Morgunblaðið - 20.03.1986, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.03.1986, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPi'l AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986 í gódar vélar þarf vandað- an hugbúnad. Vlð höfum á boðstólum úrval hug- búnaðar á tölvur með MS DOS styrikerfinu. forritin frá IBM eru samhœfður hugbúnaður íháum gæðaflokki. Þetta eru fimm forrit á Islensku, Skrástoð, Ritstoð, Skýrslustoð, Myndstoð og Aætlunarstoð. Cögn úr einu þeirra má auðueldlega nota í þuí nóesta. LOTl/Sl 23 er eiginlega fyrsti hugbúnaðurinn sem gerði mönnum Ijóst huílík fay/í-^ ing uarð með tilkomu einmenningstöluanna. Draumarnir rœttust! I þessu samofna hugbúnaðarkerfi er reikniuangur, gagnagrunnur og teikniforrit. LOTUS SVMPHOJVV er einnig samofið hugbúnaðarkerfi og er nánast framhald af LOTUS 12 3. Ekkert eitt forrit stenst samanburð uið LOTUS SYMPHONY. I þessu kerfi er rituinnsla, reikniuangur. gagnagrunnur og teikniforrit sem allter undiríeinu en auk þess erkerfið sérstaklega hannað til þess að geta tengt einmenningstöluuna þína stœrra kerfi. WbrdPerfect er eitt juUkömnasta rituinnsluforritið sem nú er fáanlegt á einmenn- ingstöluur. Rita má í einum til fimm dálkum, neðanmálsgreinar eru leikur einn og enskt orðasafn og samheitaorðasafn fylgja. Fyr/r allar gerðir prentara. AutoCad er fjölhœft teikniforrit fyrir arkitekta, uerkfræðinga og aðra tækni menn og hönnuði. Vinsælasta teikniforritið fyrir einmenningstöluur með stýrikerfið MS DOS. ■ I ; AGJVES erlauna- og aflauppgjörskerfi fyrir báta- og togaraútgerð. Sérhœft for- rit fyrir útgerðarfyrirtœki. Y Laun er öflugt launaforrit fyrir flestar tegundir fyrirtœkja. í þuí er unnt að reikna út laun og launatengd gjöld huort heldur sem um er að ræða uikulaun, mánaðarlaun. tímakaup eða aðrar greiðslur. suo sem álags- og bónusgreiðslur. LiöAlaun ^Einfalt og þœgilegt launaforrit, hentar uel smærri fyrirtœkjum. K-GHl/JVJVl/S er geysiöflugt íslenskt gagnasafnskerfi með ualmpndum, hjálparskjám og tengimöguleikum uið önnur kerfi. IK — grunninum er notuð íslensk stafrófsröð, að sjálfsögðu! OPÍ/S er mest seldi uiðskiptahugbúnaður fyrir einmenningstöluur á Islandi. ÓPUS sér um uiðskiptamannabókhald, fjárhagsbókhald, birgðabók- hald. sölubókhald, pantanir, tollskýrslur. uerðútreikninga, skýrslugerð og endurskoðun. er európskt fjölnotendastýrikerfi sem hefur uerið lagað að íslenskum aðstæðum. I þuí má fá fjárhagsbókhald, uiðskiptamannabókhald, sölu- og lagerforrit, rituinnslu, skýrslugerð, gagnagrunn, áætlanafor- rit. uerkbókhald o.fl. irtæki á vegum Alþjóða verzlunar- ráðsins í 3 ár. Ég þekki því tilfinninguna, ég þekki deiluefnin og ég þekki stað- reyndirnar. Lítum aðeins á stöðuna í Frakk- landi. Árin 1964—1965 bannaði stjóm De Gaulle nokkrar stórar nýjar bandarískar fjárfestingar í Frakk- landi. Ein af þeim var á vegum Ford fyrirtækisins. Fordverksmiðja var síðan reist í Belgíu, þýska verk- smiðjan stækkuð og verksmiðja reist á Spáni nokkru síðar. Mitt álit var, að afstaða ríkis- stjómarinnar væri út í hött og raunar óskiljanleg. Frakkland var hluti af Efnahags- bandalaginu. Rómarsáttmálin átti að tryggja frjáls vöraskipti milli aðildarlanda, og skipulögð tolla- lækkun hófst. Ég sagði þá: Þessi ákvörðun mun koma í veg fyrir ný störf í Frakk- landi og mun alls ekki vemda franska bflaframleiðslu, þar sem Ford bflar geta hvort sem er komið inn á franskan markað. Hvað sjáum við í dag? Ford er langstærsti bflaframleiðandi í Evr- ópu og söluhæsti erlendi bíllinn í FVakklandi. Lítum nú á bjartari hliðar og athugum frammistöðuna hjá IBM sem eins og áður segir hefur starfað í Frakklandi frá 1914. í síðustu viku birti franska tíma- ritið „Valeurs Actueiles" lista yfir þau fyrirtæki sem borga hæsta skatta í Frakklandi. Nr. 1 reyndist vera IBM í Frakklandi og nr. 2 L’Air Liquide. í þessu sambandi er athyglisvert, að árið 1984 reyndust ríkisstyrkir til eins af samkeppnisaðilum IBM, en það fyrirtæki var þjóðnýtt 1981, vera jafnháir og það sem IBM borgaði í skatta sama ár. Það er hart að sitja undir því, að skatt- greiðslur okkar séu notaðar til að hjálpa samkeppnisaðila, en þetta vargert. Á síðasta ári var svo gerð skoð- anakönnun um ímynd fyrirtækja í Frakklandi. IBM í Frakklandi reyndist vera nr. 1 og Hewlett Packard nr. 2, sem hlýtur að vera staðfesting á því að þessi fyrirtæki hafi aðlagast mjög vel okkar að- stæðum. Það varð ekki verkfall hjá IBM í Frakklandi 1968 sem lýsir vel góðum samskiptum við starfsmenn. Það hefur haldið áfram að fjölga starfsmönnum og hefur fleiri nú (21.977) en 1980. Það á fjórar verksmiðjur, tvær rannsóknarstofur og eina vísindamiðstöð. IBM er það fyrirtæki, sem eyðir hæsta hlutfalli af launagreiðslum í þjáifun starfsmanna sinna (12%). Flestir starfsmenn era franskir, öll yfirstjóm er frönsk. Það tekur virkan þátt í öllum opinberam og almennum málum. Færastu starfs- menn IBM kenna í háskólum. Það var fyrsta fyrirtækið í Frakklandi til þess að veita starfs- Sparisjóðir Topp-bók nýr 18 mánaða reikningur TOPP-BÓK er nýr 18 mánaða reikningur, sem sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Spari- sjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóðurinn í Keflavík bjóða viðskiptavinum sínum. Hver innborgun á Topp-bók er bundin í 18 mánuði, en er þá laus til útborgunar í einn mánuð, þá binst hún á ný og er laus til út- borgunar í einn mánuð á sex mán- aða fresti. Topp-bókin er með 19% vexti og era höfuðstólafærslur vaxta tvisvar á ári og era þeir ætíð lausir, eftir að þeir hafa verið færðir. Ávöxtun Topp-bókar er borin saman við 6 mánaða bundinn verð- tryggðan reikning. mönnum sínum 5 ára leyfi til að taka þátt í opinberri stjómsýslu, með tryggingu um endurráðningu, ef þeir vildu, þegar kjörtímabilið rennur út. Ég á erfitt með að sjá, hvemig fyrirtæki getur verið franskara en það, og ef ég bæti við, að IBM hefur haft afgang á greiðslujöfnuði í Frakklandi um árabil, er erfitt að segja að bandarísk íjárfesting hafi ekki verið til góðs fyrir landið. Fjölþjóðafyrirtæki færir gest- gjöfiim sínum líka nýja þekkingu; þau sjá í raun um að koma tækni sem víðast á framfæri. Tökum enn annað dæmi frá IBM: Það er með rannsóknarstofur í Bandaríkjunum, Japan, Kanada, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Svíðþjóð, Hollandi og Austurríki. Vísindamiðstöðvar era í Bretlandi, Noregj, Spáni, Frakklandi, Þýska- landi, Italíu, ísrael og Kuwait. Vís- indamennimir og tæknifræðingam- ir á rannsóknarstofunum verða að vera á sama þekkingarstigi í vís- inda- og tæknilegum efnum, þar sem þeir vinna að rannsóknum sem hafa notagildi um allan heim. Disk- lingar sem framleiddir era í Bret- landi verða að vera nothæfir í tölvur sem framleiddar era í Bandaríkjun- um, eða Þýskalandi eða Italíu. Tæknilega þekking þessa fólks verður því að vera svipuð. Og það er fleira sem kemur gestgjafanum til góða. Flest fjöl- þjóðafyrirtæki rejma mikið til þess að koma sér vel í löndum gest- gjafanna. Ein leiðin er að færa þeim ekki aðeins tækniþekkingu, heldur og þekkingu á sviði stjómunar. Um stjónun Á sjöunda áratugnum töluðu allir í Evrópu um skort á tækniþekkingu. Ég leyfi mér að halda því fram, að skortur á stjómunarþekkingu hafi verið meinið. Staðreyndimar tala sínu máli. Við höfðum jafnmarga vísindamenn og verkfræðinga á hverja 1000 stúdenta og Bandaríkjamenn. Kostnaður við rannsóknar- og þró- unarstarfsemi sem hlutfall af þjóð- arframleiðslu var í stærri Evrópu- löndunum, svipaður og í Bandaríkj- unum og Japan. En afköst þessara vísindamanna og tæknifræðinga var minni en í Bandaríkjunum og Japan, t.d. á mælikvarða skráðra einkaleyfa. Töfin frá uppgötvun til framleiðslu var lengri. Markaðs- setning vörannar var veikari. Allar þessar þijár staðreyndir tengjast stjómunarþjálfun. Og ef litið var til viðskiptaháskóla, vora 20 í Evr- ópu á móti 400 í Bandaríkjunum, sem þýðir ekki að Bandaríkjamenn hafi verið 20 sinnum betri. Engu að síður er samband á milli mennta- kerfisins, á hvað það leggur áherslu, og stjómunarhæfíleika. Ný tækni í upplýsingamiðlun og flarskiptum hafa breytt stjómun mjög mikið. Notkun þessarar nýju tækni hefur hinsvegar ekki breiðst eins hratt út í Evrópu og í Banda- ríkjunum og Japan. Staðan nú Viðskipti halda áfram að blómg- ast, þótt hægar sé en áður. Fjárfest- ingar aukast hins vegar hraðar og orðið hafa stórfelldar breytingar, án þess að mikið hafi verið tekið eftir þeim. Frá árinu 1962 (ég skoðaði ekki lengra aftur) hafa fjárfestingar Bandaríkjamanna erlendis verið stærri en erlendar fjárfestingar í Bandaríkjunum. FYá 1981 hefur dæmið snúist við. Útlendingar hafa árlega fjárfest meira í Bandaríkjun- um en Bandaríkjamenn hafa fjár- fest erlendis. Og frá 1975 hafa Evrópubúar flárfest meira utan Evrópu en aðrir hafa fjárfest þar. Þetta hefur umtalsverðar afleiðing- an 1 — Það afsannar dómsdags- kenningar eins og hjá Jacques Servan Schreiber sem skrifaði 1967 í bók sinni „The American Chall- enge“, að innan nokkurra ára yrði annar stærsti iðnaðarframleiðand- inn í heiminum ekki evrópskur heldur bandarísk dótturfyrirtæki í Evrópu. 2 — Það sýnir traust það sem fjárfestingaraðilar bera til framtíð- ar bandarísks hagkerfis. 3 — Það sýnir, að margir forstjór- ar hafa skilið að við eram hvert öðra háð í veröldinni og að fyrirtæki þeirra verði að fjárfesta til að dafna. 4 — Það sýnir líka að fleiri og fleiri taka áhættu, en fjárfestingar í Bandaríkjunum héldu áfram, þrátt fyrir hið háa dollaragengi. Mín skoðun er sú, þeir sem enn era harðir andstæðingar flölþjóða- fyrirtækja, líkist helst safngripum eða hugsjónarmönnum, sem neita að trúa staðreyndum. Ég held þvf ekki fram, að öll fjölþjóðafyrirtæki hafi alltaf gert rétta hluti alls stað- ar, en ég held því fram, að flest þeirra hafi lært mikið síðustu 10 árin og fordæmi „hinna góðu“ hafí haft þó nokkur áhrif á aðra. Ríkisstjórnir og alþjóðastofnanir hafa á sinn hátt skilið þau innbyrðis tengsl, sem ríkja í veröldinni, og þegar atvinnuleysi ríkir, hefur þeim einnig skilist, að erlend fjárfesting sem skapar vinnu, er af hinu góða. Franskar aðstæður Ég var einnig beðinn um að segja nokkur orð um ástand mála í FYakklandi. Ég mun verða mjög stuttorður þar sem ég álít, að tvennt beri að varast þegar talað er við erlenda áheyrendur. Að finna að eigin stjómvöldum og að gagnrýna ríkisstjóm þess lands, þar sem ég ergestur. TÍÐNIBREYTAR — S. Stefánsson & Co. hefur tekið að sér umboð fyrir enska fyrirtækið Anyspeed, sem er einn fárra framleið- enda tíðnibreyta í heiminum Tíðnibreytar hafa lítið verið notaðir á íslandi, enda tiltölulega stutt síðan framleiðsla þeirra var hafin. Á myndinni era Gísli G. Kol- beinsson, sölustjóri S. Stefánssonar & Co. og Sigvaldi Ragnarsson rafvélameistari, með tíðnibreyta fyrir framan sig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.