Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
23
Argentína:
Blaðamaður
brottnuminn
Buenos Airea, Argentínu, 27. deaember. AP.
ÍTALSKS bladamanns hefur verið
saknað frá því á sunnudaginn var,
er hann yfirgaf íbúð sína í fylgd
manns, sem þóttist vera lögreglu-
maður og væri að færa hann til
yfirheyrslu.
Blaðamaðurinn, Jose Palozzi,
hefur búið í Argentínu um árabil
og verið ritstjóri tímarits þar í
landi. Hann hlaut nokkra frægð
á árinu 1982 fyrir tímaritsgrein-
ar, þar sem háttsettir herforingj-
ar í argentínska hernum voru
ásakaðir fyrir að standa í sam-
bandi við P-2-leyniregluna á ítal-
íu. Þau samtök eru þekkt fyrir
hægrisinnuð öfgaviðhorf sín og
hafa fyrirsvarsmenn þeirra verið
ásakaðir um stórfelld fjársvik.
Á meðal þeirra sem Palozzi
ásakaði fyrir að ganga erinda
leynireglunnar í Argentínu, var
Emilio Massera, flotaforingi,
meðlimur herforingjaklíkunnar,
sem tók völdin í Argentínu 1976.
Hann var sakfelldur 9. desember
síðastliðinn ásamt öðrum fyrir
mannréttindabrot, þar á meðal
pyntingar og brottnám og hvarf
að minnsta kosti níu þúsund
manna á meðan herinn fór með
völd í landinu.
Lögreglan neitar því að hafa
haft nokkur afskipti af Palozzi.
Hann hafði 3. desember síðastlið-
inn, ásakað fyrrum herforingja
fyrir að hafa þegið mútur fyrir
kaup á ítölskum vopnum og lét
saksóknara í té þremur dögum
síðar sönnunargögn þar að lút-
andi. Sagðist hann þá myndu
leggja fram frekari sönnunargögn
síðar.
Bandarísku gíslarnir:
Sœlkerabúð í logum
Lausn ekki
í sjónmáli
Beirút, Líbanon, 27. desember. AP.
VONIR um að bandarísku og frönsku gíslarnir, sem eru í haldi hjá öfgasinn-
uðum múhameöstrúarmönnum í Líbanon, yrðu látnir lausir á jóíadag, dvín-
uðu á aðfangadag, þegar freftir bárust um, að fundist hefði lík af líbönskum
gyðingi, sem var fangi öfgamannanna.
áherslu á, að sér hefði miðað
nokkuð áleiðis, frá því að hann hóf
viðræðurnar 13. nóvember. Sagðist
hann enn vongóður um, að lausn
fyndistámálinu.
Öfgasamtökin „Heilagt stríð",
sem hafa hluta gíslanna í haldi,
hafa krafist þess, að 17 féiagar
þeirra, sem eru fangar yfirvalda í
Kuwait, verði látnir lausir, en
þeirri kröfu hefur staðfastlega
verið vísað á bug.
Lík mannsins fannst nærri
kaþólskri kirkju í Vestur-Beirút,
en hann hafði verið í haldi hjá
mannræningjunum síðan í mars-
mánuði síðastliðnum.
Terry Waite, sérlegur sendimað-
ur erkibiskupsins af Kantaraborg,
fór frá Beirút á aðfangadag og
kvað babb hafa komið í bátinn í
samningaumleitunum sínum við
mannræningj ana.
Waite krafðist þess, að gíslunum
yrði sleppt um jólin, og hann lagði
Árangur toppfundarins farinn að koma í ljós?:
Fólki leyft að fara
frá Sovétríkjunum
Washington, 27. desember. AP.
Eldur kviknaði í hinni frægu sælkerabúð, Faucbon, við Magðalenutorg
í Parísarborg fyrir nokkrum dögum með þeim afleiðingum að a.m.k.
tveir búðargesta biðu bana og 11 slösuðust. Allt að 250 manns, sem
voru í búðinni, fengu reykeitrun. Eldtungur standa upp úr húsinu og í
brunastiganum til hægri er slökkviliðsmaður að bjarga manni út úr húsinu.
AÐ MINNSTTA kosti fjórar fjöl-
skyldur hafa verið látnar vita að
þeim verði leyft að yfirgefa Sovét-
ríkin á næstunni. Kemur þetta í
framhaldi af samkomulagi sem gert
var milli Bandaríkjanna og Sovét-
Júgóslavía:
Nær hundrað manns handteknir í Kosovo
Belgrad, JúgóalaTÍu, 27. deaember. AP.
NÍIJTÍU og fjórir hafa verið handteknir í Kosovo-héraði nýlega samkvæmt
upplýsingum ríkisreknu fréttastofunnar í Júgóslavíu, Tanjug, vegna þess að
þeir eru taldir tilheyra tveimur samtökum, sem vinna að því að grafa undan
stjórnarskrá landsins.
Ekki kom fram í fréttinni hvort
þeir 50 sem sagt hafði verið frá
að hefðu verið handteknir snemma
í þessum máriuði væru meðal
hinna 94. Ókyrrt hefur verið í
Kosovo-héraði. Það tilheyrir lýð-
veldinu Serbíu og íbúarnir þar eru
að talsverðum meirihluta af alb-
önskum uppruna. Árið 1981 urðu
þar blóðug uppþot, er albanskir
þjóðernissinnar kröfðust aukins
sjálfstæðis.
í frétt Tanjug sagði að komið
hefði fram við rannsóknina að
samtökin hefðu tengsl við alb-
anska útflytjendur. Samtökin eru
ásökuð fyrir að hafa flutt inn,
prentað og dreift áróðri og einn
af þeim handteknu er ásakaður um
að hafa haft í undirbúningi að
sprengja upp stjórnarbyggingu í
bæ í Kosovo. Flestir þeirra hand-
teknu eru á milli tvítugs og þrí-
tugs, flestir stúdentar og mennta-
menn, en einnig opinberir starfs-
menn og verkamenn.
ríkjanna, er leiðtogar þeirra hittust
í Genf í nóvember í sumar.
Þá hefur Abe Stolar, sem bæði
hefur bandarísk og sovésk borg-
araréttindi, einnig verið leyft að
fara frá Sovétríkjunum. Hann
hefur reynt að fá leyfi til að fara
í mörg ár og bíður nú þess að
tengdadóttir hans fái einnig leyfi,
svo þau geti bæði yfirgefið landið
samtímis ásamt fjölskyldu sinni.
Þá hafa níu af þeim tíu einstakl-
ingum sem fengið höfðu loforð
fyrir brottför fyrir toppfundinn,
fengið staðfestingu á því að brott-
fararleyfi hafi verið veitt. Einn
hefur þegar yfirgefið landið, búist
er við að tveir yfirgefi landið í
þessari viku og hinir munu yfir-
gefa það innan skamms. Það fólk
sem hér um ræðir er í flestum
tilfellum með tvöföld borgararétt-
indi eða fjölskyldur sem hafa
sundrast af einhverjum ástæðum.