Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 Skákmót Útvegs- bankans HIÐ ÁRLEGA skákmót íltvegs- banka fslands verður haldið í aðal- sal bankans á sunnudag og hefst klukkan tvö og lýkur klukkan sex. Allir helstu skákmenn landsins taka þátt í mótinu, utan þeir sem tefla erlendis um þessar mundir. Kepp- endur verða 18 og þeirra á meðal má nefna Helga Olafsson, Friðrik Ólafsson, Guðmund Sigurjónsson, Jón L. Árnason og Karl Þorsteins. Skákmenn fá 7 mínútna um- hugsunartíma og því ríður á að vera snarráður. Mótið var fyrst haldið 1981 og þá bar Friðrik ól- afsson sigur úr býtum. 1982 urðu þeir efstir og jafnir, Friðrik ólafs- son og Helgi Ólafsson. Árið eftir varð Helgi jafn Jóhanni Hjartar- syni í efsta sæti, en í fyrra bar Jóhann sigur úr býtum. Jólahappdrætti SÁÁ: Bflavinningar Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi fréttatilkynning: Toyoturnar í Jólahappdrætti SÁÁ komu á eftirfarandi númer: 12. des: 26758, 13. des: 18970, 14. des: 220100, 15. des: 4857, 16. des: 71683, 17. des: 176945, 18. des: 136940, 19. des: 61993, 20. des: 42382, 21. des: 188513, 22. des: 224953, 23. des: 206601, 24. des: 7049, 12617, 17682, 28723, 45540, 51852, 66265, 91426,147677,152513, 169326,212230. (Birt án ib;rgðar) Evrópumeistaramót unglinga í skák: Davíð í mótbyr EKKI blæs byrlega fyrir Davíð Ól- afssyni, fulltrúa fslands á Evrópu- meistaramóti unglinga í skák, sem nú stendur yfir í Groningen í Hol- landi. Davíð hefur hlotið 2Vi vinning eftir9umferðir. í 4. umferð, sem tefld var föstu- daginn 21. desember, vann Davíð Gert Weetl frá Belgíu í aðeins 17 leikjum. í 5. umferð tefldi hann síðan við Kuzynskki frá Póllandi og tapaði. Davíð tapaði einnig í 6. umferð fyrir Dananum Hansen, en gerði jafntefli við Djurhuus frá Noregi í 7. umferð. Davíð hefur síðan tapað tveimur síðustu skák- um, í 8. umferð fyrir Nikolic frá Júgóslavíu og fyrir Ribeiro frá Portúgal í 9. umferð. Fjórar um- ferðir eru nú eftir á unglingamót- inu í Hollandi. Veður: Hiti nálægt meöaltali HITI á landinu á árinu sem er að líða hefur verið nálægt með- altali þeirra þrjátíu ára, 1951 til 1980, sem nú er oftast miðað við. Á sunnanverðu landinu var þurrt og bjart sumar og snjóa- Íög þar hafa verið lítil það sem af er veíri. „Veðrið hér í Reykjavík hefur verið venju fremur stillt en kalt í vetur sé miðað við veturinn í fyrra, sem var frek- ar mildur," sagði Páll Berg- þórsson veðurfræðingur „Við samanburð á tíðarfari undan- genginna ára finnst fólki sem síðastliðið haust og vetur hafi komið vel út og fólk er nokkuð ánægt með veðrið enda var það orðið illu vant, mikið rigning- arsumar, snjóþungur vetur og því hefur veðrið að undan- förnu verið mikill léttir fyrir fólk.“ Reykjavík: Góö kirkjusókn yfir hátíðarnar KIRKJUSÓKN yfir hátíðarnar virðist hafa verið sérstaklega mikil í Reykja- víkurprófastsdæmi að sögn Sr. Ólafs Skúlasonar dómprófasts. Kirkjur voru að venju fullskipaðar við aftansöng á aðfangadag jóla og við messu á jóla- dag auk þess sem óvenju mikil kirkjusókn var á annan dag jóla. „Eg held að fólk sé farið að tengja jólin sterkara við kirkjuna sína og kirkjusókn," sagði Sr. Olaf- ur. „Það sem okkur prestum finnst hvað gleðilegast er að kirkjusókn hefur aukist til muna á undan- förnum árum þessa fjóra sunnu- daga í aðventu. Á árum áður dró frekar úr kirkjusókn þegar jólin nálguðust en nú eru kirkjur þétt- setnar á aðventunni og aðventu- kvöld fyrsta sunnudag í aðventu sækja álíka margir og aftansöng á aðfangadag jóla. Það er því greinilegt að þau 55% þjóðarinnar, sem samkvæmt könnun Hagvangs sækja kirkju, koma þangað tölu- vert yfir aðventuna og á jólunum." Við aftansöng á aðfangadags- kvöld var kirkjuturn og 8 klukkur vígðar við Bústaðakirkju. Helgi Hjálmarsson arkitekt kirkjunnar hannaði turninn og Bragi Sigur- þórsson verkfræðingur gaf alla verkfræðiþjónustu við hann. Kirkjuturninn sjálfan gáfu hjónin Unnur Runólfsdóttir og Þórður Kristjánsson byggingarmeistari. Fimm af kirkjuklukkunum til- heyra klukkuspili sem organisti kirkjunnar spilar á þegar kirkju- gestir ganga úr kirkju. Stærri klukkurnar þrjár eru gjafir til kirkjunnar. Tafír á póstsendingum til landsins fyrir jól NOKKRAR tafir urðu í póstflutn- ingum til landsins fyrir jólin. Aðal- lega var hér um að ræða bögglapóst og bréfapóst frá Bretlandi og bréfa- póst frá Bandaríkjunum. Jóhann Hjálmarsson blaðafull- trúi Pósts og síma sagði að böggla- póstur og einnig einhver bréfpóst- ur sem póstlagður var í Bretlandi um miðjan desember hafi verið smám saman að koma til landsins í gegnum Amsterdam og Kaup- mannahöfn. Pósturinn var ekki rétt afgreiddur í London og var því sendur til þessara staða. Mikill bréfapóstur kom í gær til landsins frá Bandaríkjunum. Þetta eru bréf sem stimpluð voru í Bandaríkjunum 16. desember og skrásett frá New York 24. desem- ber. Vegna þess hve mikið magn þetta er verður þessi póstur ekki borinn út fyrr en á mánudag. Jó- hann sagði að póstþjónusta í Bandaríkjunum væri frekar hæg og þess vegna hefði þessi töf orðið. Hann sagði að það væri einnig áberandi hve fólk póstlegði bréfin seint í Bandaríkjunum. Það sama mætti segja um Bretland. Fjármálaráðuneytið: Skorað á Svemafélag rafeindavirkja að draga verkfallsboðun til baka Fjármálaráöuneytinu hefur borist svohljóðandi bréf frá Sveinafélagi rafeindavirkja: . „Þrátt fyrir ítrekaðar óskir, hefur launadeild fjármálaráðu- neytisins neitað félagsmönnum Sveinafélags rafeindavirkja sem starfa hjá Póst- og símamála- stofnuninni og Ríkisútvarpinu um að starfa eftir þeim kjörum sem stéttarfélag þeirra og Rafiðnað- arsamband Islands hafa samið um við vinnuveitendur, eða gera Tveir jarð- skjálftakippir við Selfoss SelfoHsi 27. desember. TVEIR jarðskjálftakippir fundust á Selfossi að kvöldi jóladags og aðfaranótt annars í jólum. Sá fyrri fannst um klukkan 21 og sá síðari klukkan 1.55. Seinni kippurinn var sterkari og mældist 1 'h stig á Richter-kvarða. Margir urðu greinilega varir við hann og hrukku upp af svefni. Honum fylgdi snöggur hvinur, sem sumir líktu við sprengingu. Upptök skjálftanna voru hér við Selfoss, sem skýrir það hversu greinilega þeir fundust. Sigurður sérstakan samning um kjör þeirra. Sveinafélag rafeindavirkja hef- ur því ákveðið að lýsa yfir vinnu- stöðvun af hendi félagsmanna sinna, er starfa hjá Póst- og símamálastofnuninni og Ríkisút- varpinu, frá og með 2. janúar 1986, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Þetta tilkynnist yður hér með.“ Fjármálaráðuneytið hefur sent Sveinafélagi rafeindavirkja svo- hljóðandi bréf: „í tilefni af bréfi yðar dags. 23. desember 1985 þar sem þér til- kynnið vinnustöðvun starfs- manna er starfa hjá Póst- og símamálastofnun og Ríkisútvarpi skal eftirfarandi tekið fram: Þeir starfsmenn framan- greindra stofnana, sem væntan- lega er átt við í bréfi þessu, eru ráðnir á grundvelli reglna, sem gilda um opinbera starfsmenn sbr. lög nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, lög nr. 29/1976 um kjarasamninga BSRB og lög nr. 62/1985 um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Bréf nokkurra af þessum starfsmönnum dags. 29. septem- ber 1985 felur ekki í sér uppsögn ráðningar og er hún því enn í gildi. Meðan svo standa sakir hefur Sveinafélag rafeindavirkja ekki samningsumboð fyrir þá starfs- menn Póst- og símamálastofnun- ar og Ríkisútvarps sem hér um ræðir. Boðað verkfall er þegar af þess- ari ástæðu ólöglegt. Með hliðsjón af framansögðu er hér með skorað á yður að draga verkfallsboðun yðar tafarlaust til baka.“ (FrétUtilkynning) Friðsæl jól í Miðfírði SUdarbakki, 27. desember. EKKI er annað vitaö en jólin hafi veriö hér friösæl og jólahald með hefðbundnum hætti. Hátíðarmessur að venju og mikið um nýjar bækur sem eldra fólkið kann vel að meta og börnin una sér við Ijósadýrðina og ný leikföng. Varla eru um það skiptar skoð- anir að veðrátta hefur verið hér með eindæmum hagstæð það sem af er vetri. í gær, annan jóladag, var norðanhríðarkóf stutta stund en birti fljótt aftur. Má heita að það sé eina hríðin í vetur. Er nú hvít jörð og er það líklega í fjórða sinn sem gránað hefur, en alltaf horfið fljótlega aftur. Annars oft- ast lítið frost og logn. Þann 10. desember er skrifað í dagbók mína eftir morgunfréttir: „Rok og rigning í Reykjavík, fannkoma á Austurlandi en norð- anhríð á Steingrímsfjarðarheiði og varð þar að hætta við snjó- mokstur." — En hér var logn og tveggja stiga frost. Slíkt kemur oft fyrir að hér sé eins og milli veðra, bæði sumar og vetur. Veður- guðirnir virðast hliðhollir Mið- firðingum. Benedikt á Staðarbakka. Athugasemd fra Jóni Baldvin Hannibalssyni: Alþýðuflokkur kaus nýja bankaráðsmenn Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi athugasemd frá Jóni Bald- vin Hannibalssyni, formanni Al- þýðufiokksins: „í frétt í Morgunblaðinu þann 22. desember sl. um kosningu í bankaráð er því haldið fram að fulltrúar annarra flokka en Al- þýðubandalagsins hafi allir verið endurkjörnir. Þetta er alrangt. Að því er varð- ar fulltrúa Alþýðuflokksins í bankaráðum, þá var sami aðalfull- trúi í bankaráð Búnaðarbankans endurkjörinn, en hins vegar var breytt um aðalfulltrúa í bankaráði Útvegsbanka og Landsbanka. Með öðrum orðum var Alþýðuflokkur- inn þarna að fylgja eftir gagnrýni sinni á störf Utvegsbankans og bankaráðs hans með því að skipta um fulltrúa í bankaráðinu, en jafn- framt var einnig nýr maður kjör- inn í bankaráð Landsbankans." Morgunblaöiö/Tómas Helgason Flotgirðingin fíutt austur Flotgirðing, til að hefta olíumengun í sjónum á Seyðisfirði, var send austur síðdegis á annan dag jóla. Á myndinni má sjá girðinguna um borð í Landhelgisvélinni SYN, sem fiutti flotgirðinguna austur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.