Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 * Aster___ ___að taka ekki allt með í helgarfríið. TM hg. UX fat Ort.-ai figMa raaaraai * IM2 Laa Anpaiaa Tkaaa SyndteaM Með morgunkaffinu heimshomaflækingnr en þá fundu þeir upp sjón- varpið... Þessir hringdu . ., Osmekklegt áramótaskaup Þórir Áskelsson hringdi: „Ég er hneykslaður, sár og móðgaður yfir áramótaskaupi sjónvarpsins. Ég get ekki skilið að Steingrímur og Albert eigi skilið svona meðferð. Þeir eru þó ráðherrar! Hvað sem um þá má segja held ég að þeir eigi ekki skilið að verða fyrir slíkri aulafyndni. Annað sem ég er mjög óhress með er þátturinn þar sem Krist- inn Hallsson og fleiri söngvarar komu fram í. Mér fínnst það ekki sniðugt þegar menn eru með fyllerí, drykkjulæti og vitleysu í svona þætti og kvenfólkið hálf- bert. Ég er virkilega sár að boðið skuli upp á svona lagað í sjón- varpi.“ Hægt að hjálpa án garghljóm- sveita HI hringdi: „Mig langar til að gera at- hugasemd við bréf sem SJ skrif- aði Velvakanda og birtist sl. föstudag. Ég vil bara benda SJ á að það er vel hægt að hjálpa bágstöddum í Eþíópíu án þess að garghljómsveitir eins og Dur- an Duran og Wham komi þar neitt við sögu.“ Jólastundin - mjög gott barnaefni Sjónvarpsáhorfandi hringdi: „Mig langar til að þakka fyrir gott bamaefni sem var í sjón- varpinu um jólin, þ.e. Jólastundin sem var á dagskrá á jóladag. Fannst mér þessi dagskrá alveg sérstaklega góð og bæði hvað varðaði efni og flutning. Þama var ekki verið með mislukkað grín og ærsi eins og stundum hefur verið í bamaþáttum. Jóla- sveinninn sem fram kom í þættin- um var ágætur og efnið fjölbreytt og vandað. Vil ég þakka þeim sem fyrir Jólastundinni stóðu fyrir góða skemmtun. Hvers vegna ekki öndvegis súlur á Sel- tjarnarnesi? Vesturbæingur hringdi: „Mig langar til að koma þeirra fyrir- spum á framfæri við borgaryfír- völd hvers vegna öndvegissúlur vom ekki settar upp á mörkum Seltjamames og Reykjavíkur?" LÍN - góð og skjót þjónusta Helga Jóhannesdóttir hringdi: „Varðandi aðför menntamálaráðherra að Sigur- jóni Valdimarssyni og Lánasjóði íslenskra námsmanna, vil ég sem fyrrverandi námsmaður koma á framfæri þakklæti mínu fyrir góðar og skjótar fyrirgreiðslur sjóðsins í þau fjögur ár er ég var við nám.“ Strætisvagnar þyrftu að ganga hjá Foss vogskirkju Eldri borgari hringdi: „Ég er orðin öldmð kona og hef búið um áratugi hér í Reykjavík. Það er nú þannig að þegar maður eldist deyja margir ættingjar manns og vinir, og auðvitað vill maður fara í jarðarfarir þessa fólks. En nú er búið að breyta skipulaginu hjá Fossvogskirkj- unni og strætisvagnar hættir að fara þar framhjá. Þar með hefur lagst af þessi nauðsynlega stoppistöð sem ég hef lengi not- að. Þetta kemur sér mjög illa, það eiga ekki allir bfla, síst gamla fólkið. Þetta skapar mikið vanda- mál þegar maður þarf að fara í jarðarför eða til að hlúa að leiðum í kirkjugarðinum. Væri ekki hægt að koma til móts við okkur gamla fólkið þannig að a.m.k. einn strætisvagn færi þessa Ieið?“ HÖGNIHREKKVISI Víkverji skrifar Alltof oft heyrir Víkveiji nötur- legar sögur af baráttu ein- staklinga við að koma skyldmenn- um sínum inn á sjúkrahús og á þetta einkanlega við um eldra fólk. Svo langt hefur þetta gengið að sá aðilinn, sem verið hefur sæmilega heilbrigður hefur nánast misst heilsuna við að reyna að koma maka sínum á sjúkrahús eða heim- ili fyrir aldraða. í sumum tilvikum, sem Víkveiji hefur heyrt um, hefur 'nánast verið farið fram á að ætt- ingjar hins sjúka veittu hjúkrunar- þjónustu á heimilinu þó svo að engin aðstaða hafí verið til slíks. XXX Margfræg eru dæmi um mikil hlaup og lítil kaup hjá Bif- reiðaeftirliti ríkisins og skrifstofu fógeta. Þó er sagt að þjónusta þessara stofnana hafí heldur orðið liprari á síðustu misserum. Lána- sjóður íslenzkra námsmanna er ein heirra stofnana. sem sætt hefnr gagnrýni fyrir slaka þjónustu eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Hið síðastnefnda riQaði upp atvik, sem kunningi Víkveija lenti í fyrir nokkrum árum. Hann hafði þá fengið rukkun frá Lanasjóðnum um að greiða um 200 krónur í árlega afborgun. Þar sem þetta er eftirlæt- isreikningur mannsins greiddi hann nokkrum dögum fyrir gjalddaga og fékk sína kvittun. Það dugði þó ekki því næstu mánuði duttu annað slagið inn ítrekanir og áminningar og þær síðustu talsvert alvarlegar. Að því kom að ábyrgðarmenn fengu orðsendingar um vanskil mannsins. Fannst þá manninum nóg komið og heimsótti skrifstofur Lánasjóðs- ins. Eftir mikið japl ogjaml ogfuður var kallað á framkvæmdastjórann fyrrverandi. Hann viðurkenndi að þama hefðu orðið mistök, en viður- kenndi reyndar ekki að þau væru sjóðsins. Manninum fannst þetta ekki nóg og fór fram á að ábyrgðar- mönnum yrðu send bréf þess efnis að hann hefði fullkomlega staðið í skilum Að pndimm-.uaE_£allifii„á- þessa kröfu, ábyrgðarmönnunum sent afsökunarbréf þar sem málið var lauslega útskýrt. Þetta fannst manninum góður sigur „litla mannsins" gegn kerfínu. XXX Hvað sem annars má segja um þáttinn „Á líðandi stundu", sem hóf göngu sína í sjónvarpi á miðvikudaginn þá er ljóst að mikill kraftur er í sjónvarpsfólki um þess- ar mundir. Gamlárskvöld og nýárs- nótt var nánast ekkert. annað sýnt en innlent efni og innlendum þátt- um hefur fjölgað upp á síðkastið. í sjónvarpinu á miðvikudags- kvöldið var varla hægt að hugsa sér meiri andstæður en gervifólkið í Dallas og flölskyldu vitavarðarins á Hombjargi. Mannlífið á Homi var allt öðm vísi en sjónvarpsáhorfand- inn átti von á og náttúran jafn V»filr«alo/rf artnnfvri oor alltaf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.