hendur látnar skipta, þegar í odda
skarst, en oft var orðum beitt
óvægilega og þá þóttu meinleg
uppnefni handhæg vopn. Sjálfur
lá ég vel við höggi, því óneitanlega
var hægt að leika sér á ýmsan veg
með Bolla-nafnið. Hugkvæmni
skorti drengina á Eyrinni ekki, svo
að ég fékk oft að heyra háðuleg-
ustu tilbrigði af nafni mínu og þá
var kallað í hita þessara bernskuá-
taka hvort bollinn væri sprunginn,
brotinn eða tómur o.s.frv. Auðvit-
að mislíkaði mér að heyra þessi
köpuryrði, en huggaði mig við þá
vitneskju veitta af fullorðnum, að
ég bæri ágætt, forníslenskt nafn.
Einnig var mér bent á að taka
þessu með jafnaðargeði, því lítið
væri ungs manns gaman og dreng-
irnir myndu áður en langt um liði
vaxa frá þessum barnáskap. Það
urðu orð að sönnu, því þótt gömlu
leikfélagarnir á Eyrinni hafi verið
stríðnir og séu enn gamansamir,
þá nenntu þeir ekki að klifa á
Sr. Bolli Gústavsson
uppnefnum þegar bernskuárin
voru að baki. En þessi þáttur
bernskuleikjanna rifjaðist upp, er
skáldið Jóhann Hjálmarsson fann
upp á því snjallræði að leika sér
með nafn mitt á nákvæmlega sama
hátt og strákarnir á Eyrinni forð-
um, þegar þeim var heitt í hamsi
í fornmannaleikjum eða sjóræn-
ingjaátökum. Raunar hefur fram-
koma Jóhanns og málflutningur i
þeirri ritdeilu, sem spratt af leið-
réttingu minni á misminni hans
eða vanþekking tekið á sig svip
þeirra bernskuleikja frá löngu
liðnum dögum, sem nú hafa óvænt
komið upp í huga mér. Þótt ég sé
ekki afhuga ýmsum þroskandi
barnaleikjum og telji þá nauðsyn-
lega, t.d. í barna- og æskulýðsstafi
kirkjunnar, þá nenni ég ekki að
leika þursaleik í þykjustunni við
Jóhann Hjálmarsson. Ég er raunar
yfirgenginn að hafa þurft að
meðtaka jafn óyfirveguð skeyti úr
penna þess skálds, sem setið hefur
um árabil á grænni grein blaðsins
mikla og fjallað um bókmenntir
og leiklist. En grein hans „Ekki
er búið úr bollanum eða Bolli
hreykir sér“ ber þess ótvírætt
merki að stráhús skáldsins hefur
fuðrað upp, enda er goggurinn sót-
ugur og stélið sviðið. Ógjarnan
vildi ég verða til þess að skadda
flugfjaðrirnar.
Höfundur er prestur að Laufási í
Kyjafírði.
TÓNABÍÓ
FRUMSÝNIR JÓLAMYND 1985
Þau eru öll í því — upp í háls
Á Cascara hafa menn einmitt fundiö vatn sem fjörgar svo aö um
munar. Og allt frá Whitehall í London til Hvíta hússins í Wash-
ington klæjar menn í puttana eftir aö ná eignarhaldi á þessari
dýrmætu lind. Frábær, ný, ensk gamanmynd í litum. Vinsælasta
myndin á Englandi í vor.
Aðalhlutverk: Michael Caine, Valerie Perrine.
Leikstjóri: Dick Clement.
Gagnrýnendur sögðu: „Water er frábær — stórfyndin“. Gaman-
mynd í besta gæðaflokki.
Tónlist eftir Eric Clapton, George Harrison (Bítill), Mike Morgan
o.fl. Myndin er í Dolby og sýnd í 4 rása Starscope. ísl. texti.
Sýnd kl.5,7,9og 11.
Hækkaö verð.
--LJ. -JJ ' .■'•■L ........- ... ............... 1