Morgunblaðið - 19.12.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986
B 15
Skólakórar Garðabæjar
halda tónleika þriðja í jólum
Skólakórar Garðabæjar halda tónleika í Háteigskirkju
laugardaginn 27 desember. Stjórnandi er Guðfinna
D. Olafsdóttir.
Bústofn, Smiðjuvegi 6,
Kópavogi:
Jóhanna Wathne
sýnir
Um þessar mundir sýnir Jóhanna
Wathne málverk sín í Bústofni,
Kópavogi. Sýningin er opin á opnun-
artíma verslunarinnar.
þegar komið í hóp allra vinsælustu
leikrita LR frá upphafi.
Jólasýningin á Veginum til Mekka
verður sunnudaginn 28. desember
kl. 20:30. Sýning LR á Veginum til
Mekka er mjög falleg og sterk; til-
finningaátök eru þar mikil, trúmá-
laumræða í brennidepli - frelsi og
sjálfstæðisþörf einstaklingsins kruf-
in til mergjar: Viðeigandi jólasýning.
Vegurinn til Mekka hefur fengið
góðar undirtektir og Sigríður Hag-
alín einróma lof fyrir hrífandi túlkun
sína á listkonunni Helen.
En leikhúsunnendureiga einnig
góðs að vænta eftir áramót. Leik-
félag Reykjavíkurverður90 ára 11.
janúar 1987 og verður ýmislegt
gert í tilefni afmælisins. Meðal ann-
ars verður á afmælisdeginum
frumsýnt í Iðnó nýtt íslenskt leikrit
eftir Birgi Sigurðsson, Dagurvonar.
Leikstjóri erStefári Baldursson. leik-
mynd og búninga hannar Þórunn
S. Þorgrímsdóttir, tónlist ereftir
Gunnar ReynirSveinsson, Leikend-
ureru: Margrét H. Jóhannsdóttir,
ValdimarÖrn Flygenring, Sigurður
Karlsson, Guðrún S. Gísladóttir,
Sigríður Hagalín og Þröstur Leó
Gunnarsson.
Síðar í janúar verður svo frum-
sýnt í nýrri leikskemmu LR í
vesturbænum i Reykjavík leikgerð
Kjartans Ragnarssonar á braggalífs-
skáldsögum Einars Kárasonar.
Heitir leikritið Þar sem djöflaeyjan
ris. Kjartan er jafnframt leikstjóri.
FERÐALÖG
Kópavogur:
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga
frístundahópsins Hana nú í Kópa-
vogi verður á morgun, laugardag .
Lagt verður af stað kl. 10.00 frá
Digranesvegi 12.
Sameinum heitt molakaffi, góðan
félagsskap og svolítil jólainnkaup.
Allir velkomnir. Verið hlýlega búin.
Markmið göngunnar: Samvera, súr-
efni hreyfing.
Ferðafélag íslands:
Vetrarsólstöðuferð
áEsju
A sunnudaginn kl 10:30 efnir
Ferðafélagið til vetrarsólstöðuferðar
á Esju - Kerhólakamb. Sólstöðuferð-
irá Esju um sumarsólhvörf og
vetrarsólhvörf eru fastur liður á
ferðaáætlun F.l’. Hækkun frá sjávar-
máli er rúmlega 800 m, svo að við
minnum þátttakendur á að hafa það
í huga, þegar búist er til ferðar.
Næsta dagsferð verður sunnu-
daginn 28. desember kl. 13.00, en
þá er gengið á Húsfelliö norður af
Helgafelli austan Hafnafjarðar.
Útivist, ferðafélag:
Skiðaganga og
gönguferð um vetr-
arsólstöður
Á sunnudaginn býður Útivist upp á
tvæ gönguferði um vetrarsólstöður
og hefjast þær báðar kl. 11.00 frá'
BSÍ, bensínsölu.
Annarsvegar er um að ræða
skíðagöngu á útilegumannaslóðir í
Engidal og Marardal. Þetta erauð-
veld skíðaganga og hentar vel
byrjendum sem öðrum. Hinsvegar
er gönguferð á Seljafjall og um
Lækjarbotna. Allir eru velkomnir í
ferðina og frítt er fyrir börn með
fullorðnum. Sjáumst.
Listver, Seltjarnarnesi:
Sýning Guðmundar Kristinssonar
hefur verið framlengd vegna mikillar
aðsóknar til sunnudagsins 21. des-
ember. Á sýningunni eru um 50
verk unnin á síðustu fimm árum,
olíuverk, vatnslitamyndirog pastel-
myndir.
Sýningin er opin kl. 15-20.
Gallerí Kirkjumunir:
Afmælissýning
Gallerí Kirkjumunir, Kirkjustræti
10, á 20 ára afmæli um þessar
mundir. i því tilefni er þar efnt til
sýningar á kirkjulegum hlutum og
einnig listmunum frá Asíulöndum
fjær. Opið er á verslunartíma. Sýn-
ingin mun standa fram yfir jól.
Alþýðubankinn
Blönduósi:
Þorlákur Kristinsson
sýnir
Þorlákur Kristinsson (Tolli) er með
sölusýningu á verkum sínum í útibúi
Alþýðubankans, Húnabraut 13,
Blönduósi. Sýningin stendur í nokkr-
ar vikur og er opin á sama tíma og
bankinn.
Djúpið, Reykjavík:
Vondar myndir frá
liðnu sumri
Ámánudaginn l.desemberopn-
aði ívar Brynjólfsson Ijósmyndasýn-
ingu í Djúpinu Hafnarstræti 15.
Sýningin kallast „Vondar myndir frá
liðnu sumri" og er hún opin daglega
á opnunartíma Hornsins. Henni lýk-
ur23.desember.
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur:
Jólasýningar
Jólasýningar Leikfélagsins eru á
stríðsöngleiknum sívinsæla Landi
mins föður eftir Kjartan Ragnarsson
og Veginum til Mekka eftir S-Afríska
höfundinn Athol Fugard.
Jólasýningin á Landi mins föður
er laugrdaginn 27. desember kl.
20:30. Þetta er 167. sýningin á
þessum söngleik og er stykkiö nú
Sýningin „Vondar
myndir frá liðnu
sumri” er Ijósmynda-
sýning f Djúpinu,
Hafnarstræti 15. Það
er ívar Brynjólfsson
sem stendur fyrir
þessari sýningu en
henni lýkur 23. des-
ember.
JOLAGJAFIR
SEM PRÝÐA HEIMILIÐ
ASPIRANT bókahillL
LACK þríhyrnt borð
EMI
MUNIÐ KAFFIHORNIÐ
Við bjóðum foreldrunum
kaffi og börnunum djús.
2.190 krónur
1.390 krónur
1.290 krónur
Opið:
I dag kl. 10-20
Laugardag kl. 10-22
Mánudag kl. 10-18:30
Þorláksmessu kl. 10-23
Aðfangadag kl. 9-12
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650