Morgunblaðið - 15.10.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
B 3
BREIÐABLIK
Hrafnkell Halldórsson 9 Þórður Daviðsson
9 Paul Dempsey
Ólafur Ingimundarson
9 Oddur Ingi Ingason
Svavar Magnússon
9 Sigþór Jóhannsson
9 Aöalsteinn Jónsson
■xCSa*, *
Mi
# Magnús Magnússon # Þórir Siggeirsson
# Jón Þórir Jónsson
# Guöm. Hrafnskelsson
# Kristján Halldórsson # Bjöm Jónsson
Barátta
upp á líf
og dauda
- segir Geir Hallsteinsson þjálfari
„HJÁ Breiðablik verður
þetta barátta upp á líf og
dauða. Liðið er líkamlega
100% tilbúið f slaginn, en
spurningin er um andlegu
hliðina" sagði Geir Hall-
steinsson, þjálfari UBK, en
liðið leikur nú í 1. sinn í 1.
deild.
„Styrkur liðsins fellst í því,
að strákarnir hafa leikið saman
í gegnum yngri flokkana og
þekkjast vel. Auk þess tel ég,
að heimavöllurinn hafi mikið
að segja og þar getum við
unnið hvaða lið sem er á góð-
um degi, en að öðru leyti er
liðið óskrifað blað. Höfðuand-
stæðingarnir verðum við sjálf-
ir, en ef strákarnir trúa því að
þeir geti unnið, þá næst betri
árangur. Við tökum hvern leik
fyrir í einu og takmarkið er að
ná góðu sæti í lokin.
Varðandi deildina, þá verður
þetta enn einn óhappavetur-
inn. Landsliðið þarf sinn tíma,
en það er ófært að slíta 1.
deildina svona mikið í sundur.
Þetta kemur niður á öllum lið-
um, en landsliðsreynsla skilar
Breiðablik Aldur Hœð Þyngd Fyrri lið Mfl. leikir Lands- leikir A/ungl. Staðaá leikvelli Atvinna
Kristján Halldórsson 27 1,83 80 kg 250 línumaður íþróttakennari
Elvar Erlingsson 21 1,77 76 kg HK 15 útispilari nemi
Paul Dempsey 22 1,82 85 kg 18 0/28 homamaður verkamaður
Guðmundur Hrafnkelsson 21 1,90 90 kg Fylkir 54 5/14 markvörður nemi
Hrafnkell Halldórsson 17 1,86 76 kg 4 línumaður nemi
Þórir Siggeirsson 20 1,91 89 kg 47 markvörður nemi
Magnús Magnússon 23 1,87 94 kg Stjaman 83 útispilari sölumaður
BjömJónsson 25 1,94 93 kg 178 útispilari sölumaður
SigþórJóhannsson 23 1,90 85 kg FH 14 línumaður bakari
Oddurlngilngason 23 1,82 76 kg Stjarnan 15 homamaður verzlunarmaður
Aðalsteinn Jónsson 23 1,93 93 kg 154 útispilari íþróttakennari
Svavar Magnússon 23 1,92 90 kg Grótta 38 útispilari sölumaður
Ólafur Ingimundarson 36 1,82 89 kg Bolungarvík 38 markvörður verkstjóri
Þórður Davíðsson 24 1,82 72 kg 138 homamaður sölumaður
Jón ÞórirJónsson 20 1,73 68 kg 54 0/6 homamaður símamaður
Ragnar Sverrisson 27 1,73 74 63 línumaður matsveinn
sér alltaf í félögunum. Ég held
að slagurinn um fyrsta sætið
standi á milli Vals, KR, Stjörn-
unnar, FH og Víkings, en
baráttan verður mikil bæði á
toppi sem botni.“
Bjart-
sýnir
- segir Björn
Jónsson fyrirliði
„VIÐ ERUM voða bjartsýnir í
Breiðabliki,11 sagði Björn
Jónsson fyrirliði þeirra Kópa-
vogsmanna er við spurðum
hann hvernig þeim litist á að
leika í 1. deildinni í hand-
knattleik.
„Við vorum ákveðnir í að
standa okkur vel strax í upp-
hafi og höfum undirbúið okkur
mjög vel og ég hef þá trú að
við getum gert góða hluti í vet-
ur þó svo við séum ekki með
neinar stórkostlegar grillur. Við
verðum vel fyrir ofan miðju í
vetur.
Annars held ég að þetta sé
fyrst og fremst spurning um
hugarfar og trú á okkur sjálfa
en ef allt gengur vel, eins og
fyrsti leikurinn gerði, þá ættum
við að geta gert góða hluti í
vetur.
Mér Ifst vel á deildina sem
slíka. Liðin virðast vera jafnari
en oft áður og þessi stóru lið
sem voru ósigrandi fyrir nokkr-
um árum virðast ekki vera neitt
sterkari en önnur lið núna.
Sama má segja um þau lið sem
menn voru að spá fyrir í deild-
inni. Sigur í deildinni gæti ráðist
af meiðslum og öðrum utanað-
komandi þáttum því flest liðin
eru byggð mikið kringum ein-
staklinga og ef þeir detta út
hrinur allt hjá þeim.
Mér finnst jákvætt að fjölgað
var í deildinni. Það eykur
breiddina í handknattleiknum
og það er af hinu góða. Við
vorum til dæmis stundum að
leika við lið sem voru mikið slak-
ari en við þegar við lékum í 2.
deildinni og mér fannst satt að
segja. bilið vera of mikið í 2.
deildinni og því var þessi breyt-
ing til hins betra," sagði fyrirliði