Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR1986 B 11 HOLLUSTUHÆTTIR Yannærðir vinnuþjarkar eftir Barböru Lau Að borða réttan morgunverð kann að skipta eins miklu máli fyrir velgengni manna í starfi og rétt starfsmenntun og _________hæfileikar. Linda, 28 ára, er búin að fá sér nýtt starf: Hún er núna __________yfirmaður bókhaldsdeildar hjá stærsta fyrirtækinu _____________á sviði kynningarstarfsemi _________________og almenningstengsla í _________San Piego í _____Kaliforníu. Hún verður stöðugt að leggja afar hart að ______sértil þess að afkasta öllu því, sem hún hefur á sinni könnu, þannig að vinnudagurinn er oftast 12 tímar. Samt f innst henni, _______að þessi langi vinnudagurhrökkvi vart til að koma öllu því í verk, sem henni ________ber að gera. Wlataræðið er sá þáttur í daglegu lífi hennar, sem hún sízt _____af öllu gerirsér nokkra rellu út afy __________enda þótt matarvenjur hennar kunnief til viil að _________vera ein af _____meginorsökum þeirrar stöðugu streitu, sem hún finnur fyrir í starfi. ítum rétt aðeins á ósköp venjulegan starfsdag hennar: Klukkan 5.30 um morguninn: Það er niðamyrkur úti og vekjaraklukkan hefur ekki ennþá hringt. Linda er samt vöknuð, það er orðin föst venja hjá henni eftir að hún tók við þessu starfi. Hún fer því á faetur og byrjar að laga morgunverð handa sér, hún lagar sterkt og gott kaffi, og drekkur tvo stóra bolla, á meðan hún les morgun- blaðið. Klukkan 7.30 um morguninn: Linda kemur á skrifstofuna og fær sér einn bolla af nýlöguðu, ilmandi kaffi. Morguninn er sá hluti dags, þegar hún situr við skriftir og koffínið heldur henni hressri og vakandi í starfi. Klukkan 10.30 f.h.: Um þetta leyti er hún að fá sér sinn fimmta bolla af kaffi. Allt í einu fer hún þó að finna fyrir höfuðverk og ofurlitlu máttleysi og hugsar því með sér að það sé nóg komið af kaffidrykkju þennan morgun- inn. Klukkan er orðin ellefu árdeg- is, og núna er Linda að fá sér svolítinn vatnssopa til þess að slæva áleitna hungurtilfinningu. Hún á orðið erfitt með að ein- beita sér við það sem hún er að gera og henni finnst hún vera eitthvað svo slöpp, hún hafi vart þrek til að puða þetta áfram fram að hádegismat. Vaxandi slen og slappleiki Klukkan er orðin 12 á hádegi: Hún finnur að hún er sársoltin, en það er samt enginn tími til þess að fá sér eitthvað almennilegt og kjarngott að borða á veitingahúsi; í stað þess fær Linda sér anan- asjógúrt, hafrakex og sykurlausan gosdrykk niðri í búðinni á jarðhæð hússins. Hún hressist heilmikið við að borða þennan mat. Klukkan er hálftvö: Aftur finnst Lindu, að hún sé orðin þreytt og illa fyrir kölluð, en hinn fasti dag- skipunarfundur ætti að hressa hana upp — og það gera líka koffín- styrktu gosdrykkirnir, sem bornir eru fram á þessum daglegu fund- um. Það er komið nón, þ.e. kl. er orðin þrjú: Hún getur tæplega hugsað skýrt lengur, svo hún gríp- ur til þess ráðs að fá sér duglega kaffi. Þetta er einmitt sá hluti dags, þegar hún er líka vön að fá sér jarðhnetukúlur, sem hún hefur sér- stakt dálæti á og borðar eins og sælgæti. Klukkan fjögur síðdegis: Nokkr- ir viðskiptavinir eru í hrókasam- ræðum rétt fyrir utan dyrnar á skrifstofunni hennar, og Linda þarf að taka á öllu því sem hún á til að láta ekki undan brennandi löng- un til að spretta á fætur og öskra hátt að þessum blaðurskjóðum. Kraftar hennar og þolinmæði eru á þrotum, þótt hún sé núna að hressa sig á sjöunda bollanum af kaffi. Um þetta leyti dags er hún jafnan gripin æðisgengnum ótta við að henni sé bara alls ekki kleift að Ijúka þeim verkefnum, sem hún verður að inna af hendi á degi hverjum. Klukkan 5.30 síðdegis: Hún á enn eftir að skrifa tvær fréttatil- kynningar, en núna er tími til kominn að halda lokafund dagsins með starfsmönnum deildarinnar. Allir, sem vinna undir hennar stjórn, koma saman á bar einum þar í grenndinni, og í þetta skipti hressa menn sig á áfengi. Klukkan 7.00 um kvöldið: Linda er komin heim ásamt skjalatösk- unni sinni. Bæði hún og maðurinn hennar eru orðin alveg glorhungr- uð og auk þess úrvinda af þreytu eftir dagsins annir — það er því ekkert annað að gera en að bregða sér aftur út og fara á næsta mat- stað til þess að fá sér eitthvað í svanginn. Það verður svo úr að þau panta sér enn einu sinni ít- alska böku þetta kvöldið eins og svo oft áður, af því að þau þurfa ekki að bíða í neinn óratíma eftir matnum. Klukkan er orðin 20.00: Linda borðar hálfa meðalstóra ostaböku, lítinn skammt af salati með blá- ostasósu til bragðbætis, og með þessu drekkur hún eitt glas af rauðvíni. Þegar hún hefur ioksins fengið sæmilega magafylli af kjarn- góðum mat, tekur að slakna á þeirri taugaspennu og streitu, sem hún hefur verið haldin allan daginn. Eftir þessa næringarriku máltið færist því værð yfir hana. Klukkan 21.00: Það bíða hennar ennþá nokkur áríðandi aukaverk- efni heima í skjalatöskunni, en núna finnst Lindu, að hún sé orðin allt of uppgefin til þess að geta einbeitt sér að ráði að þeirri vinnu. Hún kýs því að hreiðra um sig uppi í sófa með bók í hendi, og fyrir framan sig á borðinu hefur hún rjómaís í skál. Hún lofar sjálfri sér því, að hún skuli fara klukku- tíma fyrr í vinnuna morguninn eftir. Heimatilbúin hungurkröm Þessi lýsing kemur örugglega mörgum kunnuglega fyrir sjónir. Linda er ein af þeim fjölmörgu, sem leggja verða nótt við dag til að rækja sómasamlega krefjandi og sérhæft starf sitt. Sízt af öllu kemur þessu fólki til hugar, að matarvenjur þess hafi einhver áhrif á vinnuafköstin. „Allar mínar hugs- anir og öll mín viðleitni snerist um það eitt að rækja vel það starf, sem ég hafði með höndum," segir Linda þegar hún rifjar upp fyrir sér þetta timabil í lífi sinu. „Mér fannst að ég hefði um annað og meira að hugsa en rétt mataræði einmitt á þessum tírna." Menn geta svo sem þraukað bærilega um nokkurt skeið, þótt mataræðið sé slæmt. En í við- skiptalífinu er það ekki beinlínis markmiðið í sjálfu sér að þrauka, heldur ætla menn sér að komast áfram á því sviði. Og allt eftir því hvernig matarvenjur manns eru, er unnt að örya eða slæva kraftana og starfsþrekið, skapandi hæfi- leika í starfi, einbeitni og hugar- orku. Mataræðið getur raunar lika skipt höfuðmáli í sambandi við útlit manna og skapferli. „Að nenna ekki að eltast við að fylgja réttu mataræði", getur haft jafn afger- andi áhrif á framavonir manna í starfi eins og að hirða ekki um að taka sér bráðnauðsynlega hvíld frá störfum með því að fara í sumarleyfi eða að sjá um að end- urnýja reglulega fatnað sinn. Allur orkuforði líkamans byggist á glúkósa eða blóðsykrinum, en hann gegnir því lykilhlutverki að stjórna daglegum orkumörkum í líkamanum. Oll líkamsstarfsemi þarfnast stöðugs aðflutnings af blóðsykri til þess að ganga eðlilega fyrir sig, en þó er heilinn alveg sérstaklega viðkvæmur gagnvart timabundnum skorti á blóðsykri. Það táknar, að áður en menn fara að finna fyrir líkamlegu máttleysi og deyfð, hefur hugsanaferillinn þegar tekið að sljóvgast og starf- semi heilans hefur hægt á sér. Athuganir hafa leitt i Ijós, að til þess að viðhalda eðiilegu magni af blóðsykri ílíkamanum allan lið- langan daginn, þá þurfa menn ekki einungis að borða réttan mat, heldur líka að borða rétt magn af matáréttumtíma. Linda uppfyllir ekkert af þessum þremur þýðingarmiklu atriðum í mataræði sínu. Fyrstu mistökin, sem henni verða á dagsdaglega, er að sleppa morgunverðinum. Það sem löngum hefur verið al- mannarómur er rétt og satt: Morg- unverðurinn er þýðingarmesta máltíð dagsins, að því er varðar hækkun og jöfnun blóðsykurs- magnsins í líkamanum. I sex klukkustundir er Linda daglega við vinnu sína, áður en hún leggur orkukerfi líkamans til nokkuð eldsneyti (þ.e. hitaeining- ar). Þessi fasta hennar dag hvern í vinnutímanum hefur það í för með sér, að blóðsykurmagnið tekur að minnka mjög ört, en við það finnur Linda til höfuðverks og tauga- spennu. Og það sem verra er: Hafi blóðsykurforði líkamans einu sinni náð að falla niður úr öllu valdi, þá getur það reynzt anzi erfitt að koma aftur á eðlilegu jafn- vægi á blóðsykurhlutfallið, úr því að búið er að sleppa úr reglulega næringarríkum morgunverði. Nei- kvæð áhrif slíks tímabundins blóð- sykurskorts geta því haldizt allan daginn. Ýmist valin gervi- næring eða of tormelt fæða Þá eru það önnur mistök hjá Lindu, að hún skuli notast við koffín i stað matar í því skyni að veita orku til heilans. Að vísu er það álit flestra lækna, að það sé næsta skaðlaust að fá sér einn eða tvo bolla af kaffi eða te á morgnana sér til hressingar, en meiri kaffi- eða teneyzla, sérstaklega þó á fastandi maga, leiðir oftast til brjóstsviða, hækkaðs blóðþrýst- ings og jafnvel til titrings í höndum. Kröftugur kaffikúr i stað staðgóðs morgunverðar kemur efnaskipta- ferli líkamans á snöggan sprett, án þess að orkukerfinu hafi verið lagt til nokkurtbitastætt eldsneyti til að brénna. Um hádegið og svo aftur klukkan þrjú siðdegis, þegar Linda tekur loks til við að næra líkama sinn og heilavefi, velur hún feitmeti og fæðu, sem samanstendur mestmegnis af einföldum kol- vetnasamböndum — en fita er reglulega seinvirkur orkugjafi. Það tekur likamann drjúgan tíma að brjóta niður fitusambönd og eggja- hvítuefni, og slík fæða er því engan veginn fjótvirk orkuuppspretta. Því er aftur á móti þannig varið með fæðutegundir þær, sem samanstanda mestmegnis af ein- földum kolvetnasamböndum — svo sem matvörur með miklu magni af hreinsuðum, steyttum sykri eins og til dæmis allar al- gengustu tegundir af sælgæti, smákökur, marsipanstengur og jafnvel ávaxtajógurt, en slíkar fæðutegundir innihalda þetta 60% og allt upp í 80% af einföldum sykur-hitaeiningum — en þessi kolvetnasambönd leiða beint til afar snöggrar hækkunar á blóðsyk- urmagninu, þótt sá orkuforði dvíni hins vegar innan skamms og hverfi. Þetta mikla magn glúkósa, sem skyndilega tekur að streyma inn í blóðið, neyðir brisið til að gefa frá sér insúlín til þess að halda umframmagni af glúkósa í skefjum og í þeim efnaskiptum gerist það æði oft, að líkaminn brýtur jafnvel niður heldur mikið af glúkósa, sem aftur leiðir til minnkandi blóðsykurmagns í fyrstu, áður en það getur hækkað á nýjan leik. Það er því ekki að undra, að Linda skuli finna fyrir þreytutilfinningu og verða skap- stygg skömmu eftir að hún hefur nærzt á þessu snarli í hádeginu og um nónleytið. Það eru hins vegar annars konar vandræði, sem fylgja' kvöldverðin- um. Maturinn er mjög tormeltur og inniheldur mikið af fitu, en slík fæða eykur mjög fitumagnið í blóð- inu og gerir það þykkara. Hinn kunni næringarefnafræðingur Nat- han Pritikin heitinn og margir aðrir sérfræðingar á því sviði, sem gert I | % I ■ r iv i;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.