Morgunblaðið - 07.10.1986, Qupperneq 35
Líbanon
88cr aaaöTxo .? auoAauiQia*! .aiaAjaMuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
Tólfta loftárás
Israela á árínu
Beirút, AP.
HERÞOTUR ísraela gerðu í gær
loftárás á þjálfunarbúðir vinstri
öfgamanna í Libanon, sem njóta
stuðnings Sýrlendinga. Að sögn
lögregluyfirvalda í Líbanon
gerðu átta sprengjuvélar árásir
á þorp í norðurhluta landsins.
Árás þess var hin tólfta sem ísra-
elar gera á þessu ári. Talsmenn
ísraelshers sögðu árásina hafa te-
kist vel og að allar hefðu vélamar
sloppið óskaddaðar. Sögðu þeir enn-
fremur að ráðist hefði verið á
höfuðstöðvar herskárra vinstri
öfgamanna. Ekki var skýrt frá
hversu margir hefðu týnt lífi í árá-
sinni.
Lögreglan í Líbanon sagði þotur
ísraela hafa ráðist á þjálfunarbúðir
vinstri öfgamanna í Akkhar-héraði.
Vinstri öfgamenn í Líbanon eru
hljmntir sameiningu ríkja araba
undir forustu Sýrlendinga. 25.000
hermenn frá Sýrlandi eru nú í
Líbanon samkvæmt samkomulagi
um friðargæslu þar frá árinu 1976.
Hryðj uverkainenn
á fundi í Teheran
R6m, AP.
í ÁGÚST síðastliðnum áttu fund
með sér í íran alkunnir hryðju-
verkamenn og lögðu þar á ráðin
um ofbeldisverk viða um heim.
Er þetta haft eftir fyrrum banda-
rískum embættismanni.
Robert Oakley, sem fram til 21.
september sl. var yfirmaður einnar
deildar í bandaríska utanríkisráðu-
neytinu, þeirrar, sem hefur barátt-
una gegn hryðjuverkamönnum á
sinni könnu, segir í næsta hefti
vikuritsins Panorama, að meðal
þátttakenda í Teheranfundinum í
ágúst hafi verið Abu Nidal en sam-
tök hans eru talin hafa staðið að
baki mörgum nýlegum hryðjuverk-
um. Oakley segir í viðtalinu, að
þegar hann hafi komist á snoðir
um fundinn hafi hann farið til Róm-
ar og varað stjómvöld þar við og
að þeirri viðvömn hafi einnig verið
komið til annarra ríkisstjóma á
Vesturlöndum.
Á fundinum í Teheran var einnig
Abu Mousa, sem er fyrir klofnings-
hópi úr PLO og nýtur stuðnings
Sýrlendinga, og nokkrir leiðtogar
Hezbollah, öfgasamtaka lfbanskra
shfta, sem hafa stuðning írana. Var
það m.a. ákveðið að grípa til hryðju-
verka víðar en áður, t.d. í þeim
Arabalöndum, sem hafa einhver
tengsl við ísrael. Segir Oakley, að
hryðjuverkastarfsemin hafi breyst
á síðustu tíu ámm. Ríki á borð við
Sýrland, Líbýu og íran eigi nú æ
meiri þátt í þeim en hlutur Austur-
Evrópuríkjanna hafi aftur minnkað.
Abu Nidal
Ástralía:
Stríðsglæpamönnum
bjargað frá framsali
^ Sydney, AP.
ÁSTRALSKA leyniþjónustan
kom í veg fyrir að tveir háttsett-
ir þýzkir stríðsglæpamenn yrðu
framseldir til Júgóslavíu meðan
á Kalda stríðinu stóð.
Blaðið The Australian skýrði frá
þessu í gær og birti bréf, sem þáver-
andi yfirmaður leyniþjónustunnar
skrifaði utanríkisráðuneyti landsins
árið 1951. Þar var því haldið fram
að mennimir tveir væm „ómetan-
legir“ vegna andstöðu þeirra gegn
kommúnistum.
Júgóslavneski ræðismaðurinn í
Sydney krafðist framsals mann-
Dumfries, Skotland, AP.
FORNLEIFAFRÆÐINGAR tetfa
sig hafa fundið elztu byggð Skot-
lands, sem landnemar frá Noregi
reistu fyrir um 800 árum. Fundu
þeir tvö hús óskemmd og mjög vel
varðveitt undir grafreit frá mið-
öldum.
Fomleifamar fundust undir miðalda-
grafreit við Whithom, sem er 65 km
suðvestur af Dumfries, sem er syðst
í Skotlandi vestanverðu. Kirlq'a, sem
kristnir menn reistu þar á miðöldum
er nú í niðumíðslu. í grafreitnum em
350 grafir.
Húsin eru talin hafa verið hluti
byggðar, sem norskir landnemar
anna 8. maí 1951 til þess að láta
þá svara til saka fyrir stríðsglæpi.
Hvorugur þeirra hefur verið nafn-
greindur en annar er sagður hafa
verið foringi í Gestapo, hinni ill-
ræmdu leynilögreglu nasista og
m.a. stjómað fangabúðum í Num-
berg og bera ábyrgð á dauða mikils
§ölda Júgóslava í seinni heimsstyij-
öldinni. Hinn er sagður hafa verið
fangi í stríðsfangabúðum í Albaníu
og svikið fjölda samfanga sína með
samstarfi við nasista.
Nýlega afhenti nasistaveiðarinn
Simon Wiesenthal áströlskum yfir-
reistu fyrir 80Ö árum. Eitt húsið er
reist á stjökum. Eldstæði fyrir lang-
eld var í því miðju og svefnbekkir
með veggjum. Fundust ýmsir munir
í rústunum, s.s. greiður, blýílát og
nælur. Að sögn fomleifafræðinga
hefur velmegun verið mikil í þorpinu
og þar átt sér stað verzlun og fram-
leiðslustörf.
Whithom er almennt talin vagga
kristninnar í Skotlandi. Þaðan stund-
aði St. Ninian trúboð sitt í suðurhluta
Skotlands. Flykktust pílagrímar síðan
þangað eftir að þar var reist klaustur
á 12. öld. Það er nú rústir einar.
völdum lista yfir 40 meinta
stríðsglæpamenn nasista, sem hann
segir búa í Ástralíu. Stjómin lætur
nú fara fram rannsókn á fullyrðing-
um þess efnis að a.m.k. 200
stríðsglæpamönnum nasista hafi
verið veitt landvist í Ástralíu eftir
stríð.
Sovétríkin:
Kákasustindur
nefndur eftir
Samönthu Smith
Moskvu, AP.
FJALLSTINDUR í KákasusfjöUum
hefur verið sklrður I höfuð banda-
rísku stúlkunnar Samönthu Smith,
sem heimsóttí Sovétríkin árið 1983.
Samantha Smith hlaut áheym hjá
sovézkum leiðtogum er hún heimsótti
Sovétríkin. Hún beið bana ásamt föð-
ur sínum í flugslysi í fyrra. Að sögn
TASS-fréttastofunnar klifú rúmlega
100 verkamenn og námsmenn 4.000
metra háan tind í Kákasusfjöllum
nýlega og komu þar fyrir brjóstmynd
af Samönthu úr bronzi.
Sovétmenn hafa heiðrað minningu
Samönthu með ýmsum öðrum hætti,
t.d. gáfu þeir út frímerki með mynd
af henni og nefndu auk þess demant
og blóm eftir henni. Að sögn TASS
hefur móður hennar, Jane Smith, ver-
ið send mynd af fjallstindinum og
undirritað skjal frá þeim, sem klifu
tindinn og komu brjóstmyndinni þar
fyrir.
Hús fyrstu landnema
Skotlands fundin?
Öryggi í umferðinni byggist á mörgum
atriðum. Eitt þeirra er að hafa góöa yfirsýn
yfir veginn í myrkri og misjöfnum veörum.
Ílalogen bílaperan l'rá Ring gefur tvölalt
betri lýsingu en venjuleg
bílapera og eykur því
öryggi þitt verulega.
Vegna hagstæðra
innkaupa getum
við boðið halogen
peruna frá Ring
á aðeins:
HEKLAHF
STJORNUN
Markmið námskeiðsins:
• Kynna meginreglur stjórnunarfræðanna
• Vekja stjórnendur til gmhugsunar um þann
fjölbreytileika sem ríkir í stjórnun
• Veita stjórnendum innsýn í eigin stjórn-
unaraöferöir og samskpti þeirra viö starfsmenn
Efni:
• Hvað er stjómun
• Stjómskipulag og tegundir
• Einstaklingurinn og vinnan
• Starfshvatning
• Upplýsingastreymi
• Verkefnastjómun
• Skipulagsbreytingar
Leiöbeinandi: Höskuldur Frfmannsson,
rekstrarhagfræöi ng u r. Forstööu maöu r
rekstraráögjafardeildar Skýrsluvéia rlkisins og
Reykjavlkurborgar.
Tími: 13.—16. október, kl. 8.30—12.30.
Stjórnunarfélag
islands
Ananaustum 15 • Simi: 6210 66