Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 HÁSKÓLI ÍSLANDS Meginmarkmið Efhafræðistofunnar aé stunda grundvaUarrannsóknir Dr. Ingvar Árnason segir frá rannsóknum Efnafræðistofu Raunvísindastofnunar háskólans Efnafræðistofan er rannsóknavettvangnr fastráðinna kennara í efnafræði og sérfræðinga, sem ráðnir eru til stof nunarinnar til að stunda rannsóknir í efnafræði. I samtali, sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við dr. Ingvar Arnason, yfirmann Efnafræðistofunnar, kom fram að þar starfa fimm fastráðnir kennarar og þrír sérfræðingar. Auk þeirra starfa þar fjórir rannsóknamenn og fjórir sérfræðingar, sem ráðnir eru tímabundið til rannsókna, sem styrkir eru veittir til. Dr. Ingvar Árnason Rannsóknir á fjöl- Efnafræðistofan er eina stofnunin hér á landi, sem hefur það meginmarkmið að stunda grundvallarrann- sóknir í efnafræði", sagði dr. Ingvar. „Rannsóknir eru stundaðar hér á mörgum sviðum. Það kann að vekja upp þá spumingu af hverju við sameinum ekki kraftana og vinnum að einhverju einu, en það er m.a. vegna þess að starfs- mennimir eru kennarar í efnafræði að meginhluta. Hafa verður í huga að efnafræðin er vítt svið. Henni er gjaman skipt í fjögur meginsvið: ólífræn efnafræði, lífræn efnafræði, eðlisefnafræði og lífefnafræði. Til þess að kenna þessa efnafræði til BS prófs við háskóla þarf kennara með sérmenntun á þessum höfuðsviðum. Þess vegna er eðlilegt að kennaramir stundi rannsóknir hver á sínu sviði. Hér hefur þurft að byggja upp viðunandi aðstöðu fyrir þessar rannsóknir og er enn margt ógert í þeim efnum. Fyrir utan grundvallarrannsóknir, þá tekur stofan einnig þátt í hagnýtum verkefnum, gjaman í samvinnu við aðra aðila. Kíslarrannsóknir í Svartsengi Af þeim hagnýtu rannsóknum, sem hér eru í gangi, má nefna rannsóknir í útfellingu kíslar, sem oft er kölluð kísill, úr jarðsjó þeim, sem kemur upp hjá Hitaveitu Suðumesja í Svartsengi. Bláa lónið er affallsvatn hitaveitunnar og kíslin er botnleðjan í lóninu. Hjá hitaveitunni falla út þijú til ijögur þúsund tonn af þessu efni á ári og okkar rannsóknir beinast að því hvort stýra megi útfellingunni þannig að út falli efni með ákveðna eiginleika, sem hægt sé að selja. Slíkt efni er t.d. notað sem fylliefni í gúmmí, sem ekki má skilja eftir svartar rendur og er notað t.d. í skósóla. Þetta er auk þess knýjandi verkefni þar sem nauðsynlegt viðist vera að losna við botnfallið burt úr affallsvatninu: Við viljum geta skilið þetta efni úr vatninu á skömmum tíma og dælt hluta vatnsins niður í bergið aftur. Það viðist vera nauðsynlegt til að svæðið nýtist betur. Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Iðntæknistofnun og Hitaveitu Suðumesja og er styrkt af Rannsóknaráði ríkisins. ómettuðum fitusyrum Ánnað athyglisvert verkefni, sem hér er verið að vinna að, eru rannsóknir á hollustuþætti fjölómettaðra fitusýra og hvemig auka megi styrk þeirra frá því sem er í venjulegu lýsi. Hér er um samstarf að ræða milli Lýsis h.f. og Sigmundar Guðbjamarsonar, Sjálfvirk oðferð tilað ákvarða, ofla næstu ára? Reiknifræðistofa Raunvísindastofnunar háskólans er sjálfstæð stofnun, sem tilheyrir þó háskólanum. Stofan er fyrst og fremst stofnuð til að sinna rannsóknum í hagnýtri stærðfræði, reiknifræði og tölvunarfræði. Flestir hinna u.þ.b. 10 starfsmanna eru kennarar eða sérfræðingar, en forstöðumaður er Sven Þ. Sigurðsson. Samkvæmt upplýsingum hans hefur stærsta verkefni stofunnar verið hið svokallaða sjávarútvegslíkan, en það er unnið af Þorkeli Helgasyni, forstöðumanni Raunvisindastofnunarinnar og Snjólfi Ólafssyni í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Þetta er reiknilíkan, sem lýsir áhrifum veiða á stærð fiskistofnanna í sjónum I kringum ísland og hefur verið notað sem hjálpartæki við ákvarðanir um fiskveiðistefnu, við kvótagerð og fleira slíkt. Kjartan Magnússon segir frá útreikningum í tengslum við hvalveiðirann sóknir Vaxandi þáttur í starf- semi stofunnar em ýmsar rannsóknir í tölv- unarfræði, t.d. hefur Snorri Agnarsson þróað nýstárlegt forritunarmál, Fjölni. Jóhann Malmquist er að hefja at- hugun á áhrifum tölvuvæðingar á skrifstofuhald. Oddur Benedikts- son, prófessor, hefur unnið að athugun á beitingu þekkingarkerfa á íslensk verkefni. Dæmi um slíkt er svonefndur „ útgerðarráðgj afi“, sem er tölvukerfi er á að vera um borð í fiskiskipum og á að hjálpa skipstjórum og útgerðarmönnum við tilhögun veiða. Þetta er sam- starfsverkefni við fleiri aðila og styrkt af Rannsóknasjóði. Af öðrum rannsóknaverkefnum má nefna tölfræðilega úrvinnslu á læknisfræðilegum gögnum, sem Ottó J. Bjömsson hefur unnið að í samvinnu við Hjartavemd og gerð reiknilíkana við að lýsa sjávar- straumum og mengun í sjónum í kringum Reykjavík. Að því vinnur Sven Þ. Sigurðsson í samvinnu við verkfræðistofuna Vatnaskil. Eitt rannsóknaverkefni er þó enn ótalið og tengist hvalveiðirannsókn- um, sem mikíð hefur verið rætt um í sumar. Kjartan Magnússon hefur unnið að þrenns konar verkefnum, sem tengjast hvalveiðum. í samtali við blaðamann sagði hann. „í fyrsta lagi er þama unnið að skipulagn- ingu á beinum talningum og töl- fræðilegri úrvinnslu á niðurstöðum. Þetta er unnið í samvinnu við Þor- vald Gunnlaugsson á Reiknistofnun Háskóla íslands. í öðru lagi er unn- ið að almennum athugunum á stærðfræðilíkönum til að lýsa stofn- stærð hvala, m.a. til að athuga hvort stofninn getur staðið undir veiði undanfarinna ára. Út frá aldri veiddra hvala má meta dánartíðni, sem er það hlutfall stofnsins, sem drepst árlega. Síðan má meta hvaða aukning í fæðingartíðni og lækkun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.