Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 31

Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 31 < HINN MANNLEGI ÞÁTTUR / Ásgeir Hvítaskáld Bláberjahæö Viö brunuðum á litla mínibíln- um eftir malbikinu framhjá Álver- inu í Straumsvík á leið í berjamó, konan og ég. En konan hafði fundið fullt af berjum í hrauninu út á Reykjanesi nokkru fyrr er hún hafði verið að fylgjast með mér sigla inn eftir langt seglskútu- ferðalag. Sól vár lágt á lofti og í fjarska stóð Snæfellsjökull upp úr sjónum. Við gengum út í mishæðótt hraunið, hún með gríðarstóra skál en ég með lítinn dall. Mest ætlaði ég að tína upp í mig; ekki hrifinn af svona puði. Rauð-hvítir turnar Álversins sjást þar sem svissneskt risafyrirtæki bræðir ál með okkar ódýra rafmagni. Undir fótum okkar var mosi, oddhvasst og sprungið hraun og krækiberjalyng, töluvert af berjum. En ég sá engin bláber. Alls konar skorur, gil og balar; magnað landslag, frumlegt, ferskt og dulúðugt. Ég át nokkra lófa af stórum og safaríkum krækiberjum, en svo fékk ég leið á því og tíndi í helvítis dolluna. Fljótlega leiddist mér. Þá settist ég á þúfu og hlustaði hvort ég gæti heyrt í naktri konu sem lægi bíðandi í einhverri gjótunni, eða hvort kafbátur væri að koma utan af hafi og vantaði laumufarþega, eða hvort ég heyrði sönginn í blá- berjunum. Loks kom ég fram á bláberja- lyng. Ég tíndi berin upp í mig. Þegar ég hafði borðað þau öll nema hálfan lófa, kallaði ég á konuna: „Bláber." Hún kom samstundis og ég gaf henni nokkur bláber. Nokkru seinna fann hún fjögur bláber og kom langa leið til að gefa mér tvö. Ég í áfaði nær hafinu í leit að nýj- um ökrum, nýjum hugmyndum. Einmanaleg varða, vaxin gulum mosa, stóð þarna og starði út á hafið, eins og leikari sem gleymdi setningunni sinni. Kvöldkulið var að breytast í logn. Skyndilega fann ég stórt lyng þakið bláberjum, ofan í skemmtilegri laut. Þarna gat ég setið lengi og tínt í munninn. „I found my thrill, on blue-berry hill“, söng ég og var kominn í ofsa gott skap. En ég náði ekki laglínunni. Ég reyndi aftur en það kom ekki rétt. Alveg sama þó ég hvíslaði, syngi með bassa eða tónaði hátt, eða stæði upp og snéri mér á móti hafinu, það kom alltaf falskt. Ég gat bara sungið það rétt í hugan- um. Djöfull hvað það var spælandi. Ég tíndi fullan lófa og kallaði: „Bláber." Konan kom samstundis. Ég sýndi henni fullan lófann áður en ég át þau. Berin bráðnuðu upp í munni mínum. „Þú finnur alltaf bláber," sagði hún. „Fylgdu mér, þá finnurðu bláber lífsins." Ég gaf henni leyfi til að tína það sem eftir var á lynginu. En hún tíndi það allt i litla aukadollu, setti aðeins eitt og eitt upp í sig. Og þegar hún var búin með lyngið elti hún mig á röndum. En það var ómögulegt, því hún steig ofan á lyngin mín, án þess að sjá bláberin og hún tíndi af bestu lyngunum sem ég var búinn að finna. Svo ég rak hana burt. „I found my thrill on blue-berry hill“, reyndi ég að syngja en ekkert gekk. Ég var búinn að fylla litla dall- inn af krækiberjum og var nú kominn með stóra skál, helvítis krækiber. Sólin var að setjast á bak við Snæfellsjökul og himin- hvolfið var eldrautt. Ég fann grös- uga og ævintýralega laut þar sem hentugt var fyrir tvo náttúruunn- endur að liggja hlið við hiið, þétt, og hlusta á söng náttúrunnar. „Bláber," kalíaði ég. En hún kom ekki. „Bláber," kallaði égenn hærra. En hún kom ekki. Og þegar ég fór að gá að henni sá ég hana hvergi. Þarna voru óteljandi lautir og gil og tekið að rökkva. Hvar var hún? Bílarnir brunuðu í bæinn svo hvein í malbikinu. Lítil kennslu- flugvél, sem flaug fyrir ofan, drap á mótornum til að hrella nemand- ann. Borgarljósin í fjarska voru byrjuð að sindra og ljósin í verk- smiðjunni minntu á þriller eftir Alister MacLean. „I found my thrill on blue-berry hill“, söng ég en náði engan veginn laglínunni. Myrkrið seig á og nú fór ég að leita að konunni minni. Hún hafði þó ekki farið í fýlu yfir minni saklausu stríðni. Ég tíndi bláber einsogóður. • Þegar komið var algjört myrkur fann ég hana loks þar sem hún stóð við bílinn, komst ekki inn því ég var með lyklana. Og hún var í fínasta skapi. „Ég verð víst að hætta við að verða söngvari”, sagði ég og leyfði bílnum að hita sig. Hún sat í framsætinu með stóru skálina í klofinu, þar sem við höfð- um sameinað berin í, og var að hreinsa rusl. En hún sló á hönd mína er ég laumaðist ofaní litlu bláberjadolluna. Allt í einu langaði mig svo ofsalega til að kyssa hana, já, kyssa hanafast. „Hvað gengur á,“ sagði hún. Þá tók ég upp bláberin sem ég hafði tínt í vasann og litla dollan fylltist. Og þá vildi hún kyssa mig. Ég sveigði bílnum af stað heim. Nú breytti ég textanum og laglín- unni svo það passaði við mitt innra lag, og söng. „I found myself in Blueberry Bill, in Blueberry Bill. Já, hann var kaldur karl, með skegg og gummískó. Hann var Ijótur útlits en góður þó. I found myself in Blueberry Bill.“ Og nú var það ekkert falskt, hálfgert blúslag, alveg orginale, því þetta var mitt lag. Þetta söng ég hástöfum alla leiðina í bæinn. En hún hreinsaði ruslið úr berjun- um, át eitt og eitt. Er við komum að grænu beygju- ljósi inn í miðri borginni, veinaði konan skyndilega og stífnaði upp. Það var eins og hún væri að eiga barn þarna í bílnum. „Hvað er að?“ Hún bara öskraði og ég sá ekkert í myrkrinu. „Það er ormur þarna," veinaði hún og forðaðist skálina. En hún gat ekki sleppt skálinni því bíllinn var á mikilli ferð og hossaðist í beygjunni. „Hann skríður upp úr skálinni," öskraði hún, komin í brú; búin að eiga barnið. „Já, en þetta er þá bara gras- maðkur." „Ormur, ormur, ormur... Hann fer upp úr ...“ Það endaði í öskri. Mér rétt tókst að taka beygjuna og hélt áfram því stutt var eftir, sá lítið kríli hreyfast í skálinni. „Hentu honum þá út um gluggann." „Nei...“ „Vertu þá kyrr rétt á meðan.“ Við komumst heim að blokkinni okkar. Þar stöðvaði ég bílinn við lítinn grasblett, skildi ljósin eftir logandi og sagði konunni að koma út með skálina. Hún neitaði í fyrstu og vildi rétta mér ílátið. Ég lét hana bera skálina upp að bíl- ljó§unum til að skoða þennan litla Jf græna grasmaðk sem svo fimlega setti á sig kryppu og fór á milli berja. „Sjáðu hvað hann er fallegur, litli grasmaðkurinn." „Já, en þetta er ormur. Mér er svo illa við allt sem er lítið og skríður," sagði hún. „En þessi litli ormur breytist síðan í fallegt fiðrildi." Hún fékk að skoða það sem hún hafði verið svo hrædd við, lítill sætur ormur. Þá bað ég hana að taka orminn upp með grasstrái. „Af hverju ég,“ sagði hún og neitaði. Hún hélt á grasstrái og ég hélt C- um hönd hennar, þannig tókum viðorminn upp, sem feginn vippaði sér upp á stráið, og settum hann í rakt grasið og gáfum honum frelsi. Hún hristi sig af viðbjóði. „Þú þarft ekki að vera hrædd við lítinn og sætann grasmaðk." Hún horfði á mig um stund. „Þú ert saetari." smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar * Fíladelfía Hátúni 2 Guðsþjónustur á vegum Expó þessa viku. Safnaðarguðsþjón- usta Filadelfíu sunnudag kl. 14.00. Raeöumaöur: Einar J. Gislason. I dag kl. 14-17 er opiö jólahús i Þríbúöum. Hverfisgötu 42. Litiö inn og drekkið meö okkur jóla- kaffiö. Kl. 15.30 syngjum viö saman nokkur jólalög. Allir eru velkomnir. Samhjálp. FEROAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferð Ferðafélagsins Sunnudag 29. des. kl. 13.00 veröur létt gönguferö á Vala- hnjúka (v/Helgafell sunnan Hafn- arfjaröar) og í Valaból. Verö kr. 300.00. Brottför frá Umferöar- miöstööinnl austanmegln. Far- miöar við bfl. Frítt fyrlr börn i fylgd fullorölnna. Fararstjóri: Hjálmar Guömundsson. Feröafélag Islands. UTIVISTARFERÐIR Sunnud. 29. des. kl. 13. Seltjamarnes — Grótta Létt ganga fyrir alla. Verö 250 kr. Frítt fyrir börn meö fullorön- um. Brottför frá BSÍ bensinsölu. I éramótaferóina ar uppaelt. Ath.: Útivist notar allt giatirými í Báaum um éramótin. Útivistarfélagar muniö aö greiöa giróseöla fyrir árgjaldinu. Arsritiö 1985 er komiö út. Skrifstofan er lokuö á mánudag. Útivist. Dyrasímar — Raflagnir Gestur rafvirkjam., s. 19637. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar \ húsnæöi óskast Herbergi óskast Herbergi óskast á leigu fyrir roskinn starfs- mann okkar. Æskilegt er að það sé nálaegt verslun okkar. Uppl. gefur Gestur Hjaltason í síma 686650. Kringlunni 7, Reykjavík. Jólafagnaður sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík Sjálfstæöisfélögin i Reykjavík boöa til jólafagnaöar í Sjálfstæöis- húsinu Valhöll sunnudaginn 29. desember nk. kl. 15.00. Brúöubfllinn kemur í helmsókn og jólasveinar lita Inn og flelra veröur á boöstólum. Sjálfstæöisfólk er hvatt til þess að fjölmenna. Sjálfstæölstélögln i Reykjavik. Áramótaspilakvöld Varðar Landsmálafélagiö Vöröur heldur áramótaspilakvöld sitt sunnudaginn 5. janúar nk. í Súlnasal Hótels Sögu. Húsið opnaö kl. 20.00. Glæsileg- ir vinningar þ.ám. flugferö til Kaupmannahafnar, bækur, matarkörfur o.ft. Kortiö kostar aöeins 250 kr. Sjálfstæðismenn eru hvattir til aö fjölmenna. Landsmálafélagið Vöröur. Keflavík Aðalfundur Sjálfstæöisfélags Keflavikur veröur haldinn á Glóöinni mánudaginn 30. desember kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Matthias A. Mathiesen ræöir stjórn- málaviöhorfiö. 3. Önnur mál. Fjölmenniö Stjórnin. Jólaglögg Skólanefnd Týs FUS efnir til jólafundar laugardaginn 28. desember í Sjálfstæöis- húsinu aö Hamraborg 1, kl. 17.00. Gestur fundarlns veröur dr. Hannes H. Gissurarson. Skólane/ndin Skipasala Hraunhamars Vorum að fá í einkasölu 86 tonna eikarskip með 500 ha. aðalvél. Skipiö er í góöu ásig- komulagi og vel búið tækjum. Erum með ýmsar stærðir fiskibáta á söluskrá. Sölumað- ur Haraldur Gíslason, lögmaður Bergur Oli- versson. Kvöld og helgarsími 51119. Hraunhamar fasteigna- og skipasala, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfiröi. sími 54511.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.