Morgunblaðið - 15.10.1986, Page 10
10 " B
MORGUNBLAÐE), MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
VALUR
Er með
samstillt-
an hóp
-segirJón PéturJónsson þjálfari
„VIÐ setjum stefnuna á 1.
sætið. Valur hefur verið í
öðru til fjórða sæti undan-
farin ár, en ég verð ekki
ánægður, nema við verðum
meistarar og ég er tilbúinn
til að standa og falla með
því,“ sagði Jón Pétur Jóns-
son, þjálfari Vals, en hann
þjálfar nú meistaraflokk í
fyrsta skipti.
„Ég er með góðan og jafnan
kjarna, samstilltan hóp, sem
sættir sig ekki við neina meðal-
mennsku. í liðinu eru fjórir
landsliðsmenn, en keppnin
verður svo sundurslitin vegna
landsliðsins, þetta eru fjórar
tarnir, og það verður erfitt að
þurfa sífellt að byrja upp á nýtt.
Annars eru liðin mikið jafn-
ari í ár en í fyrra og þess vegna
geta allir unnið alla á góðum
Eg er
bjart-
sýnn
-segir Geir
Sveinsson
fyrirliði
„EF allir gera sitt besta allt
tfmabilið ættum við Vals-
menn að geta gert góða
hluti og ég er bjartsýnn fyr-
ir okkar hönd" sagði Geir
Sveinsson, fyrirliði
Reykjavíkurmeistara Vals.
„Það sem ég óttast mest,
er að hópurinn tvístrast, þegar
hlé verður í deildinni vegna
landsleikja, því eins og er, er-
um við fjórir Valsmenn í
landsliðshópnum. Álagið verð-
ur mikið og hætt er við leiða,
en vonandi náum við að halda
okkur við efnið.
Úrslitakeppnin undanfarin
ár hafði sína kosti og galla, en
nú hefur verið fjölgað í deild-
inni og vonandi verður það til
þess að breyddin verði meiri á
næstu árum, en ég held að
keppnin í vetur verði jafnari en
undanfarin ár. Samt hef ég trú
á að fimm lið berjist um titil-
inn, Stjarnan, FH, Víkingur, KR
og Valur. KA er alltaf sterkt á
heimavelli, en Ármann og
Haukar eru óskrifað blað.
Við stefnum að sjálfsögðu á
efsta sætið og Reykjavíkur-
meistaratitillinn gefur okkur
byr undir báða vængi, en úr-
slit íslandsmótsins ráðast ekki
fyrr en í apríl og því er of
snemmt að spá um endanlega
röð liðanna."
degi. Hins vegar tel ég að Val-
ur, Stjarnan og FH berjist um
íslandsmeistaratitilinn, en
Víkingur og KR eru afskaplega
mikil spurningarmerki. Þetta
verður fyrst og fremst spurn-
ing um breydd og áhuga.
Annars virðast öll liðin koma
vel undirbúin til mótsins og því
ætti keppnin að geta orðið
skemmtileg fyrir áhorfendur.
• Bergur Þorgeirsson • Guðm. Guðmundsson
Valdimar Grimsson 0 Júlíus Jónasson
0 Þórður Sigurðsson
Sigurður Sævarsson
# Elías Haraldsson
Geir Sveinsson
Theodór Guöfinnsson
>>
• Þorbjörn Guömundsson
0 Jakob Sigurðsson 0 Stefán Halldórsson
0 Gfsli Óskarsson
PálmiJónsson
Valur Aldur Hæð Þyngd Fyrri lið Mfl. leikir Lands- leikir A/ungl. Staða á leikvelli Atvinna
Elías Haraldsson 21 1,93 84 kg 130 0/7 markmaður deildarstjóri
Guðmundur S. Guðmundsson 18 1,91 86 kg 37 0/3 útimaður nemi
Gísli Óskarsson 25 1,80 79 kg Þróttur 0 homamaður verslunarmaður
Theodór Guðfínnsson 28 1,85 85 kg Fram/Breiðablik 137 5/8 útimaður tæknifr.
ValdimarGrímsson 21 1,80 80 kg 124 27/13 homamaður nemi
GeirSveinsson 22 1,93 90 kg 174 43/30 línumaður verslunarmaður
Sigurður Sævarsson 20 1,88 78 kg Selfoss 0 homamaður nemi
JúlíusJónasson 22 1,94 90 kg 161 29/25 útimaður málari
PálmiJónsson 27 1,80 78 kg FH 0 2/0 homamaður
Jakob Sigurðsson 22 1,82 80 kg 180 77/28 homamaður nemi
StefánHalldórsson 28 1,83 90 kg HK/KR/Týr 91 56/16 útimaður slökkviliðsmaður
BergurÞorgeirsson 28 1,79 79 kg Grótta 0 markmaður nemi
Þorbjöm Guðmundsson 32 1,97 97 kg 446 68/8 línumaður verslunarmaður
Þórður Sigurðsson 20 1,88 78 kg 70 0/3 útimaður nemi
SigurðurSigþórsson 21 1,75 76 kg 4 homamaður nemi
Páll Guðnason 18 1,96 90 - 22 markmaður nemi