Tíminn - 01.10.1965, Page 14
14
TIMBNN
FOSTUDAGUR 1. október 1965
BÆNDUR - BÆNDUR
GASCOIGNES
mjaltavélarnar íandskunnu aftur fyrirliggjandi.
CF9TS5QN
VATNSSTIG 3 SIMI 1-15-55
„REDVIG SONNE“
hleður til Reykjavíkur sem hér segir:
Gdynia 5—6/10
Kaupmannahöfn 8/10-
„STAVNES" hleður í Gautaborg 13.—15./10 til
Reykjavíkur. Nánari upplýsingar á skrlfstpfu vorri
HAFNARHUSINU REYKJAVIK
SIMNEFNI: HAFSKIP SIMI 21160
Eiginkona m|n,
Ingibjörg Guðmundsdóttir
frá Sæbóli, Ingjaldssandi
sem andaðist 22. september, verður jarðsungln frá Hallgrímsklrkju
laugardaginn 2. október klukkan 10,30
Athöfninni verður útvarpað. Blóm vinsamlega afbeðin. Þeim sem
vildu minnast hinnar látnu er bent á Félag fatlaðra og lamaðra.
Guðmundur Guðmundsson.
Alúðar þakkir fyri’r sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför,
Sverris Jónssonar
prentara.
Eiglnkona, börn og systkini.
Hjartkær eiginmaður mlnn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Vilhjálmsson
fv. framkvæmdastjórl,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, laugardaginn 2. október,
kl. 11.15. Athöfninni verður útvarpað.
Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu mlnnast hins
látna skal bent á minningargjafasjóð Landspítalans.
Kristín Thors Vilhjálmsson,
börn, barnabörn
og tengdabörn.
Alúðar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og
vlnáttu við andlát og jarðarför eiginmanns mjns, föður, tengda-
föður og afa,
Stefáns Friðleifssonar
Sigluflrðl,
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3
unni, ef Háskólinn ætti að
leggja fram fé til þeirra, þar
e3 hann hefði svo mörgu öðru
að sinna, svo sem byggingu
yfir læknadeildina og byggingu
yfir rannsóknarstofnunina".
VEITINGAHÚSIÐ
Framhald ai bls. 16.
un, og einnig mun fólk geta keypt
sér smárétti alls konar og smurt
brauð, til þess að taka með sér
út, eða þá til þess að borða stand-
andi fremst í húsakynnunum.
Stúlkurnar sex, sem ráðnar hafa
verið til Iceland Food Centre eru
nú á námskeiði, hjá Sigurði
Gröndal, þar sem þeim er leiðbeint
um framkomu og framreiðslustörf,
og einnig kennt að fara með enska
peninga.
Að Iceland Food Centre standa
fjórir aðilar, ríkið, sem á helm-
ing hlutafjárins, SÍS og Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins með
20% hvort og Loftleiðir með 10%.
EIDGOSIÐ
Framhald af bls. 16.
norðanverðan Hofsjökul og töldu
menn þar að Þarna væri um eld-
gos að ræða. Klu'kkan tuttúgu mín
útur yfir ellefu komu svo nýjar
tilkynningar frá Hveravöllum um
það, að þá sæjust bólstrar í stefnu
rétt sunnan við Sátu, sem er við
norðvestanverðan jökulinn. Væru
þeir líkastir hálfkúlu í laginu.
Þeir töldu að bólstrarnir hækkuðu
og lækkuðu með sama hætti og
gosmökkur gerir.
Eins og nærri má geta varð uppi
fótur og fit Þegar þetta spurðist
og dr. Sigurður Þórarinsson flaug
fyrri part dagsins með Birni Páls
syni norður yfir, en varð einskis
í var. Þá var skýjabakki yfir Sprengi
sandi, austurbrún Hofsjökuls og
hálendinu þar norður af, einmitt
á þeim slóðum sem Hveravalla-
menn töldu sig hafa séð bólstrana
í stefnu á.
Er nú talið nær fullvíst, að
þarna hafi verið um einkennilegar
skýjamyndanir að ræða, enda geta
ský og gosmökkur verið harla lík
að sjá úr mikilli fjarlægð, eins
og Reykvíkingar kannast við frá
Surtseyjargosinu. Á Hveravöllum
er nú almargt manna frá Veður-
stofunni við að ganga frá húsum
undir veturinn, svo þarna hafa
margir menn, sem vanir eru veð-
urathugunum látið glepjast. Talið
er sennilegt, að þarna hafi • verið
um að ræða skýjaklakka yfir norð-
austanverðum Hofsjökli, en vegna
sterkrar suðlægrar áttar hafi upp
streymi verið þar mikið og sagði
dr. Sigurður að skýjaklakkar rydd
ust þar upp og gæti verið erfitt
að átta síg á því úr fjarlægð hvort
þarna væri um að ræða ský eða
gosmökk.
Á ellefta tímanum í kvöld náðl
blaðið tali af Björgvin athugunar
manni á Hveravöllum. Hann kvað
menn þar uppfrá Þá komna á þá
skoðun, aö hér hefði verið um
skýjabólstra að ræða. Fyrst í
morgun virtust þeir vera beint í
austur, en síðdegis í dag þegar
þeir sáust aftur rétt undir rökk
ur virtust þeir norðar, og ekki
eins líkir gosmekki.
Til lei
nú þegar rúmgóð tveggja her
bergja kjallaraíbúð miðsvæðis
í Reykjavík. Fyrirframgreiðsla
að hálfu. Þeir. sem hug hefðu
á íbúðinni, legg* inn nafn sitt,
ásamt símaanimeri j afgreiðslu
Tímans i dag og filgreini stöðu,
aldur og annað er máli skiptir,
merkt „Alger reglusemi".
KM 32
BRflun
Hrærivélin
VERÐ INNAN VIÐ 4000 KR.
ÚRVAL AUKATÆKJA JAFNAN FYRIRLIGGJANDl.
BRAUN HRÆRIVÉLIN FÆST 1 RAFTÆKJA
VERZLUNUM f REYKJAVÍK OG VtÐA UM LAND.
BRAUN-UMBOÐIÐ
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF.. REYKJAVtK.
AUGLYSING
FRÁ IÐNNEMASAMBANDI ÍSLANDS:
Skrifstofa sambandsins verður framvegis opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.30—20.30,
sími 14410.
I. N. S. í.
SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR ER í DAG.
Innritað í Miðbæjarskólanum í dag kl. 4—7 og
8—9 síðdegis (gengið inn um norðurdyr.)
Innritunargjald, sem greiðist við innritun, er kr.
250.00 fyrir bóknámsflokka og kr. 400.00 fyrir
verknámsflokka.
Ekkert sérstakt kennslugjald fyrir veturinn.
Sérstök athygli skal vakin á flokkum í foreldra-
fræðslu, sálarfræði, bókmenntakynningu, leikhús-
kynningu, sænsku og ítölsku.
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Skólasetning verður laugardaginn 2. október kl.
4 e.h.
Nauðsynlegt er, að nemendur taki stundaskrá sína
með.
Skólastjóri.
ÞYKKTARHEFILL
Notaður þykktarhefill og afréttari, sambyggt, til
sölu.
HJÁLMAR ÞORSTEINSSON & CO HF.,
Klapparstíg 28, sími 11956.
VEGNA ÚTFARAR
Guðmundar Vilhjálmssonar, fv. framkvæmdastj.,
verða skrifstofur vorar lokaðar laugardaginn 2.
október. Ennfremur verða vöruafgreiðslur vorar
lokaðar frá kl. 9.30 sama dag.
H. F .ElMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.