Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1986
39
30 ár eru nú liðin síðan héraðshæli Austur-Húnvetninga var byggt.
Héraðshæli Austur-
Húnvetninga 30 ára
Blönduósi, 12. janúar.
ÞEIRRA tímamóta var minnst
að 30 ár eru liðin frá þvi að
heilsugæsla Austur-Húnvetn-
inga flutti úr gamla sjúkraskýl-
inu i það húsnæði sem hún nú
er í og allir kannast við sem
leið eiga um Blðnduós. Jón ís-
berg sýslumaður og formaður
stjómar sjúkrahússins setti
samkomuna í Félagsheimilinu á
Blönduósi og minntist þeirra
sem lagt hefðu hönd á plóginn
við uppbyggingu sjúkrahússins.
Það kom fram í ræðu manna
sem þarna fluttu ávörp að svo
samofinn væri Páll heitinn Kolka
sögu sjúkrahússins að hans yrði
minnst meðan þessi bygging
stasði. Margir fleiri koma við sögu
sjúkrahússins, sögu sem enn er
verið að skrifa. Árið 1983 var
haflst handa að reisa viðbyggingu
við héraðshælið og var hún fok-
held haustið 1984. Síðan þá hefur
ekkert gerst við þessa viðbygg-
ingu en það er mikið metnaðar-
og hagsmunamál heimamanna að
þessu verki ljúki sem fyrst. Mörg-
um gestum var boðið til þessa
afmælishófs, m.a. heilbrigðisráð-
herra, sem ekki gat komið vegna
veðurs, þingmönnum kjördæmis-
ins og starfsfólki héraðshælisins.
Það vakti athygli að samkomu-
gestir fengu að hlýða á hljóðupp-
tökur frá 10 ára afmælishófl hér-
aðshælisins. Þar mátti hlýða á
Pál heitinn Kolka hrósa Jóni ís-
berg fyrir að sjá svo um að aldrei
hafl orðið §ár vant við uppbygg-
ingu héraðshælisins. En nú er
öldin önnur sagði Sigursteinn
Guðmundsson héraðslæknir í
ávarpi sínu. „Það tók aðeins 32
mánuði að ljúka þessari fram-
kvæmd sem var stórvirki á sínum
tíma en það virðist ætla að taka
dálítið lengri tíma að ljúka við-
byggingunnj." Það kom fram í
ávarpi sem Ámi Skúli Gunnarsson
héraðslæknir flutti fyrir hönd
starfsfólks að starfsfólk ætlaði að
færa héraðshælinu að gjöf 30—40
þús. sem yrði ráðstafað í samráði
við stjóm sjúkrahússins. Ekki
verður svo skilið við 30 ára sögu
héraðshælisins á Blönduósi nema
minnast þess er byggði þetta hús
en það var Svein Ásmundsson. Á
þessum tímamotum vom eftirtald-
ir aðilar heiðraðir fyrir langt og
giftudrjúgt starf f þágu sjúkra-
hússins. Ingibjörg Sigurðardóttir,
Magdalena Bjömsdóttir, Magda-
lena Sæmundsen, Jón ísberg og
Sigursteinn Guðmundsson.
Jón Sig.
Jón ísberg var einnig heiðraður og þegar hann hafði afhent hinum
viðurkenningamar tók hann við sinni úr hendi Áraa Skúla Gunn-
arssonar héraðslæknis.
Þau voru heiðruð i afmælishófinu. Frá vinstri. Magdalena Björns-
dóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Magdalena Sæmundsen og Sigur-
steinn Guðmundsson.
andsmeistari í
'84 og '85. Big
j. „Happy Hour"
\llar stelpur (konur)
2.00. Tomas Staudt
iistari í para- og diskc
j '85. Big Foot í Disl
appy Hour" trá kl.
r stelpur (konur) fá fi
!.00. Tomas Staudt
aeistari í para- og di
>g '85. Big Foot í Di
ippy Hour" frá kl. 1 -
elpur (konur) fá fritt ir
Fomas Staudt Þýskc
para- og diskódans
Foot í Diskótekir,„. ---------------
frá kl. 1 — 1.30. Allar stelpur (konur)
fá fritt inn til kl. 12.00. Tomas Staudt
Þýskalandsmeistari í para- og diskó-
dansi '84 og '85. Big Foot i Diskó-
tekinu. „Happy Hour" frá kl. 1 —
1.30. Allar stelpur (konur) fá frítt inn
til kl. 12.00. Tomas Staudt Þýska-
landsmeistari í para- og diskódansi
'84 og ’85. Big Foot í Diskótekinu.
„Happy Hour" frá kl. 1 — 1.30. Allar
stelpur (konur) fá frítt inn til kl. 12.00.
Tomas Staudt Þýskalandsmeistari í
para- og diskódansi '84 og '85. Big
Foot í Diskótekinu. „Happy Hour''
frá kl. 1 — 1.30. Allar stelpur (konur)
fá frítt inn til kl. 12.00. Tomas Staudt
Þýskalandsmeistari í para- og diskó-
dansi '84 og '85. Big Foot í Diskó-
tekinu. „Happy Hour" frá kl. 1 —
1.30. Allar stelpur (konur) fá frítt inn
til kl. 12.00. Tomas Staudt Þýska-
landsmeistari í para- og diskódansi
Djelly systur
Næst síöasta helgi
hjá Djelly systrum.