Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
B 19
eingöngu bundin við vettvang
stjómmála. Vissulega er stjóm-
málastarfíð í fyrirrúmi enda hefur
margur stjómmálamaðurinn stigið
sín fyrstu spor á þeim hála velli
innan veggja Háskóla íslands. Hins
vegar leggja félög þessi sitt af
mörkum til að lífga upp á félagslíf
nemenda við Háskóla Islands. Þau
gangast fyrir menningarvökum ,
fundum og umræðukvöldum um hin
ólíkustu mál og spilakvöldum svo
dæmi séu tekin. Tilgangur félag-
anna er því fyrst og fremst sá að
halda uppi umræðu um þjóðfélags-
mál meðal stúdenta, virkja þá til
þátttöku og skapa líflegri og
skemmtilegri skóla.
Deildarfélög
Innan sérhverrar deildar Háskól-
ans starfar nemendafélag. Tilgang-
ur þeirra félaga er fyrst og fremst
sá að standa vörð um hagsmuni
nemenda og vera málsvari þeirra
innan skólans sem utan. Flest
stærri félögin gefa út rit þar sem
lögð er áhersla á miðlun upplýsinga
til nemenda og fræðilegar greinar.
Þá gangast félögin fyrir vísinda-
og skemmtiferðum auk þess sem
þau standa fyrir fundum og
fræðsluerindum um efni sem fé-
lagsmönnum eru hugleikin. Að
undanfomu hafa mörg þeirra tekið
upp samband við samsvarandi stúd-
enta-félög erlendis og fer þessi
þáttur starfseminnar ört vaxandi.
Þannig gefa sálfræðinemar út rit í
samvinnu við íslenska sálfræðinema
í Svíþjóð og Danmörku og tann-
læknanemar stuðla að stúdenta-
skiptum við Norðurlönd. Orator,
félag lögfræðinema, hefur um ára-
bil átt samskipti við erlenda lög-
fræðinema. Fyrr í þessum mánuði
komu hingað laganemar fá ísrael
og verður sú heimsókn endurgoldin.
Víðtækara starfssvið
Að undanfömu hefur starfssvið
nokkurra deildarfélaga orðið
víðtækara og hafa sjónir manna
einkum beinst að ýmis konar þjón-
ustu við almenning og útgáfustarf-
semi. Fjöldi nemenda við hverja
deild er hins vegar mjög mismun-
andi og eiga fjölmennari og öflugri
deildimar því hægara um vik. Sem
dæmi má nefna að innan heimspeki-
deildar em kenndar 16 námsgreinar
en lagadeild og viðskiptafræðideild
em báðar heilar og óskiptar.
Orator, félag lögfræðinema, býð-
ur almenningi ókeypis lögfræðilega
ráðgjöf og er sú þjónusta veitt eitt
kvöld í viku. Dómsmálaráðuneytið
hefur styrkt þennan þátt í starfsemi
félagsins. Fram hafa komið hug-
myndir um að taka upp einhvers
konar samstarf við útvarpsstöðina
„Bylgjuna" og gætu hlustendur þá
fengið ráðgjöf og upplýsingar þar.
Sjónvarpið hefur að undanfömu
unnið að gerð þátta um sifjamál í
samráði við félag lögfræðinema og
verða þeir sýndir í næsta mánuði.
Þá hafa lögfræðinemar gert samn-
ing við eigendur veitingahússins
„Kreml" og annast þeir allan al-
mennan rekstur þess. Hagnaði af
þeim rekstri verður að miklu leyti
varið til bókaútgáfu, sem mun sér-
hæfa sig í útgáfu lögfræðirita fyrir
starfandi lögfræðinga og nemend-
ur.
Félag viðskiptafræðinema að-
stoðar almenning við að útfylla
skattaskýrslur. Fólk getur skráð sig
hjá félaginu og annast nemendur
skattframtöl gegn vægu gjaldi.
Ákveðið hefur verið að allur ágóði
af þessari þjónustu renni í ferðasjóð
nemenda á fjórða ári.
Félag sagnfræðinema gefur út
tímaritið „Sagnir" og hefur það
komið út árlega frá 1980. „Sagnir"
er hið veglegasta rit og er það
bæði selt í lausasölu og til áskrif-
enda.
Á undanfömum áram hafa fjöl-
mörg fyrirtæki og stofnanir fengið
sagnfræðinema til að skrá sögu
sína. Yfírleitt hefur fyrst verið leit-
að til kennara í sagnfræði og hafa
þeir síðan komið verkefnunum
áleiðis til nemenda. Þá hafa sagn-
fræðinemar annast þáttagerð fyrir
Ríkisútvarpið.
NYLEIÐ FYRIR SPARIFJAREIGETiDUR
FÖST LAUNAF
TEKJUBRÉFUM
Nýja Tekjubréfið hjá Fjárfestingar-
félaginu opnar jpér hagstæða
möguleika. Nú skapar þú þér
ársfjórðungslegartekjurafverðbréfa- sinnum á ári.
Tekjubréfin eru að nafhvirði kr.
100.000 og500.000. Arður, umfram
verðtryggingu, ergreiddur ú t fjórum
eigninni án þess að ganga á
höfuðstólinn
Með nýju Tekjubréfunum ertu
kominn á föst laun hjá sjálfum þér.
Leitaðu nánari upplýsinga.
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík ^ (91) 28566 __________________
___________h___:_______ílll__s_______