Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.12.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 39 Það er fallegt húsið þeirra hjóna á Marienborg. Það er kátt um jólin á Marienborg r AÞorláksmessu var mikið um dýrðir í Marienborg hjá for- sætisráðherrahjónunum dönsku Lisbeth og Paul Schliiter. Þau héldu þá einskonar litlu jól og buðu til sín ættingjum og vinum víðsvegar að úr Danmörku. Lisbeth hefur haft veg og vanda af þessari venju í áraraðir. Hús- móðirin lagar matinn ætíð sjálf á jólunum og heldur í heiðri fornum siðum og dönskum venjum hvað hátíðamatinn snertir. En til að hátíðin á Þorláksmessu skyggi ekki á sjálfa jólahátíðina þá ber hún fram létta rétti og lætur jóla- tréð vera óskreytt fram á áðfanga- dagsmorgunn. Mikið er sungið og sitthvað til gamans gert fyrir börn og full- orðna og ekki spillir að undirleik- arinn við píanóið skilar hlut sínum með léttleika og lipurð svo sem ráðherranum er lagið. Lisbeth og Paul SchlUter. Tekið í borðstofunni. Rainer fursti, Stephanie og Stefano taka einnig á móti börnunum og deila út gjöfunum. COSPER — Þetta er mjög vönduð antik-klukka. Þegar litli vísirinn er á þrem- ur og hún slær 22 högg, er klukkan hálf átta. Börnin koma í heimsókn í höllina og fájólapakka Furstafjölskyldan í Monakó safnar gjöfum allt árið. Nokkrum dögum fyrir jól er svo börnum af barnaheimilum boðið til hallarinnar þar sem hvert barn fær sína gjöf og ýmislegt góðgæti. Karólina Mónakóprinsessa er i for- svari fyrir útbýtingum jólagjafanna. Áður en fjölskyldan heldur eigin jól, finnst þeim hæfa að gleðja yngstu meðlimi Mónakóríkisins. „Sovéskur friður“ á jólum „SOVÉSKUR friður á jólum í Afg- anistan" er titill á dreifibréfi, sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæö- ismanna í Reykjavík, gaf út núna fyrir jólin og var m.a. dreift í mið- bænum á Þorláksmessu. í dreifibréfi þessu er að finna orðsendingu frá samtökunum „Federation of Afghans and Afghan Students Abroad", FASA, til æskufólks um alian heim. Þar segir m.a.: „Hernað- aráætlun Sovétmanna gagnvart ríki okkar er fyrst og fremst byggð á því markmiði að komast 600 kílómetrum nær Indlands- hafi, og þurfa þeir nú aðeins 400 kílómetra til þss að ná yfirráðum yfir skipaleiðum um Arabíufló- ann og Indlandshaf. Þess vegna leitum við til ykkar, íslensk æska, eins og annars ungs fólks um allan heim, í von um að þið áttið ykkur á að málefni landsins okkar verða ekki bara tekin sem svæðisbundið vandamál, heldur alþjóðlegt." Bent er á það í orð- sendingunni að samkvæmt upp- lýsingum frá Gann-háskólanum í Belgíu, hafa Sovétmenn notað efnavopn á saklaust fólk. í dreifi- bréfinu er síðan að finna myndir af börnum sem hafa orðið fyrir hinum svokölluðu leikfanga- spengjum, sem springa við snert- ingu. Fulltrúar MSF (Médecins sans Frontiéres), sem eru samtök lækna er starfa í Afganistan, hafa vitnað í fjölmörg dæmi þessu til staðfestingar. I lok orðsendingarinnar segir: „Við óskum íslensku æskufólki góðs gengis um komandi ár, um ieið og við biðjum ykkur að gleyma ekki frelsisbaráttu okkar, ungs fólks sem býr undir sprengjuárásum, ofsóknum, lim- lestingum, neyð og hörmungum, sem sovéska árásarliðið hefur leitt yfir þjóðina. Við eigum þann draum að einhverntíma verði landið okkar frelsað undan oki sovéska árásarliðsins. Okkur dreymir um að geta einhvern daginn tekið ykkur opnum örm- um og boðið æskufólk hvaðanæva velkomið í dalina okkar undur- fögru. En til þess þurfum við á samstöðu ykkar að halda. Við þörfnumst alþjóðlegrar sam- stöðu." Gleðilegt ár ogþökkum vidskiptin á árinu semeraðlíða. Dagataljóla■ og nýárshátíðarinnar: Gamlárskvöld lokað. Nýárskvöld einkasamkvæmi. 3. jan. föstudagur, „Úr gullkistu Eyjamanna" skemmtidag- skrá með lögum og Ijóðum frá Vestmannaeyjum í flutningi Helga og Hermanns Inga, Jónasar Þóris og Hrannar Geir- laugsdóttur. 4. jan. laugardagur, matur og dans, Hrönn og Jónas Þórir leika fyrir matargesti. Tríó Jónasar Þóris leikur huggulega danstónlist. 5. jan. sunnudagur, þrettándakvöld- gleði að hætti Naustsins, fram koma < Dixieland-band Björns R. Einarssonar, Vínarhljómsveit Þorvaldar Steingríms- sonar, jólalögin sungin og leikin undir stjórn Jónasar Þóris og Helga Her- mannssonar. Jónas Þ. Dagbjartsson leikur borðtónlist. Borðapantanir í síma 17759. r' 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.