Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986
B 3
segir Þór Sævarsson garðyrkjufræðingur. Þegar ákvörðun er tekin
um stað fyrir skálann er ráðlegt að hafa hann ekki á móti suðri nema
hægt sé að opna glugga eða hafa góða loftræstingu. Hús sem snýr
í suður og er með litla eða enga loftræstingu verður eins og
suðupottur um hásumarið. Það kemur oft fyrir að fólk hefur byggt
slíka lokaða skála og þá er erfitt að finna plöntur sem þola að hitinn
fari kannski í fimmtíu gráður, því það ekki óraunhæft um hásumarið.
í þeim tilfellum þýðir ekki að hafa plöntur nema þá kaktusa. Það má
kannski segja að ef skálinn snýr á móti suðri sé heppilegra að hafa
hann með akrýlgleri en venjulegu rúðugleri því þá dreifist birtan betur.
Þá veltur einnig mikið á því hvernig hitastig er í húsinu, hvort það
er upphitað eða verður kalt á veturna. Ef garðstofurnar eru í framhaldi
af venjulegum stofum þá er algengt að þær séu upphitaðar og
stofublóm henta því vel. Þessar plöntur þola ekki hitasveiflur eða of
sterkt sólskin og hitinn má helst ekki fara niður fyrir 15 gráður.
Plönturnar dafna auðvitað best ef hitinn er mátulegur, birtan næg
og raki. Það eru ótal tegundir jurta sem henta í slíkar stofur og fer
auðvitað lika eftir því hvernig velja á plöntur saman eftir til dæmis
hæð og lit. En svona fljótt á litið detta mér hérna nokkrartegundir í
hug sem hæfa vel: Ficus Benjamina, Hawairós, Döðlupálmi,
Þríburablóm, Ananas og Tígurskrúði.
Þessir heitu pottar sem fólk er farið að hafa í húsum sínum henta
einmitt plöntum ágætlega vegna rakans sem kemur frá þeim. Annars
eru heitu pottarnir ekkert skilyrði," og aðspurður hvort æskilegt
væri að hafa rakatæki sagði Þór að nóg væri að úða vel bæði gólf
og plöntur því það gæfi góðan raka. „Uðunin er líka góð hvað það
varðar að hún kemur í veg fyrir að meindýr setjist á plönturnar en
það hefur verið vandamál nú um hríð hjá garðhýsaeigendum.
Ef úðað er reglulega með vatni þá er það fyrirbyggjandi og svo
er auðvitað nauðsynlegt að athuga vel plöntur í upphafi þegar verið
er að versla eða fá afleggjara. Það liggur eiginlega í augum uppi að
heilbrigðar plönturfá síðurá sig meindýren aðrar. Það ereinna
auðveldast að ráða við lúsina ef hún skýtur upp kollinum en svo
getur málið farið að vandast. Mjöllúsin ertíður gesturjíka
spunamaurinn og kögurvængjan. Það getur oft verið mjög erfitt að
fá þau sterku efni sem þarf til að vinna bug á óvininum og þar að auki
er ekki leyfilegt að selja almenningi sterkustu efnin. Þá má líka geta
þess að ef skálarnir eru kaldir virka efnin ekki nógu vel. Bestu skilyrðin
eru eftir að hitastigið hefur náð tuttugu gráðum.
Það er líka árstíðabundið hvað hægt er að fá af plöntum. í kalda
skála er mesta úrvalið á vorin en í upphitaða skála má náttúrulega
fá stofuplöntur allan ársins hring nema þá kannski blómstrandi
plöntur.
Það er um að gera að vanda vel til moldar sem á að rækta í.
Sumir hafa kannski látið það hvarfla að sér að fara bara út í garð og
ná sér í mold. Það er ekki mjög hentugt því moldin þarf að vera
unnin, búið að blanda hana kalki, vikri og áburðarefni og gera hana
léttari. Þá ráðlegg ég fólki eindregið að nota áburð yfir sumartímann
og þegar birtan fer að minnka að draga úr áburðargjöf og vökvun.
það er um að gera að hvíla plöntur yfirleitt á veturna.
Rósir er mjög hentugt að hafa í köldum húsum, þær þurfa lægra
hitastig á veturna og hvíld. Þá er einnig ágætt að rækta í slíkum
húsum ávaxtatré ýmiskonar, Cypris, sumarblóm og þvíumlíkt,“ sagði
Þór að endingu.
Texti Guðbjörg Rh. Guðmundsdóttir
Prum nú að setjafram mesta urval
haustlauka sem nokkum tima
hpfur sést á Islandi.
GMúrvalafTúlíponum,
Páskaliljum, Krokusum, m
jólalaukum og ymsumhaög
smálaukum, sem reynst hafa vel
«»3!rs
þessum vörum a magntiiooo.
Magntilboð:
1.50 slk. Túlípanar. Bnlitir (rauðir og gulir). 3Q9-“
..................... 399 -
2- 25 stk. Páskaliljur. 399 “
3- 35 slk. lágir og tjölaerir Túlípanar. 995 -
4- 100 slk. blandaöir laukar í ösl^u....
« i-JómouQ'
%V Blómum • cmar36770-686340
Q^55urhúsinu Við agturv. S.mar 36/ ru
arlagið ótrúlega fallegt hérna á
síðkvöldum."
Aðspurð segja þau að plöntur
þrífist vel í skálanum, en þau
þurfi að vara sig á að hitinn geti
orðið mjög mikill og því vilji sum-
ar brenna. Það eru vissar plöntur
sem þarf að forða úr mesta hit-
anum því þó að allt sé opið út
getur hitinn farið upp í þrjátíu,
fjörutíu stig og rúmlega það.
Kærleiksblómið hefur reynst við-
kvæmt, Mánagullið, Rifblaðkan
og jafnvel Yukkan sem er harð-
gerð hefur látið á sjá.
Það þarf líka að vera með
augun opin fyrir vágestum í formi
meindýra. Við höfum átt í miklum
vandræðum með spunamaur-
inn, fengum hann með blómi
sem við keyptum einu sinni og
höfum ekki almennilega getað
losað okkur við hann siðan,"
segja þau að lokum.
og afskorín
blóm
/ úrvali á hagstæðu veröi sem vert er aö kanna
áöur en þiö leitiö annað.
Opid til kl. 9 öll kvöld.
Græna
höndin
Gróðrarstöð við Hagkaup,
Skeifunni, sími 82895.
WVWIIf.'.’.'.'IIUIU..
----
ilNGAMÖNUSTAN / SlA