Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 6

Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 HEPBURN-STÍLLINN atherine Hepburn, hin nafntogaða leikkona, veitti á dögunum viðtal, þar sem fjallað var um fatasmekk hennar. Það vakti nokkra furðu að þessi síunga kona, sem er nærri jafn fræg fyrir hlédrægni, sjálfstæði og meinleg svör og fyr- ir leikferil sinn, skyldi fallast á þetta. Líklega var ástæðan sú að Samtök bandarískra tískufatahönn- uða höfðu afráðið að veita henni sérlega viðurkenn- ingu vegna áhrifa hins sérstæða fatastíls hennar og þeirrar miklu hvatningar sem hann hefur verið kyn- slóðum fatahönnuða í Bandaríkjunum. Hönnuðir sportfatnaðar telja hana brautryðjanda í notkun slíks fatnaðar, en þegar þessi mál eru rædd við leikkonuna sjálfa, má helst á henni skilja, að allt sem skiptir máli í gerð fatnaðar, sé að handvegur flíkanna sé víður! „Það er vegna þess að ég er svo axlabreið og handleggja- löng, næstum eins og górilluapi," segir hún, og togar i víðar ermar rúllukraga- treyjunnar, sem hún ber innanundir mjúkri ullarpeysu, sem er auðvitað líka með víðum handvegi. Við þetta er hún í Ijósbrúnum ullarsíðbux- um, hvítum iþróttasokkum og rúskinns- klossum. Spjallið fór fram í sólskini á verönd bak við íbúðarhús hennar á Manhattan í New York-borg, og það virðist næsta ótrúlegt að viðmælandinn sé á áttræðis- aldri, hrjáð af skjálfta og með bæklaðan hægri ökkla, sem nú er orðinn stífur. Hún hleypur upp og niður stigana í tveggja hæða húsinu, meðan á viðtalinu stendur, til að ná í fatnað sem hún sýn- ir mér. Hún er spurð um fótameinið. „Ég get nú aftur leikið tennis og tel mig heppna að hafa fengið að halda fætinum. Til stóð að hann færi á haugana," segir hún glaðlega. Að kvöldi dagsins, sem spjallað var, átti hátíð hönnuðanna að fara fram með hefðbundnum glæsibrag, í einum af söl- um Borgarbókasafns New York. Það er ekkert öruggt að leikkonan mæti til að veita viðtöku þeim heiðri er ætlunin er að sæma hana, en enginn gestanna mun þó efast um að hún er vel að verðlaunun- um komin vegna framlags síns og áhrifa er hún hefur haft á fatatísku bandarískra kvenna, á ferli sínum. Það eru ekki ein- ungis þau föt sem hún hefur valið sér til klæðnaðar í einkalífinu, heldur og sá glæsilegí fatnaður er hún hefur borið í kvikmyndum, t.d. í myndinni „Woman of the year". í fyrstunni voru vöflur á Hepburn um hvort hún ætti að þiggja þessi heiðursverðlaun, en að lokum féllst hún þó á það. Donna Karan segir að Katherine Hepburn sé nútímaleg kona. „Hún hefur alltaf lagt á það áherslu öðru fremur að fötin séu þægileg og vei hönnuð. Hérna má sjá hvernig Donna Karan hannar með þetta í huga. „Hún er ein af þeim konum sem alltaf er gæsileg,“ segir Ralph Lauren. Þennan klæðnað hannaði hann með slíka konu í huga. Á þessari mynd sem tekin var árið 1933 er leikkonan klædd buxnadragt úr grófu bómullarefni, sem herrafataklæðskeri í Kaliforníu saumaði á hana. Á þessum árum þótti þetta ákaflega nýstárlegur klæðnaður. Nýleg mynd úr einkasafni Katherine Hepburn. Þarna er leikkonan glæsileg þó hún klæðist íþróttafatnaði og hafi bundið peysu yfir hár sitt. • „Smekkur hennar hefur haft mikil áhrif á mína hönnun,“ segir Calvin Klein. Meðfylgjandi mynd sýnir klæðnað sem hann hannaði og álítur vera í anda Katherine Hepburn. Sérstœðar hugmyndir hennar um klœðnað eru jafn gjaldgengar nú ogþœr voru á jjórða áratugnum þegar hún kynnti hann fyrst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.