Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Fimmtudags- leikritið Heiti: Milljónagátan. Útsend- ingartími: Fimmtudagur 16. janúar kl. 20.00—21.20. Höfund- ur: Peter Redgrove. Efni: í verkinu segir frá ungri stúlku, Flóru Flórent (Ása Svavarsdóttir) er fær það verkefni að finna innan árs svarið við því hver sé æðsta ósk karl- manna. Flóra þessi er einkaspæjari og keppir við nokkra slíka um rétta svarið en látinn sérvitringur og milljónamæringur herra Tuxedo hefir efnt til keppninnar og nema verðlaunin hvorki meira né minna en 1800 milljónum punda. Leitar Flóra til fjögurra karlmanna um svarið og hreppir náttúrulega verð- launin en sá böggull fylgir skamm- rifí að hún hefir lofað 125 ára gömlum öldungi að giftast honum hreppi hún hnossið. Flóra er heið- virð stúlka og efnir gefið heit en því miður eða til allrar hamingju hverfur sá gamli af hérvistarsviðinu á brúðkaupsnóttina og breytist í blakkan, limafa.gran anda. Leik- stjómin: Karl Ágúst Úlfsson leik- stýrði Milljónagátunni. Það er mitt mat að Karl Ágúst hafi leyst verkið nánast óaðfinnanlega af hendi. Þannig tókst honum að samsama leikarana hlutverkunum og valdi þar að auki réttan mann í hvert rúm. Áhrifahljóðum beitti Karl Ágúst þannig að þau studdu text- ann og mögnuðu andúmsloftið. í fáum orðum sagt þá skóp Karl Ágúst þama eftirminnilega leiksýn- ingu án leiksviðs eða leiktjalda. Textinn: Leiktexti Peter Redgrove er vissulega athyglisverður, því þar fer saman rík frásagnargleði, myndvísi og skáidlegt innsæi. Per- sónumar stíga nánast alskapaðar og skírt mótaðar fram úr textanum. En þrátt fyrir að texti Redgrove sé töfrandi þá ná leikaramir ekki fluginu nema með hjálp styrkrar leikstómar eins og áður gat. Þýð- ingin: Snörun þessa meistaralega leiktexta var í höndum Sverris Hólmarssonar. Ég held að ekki sé ofmæit að Sverrir hafi klifið hér þrítugan hamarinn nánast áreynslulaust. Ef svo fer sem horfir sest Sverrir Hólmarsson senn í há- sætið við hlið Helga. Tæknimenn- imir: Forðum var tæknimanna að litlu getið í dagskrárkynningu ríkis- íjölmiðlanna. Nú er öldin önnur og er ekki því að leyna að þeir Ástvald- ur Kristinsson og Óskar Ingvarsson hafi skilað sínu dagsverki með sóma þá þeir leystu Milljónagátuna með Karli Ágústi Úlfssyni. Leikaramir: Ung leikkona, Ása Svavarsdóttir, lék hér aðalhlutverkið, ungfrú Flóm Flórent. Eins og áður sagði seiddi Karl Ágúst allt hið besta fram hjá leikurunum enda vann Ása hér leik- sigur. Ég geri ekki upp á milli annarra leikara í þessu verki en þeir áttu allir með tölu þátt í hinni ágætu stemmningu er skapaðist þama á rás eitt milli klukkan 20.00 og 21.20 á fimmtudaginn var. Nefni ég leikarana í stafrófsröð: Aðal- steinn Bergdal, Baldvin Halldórs- son, Bjami Steingrímsson, Einar Jón Briem, Hallmar Sigurðsson, Jón Hjartarson, Kari Guðmundsson, Ólafur Öm Thoroddsen, Pétur Ein- arsson, Ragnheiður Tiyggvadóttir, Viðar Eggertsson og Þorsteinn Gunnarsson. Lokaorð: Ef ég ætti að nefna útvarpsleikrit ársins 1985 þá myndi ég hiklaust tilneftia Milljónagátuna en því miður er ’85 liðið í aidanna skaut. ÓlafurM. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Heimshorn Leikarar ',,Sæfaranum“. Sæfarinn — nýtt framhaldsleikrit barna og unglinga kafbát. Bandarílqastjóm ákveður því að gera út freigátu til þess að ganga úr skugga um hvað hér sé á ferð. Leikendur í fyrsta þætti em Sigurður Skúlason, Þorsteinn Gunnarsson, Harald G. Haralds, Rand- ver Þorláksson, Flosi Ól- afsson, Róbert Amfinns- son, Pétur Einarsson, Erl- ingur Gíslason, Sigurður Siguijónsson, Gísli Alfreðs- son, Pájmi Gestsson, Karl Ágúst Úlfsson og Jón Júl- íusson. Tæknimenn em Friðrik Stefánsson og Runólfur Þorláksson. ný þáttaröð á rás 1 ■i „Heimshom" 00 heitir ný þátta- “" röð, sem hefur göngu sína á rás 1 í dag kl. 11.00. Umsjónarmenn em: Ólafur Angantýsson og Þorgeir Ólafsson. Þátt- urinn mun flalla um þjóðlíf, menningu og listir í ýmsum anda með áherslu á nútím- ann. í fyrsta þættinum, sem fjallar um Ítalíu, verður sagt frá „Comedia Dell’- arte“ og í framhaldi af því segir Hlín Gunnars- dóttir frá leikhúslífínu. Thor Viihjálmsson spjallar um nútímabókmenntir. Sagt verður frá tilhögun útvarpsmála og rætt verð- ur við Guðbjörgu Kristjáns- dóttur listfræðing um nýj- ustu stefnur og strauma í myndlist. Næsti þáttur, sem verð- ur á dagskrá laugardaginn 25. janúar, fjallar um Pól- land. I upphafi hvers þáttar verður stiklað á stóm í menningarsögu viðkom- andi lands til að varpa ljósi á þann jarðveg, sem nú- tímamenningin er sprottin úr. Leitast verður við að fjalla um þá þætti menn- ingarlífsins, sem ætla má að íslendingum sé minnst kunnugt um. Aflað verður fanga hjá íslendingum, sem hafa haft náin kynni af þjóðlífi og menningu viðkomandi landa. Kóngur vildi hann verða — bandarísk bíómynd ■■■■ Bandaríska bíó- 0025 myndin „Kóng- ur vill hann verða" frá árinu 1975 er seinni bíómynd kvöldsins og hefst hún kl. 22.25. Myndin er gerð eftir sögu Rudyards Kipling. Leik- stjóri er John Huston og í aðalhlutverkum em Sean Connery, Michael Caine og Christopher Plummer. Þegar nóbelsskáldið Rudyard Kipling var ungur blaðamaður í Indlandi Sean Connery og Michael Caine í hlutverkum sínum. kynntist hann tveimur ævintýramönnum úr breska hemum. Þeir em á leið til fjallahéraðs í Aust- ur-Afganistan til að leita sér fjár og frama. Vegna hreysti í bardögum komast ævintýramennimir til mik- illa metorða en ofmetnaður og græðgi leiða þá í ógöng- ur. Þýðandi er Bjöm Bald- ursson. ■■■■ „Sæfarinn" - -j 1700 nýtt framhalds- 1 • “ leikrit fyrir böm og unglinga, hefst í dag kl. 17.00 en alls em þætt- imir sex talsins. Leikritið er byggt á frægri sam- nefndi sögu eftir Jules Veme. Útvarpsleikgerðin er eftir Lance Sieveking. Þýðandi er Margrét Jóns- dóttir og leikstjóri er Bene- dikt Ámason. í fyrsta þætti sem ber heitið „Á sæskrímslaveið- um“ segir frá fréttum af neðansjávarfyrirbæri sem veldur usla á höfunum. Menn greinir á um hvort hér sé um að ræða sæ- skrímsli eða einhvers konar ÚTVARP V LAUGARDAGUR 18.janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréltir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 slenskir einsöngvarar og kórarsyngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Flelga Þ. Stephensen kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Margrét Jónsdóttir flyt- ur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, fram- hald. 11.00 Heimshorn Umsjón: Ólafur Angantýs- son og Þorgeir Ólafsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur vikulokin. 15.00 Miðdegistónleikar 15.40 Fjölmiölun vikunnar. Magnús Ólafsson hagfræð- ingurtalar. 15.50 slenskt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Listagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón. Sigrún Björnsdóttir. 17.00 „Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Sæfarinn" eftir Jules Verne í útvarps- leikgerö Lance Sieveking. Fyrsti þáttur: „Á sæ- skrímslaveiðum." Þýðandi: Margrét Jónsdóttir. Leik- stjóri: Benedikt Árnason. Leikendur: Þorsteinn Gunn- arsson, Harald G. Haralds, Randver Þorláksson, Sig- urður Sigurjónsson, Gísli Alfreðsson, Flosi Ólafsson, Erlingur Gíslason, Sigurður Skúlason, Róbert Arnfinns- son, Pétur Einarsson, Pálmi Gestsson, Jón Júlíusson og Karl Ágúst Úlfsson. 17.35 Síödegistónleikar 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Sama og þegiö". Umsjón: Karl Ágúst Ulfsson, Sigurður Sigurjónsson og örnÁrnason. 20.00 Harmonkuþáttur. Um- sjón: Högni Jónsson. 20.30 Leikrit: „Milljónagátan" eftir Peter Redgrove 14.45 Sheffield Wednesday — Oxford Bein útsending frá ensku knattspyrnunni. 17.00 iþróttir Umsjónarmaður: Bjarni Fel- ixson. Hlé 19.20 Búrabyggð (Fraggle Rock) Þriðji þáttur. Brúðumyndaflokkur eftir Jim Henson. Hola i vegg hjá gömlum uppfinningamanni er inngangur i furðuveröld þar sem þrenns konar hulduverur eiga heima, Búr- ar, dvergaþjóðin Byggjar og tröllafjölskyldan Dofrar. Þýðandi: Guðni Kolbeins- son. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingarogdagskrá 20.35 Staupasteinn (Cheers) Þýðandi: Sverrir Hólmars- son. Leikstjóri: Karl Ágúst Úlfsson. Leikendur: Ása Svavarsdóttir, Viðar Egg; ertsson, Þorsteinn Gunn- arsson, Pétur Einarsson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Aðalsteinn Bergdal, Karl Guðmundsson, Flosi Ólafs- son, Einar Jón Briem, Hall- mar Sigurösson, Bjarni Steingrímsson, Ólafur Örn Thoroddsen, Baldvin Hall- dórsson og Jón Hjartarson. (Endurtekið frá fimmtudags- kvöldi.) 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Bréf úr hnattferð. Þriðji þáttur. Dóra Stefánsdóttir segirfrá. 23.00 Danslög. LAUGARDAGUR 18.janúar Fjórtándi þáttur. Bandariskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 21.00 Bófarnir í Lofnarblóma- hlíð (The Lavender Hill Mob) s/h Bresk bíómynd frá 1951. Leikstjóri Charles Crighton. Aðalhlutverk: Alec Guin- ness ásamt Stanley Holloway, Sidney James, Alfie Bass og Marjorie Field- ing. Henry Holland er miöaldra bankastarfsmaður, hlé- drægur og talinn ráðvandur. Reyndar hefur Henry um tuttugu ára skeið brotið heilann um það hvernig hann geti komist brott með gullsendingu til bankans. Loks finnur hann ráð til þess að rétta samstarfsmenn. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón Örn Marinós- son. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 03.00. 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Sigurður Blönd- al. 12.00 Hlé 23.00 Kóngur vill hann verða (The Man Who Would Be King) Bandarisk biómynd frá 1975 gerð eftir sögu eftir Rudyard Kipling. Leikstjóri: John Huston. Aðalhlutverk: Sean Connery, Michael Caine og Christopher Plummer. Þegar nóbelskáldið Rudyard Kipling var ungur blaðamað- ur í Indlandi kynntist hann tveimur ævintýramönnum úr breska hernum. Þeir eru á leið til fjallahéraös i Aust- ur-Afganistan til að leita sér fjár og frama. Vegna hreysti i bardögum komast ævin- týramennirnir til mikilla met- orða en ofmetnaður og græðgi leiða þá i ógöngur. Þýöandi: Björn Baldursson. 01.10 Dagskrárlok. 14.00 Laugardagurtillukku Stjórnandi: SvavarGests. 16.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00 Hringboröið Stjórnandi: Erna Arnardóttir. 18.00 Hlé 20.00 Bylgjur Stjórnandi: Ásmundur Jóns- son. 21.00 Djassogblús Stjórnandi: Vernharður Linnet. 22.00 Bárujárn Stjórnandi: Sigurður Sverris- son. 23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Á næturvaktinni með Gísla Sveini Loftssyni. 03.00 Dagskrárlok SVÆÐISÚTVÖRP Svæðisútvarp virka daga vikunnarfrá mánu- degi til föstudags REYKJAVÍK 17.03 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni Stjórnandi: Sverrir Gauti Diego. Umsjón með honum annast Steinunn H. Lárusdóttir. Út- sending stendurtil kl. 18.00 og er útvarpað með tíðninni 90,1 MHzá FM-bylgju. AKUREYRI 17.03 Svæðisútvarp fyrir Akur- eyri og nágrenni Umsjónarmenn: Haukur Ágústsson og Finnur Magn- ús Gunnlaugsson. Fréttamenn: Erna Indriða- dóttir og Jón Baldvin Hall- dórsson. Útsending stendur til kl. 18.30 og er útvarpað með tíðninni 96,5 MHz á FM-bylgju á dreifikerfi rásar tvö. SJÓNVARP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.