Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 37 Sagan af Shevchenko, grein VIII Herlegheit herrastéttarinnar — eftirArna Sigurðsson Michael S. Vos'ensky sem var hér á landi fyrir nokkrum vikum og var gestur á fundi Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu og SVS, sam- taka um vestræna samvinnu, skrifaði merka bók „Nomenklat- ura“ um herrastéttina í Sovétríkj- unum. Hún hefur ekki birst í ís- lenskri þýðingu en Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður, skrif- aði um hana greinaflokk er birtist hér á síðum Morgunblaðsins fyrir all nokkru. Ætti hún því að vera lesendum Morgunblaðsins kunn. Herrastéttin í Sovétríkjunum er nefnd hefur verið Nomenklatura er hópur eða öllu heldur samfélag útvaldra Sovét-borgara, þeirra er hafa með höndum mikilvægustu störf og embætti á vegum komm- únistaflokksins og/eða stjórnar- innar í Moskvu. Shevchenko víkur sérstaklega að þessu í æviminning- um sínum „Breaking from Mos- cow“. Shevchenko varð meðlimur herrastéttarinnar er Andrei Gro- myko, þáverandi utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, gerði hann að sérlegum ráðgjafa sínum. Shevchenko segir að þá hafi hagur sinn farið að vænkast allvel. Meðlimir herrastéttarinnar njóta geysilegra forréttinda miðað „MeÖlimir herrastéttar- innar njóta geysilegra forréttinda miöað viö óbreyttan almúgann. Þeir sem á toppinum tróna, þ.e. meðlimir for- sætisnefndar sovéska kommúnistaflokksins, eru í sérstakri aðstöðu því forréttindi þeirra og sérstæða er engum tak- mörkunum háð.“ við óbreyttan almúgann. Þeir sem á toppinum tróna, þ.e. meðlimir forsætisnefndar sovéska komm- únistaflokksins ,eru í sérstakri aðstöðu því forréttindi þeirra og sérstaða er engum takmörkunum háð. Forréttindi og munaður Meðlimir herrastéttarinnar hafa víðtæk forréttindi eins og áður var að vikið. Þeir hafa há laun, góðar, þægilegar og rúmgóð- ar íbúðir eða einbýlishús, dachas (sumarhús), einkabíla og bílstjóra, sérstaka járnbrautarvagna að- greinda frá vögnum almúgans, VlP-meðferð á flugvöllum, sumar- leyfisstöðum og sérstökum spítöl- um aðeins fyrir meðlimi herra- stéttarinnar. Þeir búa í hverfum aðskildum frá hverfum almúgans og hafa aðgang að sérstökum matvöruverslunum þar sem fram- boð neysluvara er gott og ýmiss vestrænn munaðarvarningur er á boðstólum. Börn þeirra meira að segja ganga í sérstaka skóla og umgangast aðeins hvert annað. Meðlimir herrastéttarinnar verða því að leggja nokkra lykkju á leið sína hyggist þeir blanda geði við óbreytta alþýðuna svo aðskildur er þessir forréttindahópur, herrra- stéttin, frá meirihluta íbúa Sovét- ríkjana. Sumir jafnari en aðrir Shevchenko segir að eftir á skilji hann betur að herrastéttin sé aðskilin frá almúganum af sál- fræðilega stórri hindrun svo að jafnist á við Kínamúrinn. Þessi hópur forráðamanna sovésks sam- félags er því sem ríki í ríkinu, hópur valdsmanna hátt hafinn yfir þá er þeir hafa sjálfskipað forræði yfir. Þversagnakenndur boð- skapur herrastéttarinnar Það hefur löngum verið glögg- skyggnu fólki á Vesturlöndum ljóst að Sovétmenn hafa löngum boðað annað en þeir hafa ástundað og gildir þá jafnt hvort um er að ræða mannréttindamál, utanríkis- mál eða málefni þeirra innanlands. Shevchenko segir að það sé kald-. hæðnislegt að hin steinrunna yfir- stétt viðhaldi stjórnarfarslega stöðnuðu, óréttlátu en stöðugu þjóðfélagi um leið og þeir hvetja og ausa fé til byltingarafla víðs vegar um heim til þess að raska stjórnarfarslegu jafnvægi með byltingum. Ætlast þeir til að íbúar gefi upp forréttindi ef einhver eru og leiti á náðir sælurikis öreig- anna. Þeir boða því annað en þeir ástunda sjálfir. Þetta er þó eðlilegt þegar tekið er mið af því að komm- únisminn er í eðli sínu heimsvalda- stefna og Sovétmenn vinna að því að útbreiða byltinguna. Svo lengi sem hugmyndakerfi er byggir á slíkum grunni þrífst í heiminum ber frjálsum lýðræðisríkjum heims að standa saman gegn sundrungar- og niðurrifsstefnu Sovét-kommúnismans. Þetta er m.a. boðskapurinn í æviminning- um Arkady N. Shevchenkos. í næstu grein mun ég fjalla um Nixon, Kissinger og deténte- stefnu fyrstu ára síðasta áratugar. Helstu heimildir: Arkady N. Shevchenko „Breaking from Mos- cow“ A.F. Knopf, USA 1985. Time Magazine, 11. og 18. febrúar 1985. Höíundur á sæti í utanríkismála- ncínd Sambands ungra Sjálfstæó- ismanna. Satt best að segja Bókmenntir Ævar R. Kvaran Jón Á. Gissurarson: SATT BEST AÐ SEGJA. Útgefandi: Setberg, 1985. Sú var tíð, þegar þeir sem nú eru orðnir aldraðir Reykvíkingar, þekktu næstum hvern mann sem þeir mættu á götu í höfuðstaðnum. Þeir þurftu raunar ekki að þekkj- ast mjög náið til að heilsast á götu, en þekktu hver til annars. Sá sem til dæmis hripar þessar línur og er hér fæddur, þarf ekki lengur að heilsa jafnmörgum og fyrmeir. Þegar hann kom inní Menntaskól- ann í Reykjavík beint úr barna- skóla minntist hann þess, þegar hann sem busi var fyrst viðstaddur heimsókn 25 ára stúdenta í skól- ann. Það sem undraði hann mest var það, hversu langlífir þessir gömlu stúdentar höfðu orðið, að ná að lifa sitt 25. stúdentsafmæii. Á næsta ári á þessi maður ekki 25 ára stúdentsafmæli heldur verða þá liðin 50 ár frá því hann lauk stúdentsprófi. Á tali svo- nefndra táninga má stundum heyra, að sá sem kominn er yfir 30 ár, sé tæpast viðræðuhæft gamalmenni. Þannig virðist aldur afstæður eftir aldri. íslendingar eru forvitnir um náungann, eins og títt mun vera meðal fámennra þjóða. Af þessu leiðir að við erum sólgnir í endur- minningabækur, sem oft seljast mjög vel. En ærið eru þær þó misjafnar sem bókmenntir. Sum- um er það ljóst, að ekki er með öllu vandalaust að skrifa endur- minningar og fá þá til þess reynda og góða rithöfunda og munar það miklu. Aðrir skrifa sjálfir endur- minningar sínar og tekst eðlilega misjafnlega. Jón A. Gissurarson er einn þeirra og fer mjög vel á því. Hann er mjög ritfær maður, skrifar látlaust og fagurt mál. En það sem mestu máli skiptir er þó stíllinn á þessari ágætu bók, sem er til slíkrar fyrirmyndar, að sýna ætti hann í skólum landsins, þegar athygli er vakin á fögru íslensku máli. Jón nær mjög sterkum tökum á fallegum stíl i þessum endurminn- ingum sínum með því að forðast ofnotkun greinis. Eru íslensku fornritin okkur þar holl fyrir- mynd. Á ráðstefnu sem haldin var að boði Sverris Hermannssonar menntamálaráðherra í Þjóðleik- húsi og vakti verðskuldaða at- hjygli, flutti Barði Friðriksson snjallt erindi einmitt um ofnotkun greinis og benti á það með réttu, að Halldór Laxness og Kjartan Ólafsson væru mestir stílistar ís- lenskra rithöfunda. Þann fyrr- nefnda þekkja allir íslendingar, enda er hann ausinn lofi fyrir ritsnilld sína allan ársins hring. En hinn síðarnefnda þekkja færri eða vilja kannast við sem rithöf- und, þótt hann hafi árum saman skrifað íslensku af slíkri snilld og slíkum þrótti að sjaldgæft er. Af einhverjum óskiljanlegum ástæð- um er alltaf gengið framhjá þess- um ágæta rithöfundi við úthlutun listamannalauna. Enda er hann ekki bundinn neinum klíkum. Hann lætur verk sín ein tala. Þessi maður hefur ferðast víðar um heim en sennilega nokkur annar Jón Á. Gissurarson fslendingur og skrifað frábærar ferðabækur. Áuk þess sem hann hefur á valdi sínu yfir tug tungu- mála. En hvað kemur þetta Jóni Á. Gissurarsyni við? kann nú einhver að spyrja. Ég var hér að framan að minnast á stílsnilld Jóns í þess- um endurminningum hans. Hvað- an skyldi hann hafa hana? Jú, ég held að það hafi verið um 1975 að Jón skrifaði einmitt um stílsnilld Kjartans Ólafssonar og þá sér- staklega hvernig Kjartan jafnan forðast ofnotkun greinis í því sem hann skrifar. Þar mun hann hafa fundið fyrirmynd sem vert væri að tileinka sér og það hefur hann gert í þessari bók sinni með þeim hætti, að hún ber af öðrum endur- minningabókum hvað ritsnilld snertir. Sá sem þetta hripar hefur um árabil verið málkunnugur Jóni Á. Gissurarsyni og dregið af hinum grafalvarlega svip hans þær álykt- asnir, að færi mikill alvörumaður. Vafalaust er það rétt. En hann hefur með þessari bók sýnt á sér hliðar, sem sá sem þetta skrifar þekkti ekki, því Jón er stór- skemmtilegur húmoristi. Er hann víða svo fyndinn í frásögn sinni, að lesandi -skellir uppúr við lestur. Öll er þessi fyndni þó fyrirhafnar- laus og meinlaus, en eykur mjög ánægjuna af lestri þessarar ágætu bókar. Megi Jón bera gæfu til að halda áfram endurminningum sínum þar sem hér er frá horfið. Hana vilja áreiðanlega allir eiga sem þessa fyrri lásu. Þökk sé Set- bergi fyrir útgáfuna. Hlátur og dálftill grátur Kvikmyndir Árni Þórarinsson Kegnboginn — The Kid ☆ ☆ ☆ !A Bandarísk. Árgerð 1921. Handrit og leikstjórn: Charles Chaplin. Aðal- hlutverk: Charles Chaplin, Jackie Coogan, Edna Purviance. Með fínu fólki — The Idle Class ☆ ☆ ☆ Bandarísk. Árgerð 1922. Handrit og leikstjórn: Charles Chaplin. Aðal- hlutverk: Charles Chaplin, Edna Purviance, Mack Swain. Það segir kannski sitt um stöðu kvikmyndagerðar undanfarin ár að bestu jólamyndirnar sem okkur býðst að sjá árið 1985 eru meira en sextíu ára gamlar. Reyndar skiptir árið ekki máli, eftir á að hyggja. Trúlega væru The Kid og The Idle Class bestu jólamyndirn- ar hvað ár sem vera skal. Hlátur- inn í litla salnum í Regnboganum var þessi dillandi, áreynslulausi, innilegi hlátur sem eiginlega heyr- ist bara á sýningum hinna sígildu gamanmynda þögla tímans — og ekki síst á myndum Charlie Chapl- in. Fyrri myndin og sú styttri á þessu tveggja mynda Chaplin- prógrammi, The Idle Class, er umfram allt hláturmynd. Þar leik- ur Chaplin tvö hlutverk — annars vegar auðugan, drykkfelldan eigin- mann og hins vegar hinn sígilda umrenning — og báðar persónurn- ar sverma fyrir sömu konunni, sem leikin er af algengri Chaplin- stjörnu, Edna Purviance. Það eru ótal unaðsleg gamanatriði í The Idle Class, en hún er líka umleikin þeirri samúð með mannfólkinu, ekki síst hinum snauða meirihluta, sem umrenningurinn er tákn fyrir. Hlátur og grátur eru á hinn bóginn samverkandi í The Kid, sem í upphafi er kynnt með þessum orðum: A picture with a smile, and, perhaps, a tear. Þarna fer Chaplin að vísu ískyggilega nálægt þeirri væmni og grátklökkva sem hann var heldur veikur fyrir. Umrenningurinn tekur í The Kid, nauðugur viljugur, kornabarn sem hann finnur á víðavangi upp á arma sína og lýsir myndin því hvernig þeir bjarga sér saman og berjast við harðneskjulegt um- hverfið uns raunveruleg móðir drengsins nær aftur sambandi við hann og allt fær lukkulegar lyktir. Snilldarlegur samleikur Chaplins og Jackie Coogan, sjö ára gamallar barnastjörnu, er fyrir löngu orðinn sígildur í kvikmyndasögunni og víða í The Kid eru atriði sém sýna að þótt tæknilegum bellihrögðum hafi fleygt fram á meir en hálfri öld er ekki þar með sagt að tilfinn- ing fyrir myndmáli hafi gert það líka. Charlie Chaplin og Jackie Coogan gantast við Douglas Fairbanks við upptök- V ur áThe Kid.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.