Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 9
Sjá, konungnr þinn
kemur til þín!
eftir Óskar Jónsson
Segið dótturinni Síon:
Sjá, konungur þinn kemur til þín,
hógvær er hann og ríður asna,
fola undan áburðaigrip.
Lærisveinarnir fóru og gjörðu
sem Jesús hafði boðið þeim, komu
með ösnuna og folann og lögðu á
þau klæði sín, en hann steig á
bak. Pjöldamargir breiddu klæði
sín á veginn, en aðrir hjuggu lim
af ttjánum og stráðu á veginn.
Og múgur sá, sem á undan fór
og eftir fylgdi, hrópaði: „Hósanna
syni Davíðs! Blessaður sé sá sem
kemur í nafni Drottins! Hósanna
í hæstum hæðum!“
Sjá, konungur þinn kemur til
þín!
Það er konungurinn Kristur
sem heldur innreið sína í Jerúsal-
em. Honum fylgir fjölmennt
föruneyti sem hyllir hann sem
konunginn af ætt Davíðs.
Þeir sungu söng svipaðan söng
englanna yfir Betlehemsvöllum.
„Blessaður sé sá sem kemur, kon-
ungurinn, í nafni Drottins. Friður
á himni og dýrð í upphæðum."
Lúk. 19,38.
Nokkrir farisear í mannfjöldan-
um sögðu við hann: „Meistari,
hasta þú á jærisveina þína.“ Hann
svaraði: „Ég segi yður, ef þeir
þegja, munu steinamir hrópa."
I þetta sinn var hann miðdepill
tilbeiðslu og var vinsæll sigurveg-
ari. Þetta var eina virkilega
sigurgangan sem Jesús stjórnaði.
Margir þeirra sem lofuðu Guð og
hylltu Jesúm hafði Jesús frelsað
og læknað. Margir höfðu einnig
verið nærstaddir þegar Jesús
vakti Lasarus upp frá dauðum og
fregnin um það hafði borist víða.
Vegna þess kom mannfjöldinn úr
öllum áttum og tók þátt í lófa-
klappinu, sveifluðu pálmagreinum
og sungu: „Blessaður sé sá sem
kemur í nafni Drottins, Hósanna
í hæstum hæðurn."
Því sögðu fariseamir sín á
milli: „Þér sjáið, að þér ráðið ekki
við neitt. Allur heimurinn eltir
hann.“ Jóh. 12,19.
Sjá, Síon, þinn konungur kemur,
sem konungi tak Honum mót.
Skrýð veginn Hans pálmum og pelli,
Hann prísa af hjarta þíns rót.
Þann fögnuð finn,
sem flytur þér Drottin vor Guð.
Þann fögnuð finn,
sem færir sönn þjónslund við Guð.
Hann kemur frá sælunnar sölum,
frá sólbjartri auðlegð og dýrð,
og fus tekur fátækra kjörum, —
sú fóm verður aldregi skýrð.
Hann kemur til harmþrungins hjarta.
Ó, hverf að Hans fótskör og bið.
Þíns hjarta og heimilis vinur
vill hefja til veldis sinn frið.
(Erik Nyström)
Hann kom til að eyða vonleys-
inu. Þegar allt var niðamyrkur
kveikti hann Ijós vonarinnar.
J ■
% 1 &■' * Æ
Þegar þeir nálguÖust Jerúsalem og
komu til Betfage viÖ OlíufjalliÖ, sendi
Jesús tvo lœrisveina ogsagÖi viÖ þá:
„FariÖ í þorpiÖ hérframundan ykkur,
ogjafnskjótt munuÖ þiÖ finna ösnu
bundna ogfola hjá henni. LeysiÖ þau
ogfœrið mér. Efeinhver hefur orð um,
þá svariÖ: „Herrann þarfþeirra viÖ, “
og mun hann jafnskjótt senda þau.
Þetta varÖ, svo aÖ rœttist þaÖ, sem
sagt er fyrir munn spámannsins:
Hann kom til að beina fótum okk-
ar á friðarveg.
Konungurinn kemur til þín, sem
hefur þungar byrðar að bera.
Hann vill létta af þér byrðunum.
Hann kemur til þín sem frelsari
og segir dásamlegu orðin sem eru
svo þýðingarmikil: „Syndir þínar
eru þér fyrirgefnar."
Þegar Dwight Eisenhower, for-
seti Bandaríkjanna, sem áður var
yfírhershöfðingi Bandaríkjahers,
lá banaleguna var hinn heims-
þekkti vakningarpredikari Billy
Graham beðinn um að koma til
hans á Walter Reed-sjúkrahúsið
í Washington. Billy Graham sagði
eftir heimsóknina: „Þegar ég kom
inn í sjúkrastofuna mætti hann
mér með sínu þekkta brosi. Hann
vissi að hann átti aðeins stutt ólif-
að. Þegar heimsóknartíminn var
liðinn bað hann mig að stansa
augnablik lengur og spurði með
veikri rödd: „Billy, segðu mér einu
sinni enn hvemig ég geti verið
viss um að syndir mínar séu mér
fyrirgefnar og að ég komist til
himins, því nú er það ekkert ann-
að sem heldur huga mínum
föstum." Ég las úr Biblíunni nokk-
ur vers, og lagði áherslu á að við
kæmum ekki til himins vegna
góðverka eða gjafa til Guðs mál-
efnis. Við komum til himnaríkis
aðeins fyrir friðþægingarverk
Krists á krossinum. Þess vegna
getur líka „Ike“ hvílst í trausti
þess að Kristur hafi unnið verkið.
Eftir að við höfðum beðið bæn,
sagði hann: „Þökk fyrir! Ég er
reiðubúinn."
Konungur lífsins kemur hér til sala,
Kveður til fylgdar bömin jarðardala,
Undan þeim fer hann, friðarmerkið ber
hann,
Frelsari er hann.
Styrki þig Guð að velja veginn rétta,
viskan og náðin sveig úr rósum flétta,
Undan þér fer hann, friðarmerkið ber
hann,
Frelsari er hann.
Friðrik Friðriksson
_ FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
VERDBREFAMARKAÐURINN
Genqiáidaq 38. NÓVEMBER 1986 Markaósfrettir
Veðskuldabréf - verðtryggð
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst. 2afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu
12% 14% 16%
1 ár 4% 95 93 92
2ár 4% 91 90 88
3 ár 5% 90 87 85
4ár 5% 88 84 82
5ár 5% 85 82 78
6ár 5% 83 79 76
7 ár 5% 81 77 73
8ár 5% 79 75 71
9ár 5% 78 73 68
10ár 5% 76 71 66
Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
20% HLV 15%
1 ár 89 84 85
2ár 81 72 76
3 ár 74 63 68
4ár 67 56 61
5ár 62 50 56
KJARABRÉF
Gengi pr. 28/11 1986 = 1,788
Nafnverö
Söluverð
5.000 8.940
50.000 89.400
Tekjubréf:
Hiutabréf:
TEKJUBRÉF
Gengl pr. 28/11 1986 = 1,080
Nafnverð
Söluverð
100.000
500.000
108.000
540.000
Þú ert á föstum launum hjá sjálfum þér
ef þú átt Tekjubréf. _____
Kaupirðu hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum hf.
getur þú fengið skattaafslátt á næsta ári.
Upplýsingabæklingar um Tekjusjóðinn hf. og Hlutabréfasjóðinn hf.
fást hjá okkur.
Hringið í síma 28566 og við sendum þér bæklinga strax.
fjármál þín - sérgrein okkar
í
O
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn