Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986 17 f Nauteyrarkirkja guðshúsi, sem þjónað hefur söfnuði sínum í 100 ár. Tilfinning lifandi minninga gerir um sig í hugskoti þeirra, sem á háleitustu hátíða- stundum hafa þar um garða gengið. Síðasta kveðja vina og ættingja hafa einmitt þama í hugann greypst, svo að þar er í raun og vem lifandi sál innan veggja. Og þá, ef grannt er skoðað, grípur til- finningin í þá tauma, sem leiða til algerrar tortímingar, og þama var því kærleiksandinn og huglægur blær minninganna látinn ráða ferð- inni og má efiaust til sóma telja, svo og sögu þessa húss frá upprana sínum. Nú er kirkjan sem ný að ytra byrði til. Nýtt þak að öllu leyti, hliðin önnur alveg ný og fótstykki öll, en eftir að klæða hana að innan til að fullkomið sé og í sama formi verði og upphafiega en einangrað þó öll að innan og leitt í hana raf- magn. Nú er það svo, þrátt fyrir alla velgengni nútímans, að koma upp og standa straum af sæmilega gerðu guðshúsi í fámennri sveit, má heita allt að því óviðráðanlegt verkefni hreinlega vegna kostnað- ar. Má þar til nefna að 1885, þegar þessi kirkja var byggð, var heimilis- fólkið á Laugabóli 35 manns en í allri Nauteyrarsókn núna era álíka margir og þar af aðeins um 20 sálir sóknargjaldsskyldar. Þó held ég að nöturleiki tilverannar verði engum tilfinningameiri né djúp- stæðari í vitund hvers einasta manns ef svo væri málum komið að ekki væri til sæmilegt skýli til athafna hinstu kveðju þeirra, sem lokið hafa göngu sinni hér á jörð að síðásta áfanganum. Hér er því um stórt mál að taia til menningar og athafna allra í kristilegu sam- félagi okkar fámennu byggða. Það er því óhætt að segja að hér í endurbyggingu Nauteyrarkirkju hefur djarflega verið á vaðið riðið og ekkert til sparað að vel mætti gera og mun uppbygging nema að kostnaði langt á aðra milljón kr. þá lokið verður. Það væri verðugt verkefni þeirra sem sínum fyrstu bemskusporam tifað hafa um Nauteyrarsókn, að sýna henni hug sinn og kærleika, risnu og reisn, með því að leggja sína útréttu hönd til stuðnirigs þessu mikla menningarverki. Það væri verðust þakkargjöld þeirra sem frá era famir og vel metnin kærleikshugur til fomra æsku- stöðva og gamalkunnra sveitunga. Byggingameistari þessarar end- urreisnar Nauteyrarkirkju var Daníel Kristjánsson byggingameist- ari á ísafirði, ættaður héðan úr Djúpi. Það er ekki kastað hendi til þess sem hann tekur að sér. Yfir- smiðurinn, Halldór Jónsson, er ættaður úr Nauteyrarhreppi. Biður sóknamefndarformaðurinn, Jón Guðjónsson, bóndi á Laugabóli, fyrir góðar kveðjur til þeirra og sérstakar þakkir fyrir vel unnið verk og einstaklega góð samskipti öll sem og öllum öðram sem að hafa unnið og lagt þessu liðsinni sitt. Jens í Kaldalóni Samið um sölu lagmetis til Sovét fyrir 160 millj. kr. SÖLUSTOFNUN lagmetis hefur nýlega gengið frá sölu á fjórum vörutegundum til Sovétríkjanna. Verðmæti afurðanna er alls um 3,8 milljónir dala, 160 milljónir króna, og hefur aldrei á einu ári verið selt lagmeti til Sovétríkj- anna á einu ári fyrir hærri upp- hæð. Vörur þessar á að afhenda á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs og hafa Sovétmenn lýst áhuga á enn frekari kaupum á lagmeti. í frétt frá Sölustofnun lagmetis segir að hér sé um að ræða sölu á 100.000 kössum af gaffalbitum (6,8 milljónir dósa), þorskalifur (650.000 dósir), reyktum sfldarflök- um (1 milljón dósa) og matjesflök- um (1,5 milljónir dósa). Verð á gaffalbitum er það sama í Banda- ríkjadölum og selt var á siðasta ár, reglulega af ölnim , fjöldanum! en verð á lifur hækkaði um 12%. Sfldarflök hafa ekki verið seld til Sovétríkjanna áður. Theodór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri SL, segir að mögulegt hefði verið að semja um sölu á meira af lifur, ef hægt hefði verið að treysta á aukna framleiðslu hennar hér heima. Framleiðsla þessara vara verður hjá K. Jónssyni og Co. á Akureyri, Sigló hf., Siglufirði, Norðurstjöm- unni hf., Hafiiarfírði og Lifrarsam- lagi Vestmannaeyja. í samninganefnd SL vora Rafri A. Sigurðsson, Theodór S. Halldórs- son og Gísli Már Ólafsson. NÁMSKEIÐ í SJÁLFSSTYRKINGU FYRIR KONUR (assertiveness training) (samskiptum manna á milli kemur óhjákvæmilega til vandamála og togstreitu. í slíkum tilvikum er aukið sjálfstraust, sjálfsvitund og þekking hverjum manni styrkur á sama hátt og það er undirstaða ánægjulegra samskipta. Námskeiðið er sniðið að bandarískri fyrirmynd og lögð áhersla á að gera þátt- takendum grein fyrir hvaða rétt þeir og aðrir eiga í mannlegum samskiptum og hvernig þeir geta komið fram málum sínum af festu og kurteisi án þess að láta slá sig út af laginu með óþægilegum athugasemdum. Ennfremur að læra að líða vel með sjálfum sér og hafa hemil á kvíða, sektarkennd og reiði með vöðvaslökun og breyttum hugsunarhætti. Upplýsingar í síma 2 72 24 laugardag og í síma 1 91 56 virka daga. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. >4NNk NJNLDIMKRSDÓTTIR sálfræöingur Bræðraborgarstíg 7 ÓKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námið heima hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón- ir manna nám ígegnum ICS-bréfaskólannl Líttu á listann og sjáðu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír- teini i lok námskeiða. Sendu miöann strax í dag og þú færö ÓKEYPIS BÆKLING sendan í f lugpósti. (Setjið kross í aöeins einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku. □ Tölvuforritun □ Almennt ném □ Rafvírkjun □ Bifvélavirkjun □ Ritatörf □ Nytjalist □ Bókhald Stjórnun □ Vélvirkjun □ fyrirtækja □ Garóyrkja □ Kjólasaumur Nafn:....................................................... Heimilisfang:........ ...................................... ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High Street, Sutton, Surrey SM11PR, England. Innanhús- □ arkitaktúr Stjórnun hótela □ og veitingastaöa □ Blaóamennska Kælitækni og □ loftræsting Núferhveraðverða síðastur að fara * n ^ mmwM laugarðsbM 32075

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.