Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR1986 B 3 mjög erfitt að finna hánn. Af leik- listarskólabekk var ekki um að ræða nema kannski tvo árganga sem komu til greina upp á aldurinn að gera og fyrir utan að skoða þann hóp var auglýst eftir leikara. Ég var búinn að skoða heil ósköp af ungum strákum þegar þessi kom inn í myndina," og það í orðsins fyllstu merkingu. Það var einmitt eftir að hafa séð Ijósmyndir af tónlistarmanninum í blöðum að Lárus Ýmir fékk hann til fundar við sig. „Sá strax að þetta var rétti karakterinn og svo reyndist hann hafa óvenjulega hæfileika og sterka útgeislun," segir leik- stjórinn, auðheyrilega ánægður með sitt fólk. Það sem koma skal þegar hlé- barðinn er kominn á kreik segir Lárus Ýmir ekki með öllu afráðið. Telur það nokkra bjartsýni að ætla í aðra kvikmynd á þessu sumri m.a. að það þarf ekki endalaust að biðja fólk um greiða, það er beðið um hlutina og borgað fyrir þá, eins og í hverri annarri atvinnu- grein," segir Lárus Ýmir. Þegar svo talið berst að erlendum leik- stjórum í sænskri kvikmyndagerð, m.a. í Ijósi þess að á nýliönu ári hefur Hrafn Gunnlaugsson, auk Lárusar Ýmis lagt henni lið sitt, vaknar óneitanlega sú spurning hvort erlendir leikstjórar komi sænskum á einhvern hátt „öðru- vísi” fyrir sjónir - þ.e. þeirra verk. „Það eru auðvitað allir leikstjór- ar „öðruvísi" en aðrir leikstjórar - við Hrafn líka. Og það hefur sjálf- sagt haft áhrif á mig að gera mitt stærsta verk til þessa í útlöndum. Þar sem ég hef ekki áhuga á sænskum staðháttum sem slík- um, fer maður að gera kvikmynd í eigin heimi kvikmyndarinnar. Hún verður ekki til úr neinum landa- ♦» Ég myndi líklegast gera mynd hér heima ef ég ætti þess kost. En ég sé enga möguleika á því eins og ástandid er, þar sem ég kann ekki að gera mynd sem öllum þykir gaman að og enn síður mynd sem ekkert má kosta. og líklegra að hann hefji aftur slík störf á komandi vetri. Enn sem áður á vegum Svía væntanlega. Er sem sé ekki á leiðinni heim hvað kvikmyndagerðinni viðkem- ur? „Varla. Ég myndi líklegast gera mynd hér heima ef ég ætti þess kost. En ég sé ekki möguleika á þvi eins og ástandið er, þar sem ég kann ekki að gera mynd sem öllum þykir gaman að og enn síður mynd sem ekkert má kosta." Kostnaður við myndina sem hann er nú að Ijúka við er um 30 milljón- irkróna. Um aðra kosti þess að vinna að kvikmyndagerð ytra fremur en hér nefnir hann hluti eins og vel þjálfað fólk í jafnvel hin minnstu störf, fólk sem þarf ekki að sjá fyrir sér með öðru en kvikmynda- gerðarvinnunni. Vinnumátann segir hann einnig vera í fastari skoröum, „sem er engin furða þar sem Svíar hafa sterka hefð fyrir kvikmyndagerð. Voru byrjaðir í henni fyrir aldamót og bara á 4. og 5. áratugnum voru framleiddar um 50 myndir árlega. Þetta þýðir fræðileik, njörvuð niður með stað- arnöfnum, eins og ég held að manni hætti kannski meira til við kvikmyndagerð í sínu heimalandi. Þar verður umhverfið oft ósjálfrátt að einni forsendu myndar. Ef ég færi að kvikmynda á Islandi myndi ég sjálfsagt halda uppteknum hætti hvað þetta varðar — og það yrði sjálfsagt átakaminna, a.m.k. þyrfti ég ekki að láta höggva niður jafn mörg tré," segir Lárus Ýmis og brosir í kampinn. Situr við klippiboröið, rennir í gegn gróf- klipptu upphafsatriðinu og segist nokkuð bjartsýnn á endanlega útkomu — þó myndin sé ekki björt yfirlitum í eiginlegri merkingu. „Ég kunni að vísu ekki við að gera aðra mynd í svart/hvítu, a.m.k. ekki strax, en tókst hins vegar að þrjóskast við að filma aldrei í sól og halda litunum niðri eftir mætti. Ætlaði reyndar að bæta þar enn um betur í eftirvinnslunni, en svo sá ég að þess þurfti ekki," segir hann, rennir augunum aftur að skjánum og horfir á það sem við landar hans fáum vonandi að sjá seint á þessu ári. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI WAGNtR- sjálfstýringar Wagner-sjálfstýringar, komplett með dælusettum 12 og 24 volt, kompás og fjarstýringum fram á dekk, ef óskaö er, fyrir allar stærðir fiskiskipa og allt niður í smá trillur. Sjálf- stýringarnar eru traustar og öruggar og auðveldar í uppsetningu. Höfum einn- ig á lager flestar stærðir vökvastýrisvéla. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Atlas hf Borgartún 24 — Sími 26755. Pósthólt 493, Reykjavík Þú svalar lestrarþörf dagsins ásjöum Moggans! Iþróttir fyrir alla Trimmnefnd Í.S.Í. heldur námskeið í íþróttum fýrir alla laugardaginn 11. jan- úar n.k. — Kennari: Kent Finanger, prófessor, U.S.A. — Kennsiustaður: Húsakynni Í.S.Í., Laugardal Reykjavík. — Tími: Námskeiðiö verður laugardag 11. jan. kl. 13.15-18.00. — Innritun: Skrifstofa Í.S.Í. — sími: 83377.' — Þátttökugjald: kr. 200.- Trimmnefnd Í.S.Í. ALLTAF A LAUGARDÖGUM LESBOK Minn veruleiki er islenzkur Samtal við Tolla (Þorlák Kristinsson) myndlistarmann um veru hans í Berlín og ástandið í hinni tvískiptu borg. Síðasti valsakóngurinn Grein um Robert Stolz í tilefni Vínarkvölds Sinfóníunnar þann 16. þ.m. Fellibyljir Náttúruhamfarir í hitabeltinu, þegar vind- hraðinn nær 17 vindstigum. Grein eftir Trausta Jónsson veðurfræöing. Of mikiö af laxi og yfrið nóg af kjöti Þaö er mörg matarholan í fjöröunum viö Austur-Grænland, þar sem Guðni Þor- steinsson var á tilraunaveiðum. Vönduð og menningarleg helgarlesning sjaldan boð á undan sér og því er hyggileg- ast að vera alltaf á varöbergi gagnvart veðri, landslagi og ástandi samferðamann- anna,- hafa augun opin og nota skynsem- ina. Ekki má þó gera of mikið úr hlutunum, ekki skemma ferðaskapið með of mikilli smámunasemi og tepruskap. Komi skyndilega í Ijós að leiðangurinn sé villtur, þá er um að gera að stoppa hið snarasta, koma sér fyrir og bíða. Fyrir alla muni, ekki ana áfram í slæmu skyggni í þeirri von að rekast á einhver kennileiti. Slíkt forðast allir reyndir ferðalangar. Betra er að koma sér fyrir og bíða eftir að skyggnið lagist og, ef villan er mjög mikil, þá bíða uns hjálp berst, jafnvel þó það taki langan tíma. Fólk í villu er gjarnt á að ráfa um í blindni í von um að hitta á réttan stað, en slíkt gerir hjálparsveitum gífurlega erfitt fyrir, stækkar leitarsvæðið að mun. Minniháttar vandamál, þessi ófyrirséðu, eru aðallega tvenns konar. í fyrra lagi vanmeta ferðalangar oft landslagið, sem fyrirhugað er að ferðast um, ætla það auðveldara yfirferðar. í seinna lagi er um snöggar veðurbreytingar til hins verra að ræða. Fyrstu viðbrögðin í báðum tilvikum eiga að vera að stoppa, leita skjóls, jafnvel tjalda og endurmeta aðstæður. Oft má halda áfram eftir áttavita en slíkt krefst mikillar nákvæmni og algjörar þekkingar á áttavitum og notkun hans. Það er minniháttar vandamál ef eitthvað af útbúnaðinum bilar. Slíkt er góð afsökun til að stoppa, kasta mæðinni, draga svo upp varahluti og gera við brotna splittið, saumsprettuna, slitnu reimina í vélsleðan- um o.s.frv. Það er stórmál ef vikið er frá fyrirfram ákveðinni leið. Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir því í byrjun að geta komist yfir á auðveldara land, frá nokkrum stöðum á fyrirhugaðri leið. Þreyta, óhöpp eða seink- un geta gert það að verkum að stytta þurfi leiðina. Það er staðreynd að ákvarðanir teknar á vettvangi undir álagi erfiðra aðstæðna eru ekki eins góðar og ella. Þess vegna er betra að halda sig við fyrirfram ákveðna leið sé þess nokkur kostur. Sé lausn á vandamálinu mögulegt verður hún að vera trygg, ekki byggð á ágiskunum. Skipuleggja verður nýja leið mjög vel, með ítrustu varkárni. Brýnt er að láta vita af sér um leið og komið er til byggða, hvort sem komið er fyrr en fyrirhugað var, á sama tíma eða síðar. Taka skal með í reikninginn, að oft er stysta leiðin ekki sú fljótiegasta eða örugg- asta. Auðveldara getur verið að þræða fjallshryggi, halda þannig hæð þrátt fyrir ianga króka, heldur en að fara niður í dali eða gil og kræklast þar. Umhyggja fyrir félögunum skiptir ákaf- lega miklu máli. Ekki má fara hraðar yfir en sá sem hægast fer. Þó er ekki nein ástæða til að drolla. Það þjálfar ferðaiang ef hann fylgist með velferð náungans og getu hanstil átaka. Hér hefur verið stiklað á stóru, en eitt er þó eftir: Ekki má taka hlutina of alvar- lega. Málið snýst ekki endilega um það, að gera hlutina bókstaflega, heldur fyrst Hópur vélsleðamanna á fullri ferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.