Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 24

Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 IWtrgiiM Utgefandi nMWbitií Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakiö. Hæstiréttur grípur í taumana Hæstiréttur hefur dæmt, að kjarnfóðurskattur, sem settur var á með bráða- birgðalögum á árinu 1980, brjóti í bága við 40. grein stjórnarskrárinnar. í þessari grein segir: „Engan skatt má á leggja né breyta né taka af nema með lögum." í dómi Hæstaréttar segir, að með því að ákveða skattlagningarpró- sentu kjarnfóðurgjaldsins jafn háa og raun bar vitni eða 200% af innkaupsverði vörunnar, en heimila jafnframt endur- greiðslu gjaldsins að hluta eftir reglum, sem Framleiðslu- ráð landbúnaðarins ákveður, hafi Alþingi í raun afhent framleiðsluráði skattlagning- arvaldið. Telur meirihluti dómara í Hæstarétti, að þetta framsal brjóti í bága við 40. grein stjórnarskrárinnar. Oft og lengi hefur verið rætt um það, að alþingismenn hneigðust til að veita fram- kvæmdavaldinu of mikið sjálf- dæmi innan rúmra laga- ákvæða. Gagnrýni af þessu tagi styðst við skýr rök. Stórir lagabálkar eru samdir, lagðir fram og samþykktir, sem eru lítið annað en stefnu- og vilja- yfirlýsingar. Á þetta ekki síst við um lög er snerta efnahags- mál og fjármálastjórn, þau málefni, sem þingmenn verja að öllum jafnaði lengstum tíma til að ræða, að minnsta kosti þegar þeir tala milliliða- laust til þjóðarinnar frá Al- þingi. Þingræði á rætur að rekja til þess, að almenningur vildi, að fulltrúar sínir gætu veitt viðnám gegn skattpíningu konunga, ráðgjafa þeirra eða ríkisstjórna. Löggjafarþing bregðast frumskyldu sinni, ef þau afsala sér skattlagningar- valdinu eða framselja það í hendur annarra. Slíkt framsal þekkist víðar í íslenskri löggjöf en að því er varðar kjarnfóður- gjaldið. Hlýtur sú spurning að vakna, hvort dómur Hæsta- réttar í þessu máli verður mönnum hvatning til að leita réttar síns varðandi innheimtu annarra opinberra gjalda. Meðal þeirra, sem best fylgj- ast með dómum Hæstaréttar, hefur sú skoðun verið ofarlega á baugi, að rétturinn sé fremur hallur undir ríkið en einstakl- inginn, þegar þessir aðilar deila. Ekki eru tök á að komast að óvefengjanlegri niðurstöðu um þetta efni nema á grund- velli ítarlegra rannsókna. Hitt er ljóst, að í þeim dómi, sem hér er gerður að umtalsefni, hefur Hæstiréttur tekið af- stöðu með einstaklingnum á móti ríkisvaldinu. í málinu var tekist á um grundvallaratriði, einn helgasta rétt einstakl- ingsins gagnvart ríkisvaldinu, hvernig hagað skuli tekjuöflun og jöfnun tekna með skatt- heimtu. Ætíð er varasamt að alhæfa, þegar mál af þessu tagi eru á döfinni. í forsendum þessa dóms Hæstaréttar kunna að vera þau skilyrði, sem veita honum ekki fordæmisgildi gagnvart opinberri tekjuöflun með svipuðu sniði á öðrum vettvangi. Hvað sem því líður er dómurinn áminning til al- þingismanna. Almennt séð felst í honum forsögn til þing- manna þess efnis, að þeir skuli huga betur að eigin valdi, gæta þess með hverjum hætti þeir framselja það og gleyma ekki rétti umbjóðenda sinna, þegar skattheimta er ákveðin. Skatt- ar eru í vaxandi mæli notaðir sem einskonar miðlunartæki við almenna efnahagsstjórn. Eins og áður sagði þykjast þingmenn þó hafa mest vit á þeim málaflokki, ef tekið er mið af því, sem þeim er kærast í almennum ræðum á þingi. Nú segir Hæstiréttur þeim að gæta sín í þessu efni, framselja ekki eigið vald til annarra. standa sjálfir undir þeirri ábyrgð, sem þjóðkjörnir full- trúar eiga að axla. Það getur enginn bannað þingmönnum að samþykkja 200% kjarn- fóðurgjald, ef þeir ákveða sjálfir að það skuli vera 200% og að tekjunum af því skuli ráðstafað með þeim hætti, að það brjóti ekki í bága við stjórnarskrána. Þessi niðurstaða Hæstarétt- ar verður kannski til þess að menn leiti réttar síns vegna svipaðra tilvika á öðrum svið- um. Um það skal ekkert full- yrt. Um hitt má fullyrða, að þessi dómur um kjarnfóður- gjaldið á að hafa tafarlaust fordæmisgildi fyrir þá, sem vinna að gerð lagafrumvarpa af þessu tagi fyrir ráðherra og þingmenn. Hæstiréttur hefur sett skattasérfræðingum starfsreglur um leið og hann veitir stjórnmálamönnunum áminningu. Dómar eins og þessi minna á mikilvægí þeirrar reglu, sem er hornsteinn íslensks stjórn- kerfis, að valdinu er þrískipt milli dómsvalds, fram- kvæmdavalds og löggjafar- valds. iösmíM ŒíáD Umsjónarmaður Císli Jónsson íslenskir verkfræðingar hafa á áranna rás verið duglegir að smíða nýyrði á þekkingar- og starfssviði sínu, og er það að sumu leyti fyrr fram komið í þessum þáttum. Nú hefur Gísli Júlíusson verkfræðingur beðið mig að koma á framfæri efni bréfs þess sem hér fer á eftir, og skal það fúslega gert. Staf- setningu bréfritara er haldið. ★ „Að undanförnu hafa félagar í Orðanefnd rafmagnsverkfræð- ingadeildar Verkfræðingafélags tslands (RVFÍ) rætt um nauðsyn þess að finna íslenzkt orð í stað erlenda orðsins radio, sem til er í margskonar samsetningum og víðtækum merkingum. Satt að segja höfðu menn gefizt upp á að þýða orðið á íslenzku, enda þótt til væri orðið útvarp um visst notkunarsvið þeirrar tækni, sem erlenda orðið nær yfir. Samkvæmt skilgreiningu á orð- inu radio í orðabók alþjóða raf- tækninefndarinnar, IEC, er það almennt heiti á notkun rafsegul- bylgna með 3000 Gigariða tíðni eða lægri, sem ekki eru fluttar milli sendis og móttökutækis um víra eða ölduleiða. Orðið útvarp er óumdeilanlega gott orð yfir tækni þá, sem al- menningur skilur að standi að baki þess. Ein stofnun ríkisins hefur séð landsmönnum fyrir fræðslu og skemmtun með hjálp rafsegulbylgna og varpað út hljóðum af vörum flytjenda eða af tækjum sínum um rúmt fimm áratuga skeið og í tvo áratugi dagskrárefni í myndum, sem mætt hafa sjónum manna í sama tilgangi. Hlaut stofnunin í önd- verðu, eða svo, nafnið Ríkisút- varp og skiptist síðar í tvær megindeildir, sem kallast hljóð- varp og sjónvarp. Bæði eru orðin góð að mati undirritaðs [Bergs Jónssonar], þó að hið síðara, sjónvarp, hafi verið nokkuð umdeilt fyrir það, að þykja ekki eins rökrétt og lýsandi og hið fyrra, hljóðvarp. Oll orðin, Ríkisútvarp, hljóð- varp, sjónvarp og sagnorðin að útvarpa og sjónvarpa hafa hlotið fastan sess í málvitund þjóðar- innar, þó að sögnin að hljóðvarpa sé ekki almennt notuð. Ekki skal amazt við þessum orðum hér, svo ágæt sem þau eru, en leitt er að hafa ekki jafngóð orð á taktein- um um þá tækni sem nær yfir allt það sem um er rætt og miklu meira af sama meiði. Útvarp er á ensku radio broad- casting, á þýsku Rundfunk og á norsku kringkastning. Ensku orðin radiocommuni- cation, radio beacon, radio com- pass, radio control, radio-gonio- metry, radio altrimeter, radio link, radiolocation, radio naviga- tion, radiotelegraphy og radio- telephony eru fá dæmi um notk- un rafsegulbylgna með tækni þeirri, sem orðinu radio er ætlað að lýsa. Þarna eru notaðar raf- segulbylgjur með hárri tíðni, venjulegast varpað út þráðlaust, eins og sagt er, en þegar nota skal almennt einhver þau orð eða orðstofna, sem lýsa athöfninni, í stað orðsins radio, kemur alltaf að þvi, að menn fallast ekki á orðasambandið, sem myndað er. Útvarpsfjarskipti eða loft- skeytafjarskipti ná ekki því, sem felst í enska orðinu radiocom- munication. Þráðlaus stýring er hins vegar miklu víðtækari en radiocontrol og felur líka í sér stýringu með innrauðum geisium og heyranlegum eða óheyranleg- um hljóðbylgjum. Erfitt er líka að gera sér í hugarlund, að orðin útvarpstalsími eða þráðlaus áttaviti yrðu nokkurn tíma tekin upp. Þess vegna reyndu Orðanefnd- armenn að finna nýtt orð, sem mætti sameinast um, nýyrði, sern væri stutt, hljómaði helzt líkt og fyrirmyndin, væri lýsandi fyrir verknaðinn, ef kostur væri, færi vel í samsetningum og hefði þá kosti, sem nægði til að vinna því fylgi, og að það yrði notað. Mörg 318. þáttur orð voru reynd, en að lokum stöldruðu menn við orðið raf- varp, sem við nánari athugun virðist hafa flest það til brunns að bera, sem að ofan greinir. Jafnvel lýsingu á verknaðinum vantar ekki. Það „útvarpar rafseg- ulbylgjum", ef einhver skýring er nauðsynleg. Orðanefnd vill gjarnan heyra dóm þeirra, sem til mála þekkja og áhuga hafa á íslenzkri tungu, hvort ekki fer vel að segja raf- varpsfjarskipti, rafvarpsviti, rafvarpsáttaviti, rafvarpsstýr- ing, rafvarpsmiðlun, rafvarps- hæðarmælir, rafvarpsleið, raf- varpsstaðarákvörðun, rafvarps- leiðsaga, rafvarpsritsími og raf- varpstalsími. Þá eru nefnd hin sömu orð og áður, nú í íslenzkum búningi. Ef ryðja á nýju íslenzku orði leið, er nauðsynlegt, að allir séu opnum huga reiðubúnir að veita því gengi og stuðla fyrir sitt leyti að því, að svo verði. Mörg orð hljóma undarlega í eyrum í fyrstu en reynast traust og lipur, ef notuð eru. Kær kveðja". ★ Þar lauk hinu mikla bréfi Bergs Jónssonar fyrir hönd Orðanefndar Verkfræðingafé- lags íslands. Umsjónarmaður þekkir lltt til tækni, en fellst á rök bréfritara. Orðið rafvarp virð- ist eiga fullan rétt á sér. ★ í Velvakandabréfi fyrir réttri viku hér í blaðinu var af nokkru yfirlæti, undir fyrirsögninni „Slæm málvilla", talið rangt í auglýsingu frá IBM að 20 væri helmingi meira en 10. Fyrir því er einmitt aldagömul hefð að hálfu meira eða helmingi meira merkir tvöfalt meira. Með öllu er ástæðulaust að ætla sér að breyta þessu með reiknings- kúnstum og halda því fram að 15 sé helmingi meira en 10. Gleðilegt nýár og þökk fyrir gamla árið. Leikfélag Akureyrar sýnir Silfur- tunglið Akureyri, 20. desember. ÆFINGAR standa nú yfir i leik- ritinu Silfurtunglið eftir Halldór Laxness hjá Leikfélagi Akureyrar. Verkið á að frumsýna þann 24. janúar og sýna það samhliða Jóla- ævintýri Dickens a.m.k. til mán- aðamóta janúar/febrúar. Með aðalhlutverkin í Silfur- tunglinu fara Vilborg Halldórs- dóttir sem leikur Lóu og Theódór Júlíusson sem fer með hlutverk Feilans ó. Feilan. Aðrir leikarar eru Sunna Borg sem leikur fsu, Árni Tryggvason leikur Lauga, Ellert Ingimundar- son leikur Óla, Þráinn Karlsson Róra, Marinó Þorsteinsson Mr. Peacock, Pétur Eggerz aflrauna- mann, Þórey Aðalsteinsdóttir sviðsgæslu og einnig fara Erla Skúladóttir, Sigríður Pétursdótt- ir og Björg Baldursdóttir með hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Haukur J. Gunn- arsson og Örn Ingi gerir leik- mynd. Lóa mætt í viðUl hji Mr. Peacock en Feilan Ó. Feilan er ekki meira en svo ánægður með útlit stúlk- unnar. Vilborg Halldórsdóttir og Theódór Júlíusson í hlutverkum sínum. MorsunblaAið/Skapti Hallnrimason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.