Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
■nyr/j*n*''aM'va
11NS OS- RRÐHERRHNN SKILUR ÞÓTTI OKKUR 8JÍILF6EFI9 HVRR VIÐ HEFOUM KLÓSETnE>>
Þessir hringdu . .
Endursýnd
kvikmynd á
jólum
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Ég vil lýsa furðu minni á þeirri
ákvörðun sjónvarpsins að endur-
sýna 70 ára gamla þögla kvikmynd
á jóladag. Þessi mynd er án efa
hin merkilegasta og á sýning henn-
ar fullan rétt á sér, en myndir af
þessu tagi höfða fyrst og fremst
til tiltölulega fámenns hóps kvik-
myndaáhugamanna og því þykir
mér það mikið dómgreindarleysi
hjá forráðamönnum sjónvarpsins
að sýna hana á þessum tíma, þegar
öll fjölskyldan er að jafnaði saman
komin og manni fyndist rétt að
sýna efni sem höfðaði til sem
flestra. Auk þess minntist ég þess
að áður hafi verið sýnt endurtekið
efni á jólunum og finnst það und-
arleg nýbreytni og ekki bera vott
um mikinn metnað í dagskrárgerð.
Ég vil koma vinsamlegri ábend-
ingu til forráðamanna sjónvarps
um það að ég tel þessi vinnubrögð
ekki falla í kramið hjá almenningi
og þess vegna ættu þeir að hugsa
sinn gang, því að öðrum kosti mega
þeir fara að vara sig þegar þeir
standa frammi fyrir samkeppni
frá öðrum sjónvarpsstöðvum eftir
áramót.
Að eyða í
fánýt klæði
0348-3940 hringdi.
Þeir sem boðnir voru og eru til
að sjá dýrð marxismans í raun og
leiddir eru af gestgjafanum eins
og húsmæður bjóða til stássstofu,
þeir vilja fá sönnun á ágæti komm-
únismans. Þegar þeir sjá allt
annað þar þá er sannleikanum
snúið við, samanber manninn sem
boðinn var í Bolsjo-leikhúsið og
undraðist meira á klæðaburði
fólksins en glæsileika hússins.
Skýringin sem honum var gefin
var sú að fólk væri ekki að eyða í
fánýt klæði og mætti vaða á skít-
ugum skónum um allt.
HEILRÆÐI
Förum varlega
með flugelda
SVFÍ hvetur unga jafnt sem aldna að sýna fyllstu varúð
í meðferð flugelda, stjörnuljósa og blysa. Sérstaklega eru
foreldrar hvattir til að hafa vakandi auga með börnum
og unglingum og vara þau við hættum þeim, sem fylgja
ógætilegri meðferð þessara hluta.
Höldum gleðileg áramót með slysalausum dögum.
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Nýlokið er firmakeppni félags-
ins sem jafnframt var þriggja
kvölda einmenningsmeistara-
keppni.
Úrslit í firmakeppninni urðu
þessi:
Iðnaðarbankinn 118
spilari Valtýr Pálsson
Bakki s/f 114
spilari Sveinn Guðmundsson
Heildv. Viðars Bjarnasonar 112
spilari Valdimar Bragason
Selfossveitur 110
spilari Þráinn Ómar Svansson
Hjalti Sigurðsson rafvélav.m. 109
spilari Valgarð Blöndal
GúmmívinnustofaSelfoss 109
spilari Hörður Thorarensen
Meistari félagsins í einmenn-
ingi varð að þessu sinni Vil-
hjálmur Pálsson. Spilarar heyr-
ast stundum halda því fram að
sigur í einmenningskeppni sé
hálfgert happdrætti. Við hjá
Bridsfélagi Selfoss getum með
engu móti fallist á það því við
ráðum ekkert við Vilhjálm í
einmenningi. Hann hefur nú
sigrað af öryggi í þrjú ár af fjór-
um en eitt árið var hann ekki
með í keppninni. Úrslitin urðu
þannig er upp var staðið að þessu
sinni:
Vilhjálmur Pálsson 321
Valgarð Blöndal 305
Sigurður Reynir Óttarsson 298
Sveinbjörn Guðjónsson 297
Páll Árnason 297
Keppnisstjóri var Guðjón Ein-
arsson.
Fyrirhugað er að hefja spila-
mennsku fimmtudaginn 2. jan-
úar með eins kvölds tvímenningi.
HreyfiJI —
Bæjarleiðir
Lokið er fimm kvöldum af 11
í tólf sveita aðalsveitakeppni.
Staðan:
Jón Sigurðsson 123
Anton Guðjónsson 107
CyrusHjartarson 102
Gísli Sigurtryggvason 99
Vignir Aðalsteinsson 96
Steingrímur Aðalsteinsson 83
Keppnin heldur áfram 13.
janúar. Spilað er í Hreyfilshús-
inu klukkan 19.30.
Bridssamband
Suðurlands
Nýlokið er bikarkeppni sam-
bandsins. Alls tóku 98 sveitir
frá 5 félögum þátt í keppninni.
Sigurvegari varð sveit Vilhjálms
Pálssonar, Selfossi. Með Vil-
hjálmi í sveitinni voru þeir Sig-
fús Þórðarson, Guðjón Einars-
son, Gunnar Þórðarson og
Kristján Már Gunnarsson.
Suðurlandsmót í tvímenningi
var haldið á Laugarvatni þann
30. nóvember 1985. Alls tóku 36
pör þátt í mótinu. Spilað var eftir
Mitchell-fyrirkomulagi 72 spil
alls. Reiknimeistari var Vigfús
Pálsson en keppnisstjóri Ólafur
Lárussson.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Valgarð Blöndal —
Aðalsteinn Jörgensen 968
Gunnar Andrésson —
Gísli Þórarinsson 932
ÓlafurTýr Guðjónsson —
Gylfi Gislason 908
Kristján Már Gunnarsson —
Kristján Blöndal 883
Hrannar Erlingsson —
Matthías Þorvaldsson 868
Gunnar Þórðarson —
Guðjón Einarsson 857
Ragnar Óskarsson —
Hannes Gunnarsson 857
EymundurSigurðsson —
Hermann Þ. Erlingsson 857
Meðalskor var 792 stig.
Norskur karlmaður, 25 ára, vill
skrifast á við íslenzka stúlku á
aldrinum 20-26 ára. Hann hyggst
heimsækja ísland næsta sumar.
Áhugamálin eru ljósmyndun,
íþróttir, fólk og ferðalög:
Per Andersen,
Vetlandsveien 62B,
N-0685 Oslo 6,
Norge.
Frá Ghana skrifar 25 ára piltur
með margvísleg áhugamál. Vill
ólmur eignast pennavini á Islandi:
Albert Kwesi Essvon,
c/o David K. Manso,
Box 377,
Brimso,
Cape (’oast,
Ghana.
Frá Svíþjóð skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á tónlist, íþróttum,
kvikmyndum o.fl.:
Kajsa Stilbrand,
Brandkárrsvágen 140,
S-611 65 Nyköping,
Sweden.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum, tónlist o.fl.:
Megumi Sasaki,
4045 Kamiokuda, oaza,
Kawanishi-Machi,
Higashiokitama-Gun,
Yamagata,
999-03 Japan.
"VLTJ ■
jiin
■sr