Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
Kynslóða-
skipti í hand-
boltanum
- segir Ólafur Jónsson þjálfari
„ÞETTA keppnistímabil
leggst svona þolanlega í
mig. Deildin verður mjög
jöfn í vetur og vonandi um
leið skemmtileg," sagði Ól-
afur Jónsson þjálfari KR-
inga f handknattleik er hann
var spurður álits á hand-
knattleiknum í vetur.
„Ég held að jafnframt því
að deildin verði skemmtileg og
spennandi þá verði hún líka
betri en reiknað hafði verið
með. Mér finnst fyrstu leikirnir
benda til þess, þeir hafa verið
opnir og hraðir, og ég tel að
handknattleikurinn verði betri
• Guðmundur Albertsson
Páll Ólafsson
• Konráð Ólafsson
• Þorstelnn Guðjónsson
Þetta
verður
jafnara
núna
- segir Friðrik
Þorbjörnsson
fyrirliði
„ÞETTA leggst bara þokka-
lega í mig. Það þarf að vísu
að ná liðinu betur saman
hjá okkur en ég hef trú á
að það takist," sagði Friðrik
Þorbjörnsson, fyrirliði KR-
inga, f handknattleik er við
ræddum við hann fyrir
skömmu um deildina f vet-
ur.
„Liðið hjá okkur KR-ingum
samanstendur af „gömlum ref-
um“ og ungum strákum auk
þess sem það eru 2—3 leik-
menn sem eru nýir og koma
frá öðrum félögum. Þetta þarf
allt saman að stilla saman til
þess að þetta gangi upp.
Markmiðið hjá okkur er að
verða um miðja deild í ár. Ég
held að það só raunsætt mark-
mið við þennan mannskap á
fyrsta ári. Það þarf að slípa lið-
ið það mikið að við gerum
okkur ekki vonir um að vera
mikið hærra.
Deildin sem slfk leggst
ágætlega í mig. Hún á trúlega
eftir að verða mjög spennandi
og það hefur sýnt sig að allt
getur gerst í vetur. Þetta verð-
ur mun jafnara núna en
undanfarin ár og því trúlega
skemmtilegra fyrir áhorfendur.
Handboltinn er samt í lægð
hér á landi, getulega séð, það
er mikið af ungum og efnileg-
um strákum sem eru að koma
inn í þetta núna og það tekur
ein 2—3 ár að koma þeim á
toppinn og þá verður hand-
knattleikurinn betri, en hann
er í smá lægð núna,“ sagði
er líður á veturinn því liðin eru
að þreifa fyrir sér ennþá.
Þaö má segja að það hafi
orðið kynslóðaskipti í hand-
knattleiknum núna. Það er
mikið af ungum strákum sem
eru að koma inn í þetta núna
og þeir þurfa aðlögunartíma til
að venjast þessu. Einnig eru
nokkur ný lið komin inn í þetta
og ég held að þetta sé allt af
hinu góða. Ég var fylgjandi því
að fjölga í deildinni og ég tel
að það hafi verið góð ákvörð-
un. Við fáum meira af fram-
bærilegum spilurum í 10 liða
deild en í 8 svo ég tala nú
ekki um ef aðeins sex lið væru
í deildinni.
Markmiðið hjá okkur KR-
ingum liggur í sjálfu sér ekki á
lausu en ætli það sé ekki raun-
hæft að ætla sér að vera um
miðja deild, hvað svo sem
verður þegar flautað verður til
leiksloka í vor. Við erum með
nýtt og ungt lið sem þarf
ákveðin tíma til að aðlagast
og eftir svona 2-3 ár verður
þetta topplið, ef mannskapur-
inn verður áfram," sagði Ólafur
Jónsson.
0 Guðmundur Páisson
Leifur Dagfinsson
Hanö Guömundsson # Sverrir Sverrisson
... mm.
Gísli Felix Bjarnason
Friörik Þorbjörnsson
Jóhannes Stefánsson
Lárus Lárusson
# Gunnar Gíslason
# Þoriákur Arnarson
# Ólafur Lárusson
# Páll Björnsson
KR Aldur Hæð Þyngd Fyrri lið Mfl. lelkir Lands- leikir A/ungl. Staða á leikvelli Atvinna
Gísli Felix Bjamason 24 1,86 94 kg KR,Ribe 170 12/13 markvörður verzlunarmaður
Leifur Dagfínnsson 18 1,83 70 kg markvörður nemi
ÞorlákurAmarson 17 1,82 70 kg markvörður nemi
Jóhannes Stefánsson 30 1,85 88 kg 307 33/7 línumaður veitingamaður
Friðrik Þorbjömsson 28 1,88 80 kg 381 7/9 homamaður skrifstofumaður
HansGuðmundsson 25 1,93 90 kg FH/Maritime 28/5 útispilari lögregluþjónn
SverrirSverrisson 25 1,79 76 kg Týr/Þróttur/Grótta útispilari bifreiðastj.
Guðmundur Pálmason 18 1,86 78 kg 0/4 útispilari nemi
KonráðÓlafsson 18 1,85 76 kg 24 0/4 homamaður nemi
Páll Ólafsson 18 1,93 88 kg 26 0/2 útispilari nemi
Guðmundur Albertsson 23 1,81 78 kg Víkingur/Guif 170 9/4 homamaður verzlunarm.
Þorsteinn Guðjónsson 17 1,83 75 kg 0/4 útispilari nemi
Lárus Lárusson 25 1,82 80 kg Þróttur 12 homamaður sölumaður
ÓlafurLárusson 28 1,86 90 kg 234 útispilari kennari
Páll Bjömsson 23 1,85 93 kg ÍR 14 línumaður nemi
GunnarGíslason 17 1,93 82 útispilari nemi