Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 1
104SIÐUR B/C
87. tbl. 72. árg.
Fækkun herja í Evrópu:
Gorbachev
með nýjar
tillögnr
Austur-Berlín. AP.
MIKHAIL S.
Gorbachev,
leiðtogi
sovézka
kommúnista-
flokksins, hélt
ræðu á þingi
austur-þýska
kommúnista-
flokksins á
föstudag og
fordæmdi þá
loftárásir Bandaríkjamanna á
Líbýu. Hann hélt þó opnum dyr-
um fyrir tillögur þær, er hann
kynnti á þinginu daginn áður og
varða fækkun hermanna og
vopna í Mið-Evrópu. Vestrænir
sendifulltrúar í Austur-Berlín
sögðu tillögurnar innihaldslitlar.
Gorbachev sagðist hafa á tak-
teinum tillögur að samkomulagi
stórveldanna um „raunhæfa" fækk-
un hermanna f Evrópu og fækkun
herflugvéla. Um leið og herdeildir
yrðu lagðar niður yrðu vopn þeirra
eyðilögð eða flutt til heimalands
hersveitanna. Hann sagði tillögur
sínar kveða á um fækkun venjulegs
herafla og kjamorkuvopna.
Gorbachev sagði að fylgjast
mætti með, hvort samkomulag væri
haldið, með því að koma á gagn-
kvæmu eftirliti, en vestrænar heim-
ildir herma að sovézkir samninga-
menn í viðræðum um fækkun í
heijum hemaðar- og vamarbanda-
laganna í Mið-Evrópu hafi alltaf
lagst gegn hugmyndum um gagn-
kvæmt eftirlit.
Gorbachev er sagður hafa gefið
í skyn að hann vilji halda samninga-
viðræðum áfram, en í vikunni var
því haldið fram í yfirlýsingum frá
Moskvu, að Bandaríkjamenn hefðu
með loftárásunum á Líbýu stefnt
sambúð austurs og vesturs, áfram-
haldi viðræðna og þar með heims-
friði í stórhættu.
Gorbachev minntist ekki á fyrir-
hugaða ferð Honeckers, forseta
Austur-Þýskalands, til Vestur-
Þýskalands síðar á þessu ári, en
lagði áherslu á jafnraeði og fullveldi
þýsku ríkjanna.
Bandaríkin:
Titan-eldflaug*
sundraðist í
sprengingu
Vandenberg'-flugstöðinni, Kaliforníu. AP.
TITAN 34D eldflaug sundraðist
í sprengingu á föstudag um fimm
sekúndum eftir að henni var
skotið á ioft frá Vandenberg-
flugstöðinni í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Onnur Titan-eldflaug
sundraðist í ágústmánuði sl.
Geysimikið eiturský myndaðist
við sprenginguna á föstudag og
urðu 58 manns að fá læknismeð-
ferð á Vanderberg-spitalanum
eftir óhappið vegna ertingar í
húð og augum.
Sérfræðingar segja, að þessi
áföll, ásamt Challenger-slysinu fyrr
á þessu árí, stofni áætlun hersins
um njósnagervitungl í hættu.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 20. APRÍL1986
Prentsmiðja Morgrinblaðsins
„Bandarískt morðsam-
særi gegn Khadafy“
— segir næstæðsti valdamaður Líbýu — 37
biðu bana og 93 særðust í loftárásinni
Trípolí, Aþenu. AP.
NÆSTÆÐSTI valdamaður í Líbýu, Abdel-Salam Jalloud,
sagði á blaðamannafundi á föstudag að bandarískir njósnar-
ar hefðu það „blauða verkefni" með höndum að myrða
Moammar Khadafy, Líbýuleiðtoga.
Bettino Craxi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hefur látið að því
liggja að brugðist verði við með
hemaðaraðgerðum geri Líbýu-
menn frekar á hlut ítala.
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, sagði á föstudag að ætlunin
hefði aldrei verið að myrða Khad-
afy, en ýmsir aðilar í stjóminni
sögðu að vonir hefðu staðið til
þess að árásin gæti af sér byltingu
gegn Khadafy.
Að sögn Jalloud létust þijátíu
og sjö manns í árásinni og níutíu
og þrír særðust. Hann sagði að
árásin hefði mistekist vegna slæ-
legrar þjálfunar bandarísku flug-
mannanna. Um fjögur þúsund
manns voru viðstaddir útför fóm-
arlamba loftárásarinnar í mosku
í Trípolí. Mannfjöldinn hrópaði:
„Tortímum Ameríku“. Khadafy
var ekki viðstaddur útförina.
Jalloud sagði að Bandaríkja-
menn hefðu fengið Bræðralag
múhameðstrúarmanna, hreyfingu
öfgamanna, sem starfar bæði
fyrir opnum tjöldum og í laumi
um öll arabaríkin, til að eitra fyrir
Khadafy. Þegar það mistókst
hafi loftárásin verið gerð.
Jalloud sakaði Bandaríkjamenn
loðnum orðum um að hafa ætlað
að myrða Khadafy í árásinni:
„Siðferðilega er Reagan búinn að
vera og bandaríska þjóðin ætti
að skammast sín fyrir það.“
Gríska lögreglan leysti upp
blaðamannafund Ahmeds Sha-
hatis, aðstoðarutanríkisráðherra
Líbýu, skömmu eftir miðnætti á
laugardag. Shahati neitaði á
fundinum að nokkuð væri hæft í
þeirri yfirlýsingu grísku stjórnar-
innar að Líbýumenn hefðu farið
þess á leit að Evrópubandalagið
hefði milligöngu um að fínna
málamiðlunarlausn á illsættinu
milli Bandaríkjamanna og Líbýu-
manna. Gríska utanríkisráðu-
neytið lýsti yfir þessu eftir að
Shahati hafði átt klukkustundar
fund með Andreas Papandreou á
föstudag.
Breska stjómin hefur sakað
Líbýumenn um að hafa átt aðild
að morðunum á tveimur breskum
gíslum í Líbanon á fimmtudags-
kvöld. Geoffrey Howe, utanríkis-
ráðherra Breta, sagði að morðin
á kennurunum væru enn eitt
dæmi um „ríkisrekna hryðju-
verkastarfsemi Líbýumanna".
Skoðanakannanir sýna að
meirihluti bresku þjóðarinnar
styður hvorki árás Bandaríkja-
manna á Líbýu né það að Margar-
et Thatcher, forsætisráðherra,
skuli hafa verið fylgjandi aðgerð-
inni. Mikil mótmæli áttu að fara
fram fyrir utan sendiráð Banda-
ríkjanna í London og herstöð
Bandaríkjamanna í Lakenheath á
laugardag vegna árásarinnar.
I gær handtók tyrkneska lög-
reglan tvo Líbýumenn eftir yfir-
heyrslur yfir tveimur löndum
þeirra, sem handteknir voru á
föstudag með fulla tösku af hand-
sprengjum fyrir utan samkomu-
stað bandarískra liðsforingja í
Ankara.
OPEC-fundurinn í Genf:
Hverfandi líkur
á samkomulagi
Genf. Sviss. AP.
VIÐRÆÐUR oliframleiðsluríkj-
anna í OPEC sigldu aftur í strand
í Genf i gær, og hafa vonir við-
ræðuaðilanna um að samkomu-
lag takist í bráð dvínað.
Ætlunin hafði verið, að ráðherrar
aðildarlandanna hittust á laugar-
dagsmorgun, en fundinum var
frestað þangað til síðdegis sama
dag, að sögn James Audu, tals-
manns OPEC.
Audu sagði, að ákveðið hefði
verið að fresta fundinum í því skyni
að gefa tæknilegum ráðgjöfum
svigrúm til að koma sér saman um
tillögur um frekari aðlögun olíu-
framleiðslunnar að eftirspurninni.
Sérfræðingur um olíumálefni
sagði, að olíuverð mundi fara niður
fyrir 10 dollara á tunnuna, næðist
ekkert samkomulag í þessari við-
ræðulotu.