Morgunblaðið - 15.10.1986, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
ARMANN
Liðið vantar
stöðug-
leika
- segir Hilmar Björnsson þjálfari
e Atli Geir Jóhannesson 0 Hans Sveinjónsson # Friörik Jóhannesson
%> Gunnar Gufijónsson
„ÞAÐ ER alveg Ijóst að
þetta verður erfiður vetur
hjá okkur. Liðið vantar meiri
stöðugleika og strákarnir
hafa verið dálítið sveiflu-
kenndir það sem af er
vetri,“ sagði Hilmar Björns-
son þjálfari Ármenninga er
við ræddum við hann ný-
lega.
„Við tökum hvern leik fyrir
sig í deildinni í vetur og reynum
Meiri
hraði í
1 -deild
-segir Óskar
Ásmundsson
fyrirliði
„ÞETTA er í fyrsta sinn í
Íangan tíma sem við Ármenn-
ingar erum i 1. deildinni og
fæstir okkar hafa leikið þar
áður þannig að það þarf
ákveðna hugarfarsbreytingu
hjá okkur í vetur," sagði
Óskar Ásmundsson fyrirliði
Ármanns í spjalli við Morg-
unblaðið.
„Það er mun meiri hraði í 1.
deildinni en í öðrum deildum
og þar sem fáir í okkar liði hafa
leikið þar þá þarf að skipta um
gír og það hefur gengið erfið-
lega það sem af er vetri en ég
á von á því að okkur takist að
komast í efsta gírinn fljótlega.
Markmið okkar er að taka
einn leik fyrir í einu og gera
okkar besta í hverjum leik.
Hvort það dugir til að halda
okkur í deildinni, eða eitthvað
meira, verður að koma í Ijós í
mótslok.
Ég held að deildin eigi eftir
að verða mun jafnari og
skemmtilegri en hún hefur verið
lengi þó svo hún sé ef til vill
ekki eins góð. Það vantar svo
marga stráka sem eru farnir í
atvinnumennskuna og það set-
ur svip sinn á þetta.
Allir geta unnið alla í vetur,
held ég, og það er ekkert ör-
uggt í þessu núna. Stjarnan
stendur vel að vígi því strákarn-
ir þar hafa leikið einna lengst
saman og það er það sem gild-
ir, en þeir eru ekki ósigrandi
frekar en önnur lið. Urslitin
munu líklega ráðast á dags-
formi liðanna því það er mikil-
vaegt að vera vel upplagður fyrir
hvern leik og þeir sem ná að
einbeita sér að því munu vinna
en ég treysti mér ekki til að spá
um hvaða lið það verður," sagði
fyrirliði Ármenninga.
að fá eins mörg stig út úr hverj-
um leik og hægt er.
„Deildarkeppnin ætti að
geta orðið nokkuð skemmtileg
— og þá er ég ekki að segja
að hún sé góð — því öll liðin
geta unnið hvert annað. Flest
eru dálítið brothætt þannig að
enginn leikur er unninn fyrir-
fram.
Ég held að það hafi ekkert
lið það mikinn stöðugleika að
það geti verið öruggt með að
vinna deildina í vetur. Það eru
þetta 4—5 lið sem berjast í
efri helmingnum og restin ætti
að berjast um botninn," sagði
Hilmar þegar hann var spurður
um hvernig honum litist á
deildarkeppnina í handknatt-
leik.
Þess má geta að Hilmar er
nú að þjálfa Ármenninga í
fyrsta skipti og ef svo fer fram
sem horfir þá á hann erfitt
verkefni fyrir höndum ef liðið
ætlar að halda sér í deildinni
en það er jú markmið allra fé-
laga.
• Guömundur Frífiríksson • Óttó Eiríksson
Einar Ólafsson
# Bragi Sigurðsson
fi /A
# Björgvin Bardai
k'. wi
# Kristján G. Kristjánsson # óskar Ásmundsson
# Þráinn Ásmundsson
Ármann Aldur Hœfi Þyngd Fyrri liA Mfl. leikir Lands- leikir A/ungl. Staða á leikvelli Atvinna
Guðmundur Friðriksson 25 1,93 92 kg 58 markmaður nemi
Einar Naabye 21 1,93 82 kg 91 0/2 útispilari viðskiptafræðin.
EinarÓlafsson 23 1,82 72 kg ÍR 1 homamaður verslunarstjóri
Atli Geir Jóhannesson 25 1,82 81 kg 109 útispilari viðskiptafr.
Bragi Sigurðsson 25 1,88 81 kg 96 2/4 útispilari læknanemi
Friðrik Jóhannesson 29 1,88 85 kg 140 útispilari viðskiptafr.
Hans Sveinjónsson 22 1,80 80 kg 70 homamaður trésmiður
Björgvin Barðdal 18 1,80 84 kg 18 línumaður nemi
Þráinn Ásmundsson 27 1,80 70 kg 167 homamaður rekstrartæknifr.
Óskar Ásmundsson 27 1,80 84 kg 151 útispilari skrifstofumaður
HaukurHaraldsson 27 1,80 75 kg 137 útispilari trésmiður
Hans Þorsteinsson 20 1,80 80 kg 23 markmaður . trésmiður
Theodór Jóhannesson 1,86 79 kg 38 markmaður nemi
Gunnar Guðjónsson 18 1,96 95 kg 5 útispilari nemi
Ottó Eiríksson 19 1,89 95 kg Þróttur 1 útispilari nemi
Kristján Gaukur Kristjánsson 18 1,82 81 5 homamaður nemi