Morgunblaðið - 19.12.1986, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986
DEATH „
. SOLDIER
Myndb&nd
Sæbjörn Valdimarsson
Death of a Soldier ☆ ☆ V2
Leikstjóri Philippe Mora.
- Handrit William Nagle. Tónlist
Allan Zavod. Kvikmyndataka
Lois Irving. Aðalleikendur Ja-
mes Coburn, Reb Brown,
Maurie Fields, Max Fairchild,
Belinda Davey. Ástralía 1986.
Enn eru Ástralir á ferð með
sterka og eftirtektarverða
mynd sem gerist á tímum seinna
heimsstríðs. Death of a Soldier
fer byggð á sönnum atburðum sem
áttu sér stað eftir að Bandaríkja-
stjórn sendi 60 þúsund hermenn
til Ástralíu til hjálpar þarlendum
herjum sem stóðu í ströngu gagn-
vart japönsku stríðsvélinni. Var
þeim vel tekið í fyrstu, einkum af
kvenþjóðinni, en vinsældirnar
dvínuðu er í Ijós kom að í herafla
Bandaríkjamanna leyndist morð-
óður geðsjúklingur.
Þessi ólánsmaður, (Reb Brown),
náðist eftir að hafa kyrkt þriðja
fórnarlamb sitt, öll voru þau ungar
stúlkur. Nú var samkomulagið á
milli Bandaríkjamanna og Ástrala
komið á suðumark. McArthur
hershöfðingi, hálfguð í augum
manna sinna og fleiri, krafðist þess
skilyrðislaust að Brown yrði
hengdur í hæsta gálga til að friða
heimamenn. Coburn var fenginn
til varnar og gerði allt sem í hans
valdi stóð til að losa hinn geðtrufl-
aða skjólstæðing sinn undan
dauðarefsingunni. Jafnvel
áströlsku lögreglumennirnir komu
honum til hjálpar með því að benda
verjandanum á hliðstætt mál þar
sem sakborningurinn var dæmdur
til hælisvistar sökum geðbilunar-
innar.
Svo fór sem fór, Brown var fórn-
að til að minnka áhyggjur her-
stjórnarinnar af ólgunni í landinu.
Og sambúðarvandamálin löguð-
ust. En Brown var hengdur og var
reyndar fyrsti Bandaríkjamaðurinn
sem tekinn var af lífi í seinna stríði
af eigin mönnum. Þetta er enn
átakanlegra því engum duldist að
maðurinn var alvarlega truflaður,
drap m.a. vegna þess að hann vildi
eignast raddir stúlknanna! Enda
var svo búið um hnútana í stríðslok
að slíkur atburður gæti ekki endur-
tekið sig.
Death of a Soldier er í flesta
staði vönduð mynd og raunveru-
leg, þar sem langhæst ber
skínandi góður leikur Reb Brown
í hlutverki morðingjans geðbilaða
frá Brooklyn.
ALIEN ☆ ☆ ☆
Leikstjóri: Ridley Scott. Hand-
rit: Dan O'Bannon. Tónlist:
Jerry Goldsmith. Kvikmynda-
taka: Derek Vanlynt, Denis
Ayling. Aðalleikmyndahönnuð-
ur: H.R. Giger. Aðalleikendur:
Sigourney Weaver, John Hurt,
Yaphet Kotto, Veronica Cart-
wright, lan Holm, Harry Dean
Stanton. UK/USA 1979, 118
mín.
að er sjálfsagt vel til fundið
að gefa út þessa ágætu
hryllings-vísindaskáldsögu-
mynd núna, í kjölfar vinsælda
framhalds hennar, sem þykir
skara framúr forvera sínum að
mörgu leyti.
Hvað sem því líður er Alien
ein af minnisstæðari hrollvekj-
um síðari ára og jafnan góður
valkostur á myndbandaleigum.
Myndin á að gerast í náinni
framtíð. Stórt flutningageim-
skip, hlaðið eftirsóttum góð-
málmum, er á leið aftur til jarðar
þegar áhöfnin er vakin af löng-
um svefni, neyðarkall berst frá
lítt kunnri plánetu í nánd við
stefnu skipsins. Geimfararnir
finna þar ekkert annað en löngu
yfirgefið geimfar og ókennilega
lífveru sem ræðst á einn þeirra.
En á áframhaldandi leið skips-
ins til jarðar kemur í Ijós að
illvætti hefur búið um sig í
manninum sem varð fyrir árás-
inni. Er það hið óhugnanlegasta
fyrirbrigði sem verður æ ófrýni-
legra og nærist á áhöfninni uns
enginn er eftir utan Sigourney
Weaver sem kemur því fyrir
með klækjabrögðum í mynda-
lok.
Alien hefur margt til síns
ágætis. Efnisþráðurinn er eink-
ar spennandi þar sem áhöfnin
fær ekki drepið þennan illvíga
farþega sem sporðrennir þeim,
einum á fætur öðrum með hjálp
þess hroðalegasta kjafts sem
um getur í kvikmyndasögunni!
Þetta skrímsli þótti sannkölluð
listasmíð er myndin var frum-
sýnd '79, og hefur staðist
tímans tönn með láð. Að venju
er tónlist Goldsmiths fjarska
gott innlegg en það sem er
tvímælalaust minnisstæðast er
hin drungalega og ójarðneska
leikmynd sem framar öðru gerir
Alien svo frumlega og ólíka
öðrum s/f myndum.
Leikhópurinn er vel valinn,
góðar „týpur“ beggja vegna
Atlantshafsins. Þessi misliti
hópur eykur áhrif myndarinnar.
Hvort sem þið hafið séð ágætt
framhald Alien eða ekki, þá
stendur þessi magnaða mynd
vel fyrir sínu, jafnt nú sem fyrir
sjö árum síðan.
MYNDBAND
-VIKUNNAR-
KIDS DON’T TELL
Kids Don’t Tell ☆ ☆V2
Leikstjóri Sam O’Steen. Tón-
list Fred Karlin. Framleiðendur
Boen Christiansen, Rick Rosen-
berg. Leikendur Michael Ontke-
an, Jobeth Williams, Leo Rossi.
Bandarfsk. Viacom 1985. 95
mín.
Leikstjórinn Sam O’Steen, sá
afbragðsklippari, hefur í
seinni tíð snúið sér æ meir að
leikstjórn vandaðra sjónvarps-
kvikmynda, og mun Kids Don’t
Tell sú nýjasta. Hér er fjallað um
mesta taboo allra tíma; ofbeldi
og kynferðisafbrot gagnvart
börnum.
Kvimyndagerðarmaðurinn
Michale Ontkean fær það verk-
efni að gera heimildarmynd um
barnaofbeldi og nýtur aðstoðar
sjálfræðinga, félagsráðgjafa og
lögreglu. Þetta hefur slæm áhrif
á hann sjálfan og fjölskyldu hans,
einkum fær hið nýja verkefni á
taugar eiginkonunnar.
Kids Don’t Tell er gerð í heim-
ildamyndarstil, við sjáum atburð-
arásina einkum í gegnum
kvikmyndatökuvél Ontkeans og á
heimili hans. Hið viðkvæma um-
fjöllunarefni fær hér sannarlega
opnari og hreinskilnari umræðu
en áður í kvikmynd, þó svo að
manni finnist talsvert vanti uppá
■
Úr með fugli, sem stekkur upp á 15 mínútna fresti og segir kú kú.
Þægilegur vinnufatnaður fyrir
verkamenn
Barnavagn handa bændakonum fyrir ungviði þeirra ...
Tannbursti (hraðbursti), fyrir
báða kjálka f einu.
Can can stóllinn
B