Tíminn - 01.10.1965, Page 5
FÖSTUDÍiVGUR 1. október 1965
Útgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastióri: Krist.ián Benediktsson Ritstiórar Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson Jón Helgason 02 Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug
lýsingastj.: Steingrimur Gíslason Ritstj.skrifstofur t PJddu
húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur. Bankastræti 7 Af
greiðslusími 12323 Auglýsingaslmi 19523 Aðrar sknfstofur
sími 18300. Askriftargjald kr 90.00 á mán tnnanlands — í
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.t
Hróplegasta misréttið
Mennt er máttur. Það er gamalt spakmæli, en gildi
þr s hefur þó aldrei veriS eins nýtt og mikið sem á
þ iiii árum, er nú eru að líða, og það gildi mun æ vaxa
mc.j árum. Mennt er máttur þjóðfélagsins og ekki síður
máttur hvers einstaklings. Undir menntum tækni og
visinda eru almenn lífskjör og framþróun komin, og
menntun er öðru fremur gæfugjafi í lífi hvers einstaks
þjóðfélagsborgara, Það er hlutverk þjóðfélagsins að veita
æskunni aðstöðu til mennta, og misræmi í því eftir
byggðum landsins er hróplegasta misrétti og hættuleg-
asta óréttlæti, sem þjóðfélagið getur beitt þegna sína.
Á síðustu árum hefur þetta misrétti stóraukizt bæði
fyrir tilverknað og fyrirhyggjuleysi stjórnarvalda og
meirihluta þeirra á Alþingi. í fjölmennum og blómleg-
um byggðum landsins verður myndarlegt og menntafúst
æskufólk að hverfa hundruðum saman frá dyrum yfir-
fullra héraðsskóla, af því að svikizt hefur verið um að
byggja nýja héraðsskóla í samræmi við fólksfjölgunina.
þetta fólk á ekki annars kost en hætta við skólavist í vet
ur eða reyna ef til vill að sækja langan veg í gagm
fræðaskóla einhvers kaupstaðar með margföldum kostn-
aði og fjarri heimili sínu. Þess vegna er t.d. Gagnfræða-
skóli Akureyrar yfirfullur í haust af fólki úr fjarlægum
byggðum. Fleiri eru hinir, sem heima sitja, og oft vérða
þetta úrslit um það, hvortgenginn e rskólavegur eða
ekki.
Hve miklu tapar þjóðin á þessu? Hve mi’klu tapar ein-
staklingurinn? Þeirri spurningu er ósvarað, en það tap
er meira en þjóðin þolir.
Talandi tákn um óhæfu og sinnuleysi Alþingis og
ríkisstjórnar 1 skólamálum síðustu ár, má nú sjá við
elzta héraðsskóla landsins, Laugar í S-Þingeyjarsýslu.
Á 40 ára afmæli skólans á þessu ári hverfa bónleiðir
frá dyrum hans jafn margir æskumenn og þar komast að
í vetur. Afmælis skólans minnist menntamálastjórn lands
ins með þeim hætti að stöðva eftir bráðabirgðalögum við-
bótarbyggingu við skólann, sem Alþingi hafði þó veitt
fé til á árinu. Nú eru heimamenn að reyna að byrja á
verkinu á haustdögum með því að lána ríkinu fé.
Á sama tíma og þetta gerist fella stjórnarflokkarnir
þing eftir þing tillögur Frasóknarmanna um nýja héraðs-
skóla. Misréttið er æðsta boðorð núverandi ríkisstjórn-
ar í menntamálum þjóðarinnar.
Hættulegasta vanræksla
Ungir Sjálfstæðismenn tíunda sem árangur „rann-
sóknar“ í menntamálum þjóðarinnar þá uggvænlegu stað
reynd, að aðeins 10% hvers árgangs æskufólks ljúki nú
stúdentsprófi ,á móts við 25% hjá nágrannaþjóðum.
Þetta er kunnur sannleikur en í honum felst þungur
áfellisdómur um menntamálastjórn landsins síðustu sex
árin. Þetta er vísitala hættulegustu vanrækslunnar, sem
nú á sér stað í þjóðfélaginu, vanrækslunnar við að
menntd æskufólk. Þrátt fyrir vitneskjuna um hina geysi-
fjölmennu árganga, sem eru að koma upp úr gagnfræða-
skólunum þessi missiri, hefur stjórnin vanrækt í sjö ár að
byggja nýja menntaskóla. Efling Háskólans hefur verið
vanrækt með sama hætti.
Það er því uggvænleg staðreynd, er blasir við þessa dag
ana ,er framhaldsskólar þjóðarinnar taka til starfa. Þar
eru rituð á veggi dómsorð um hróplegasta misréttið og
hættulegustu vanræksluna, sem nú á sér stað á íslandi.
TIMJNN
5
Grimond ákveðinn gegn íhaldinu
Frjálslyndi flokkurinn krefst róttækni í brezkum stjórnmálum
ÞÓTT Frjálslyndi flokkurinn
hafi um langt skeið haft lítið
þingfylgi, hefur oft verið rætt
um hann á síðari árum sem
áhrifamesta stjórnmálaflokk
Bretlands. Einkum á þetta þó
við tímabilið síðan Jo Grim-
ond varð formaður hans á
þingi. Grimond hefur á marg
an hátt markað flokknum nýja
róttæka stefnu og gert hann
þannig að andlegum forustu-
flokki, líkt og hann var á öld-
inni, sem leið, og fyrstu tveim-
ur áratugum þessarar aldar.
Grimond hefur skilgreint flokk
inn sem vinstri flokk, þótt hann
væri fráhverfur þjóðnýtingu,
enda er hún engin sérstök
vinstri stefna samkvæmt upp-
haflegri skilgreiningu þess
orðs.
Grimond hefur haldið þvi
fram, að enskt þjóðfélag væri
þrátt fyrir allar breytingar síð
ari tíma enn of ihaldssamt og
í of litlu samrænri við hinn
nýja heim. Skólarnir væru
ihaldssamir, atvinnurekendur
og verkalýðsfélög héldu fast
i ýmsar úreltar venjur, og þann
ig mætti lengi telja. Hin sanna
vinstri stefna væri fólgin i því
að breyta þessu og fylgjast með
þróuninni í heiminum, því að
Iannars hlyti Bretland að drag-_
ast aftur úr og væri þegar far-
ið að gera það. Þá yrði BreD
land að viðurkenna í verki þá
staðreynd, að það væri ekki
lengur heimsveldi og yrði að
haga sér samkvæmt því. Af
Þeim ástæðum hefur Frjáls
lyndi flokkurinn verið fylgj-
andi aðild að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, mótfallinn sér-
stökum kjarnorkuvopnavígbún
aði og viljað leggja niður her
stöðvar Breta utan Evrópu.
Þótt Frjálslyndi flokkurinn
hafi haft lítið bolmagn á
þingi til að koma fram stefnu
sinni, hafa áhrif hans verið
mikil samt. Ungt fólk, einkum
menntafólk, hefur fylgt sér í
vaxandi mæli undir merki hans
á síðari árum. Fylgi hans hef-
ur vaxið meðal miðstéttarinn-
ar, en það, sem mest hefur
haldið honum niðri, er kosn-
ingafyrirkomulagið, sem rúmar
illa, nema tvo stóra flokka. Auk
ið fylgi flokksins hefur hins
vegar haft þau áhrif á stóru
'lokkana. Verkamannaflokk-
inn og íhaldsflokkinn, að þeir
hafa tekið upp ýmis mál Frjáls
lynda flokksins og dregið úr
ýmsum kreddum sínum, í
þeirri von að geta þannig náð
,í fylgismenn hans. Af þessum
ástæðum hefur hann stundum
verið nefndur í seinni tíð
áhrifamesti flokkur Bretlands.
AF FRAMANGREINDUM
ástæðum er jafnan fylgzt af
mikilli athygli í Bretlandi með
hinum árlegu flokksþingum
Frjálslynda flokksins. Menn
eiga þar miklu fremur von
á einhverju nýju en hjá hinum
flokkunum. Alveg sérstök at-
hygli beindist að nýloknu árs-
þingi flokksins, sem haldið var
í seinustu viku. Ástæðan var
f sú, að hinir tíu þingmenn
Íflokksins geta haft það mjög i
hendi sér, hvort ríkisstjórn
GRIMOND
M ýrr> r? •» -•».
Verkamannáflökksiris heldur
velli til næsta vors eða ekki.
Þá hafði verið nokkurt umtal
um, að gerður yrði formlegur
samningur milli Frjálslynda
flokksins og Verkamannaflokks
ins, sem fæli það m. a. í sér,
að einhver breyting yrði gerð
á kosningafyrirkomulaginu til
hagsbóta fyrir Frjálslynda
flokkinn. Grimond hafði ympr-
að á þessu á síðastl vori, en
þó ekki borið fram neinar form
legar tillögur. Þá hafði gengið
orðrómur um, að nokkur átök
væru í þingflokki Frjálslynda
flokksins um afstöðuna til rík
isstjórnar Verkamannaflokks-
ins.
Flokksþingið markaði alveg
ákveðna afstöðu til þessara
mála og kom hún einna bezt
fram í lokaræðu Grimond á
Þinginu. Afstöðu flokksins má
einna bezt marka á fyrirsögn
enska íhaldsblaðsins Sunday
Telegraph: Frjálslyndir stefna
til vinstri. f ræðu sinni deildi
Grimond hart á íhaldsflokkinn
og sagði Breta ekki æs’kja
íhaldsstefnu. Hann sagði jafn-
framt, að Frjálslyndir vildu
ekki láta vinstri mönnum mis
heppnast í Bretlandi. Frjáls-
lyndir í Bretlandi hefðu það
út á stjóm Wilsons að setja,
að hún hefði verið of íhalds-
söm fram að þessu og lítið gert
til að framfylgja hinni róttæku
stefnu sinni. Frjálslyndir
myndu eftirleiðis sem hingað
til styðja stjórnina til allra
góðra mála, en þeir myndu
hins vegar snúast gegn sér-
kreddum, eins og þjóðnýtingu
stáliðnaðarins. Hann sagði
enga samninga vera milli
Frjálslynda flokksins og Verka
mannaflokksins og ekki einu
sinni verið bornar fram form
legar tillögur um það. Hins
vegar gaf Grimond ótvírætt í
skyn, að Wilson yrði fyrr en
síðar að velja á milli sjónar-
miða Frjálslynda flokksins og
þeirra liðsmanna sinna, er
stæðu lengst til vinstri. Ef
Wilson léti þá síðarnefndu
ráða stefnu sinni, myndi
Verkamannaflokkurinn ekki
verða fær um að hafa þá for-
ustu, sem Bretland krefðist.
Wilson yrði Því að losa sig
undan áhrifum þeirra.
Grimond deildi á ýmis atriði
í stefnu ríkisstjómar Verka-
mannafiokksins, m. a. að hún
virtist ætla að hafa áfram
mikinn brezkan herstyrk í
Asíu. Þá taldi hann viðhorf
hennar til Evrópu vera óljóst
og alla stefnu hennar í þeim
málum mjög reikandi.
EFTIR ÞETTA flokksþing
Frjálslynda flokksins þykir
ekki líklegt, að Frjálslyndi
flokkurinn muni fella stjórn
Verkamannaflokksins, nema
hún tefli þannig, að hann
verði tilneyddur til þess, t.
d. ef hún reynir að koma
fram þjóðnýtingu stáliðnaðar
ins -Heldur Þykir það ólíklegt,
þótt Wilson hafi talað nokkuð
borginmannlega á flokksþingi
Verkamannaflokksins, sem hef
ur staðið yfir undanfarna daga.
Athygli vakti það, að hann
minntist aðeins lauslega á
þjóðnýtingu stáliðnaðarins.
Það þykir og sýnt eftir þetta
þing Frjálslynda flokksins, að
ekki muni koma til neinna
beinna samninga milli hans og
Verkamannaflokksins að sinni.
En dyrunum hefur ekki verið
lokað. Eftir þetta flokksþing
stendur Frjálslyndi flokkurinn
en örugglegar á grandvelli
frjálslyndrar vinstri stefnu
en áður. Það mun hafa áhrif
á viðhorf beggja stóru flokk
anna. Þ.Þ.