Morgunblaðið - 28.02.1986, Side 2
2 B
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986
á líður senn að því að mál
skýrist hvað varðar kvik-
myndagerð á (slandi í ár,
en að sögn Guðbrands
Gíslasonar, framkvæmda-
stjóra Kvikmyndasjóðs, lýk-
ur úthlutunarnefnd sjóðsins störfum nú um
mánaðamótin. Alls bárust sjóðnum 37
umsóknir fyrir þessa úthlutun, þar af fimm
umsóknir vegna gerðar leikinna kvik-
mynda, fimmtán umsóknir um styrki vegna
heimildamynda, níu vegna handritagerðar,
einn vegna brúðuleikskvikmyndar, fjórar
umsóknir bárust um dreifingarstyrki og
tvær um styrki vegna undirbúnings að
leiknum kvikmyndum. „Þessu hefur öllu
heldur fækkað," segir Guðbrandur Gísla-
son. „í ár eru sjóðnum úthlutaðar 16 millj-
ónum króna, en samkvæmt lögum um
hann ættu þar að vera 48 milljónir króna.
Kvikmyndasjóður fer því ekki varhluta af
þeim niðurskurði sem á sér stað innan rík-
issjóðs, en vissulega er þessi niðurskurður
mikill og kemur mjög illa við íslenska kvik-
myndagerð. Það er dýrt að halda henni
gangandi, en að mínu mati enn dýrara að
missa hæfa kvikmyndagerðarmenn úr
faginu vegna þess að þeir hafa hvorki
bolmagn til að fjármagna það né nægilegan
utanaðkomandi stuðning. Þetta er hins
vegar atriði sem fjármálaráðherra gerir sér
fulla grein fyrir og maður vonar að ekki sé
öll nótt úti enn. Þá hefur menntamálaráð-
herra heitið því að beita sér hart fyrir því
að fjárveiting til sjóðsins verði aukin á
þessu ári," segir Guðbrandur.
Af þeim kvikmyndagerðarmönnum sem
hyggjast leggja kvikmyndagerðinni lið sitt
á komandi sumri — með þeim formerkjum
og Gísli Alfreðsson. Kvikmyndafélagið
NÝTT LÍF með leikstjórann Þráinn Bertels-
son í fararbroddi hyggur ennfremur á kvik-
myndagerð í sumar sem endranær, auk
þess sem Þráinn mun í ár vinna að hand-
riti fyrir þýska framleiðendur, að kvikmynd
sem verðurtekin ’87.
„Skytturnar" er vinnuheiti á kvikmynda-
handriti þeirra EINARS KÁRASONAR, rit-
höfundar, og FRIÐRIKS ÞÓRS FRIÐRIKS-
SONAR, kvikmyndagerðarmanns, sem
mun leikstýra myndinni og framleiða hana,
en handritið skrifuðu þeir eftir að hafa
fengið til þess styrk frá kvikmyndasjóði á
liðnu ári. Áð sögn Friðriks Þórs er þar um
að ræða kvikmynd þar sem ýmsum kvik-
myndaformum er steypt saman, „þetta er
að hluta til sálfræðilegur hrellir, að hluta
til gamanmynd og að hluta til „road-movie"
sem gerist á leið frá einum stað til ann-
ars." Fjárhagsáætlun fyrir. „Skytturnar"
hljóðar upp á 12,2 milljónir króna og veröur
hafist handa í júlímánuði ef fjárveiting fæst
til verksins. Af fyrirtæki Friðriks Þórs og
fleiri manna, ÍSLENSKU KVIKMYNDA-
SAMSTEYPUNNI, er annars það að frétta
að kvikmyndatökum fyrir heimildamynd
sem fyrirtækið hefur unnið að síðan 1980
um Bubba Morthens er senn lokið, „elstu
tökurnar eru frá Utangarðsmönnum 1980
og við ætlum að setja punktinn yfir i-ið
með samningnum sem hann gerði í Svíþjóð
og plötu sem kemur út í haust," segir
Friðrik Þór.
Af öðrum heimildarmyndum sem líta
dagsins Ijós á árinu má nefna Reykjavíkur-
myndina sem HRAFN GUNNLAUGSSON,
leikstjóri, hefur gert undanfarið í tilefni af
200 ára afmæli borgarinnar. Kvikmynda-
tökum fyrir hana er alfarið lokið, en Tony
Fossberg annaðist þær, og vinnsla á því
stigi nú að Gunnar Smári Reynisson, hljóð-
Menntamálaráðherra
vill auka fjárveitingu
til Kvikmyndasjóðs
á þessu ári
þó að slík ákvöröun verði ekki endanlega
tekin fyrr en úthlutunin liggjur Ijós fyrir —
má nefna að kvikmyndafólagið UMBI sf.,
sem á sínum tíma gerði myndina „Skilaboð
til Söndru", hyggst leggja út í gerð gaman-
myndar eftir handriti Guðnýjar Halldórs-
dóttur, kvikmyndagerðarmanns, en Umba
skipa auk hennar þær Kristín Pálsdóttir,
Ragnheiður Harvey og Ingibjörg Briem. Þá
sótti EYVINDUR ERLENDSSON, kvik-
myndagerðarmaður í annað sinn um styrk
vegna „Erindleysunnar miklu", en handritiö
að þeirri kvikmynd lá fyrir á liðnu ári. Ey-
vindur kveðst hafa notað tímann til að
fullvinna undirbúning myndarinnar, sem
verður kvikmynduð á Sauðárkróki, Hofsósi,
í Skagafjarðardölunum og eins og leið ligg-
ur suður til Reykjavíkur. Reyndar dálítið
lengra því að hluti hennar verður tekinn í
Hollandi. Haraldur Friöriksson verður kvik-
myndatökumaður myndarinnar og helstu
leikarar þeir Arnar Jónsson, Helgi Skúlason
HÁRGREIÐSLA
AF KVIKMYNDAGERÐ
Á ÍSLANDI
GEOMETRIC
hár fyrir sumarið ’86
Þá er búið að leggja línuna fyrir hártískuna sumarið '86, GEOMETRIC eins og hún nefnist, en
það var gert hjá Haute Coiffure Francaise-samtökunum í París dagana 27. og 28. janúar. Tveir
hárgreiðslumeistarar úr íslenska Intercoiffure- hópnum fóru á þessa 82. kynningu samtakanna,
þær Bára Kemp og Elsa Haraldsdóttir og ieituðum við til þeirra til að sýna okkur við hverju
mætti búast með hækkandi sól. Að vanda fylgir hárgreiðslulínan straumum og stefnum í fata-
tískunni og að þessu sinni var það tískuhúsið CHLOÉ sem lagði litríka línu í fatnaði með
GEOMETRIC hárgreiðslunni. Reyndar er ekki um að ræða eina ákveðna hárgreiðslu, heldur
þrjú afkvæmi sömu línunnar sem er í grófum dráttum þannig lýst að hliðar eru heilar og dregnar fram í
andlitið, og topparnir stuttir, þverir eða frjálsir. Hárliturinn er nokkuð frjáls en talsverður gljái á hárinu. Og
útkoman, hana sjáum við hér á myndunum af þeim Höllu Hauksdóttur, Örnu Reynisdóttur og Áslaugu Jóns-
dóttur, eftir að meistararnir tveir, Elsa Haraldsdóttir og Bára Kemp, höfðu meðhöndlað hár þeirra geometrískt.