Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 32

Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 32
> 32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 28. DESEMBER1985 * « t Bróöir minn, FRIÐRIK HJARTARSON, Kaplaskjólsvegi 55, andaöist i Landakotsspítala 24. desember sl. Fyrir hönd systkina. Margrét Hjartardóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GÍSLI KRISTJÁNSSON fyrrverandi ritstjóri, lést 24. desember. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Thora Kristjánsson og börn. t Maöurinn minn, GUÐFINNUR SIGMUNDSSON, vélsmiöur frá fsafiröi, síöast búsettur í Lyngholti 19, Keflavík, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur á aöfangadag. Guöríöur Ásgeirsdóttir. t GUÐFRÍDUR BJARNADÓTTIR, Laugarnesvegi 100, er látin. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Guölaugur Bjarnason, Laufey Bjarnadóttir, Bjarni Björnsson, Ingibjörg Garöarsdóttir, Bragi Björnason, Katrín Magnúsdóttir og fjölskyldur. t Fósturmóöir okkar, GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR, Saurbss, Kjalarnesi, andaöist aö Reykjalundi á jóladag. Fósturdsstur. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi, GUÐJÓN ÓLAFSSON, Seljalandi 7, fyrrum bóndi að Stóra-Hofi, Gnúpverjahreppi, lést í Borgarspítalanum 24. desember. Björg Árnadóttir, börn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, HARALDUR KR. MAGNÚSSON, Ásabraut 7, Keflavík, fyrrv. verkstjóri Rafveitu Keflavíkur, andaöist f Landspítalanum 26. desember. Fyrir hönd aöstandenda. Sigrún Ingólfsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir, INGJALDUR TÓMASSON, Austurbrún 4, Rvík. lést aöfaranótt aðfangadags jóla. Lilja Guömundsdóttir, Sigrún Ingjaldsdóttir, Jónatan Jónsson, Halldóra Ingjaldsdóttir, Siguróur Arinbjarnarson, Jóhann T. Ingjaldsson, Ástbjörg Gunnarsdóttir, t Móöir okkar, fósturmóöir og amma, MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR, Snælandí 7, lést aö morgni jóladags 25. desember. Þóröur Sævar Jónsson, Þóra Jónsdóttir, Jón Sævar Þóröarson, Margrét Þóröardóttir. Björgvin Einarsson frá Kárastööum Björgvin fæddist á Kárastöðum í Þingvallasveit 8. maí 1921. Þar bjuggu foreldrar hans, Guðrún Sigurðardóttir og Einar Halldórs- son, bóndi og hreppstjóri — rómað dugnaðarfólk. Börn þeirra hjóna voru 11 talsins og var Björgvin fimmti í röðinni. Til Reykjavíkur kom hann 1940 og hóf nám í vélvirkjun, lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og hlaut meistararéttindi í iðngrein- inni 1945. Árið 1946 gekk hann að eiga Guðrúnu Guðlaugsdóttur sem kennd er við Árbæ — og þar urðum við svilar. Þau eignuðust þrjú börn: Hörð, vélgæslumann í Gufunesi, sem kvæntur er Hugrúnu Skarphéðins- dóttur, Þröst, sem einnig er vél- gæslumaður í Gufunesi og kvænt- ur er Aðalheiði Haraldsdóttur, og Guðlaugu Erlu, skrifstofumann. Maður hennar er Jón ívars hjá Ölgerð Egils Skalla-Grímssonar. Ekki varð lífsferillinn jafn beinn og greiður og á horfðist í fyrstu, en lærdómsríkt er að sjá hvernig menn bregðast við erfiðleikum. Fyrir tæpum 30 árum fékk Björg- vin illkynjaða liðagigt sem háði honum alla tíð. Sjúkdóm þennan bar hann og barðist við af mikilli karlmennsku. Svo fór að hann gat ekki lengur sinnt iðn sinni, varð ófær um að standa við vinnu. Björgvin hóf þá handavinnunám í Kennaraskólanum 1961, lauk prófi og kenndi síðan um nokkurt skeið í Gagnfræðaskólanum við Lindar- götu og við Iðnskólann í Reykjavík. Starfsmetnaður Björgvins var mikill og því leitaði hann frekari menntunar. Til Oslóar hélt hann til náms í rafsuðu og að því loknu kenndi hann við Vélskóla íslands 1966—1971 við góðan orðstír en hrakandi heilsu. En af þeim vett- vangi varð hann að hverfa. Næstu tvo vetur kenndi hann við Barna- og gagnfræðaskólann í Ytri-Njarð- vík. 1973 var Björgvin ráðinn að Barna- og gagnfræðaskólanum í Hveragerði, ekki einungis til kennslu heldur einnig til þess að skipuleggja námið og kaupa allan búnað sem til þurfti. Þessi um- skipti hentuðu Björgvin vel og naut hann þess að vera í ákjósan- legri nánd við sundlaugina góðu og heilsuhæli Náttúrulækningafé- lagsins. Þó hallaði sífellt undan fæti og er á leið var Björgvin oft svo illa haldinn að hann var lang- tímum saman frá kennslu. Sárt hefur Björgvin til þess fundið er þetta starf var einnig orðið ofvaxið kröftum hans en uppgjöf var hon- um ekki í hug. 1978 hóf Björgvin nám í umönn- un þroskaheftra við Kennarahá- skóla íslands og varð síðan skóla- stjóri á Sólheimum í Grímsnesi. Rík samúð og skilningur á högum fólksins þar glæddu starfslöngun- ina, en þrekið dugði miður og skemur en hugur stóð til. Ekk. mun öllum þykja ferill svila míns sigurganga en mér finnst ævi hans vitnisburður um óvenjulegt þolgæði og hetjulund: að bugast ekki vegna þverrandi heilsu heldur aðlagast aðstæðum hverju sinni og leita margsinnis þeirrar menntunar sem gerði honum kleift að starfa. Auðvitað gekk þetta ekki átakalaust. Skilj- anlegt er að skapmiklum og þrjóskum manni verði margar stundir þungbærar við slíkar að- stæður. Erfiðleikarnir bitnuðu t Móöir mín, ÞÓRDÍS HELGADÓTTIR, lést í Landspítalanum aö kvöldi 23. desember. Fyrir hönd aöstandenda. Gísli Hafbteinsson. t Maöurinn minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÞORBJÖRN BENEDIKTSSON, Kirkjubóli, Höfnum, andaöist í Borgarspítalanum þann 26. desember. Magnea Friöriksdóttir, Þorgeröur Þorbjörnsdóttir, Haukur Magnússon, Friórik Ben Þorbjörnsson, Elsa Einarsdóttir, Siguróur Ben Þorbjörnsson, Maja Sigurgeirsdóttir og barnabörn. t Dóttir mín, systir okkar og mágkona, ÞURÍÐUR ELÍN BJARNADÓTTIR, Ljósvallagötu 32, lést af slysförum 25. desember. Ragna Sigrún Guömundsdóttir, Bryndís Bjarnadóttir, Pétur Hafsteinn Bjarnason, Guörún Arna Guöjónsdóttir, Bjarnheiður S. Bjarnadóttir, Kristjón Mósson. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, sonur, tengdasonur og bróöir, BJÖRGVIN SAMÚELSSON húsasmiöur, Brekkuseli 29, sem andaöist 18. desember veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju 30. desember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á kirkjubyggingu Seljasókn- ar og Krabbameinsfélagiö. Þórhildur Guömundsdóttir, Hlynur Örn Björgvinsson, Linda Hrönn Björgvinsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Sólveig Jóhannesdóttir, Hermann Samúelsson, Ásdís Hallet Samúelsdóttir, Jón Samúelsson, Úlfar Samúelsson, Jónína Samúelsdóttir. bæði á honum og eiginkonunni — og langdvalir hans að heiman eftir 1973 urðu til þess að þau Guðrún slitu samvistir. Skilnaðurinn varð þó ekki að vináttuslitum heldur hélst samband þeirra fram á síð- asta dag og til Guðrúnar leitaði hann er hann fann dauðann nálg- ast. Mikil veikindi og margar sjúkra- legur Björgvins urðu okkur að- standendum hans sívaxandi hug- raun. Þegar við gengum á vit ljóss og friðar á jólahátíðum varð venja hans að leggjast inn á spitala til þess að láta rétta hendur eða fætur. Tíminn þótti góður til þess að komast þar að — og hann var notaður. Slíka ferð átti hann fram- undan um þessi jól, en máttarvöld- in tóku í taumana. Björgvin dó að kvöldi 16. desember. Á kveðjustundu minnist ég okk- ar fyrstu kynna og góðu stundanna meðan nafni minn var heill heilsu. Ekki brást í afmælisveislum að Björgvin og mágur hans, Jóhann- es, útvarpsþulur, yrðu fyrstu menn til þess að upphefja skemmtan með sögn og gítarspili enda höfðu báðir fallegar raddir. En ekki þarf að efast um að hvíldin verður svila mínum kær- komin er hann gengur nú á vit hins ókomna. Björgvin Grímsson Dauðinn er oftast fjarlægur og óvelkominn gestur, en þegar hann birtist vekur hann minningar — bæði ljúfar og sárar. Gleðistundir unglingsáranna eru flestum hugstæðar, og þær koma mér í hug er ég minnist heimilis Björgvins Einarssonar og Rúnu, móðufsystur minnar, í Kópavogi fyrir aldarfjórðungi. Þær systur — móðir mín og Rúna — voru mjög samrýndar og sam- band náið milli heimilanna. Ég var margar stundir hjá Rúnu, passaði yngri börnin og sóttist eftir að vera þar því að á heimilinu ríkti fjör og skemmtan meðan allt lék í lyndi. Ég elskaði og tignaði alla sem gátu sungið. Ógleymanlegar voru stundirnar þegar Björgvin spilaði á gítarinn og söng. Ékki voru fáir textarnir og lögin sem ég lærði þar. — En fleiri en ég hrifust og sungu með hjá Björgvin og Rúnu. Öft líktist heimilið skemm- timiðstöð vesturbæjarins í Kópa- vogi. Um áramót voru þar til dæmis venjulega 40—50 manns og stóð fagnaðurinn stundum röskan sólarhring. En þetta sem annað breyttist í tímans rás. í sumar er leið fóru fjölskyldur foreldra minna saman í ferðalag. Þá sá ég Björgvin í síðasta skipti þar sem hann stóð með hækjur tvær og kvaddi okkur við bílinn. Mér þótti leiðinlegt að hann skyldi ekki koma með, en auðvitað fór ekki framhjá neinum hve sár- þjáður hann var þótt hress væri að yfirbragði og brosmilt andlitið. Því vaknaði örskamma stund ósk- hyggjan um að allt gæti orðið sem áður þegar Björgvin sat með gítar- inn og spilaði og söng. Hér er ekki ætlunin að rekja æviferil Björgvins heldur þakka fyrir allt hið góða sem hann gerði fyrir mig og votta Rúnu, börnum þeirra og tengdabörnum samúð mfna. Guðrún Björgvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.